Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1994, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1994, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1994 Menning Talin í hópi bestu hljómsveita Evrópu - Kristján Jóhannsson vildi láta segja öllum upp í hljómsveitinni Sinfóníuhljómsveit íslands fær hæstu mögulega einkunn, fimm stjörnur, hjá gagnrýnanda breska tónlistartimarits- ins BBC Music Magazine. „Sinfóníuhljómsveit íslands er al- veg einstök og þessi plata réttlætir, í mun ríkari mæli en fyrri plötur, trú Chandos-fyrirtækisins á hljómsveit- inni sem einni af bestu hijómsveitum Evrópu," segir Matthiew Rye, einn af gagnrýnendum hins virta breska tónlistartímarits BBC Music .Magaz- ine um geislaplötu Sinfóníuhljóm- sveitar íslands sem nefnist Alfven. Grein um geislaplötuna birtist í ný- útkomnu desemberhefti tímaritsins undir fyrirsögninni „Vekur meiri- háttar hrifningu - stórkostlegur ár- angur af fundi lítt þekkts sænsks tónskálds og lítt þekktrar íslenskrar hljómsveitar. Þar bætir gagnrýnand- inn um betur og gefur plötunni hæstu einkunn, fimm stjörnur, fyrir bæöi hljóðfæraleik (performance) og upptökuhljóm (sound). A umræddri geislaplötu er að finna verk eftir sænska tónskáldið Alfven; sænskar rapsódíur nr. 1-3, Sögur úr skerjagarðinum, opus 20 og harmljóð úr hljómsveitarsvítunni Gústaf Adolf konungur II. Hljómsveitar- stjórinn Petri Sakari sveiflar sprot- anum á þessum geisladiski og fær afar lofsamlega dóma. En sagan er ekki öll. í laugardags- blaði The Times birtist einnig afar lofsamleg umijöllun um sömu geisla- plötu. Barry Milington, einn tónlist- arskríbenta blaðsins, lýsir verkun- um á plötunni og sænska tónskáld- inu en lýkur grein sinni þannig: „Sin- fóníuhljómsveit íslands sem þama kemur fram, á sinni sjöundu geisla- plötu fyrir Chandos, undir stjórn Petri Sakari leikur öll verkin af auð- særri ástríðu og með ljómandi fáguð- um hljóm." í sjöunda himni „Þetta er alveg stórkostlegt fyrir hljómsveitina. Við erum sett á sömu mæhstiku og allar fínustu hljóm- sveitir í heimi. BBC Music Magazine er mjög vandaö og víðlesið tímarit og því stórkostlegt að standast sam- anburð og gott betur með hæstu mögulega einkunn. Mörg flnustu nöfnin í klassíkinni em ekki að fá nema 2-4 stjörnur í þessu tímariti. Þama era hlutlausir aðilar úti í heimi aö fjalla um leik hljómsveitar- innar. Við höfum yfirleitt fengið góöa dóma fyrir plöturnar okkar en þetta er toppurinn. Við erum öll í sjöunda himni,“ sagði Inga Rós Ingólfsdóttir, sellóleikari með Sinfóníuhljómsveit íslands, við DV. Viðbrögð við leik hljómsveitarinn- ar eru ekki síður merkfleg þegar umræðunnar sem varð í byrjun okt- óber er minnst. Þá lét Kristján Jó- hannsson óperusöngvari hafa það eftir sér í tímaritsviðtali að segja ætti öllum hljóðfæraleikurum Sinfó- níuhljómsveitarinnar upp og ráða erlenda hljóðfæraleikara í staðinn. Þessi orð Kristjáns vöktu mikla óánægju meðal aðstandenda Sinfó- níuhljómsveitarinnar en formaður starfsmannafélags hennar sagði í DV: „Mér finnst maðurinn dæma sig sjálfur með þesu ummælum - ekki sem söngvara heldur sem persónu.'j Formaður FÍH sagði í DV: „Ég lít svo á að Kristján viti ósköp lítið hvað hann er að tala um. . .Hljómsveitin hefur fengið frábæra dóma erlendis og hérlendis undanfarin ár. Maður- inn hefur ekki kynnt sér málið nægi- lega vel.“ Kristinn Helgason skrifar bókina Fár undir fjöllum: Hrottalegar ofsóknir gegn bláfátækri bændaalþýðu „Það var skrifað um þetta mál í DV fyrir um 10 árum og urðu hörð viðbrögð við þeim skrifum. Þessi skrif og sú staðreynd að máhð er mér skylt hvatti mig tfl frekari skrifa um þetta mál. Margir bændur voru dæmdir og lentu í vandræðum eins og farbanni í heOt ár. Þar á meðal var einn forfaðir minn. Þorvaldur á Þorvaldseyri var höfðingi hinn mesti fyrir 100 árum og Páll Briem var merkur maður aö mörgu leyti. En þegar PáU var sýslumaður í Rangár- vahasýslu var eins og eitthvað hefði farið úrskeiðis hjá honurn," segir Kristinn Helgason um bók sína, Fár undir fjöllum, sem komin er út hjá Fjölva. í bókinni segir Kristinn frá svoköU- uðu EyjafjaUamáh sem átti sér stað fyrir um 100 ámm. Segir að höfðingj- amir hafi þá byijað hrottalegar of- sóknir gegn bláfátækri bændaal- þýðu. Hafi látunum ekki hnnt í fjögur ár með yfirheyrslum, handtökum, varðhöldum, dómum, lögtökum og uppboðum sem flest munu hafa verið Kristinn Helgason. framin með hæpnum aðferðum og réttarbrotum gegn