Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1995, Blaðsíða 2
2
FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 1995
Fréttir
Börn og menn sluppu er olíuflutningabill skall á kyrrstæðan bíl:
Bfllinn kom fljúgandi og
skall á jeppanum mínum
- segir Jóhann Geirsson og telur Guðs lán hafa verið yfir mönnum og bömum
Tvö börn og ökumenn fólksbíls og
jeppa sluppu ómeidd þegar olíuflutn-
ingabíll ók aftan á fólksbíl í djúpum
snjógöngum á Steingrímstjarðar-
heiði í fyrradag. Fólksbíllinn hafði
lent í minni háttar árekstri við jepp-
ann í göngunum og voru báðir bíl-
arnir kyrrstæðir og nær óskemmdir
þegar olíuflutningabíllinn kom aðvíf-
andi og skall aftan á fólksbílnum.
Mjög blint, skafrenningur og snjó-
koma var þegar slysið varð.
„Miðað við aðstæður var þetta
meiri háttar lán. Veðrið var mjög
slæmt og skemmdirnar óverulegar
eftir að við höfðum lent saman í fyrra
skiptið. Þess vegna nennti ég ekki
út að kanna þær heldur ákváðum viö
að hta á þær seinna þegar við hitt-
umst. Við vorum að talast við gegn-
um gluggann á mínum bíl þegar við
sáum allt í einu fólksbílinn koma
tljúgandi og síðan skall hann á jepp-
anum minum. Hefðum viö farið út
að kanna skemmdirnar þá hefði
þetta orðiö ljótt. Við hefðum þá verið
á milli bílanna að kanna skemmdim-
ar en það hefur eitthvert Guðs lán
verið yfir manni,“ segir Jóhann
Geirsson, ökumaöur jeppans á Stein-
grímsfjarðarheiöi í fyrradag.
Tvö böm vom í aftursæti fólksbils-
ins, sem er mikiö skemmdur. Aftur-
hluti hans klesstist fram að aftur-
hjólum og einnig kýldist hann inn
að framan við að lenda á jeppanum
í annað skiptið. Börnin sluppu hins
vegar ómeidd en að sögn Höskuldar
Erlingssonar, lögregluvarðstjóra á
Hólmavík, voru þau í bílbeltum. Seg-
ir hann „Guðs mildi“ að ekki skyldi
hafa farið verr miðað við aðstæður á
slysstað og útlit fólksbílsins sem þó
var enn ökufær eða rétt svo.
-PP
Síldarsmugan:
Fékk risakast
ogsprengdi
„Við köstuðum í dag og fengum 200
tonn. Það er mikið af síld hérna en
hún stendur bara svo djúpt. Við er-
um að leita núna,“ sagði Helgi Jó-
hannsson, skipstjóri á Júpiter ÞH, í
samtali við DV í gærkvöldi þar sem
hann var staddur í Síldarsmugunni.
Auk Júpiters eru á sömu slóðum
þrjú skip, Guðrún Þorkelsdóttir,
Sunnuberg og Kap.
Að sögn Emils Thorarensens, út-
gerðarstjóra hjá Hraöfrystihúsi
Eskifjarðar, fékk skip hans, Guðrún
Þorkelsdóttir, risakast og sprengdi
nótina. Emil segir að kastið hafi ver-
ið allt að þúsund tonn. Síldin sem
þama fæst er stór og laus við átu.
Samkvæmt heimildum frá Noregi
eru írsk, hollensk og dönsk skip við
veiðar í Síldarsmugunni líka en þau
eru ekki á sömu slóðum og íslensku
skipin.
Óslóarfundur um norsk-íslenska síldarstofninn:
Þjóðirnar sammála um
nauðsyn stjórnunar
- ekkert rætt um skiptingu stofnsins
„Það er ljóst að þessar þjóöir eru
sammála um að það verði að koma
á stjórnunarfyrirkomulagi sem
tryggi vernd og viðgang síldarstofns-
ins og komi þar með í veg fyrir rán-
yrkju. Þær fjórar þjóöir, sem hér sitja
við samningaborð, bera höfuðábyrgð
á þessum stofni og að það verði ekki
stundaðar skefjalausar veiðar úr
honum," segir Helgi Ágústson, for-
maður íslensku sendinefndarinnar í
Ósló sem fundar með Rússum, Norð-
mönnum og Færeyingum um norsk-
íslenska síldarstofninn.
Embættismannanefndirnar fund-
uðu í gær um síldina og halda áfram
að funda í dag. Helgi segir að á fund-
inum í gær hafi ekkert veriö fjallað
um skiptingu stofnsins heldur ein-
göngu um það hvernig koma mætti
á nefnd vísindamanna til að taka út
stofninn og hvernig hann hegðar sér.
„Við höfum ástæðu til að fagna því
að þessir fundir eru haldnir. Við
höfum í mjög langan tíma óskað eftir
því að viðræður færu fram um
stjómunarfyrirkomulag og veiðar á
síld. Það er á elleftu stundu sem þess-
ar þjóðir setjast til borðs saman til
að ræða þessi mál,“ segir Helgi.
