Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1994, Blaðsíða 24
32
FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1994
Svidsljós
Kirk kafteinn
kvaddurmeð
söknuði
ogtrega
„Það er með söknuði og trega
að ég kveð persónu sem ég hef
haft gaman af að leika," sagði
bandaríski kvikmyndaleikarinn
William Shatner nýlega. Þar var
haxm að sjálfsögðu að tala um
James Tiberius Kirk, kaftein úr
Star Trek kvikmyndunum og
sjónvarpsþáttunum sem Shatner
hefur leikið undanfarin 28 ár.
Síðasta Star Trek myndin sem
Shatner leikur í var frumsýnd
fyrir stuttu við alveg glimrandi
móttökur áhorfenda. Nú eru það
hins vegar nýir menn sem taka
við stjórninni á geimskipinu Ent-
erprise sem Shatner og félagar
hafa siglt á um himingeiminn.
Þegar Shatner tók að sér hlut-
verk Kirks árið 1966 var Lucille
Ball, gamanleikkonan fræga, yf-
irmaður hans, Lyndon B. John-
son var í Hvíta húsinu, Víetnam-
stríðið var í fullum gangi og LSD
var á góðri leið með aö verða á
hvers manns vörum.
fyrirmyndar
Bandaríska poppsöngkonan
Wlntney Houston var þeirri
stund fegnust þegar hún lauk
tónleikaferð sinni i Suður-Afríku
á dögunum. Þarlendum fjölmiðl-
um virtist nefnilega vera mjög
uppsigaö við söngkonuna og létu
hana svo sannarlega finna fyrir
því.
Blöð og sjónvarp sögðu hana
hafa hagað sér illa á hótelínu þar
sem hún dvaldi og hafa neitað að
svara spurningum fréttamanna.
Hótelstjórimi var hins vegar á
öðru máli og sagði Whitney fyrir-
myndargest
Spænski nautabaninn Jesulin de Ubrique glímir fimlega við mannýg nautin eins og sjá má. Jesulin er aðeins
tvítugur að aldri, ættaður úr Andalúsiu, og þykir með efnilegri nautabönum. Á vertíðinni í sumar barðist hann
við hvorki meira né minna en 153 tudda en það er 32 fleiri en sá frægi El Cordobes gerði árið 1970. Svo er það
bara spurningin hvað kappinn gerir á næsta ári. Simamynd Reuter
Smá
\ I H
mm a
MmitMssjmmmÁ
Á mánudögum verður DV komið í hendur áskrifenda á suðvestur-
hominu um klukkan 7.00 að morgni og aðrir áskrifendur fá
blaðið í hendur með fyrstu ferðum frá Reykjavík út á land.
Helgarblað DV berst einnig til áskrifenda á sama tíma á laugardögum.
BREYTTUR AFGREIÐSLUTIMI:
Blaöaafgreiösla og áskrift: Smáauglýsingar:
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokað
Mánudaga: 6-20
Þriðjudaga - föstudaga: 9-20
Helgarvakt ritstjórnar:
Sunnudaga 16-23
Laugardaga: 9-14
Sunnudaga: 16-22
Mánudaga - föstudaga: 9-22
Ath.: Smáauglýsing íhelgar-
blað verður að berast fyrir
klukkan 17 á fóstudag.
63*27*00
BEINN SIMI BLAÐA-
AFGREIÐSLU:
63 27 77
KL. 6-8 LAUGARDAGS- OG
MÁNUDAGSMORGNA
Gamlar upptökur Bítlanna á geisladiskum:
Sýna hversu
góðir þeir voru
á hljómleikum
- segir gamli upptökustjórinn þeirra, George Martin
„Þessar upptökur sýna hversu
góðir þeir voru á hljómleikum áður
en við fórum að beita öllum þessum
hljóðblöndunarbrellum,“ sagði Ge-
orge Martin, fyrrum upptökustjóri
Bítlanna, um nýtt tvöfalt geisladiska-
albúm með fjórmenningunum frá
Liverpool sem kemur í verslanir inn-
an skamms.