lítUmögnunum. Að lokum gerðu bændur uppreisn í kálgarðinum á Raufarfelh en mikið hefur verið fjallaö um hana. „Þetta byrjaði þannig að Páll sýslu- maður, sem þekkti Þorvald Bjama- son á Þorvaldseyri frá þingmennsku, kom austur og hafði aðsetur hjá Þor- valdi. PáU þekkti engan mann né aðstæður fyrir austan. Engar kæmr bárust á einn né neinn heldur mun Þorvaldur hafa gaukað því að Páli að sumir væm að stela úr fjörum. Upp úr þessu spannst heilmikið mál um fjöruþjófnað þar sem farið var að kalla menn fyrir. Margir bændur áttu þarna fjörurétt en enginn af þeim hafði kært neitt. Þetta mun allt hafa verið upp úr Þorvaldi og hrepp- stjóranum, Jóni Hjörleifssyni í Eystri-Skógum." Kristinn segir að einkennilega hafi veri farið með þá menn sem vom kallaðir fyrir. „Þeir voru lokaðir inni, sumir inni í hesthúsi, ef þeir sögðu ekki eins og sýslumaður ætlaðist til af þeim. Þá var tólf ára drengur tekinn til þess aö vitna gegn fóður sínum sem sak- aöur var um fjömþjófnað.“ Umræddar ofsóknir stóðu í ljögur ár. Seinna bárast margar kvartanir og vamarskjöl til amtmanns og eru þær flestar birtar í eftirmála bókar- innar. „Allir sem hafa rætt um þetta mál hafa farið á skjön við sannleikann þar sem talað hefur verið um máhö frá hlið sýslumannsins. Þessi kvört- unarbréf hafa aldrei birst áður. Þeg- ar sýslumaður er margspurður af amtinu um máhð segir hann að þetta sé allt uppspuni frá rótum og lygar. Upp úr sauð'þegar maður hafði fariö með átta bændur til Vestmannaeyja að afla matar. Þegar maðurinn kom aftur í sandinn undir Eyjafjöllum tók sýslumaður hann fastan og lokaði inni. Út frá þessu atviki urðu mikil læti sem flestir kannast við sem upp- reisnina og mest hefur verið talað um í sambandi við Eyjafjallamálið. En máhð er þó miklu umfangs- meira.“ í bókinn vitnar Kristinn til nokk- urra blaða sem gefin voru út á þess- um tima; ísafoldar, Þjóðólfs og Fjall- konunnar. Þá er myndskreyting nýstárleg en fólk hefur veriö teiknað inn á ljósmyndir í bókinni til að sýna betur hvað á að hafa gerst. Þjóðleikhúsið: Minningardag- skráumFróða Finnsson Sérstök skemmtidagskrá í minningu Fróða Finnssonar veröur haldin í Þjóðleikhúsinu á laugardag. Dagskráin er tileink- uð öllum krabbameinssjúkum börnum og rennur ágóðhm til Styrktarfélags krabbameins- sjúkra barna. „Fróði er einn þeirra mörgu barna og unghnga sem hafa þurft að beijast lengi við banvænan sjúkdóm og lúta í lægra haldi. Saga hans er dæmisaga um bar- áttuþrek og lífsvilja,“ segir i til- kynningu frá aðstandendum dag- skrárinnar. • Á dagskránni koraa fjölmargir listamenn fram, þar á meðal Kristján Jóhannsson, hljómsveit- in Nýdönsk, dansarar úr List- dansskóla íslands, hlómsveitin Kolrassa krókríðandi og fleiri. Persónur úr Gauragangi og Hilm- ir Snær Guðnason koma fram milli atriða en Hilmir Snær verð- ur fulltrúi Fróða og stiklar á stóru í sögu hans. Dagskráin er öllum opin meðan húsrúm leyfir en miðinn kostar 1000 krónur. Leikfélag Reykjavíkur: Æfingar á Kabarett Leikfélag Reykjavíkur hefur hafið æfingar á söngleiknum Kabarett en hann verður frum- sýndur í janúar. Veröur þetta stærsta sýning ársins í Borgar- leikhúsinu. Guöjón Pedersen set- ur sýninguna á svið en Grétar Reynisson hannar leikmynd og Elín Edda Ámadóttir búninga. Hljómsveitarstjóri verður Pétur Grétarsson. Karl Ágúst Úlfsson hefur þýtt tal og söngtexta verksins á nýjan leik. Ingvar E. Sigurðsson verður í hlutverki skemmtanastjórans en Edda Heiðrún Bachmann í hlutverky Sallyar Bowles. Barnasmá- sögurverð- launaðar Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, Arnheiður Borg og Steinunn Arnþrúður Bjömsdóttir hlutu verðlaun fyrir smásögur sínar í smásagnasamkeppni sem haldin var á vegum Barnabókaráðsins, íslandsdeildar IBBY. Var keppn- inn haldin í tilefni af ári fjölskyld- unnar. Fjórtán bestu sögurnar sem bárust í keppnina hafa verið gefnar út í bók sem nefnist Orma- guh. Frá afhendingu barnasmá- sagnaverðiaunanna. Verðlauna- hafarnir standa baka til. Málþingumiist Eitós Menningarmálanefnd Reykj- víkur boðar til málþings um hst Errós að Kjarvalsstöðum á laug- ardag. Þar verða flutt erindi um ólíka þætti i hst Errós. Franski gagnrýnandinn Alain Joufroy flytur erindi sem hann nefnir Erró hinn mikli en auk þess flytja þeír Hans-Joachim Neyer, for- stöðumaöur Wilhelm-Busch safnsins í Hannover, og hstfræð- ingarnir Aðalsteinn Ingólfsson og Gunnar Kvaran fyrirlestra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.