Fundir sendinefndanna hófust á
ný í morgun og er reiknað með að
þeim ljúki síödegis í dag.
Skuldir heimilanna:
Gríðarleg aukning á 14 árum
Talið er að skuldir heimilanna
gagnvart lánakeríi hafi vaxiö úr 36
milljörðum króna í árslok 1968 í 293
milljarða í árslok 1994, miðað viö
verðlag um síðustu áramót. Þetta
kemur fram í nýjasta hefti Hagtalna
mánaöarins hjá Seðlabankanum.
Sem hlutfall af ráðstöfunartekjum
hafa skuldir heimilanna aukist gríð-
arlega. Árið 1980 voru þær 24,1 pró-
sent af ráðstöfunartekjum en hlut-
fallið á síðasta ári fór í 136,4 prósent.
Sem hlutfall af eignum námu skuld-
irnar 40 prósentum á síðasta ári en
námu 11 prósentum fyrir 14 árum.
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringja í síma 99-16-00.
39,90 kr. mínútan.
Já _lj
Nei _2j
r ö d d
FÓLKSINS
99-16-00
Á að leyfa sölu áfengs bjórs á
HM í Laugardagshöll?
Allir í stafræna kerflnu met tónvalssíma geta nýtt sér þessa þjénustu.
Gamla Ráðsmannshúsið á Bessastöðum hefur nú verið rifið og á grunni þess mun rísa nýtt iðúðarhús fyrir for-
seta íslands. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum Ijúki vorið 1996. Kostnaðurinn er áætlaður 74 milljónir krónur.
DV-mynd BG
Norðurá í Borgarfirði:
32 milljóna
tilboð
- vilja leigja ána til fimm ára
Skjálfti fór um stangaveiðiheiminn
í gærdag eftir að Pétur Pétursson,
kaupmaður í Kjötbúri Péturs, og
fleiri gerðu tilboð í Norðurá í Borgar-
firði sem markar ákveðin tímamót.
Félögum í veiðifélagi Norðurár var
afhent tilboðið og mættu þeir Pétur
Petursson og Ingólfur Ásgeirsson
með það. Tilboðið hljóðar upp á 32
milljónir og vdlja þeir félagar leigja
ána til fimm ára. Líka vilja þeir
byggja veiðihús á svæði tvö og munu
bændur eiga húsið eftir fimm ár.
„Það er rétt aö vdð höfum afhent
þetta tilboö í Norðurá en vdð erum
að tala um sumarið 19% og svo til
ársins 2000,“ sagði Pétur Pétursson í
samtali vdð DV í nótt.
„Við ætlum aö selja veiðileyfi á allt
öðrum markaði en áin hefur verið
seld á erlendis og auðvitað á innlenda
markaönum. Við erum búnir að
reikna fram og til baka og erum
bjartsýnir að þetta gangi upp,“ sagði
Pétur enn fremur.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur leig-
ir Norðurá í sumar og hefur gengið
vel að selja í ána. En þeir Stanga-
veiðifélagsmenn borga kringum 26
milljónir fyrir ána með öllu.
Veiðileyfamarkaöurinn er engin
• Pétur Pétursson, kaupmaður i
Kjötbúri Péturs, hefur gert tilboð í
Norðurá í Borgarfirði frá og með
sumrinu 1996 til árins 2000. Ef tilboð-
inu verður tekið gefur það landeig-
endum viö Norðurá um 160 milljónir.
DV-mynd G.Bender
gullkista þessa dagana og hefur.sala
gengið illa í margar stórar veiðiár.
Leigan lækkaði fyrir skömmu um
milljón í Víðidalsá og fundur var
haldinn í veiðifélagi Vatnsdalsár ný-
lega.
Stuttar fréttir
Bjórverólækkar
Bjór lækkar í veröi um mánaða-
mótin hjá ÁTVR. Ástæðan er nið-
urfelling á 35% tolli sem braut í
bága við EES-samningínn. Mbl.
greindi frá þessu.
Rannsóknarkrafisi
Bæjarráð Bolungarvikur hefur
krafist opinberrar rannsóknar á
meintri fjölfóldun á undirskrift
bæjarstjórans undir heimildir til
flutnings á aflamarki milli ver-
stööva. RÚV greindi frá.
Innheimtustofnun sveitarfé-
laga á 4.150 milijónir í meðlags-
kröfur. Um 5.900 feöur skulda
raeðlög með um 32 þúsund böm-
um. Tíminn greindi frá þessu.
Krianerkomin
Krían kom til landsins í gær.
Til hennar sást í Hornafirði. Skv.
RÚV mun hún næstu dagana
fljúga vestur með landinu.
Skuldirsjöfaldast
Skuldir heimilanna hafa sjö-
faldast á undanfómum 25 árum,
eða úr 36 milljörðum í 293 millj-
aröa. Meirihluti skuldanna, eöa
162 milljaröar, er vdð Bygginga-
sjóð ríkisins. Mbl. greindi frá.
Flugfreyjur samþykktu
Flugfreyjur samþykktu á fé-
lagsfundi i gærkvöldi nýgeröan
Kjarasamning við Flugleiðir. 107
greiddu atkvæði með samningn-
umen20ámótL -kaa