Albúmið heitir: Bítlamir á tónleik-
um hjá BBC og eins og nafn þess
gefur til kynna er þar að finna lög
sem voru tekin upp hjá og flutt í
breska útvarpinu BBC. Upptökumar
fundust í skjalasafni BBC þegar verið
var að leita að efni fyrir heimildar-
mynd um kappana.
„Þetta var eins og að finna gröf
Tútankhamens faraóa," sagði Kevin
Howlett, þáttagerðarmaður hjá BBC.
AIls eru fimmtíu og sex lög á geisla-
diskunum tveimur og hefur George
Martin endurblandað þau með nýj-
ustu græjum. Lögin eru flest gömul
klassísk rokklög frá því áður en Bítl-
amir fóm aö halda tónleika í heima-
bænum og í Hamborg en þó má finna
þar þeirra eigin lög eins og „A Hard
Day’s Night“, „Can’t Buy Me Love“
og „Ticket To Ride“.
Bítlavinir hafa því fulla ástæðu til
aö kætast fyrir þessi jól.
bili. Með þeim á myndinni er George Martin upptökustjóri.
Tom Amold í hnapphelduna
Skemmtikrafturinn og leikarinn
Tom Amold, fyrrverandi eiginmað-
ur leikkonunnar Roseanne úr sam-
nefndum þáttum, hefur tekið saman
við hina 21 árs gömlu Júlíu en hún
er háskólanemi. Tom er 35 ára gam-
all. Formlegur skilnaður hans og
Roseanne verður í næstu viku og
segist Tom ætla að giftast Júlíu í júlí
á næsta ári. Hann gaf henni rándýr-
an trúlofunarhring fyrir skemmstu.
„Það var mikil blessun að Júlía
skyldi koma inn í líf mitt. Mér líkar
vel að vera giftur. Ég vil dveljast sem
mest með þeirri sem ég elska," sagði
kappinn í yfirlýsingu nýlega.
Roseanne er heldur ekki aðgerða-
laus í ástarmálunum en hún hefur
lýst því yfir að hún hyggist giftast
Tom Arnold hyggst giftast táningn-
um Júlíu á næsta ári og Roseanne
ætlar að giftast lífverði sínum.
lífverði sínum en sá heitir Ben
Thomas. Eins og kunnugt er lét Rose-
anne á sínum tíma tattóvera á líkama
sinn að hún væri eign Tom Amolds.
Ekki er vitað hvort búið er að fjar-
lægja húðflúrið.
Van Damme
að skilja
Darcy Van Verenberg, eigin-
kona leikarans og hörkutólsins
Jean Claude Van Damme, hefur
farið fram á skilnað við kappann
og fer að sjálfsögöu fram á að fá
helming eigna hans. Darcy er
fjórða eiginkona Van Damme en
þau höfðu aðeins verið gift í niu
mánuði. Hún vill meðal annars
halda öllum þeim skartgripum
og gimsteinum sem vöðvabúntið
gaf henni á meðan hjónabandið
entist en það mun ekki hafa verið
neitt smáræði. Hún vill líka halda
eftir Harley Davidsson mótor-
hjóli og BMW bifreið sem Van
Damme gaf henni.
Rolling Stones
Gömlu brýnin í Rolling Stones
eru á leiöinni í hljómleikaferða-
lag um Ástralíu í mars og april á
næsta ári en síðast komu þeir
þangað fyrir 21 ári.
Rollingamir eru nú að klára
hljómleikaferð sina um Banda-
ríkin en hún hófst í Washington
l. ágúst síðastliðinn. Þeir áætla
líka að spila í Suður-Ameríku,
Evrópu og Asíu.
Jessicu Tandy, sem margir
muna eftir sem gömlu konuna í
myndinni Driving Miss Daisy,
var minnst sem þjóðargersemis á
minningarhátíð á Broadway nú i
vikunni. Tandy, sem lést nýlega,
átti langan leikferil að baki og
margar kvikmyndastjömur
Hollywood komu fram á dag-
skránni Meðal áhorfenda var
auk þess fólk eins Paul Newman,
Joanne Woodward og Glenn
Close.