Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1995, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1995, Blaðsíða 6
ngar 42 FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1995 Sýningar Ásmundarsafn Sigtúni Þar stendur yfir sýning sem ber yfirskriftina „Stíllinn í list Ás- mundar Sveinssonar". Sýningin er opin kl. 10-16 fram á haust. Gallerí Art-Hún Stangarhyl 7, Rvik Þar stendur yfir sýning á verkum Erlu Axelsdóttur, Helgu Ár- mannsdóttur, Elínborgar Guð- mundsdóttur, Sigrúnar Gunnars- dóttur og Margrétar Salome. Galleríið er opið alla virka daga kl. 12-18. Gallerí Fold Laugavegi118d Þar stendur yfir sýning á olíuverk- um Dóslu - Hjördísar G. Bergs- dóttur. Jafnframt er kynning á verkum Soffíu Sæmundsdóttur og Arnar Inga Gíslasonar. Sýn- ingarnar standa til 25. júní og er Galleríið opið daglega kl. 10-18 nema sunnudaga kl. 14-18. Gallerí Greip i dag kl. 18 opnar Þorri Hringsson sína 9. einkasýningu. Á sýning- unni verða olíumálverk og teikn- ingar frá árunum 1990, 1991 og 1995. Sýningin er opin daglega kl. 14-18 nema mánudaga og stendur til sunnudagsins 2. júlí. Gallerí Guðmundar Ananaustum 15, sími 21425 Galleríið er opið virka daga kl. 10-18. Gallerí List Skipholti 50b Galleríið er opið alla daga kl. 11-18 nema laugardaga kl. 11-14. Sýningar í gluggum á hverju kvöldi. Gallerí Stöðlakot Bókhlöðustíg 6 Soffía Sæmundsdóttir hefur opn- að sýningu sem hún nefnir Álfa- hallir-englabyggð. Ásýningunni eru handþrykktar tréristur. Opið alla daga nema mánudaga kl. 14—18 til 20. júní. Galleri Sólon íslandus Myriam Bat-Yosef sýnir verk sín. Sýningin stendur til 25. júní. Gallerí Sævars Karls Bankastræti 9 Þóra Sigurðardóttir sýnir. Verkin á sýningunni er unnin með blý- anti, bleki og krít á striga og eru öll frá síðasta ári. Sýningin er opin á verslunartíma frá kl. 10-18. Gerðarsafn Kópavogi Grímur Marinó Steindórsson^ýn- ir skúlptúra og veggmyndir. Sýn- ingin stendur til 18. júní. Hafnarborg Sýningin Stefnumót trúar og list- ar „Andinn" er samsýning 31 listamanns. Sýningin stendur til 26. júní. Kaffi Mílanó Faxafeni 11 Kolfinna Ketilsdóttir sýnir postul- ínsmyndir, aðallega landslags- myndir. Kjarvalsstaðir Á morgun kl. 16 verður sumar- sýning Kjarvalsstaða, Islensk myndlist, opnuð. Þetta er yfirlits- sýning á ístlenskri tuttugustu ald- ar myndlist úr eigu Listasafns Reykjavíkur. Sýningin verður op- in daglega kl. 10-18 til 10. sept- ember. Kaffistofa Kjarvalsstaða opin á sama tíma. Listasafn Einars Jónssonar Njarðargötu, sími 13797 Safnið er opið laugardaga og sunnudaga kl. 13.30-16. Högg- myndagarðurinn er opinn alla daga. Inngangur er frá Freyju- götu. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Laugarnestanga Sýning á völdum andlitsmyndum Iistadagar á Laugarvatni: Komdu og skoðaðu tuna Gullkistan - listadágar á Laugar- vatni er nafn á mikilli listahátíö sem hefst á morgun, 17. júní. Forsprakkar hátíðarinnar eru myndlistarmenn- irnir Alda Siguröardóttir og Krist- veig Halldórsdóttir. Helstan af at- buröum listadaganna má nefna sýn- ingu 104 listamanna á verkum sínum í Héraðsskólanum, Menntaskólan- um, Húsmæöraskólanum, veitinga- húsinu Lindinni og í umhverfi Laug- arvatns. Kristveig Halldórsdóttir með son sinn, Daníel, ásamt Öldu Sigurðardóttur en þær eru forsprakkar Gullkistunnar á Laugarvatni. DV-mynd Kristján Einarsson Setning listadaga Kl. 13.30 á þjóðhátíðardaginn verð- ur lagt af stað í skrúðgöngu frá Barnaskólanum og listadagarnir verða settir. Farið verður í leiki, kvenfélagið selur kaffi og listamenn flytja tónlist og fremja gjörninga. Á sunnudag verða barnaleikrit sýnd í íþróttasal Héraðsskólans. Kl. 13 verður barnaleikriðið Komum, finnum fjársjóð sýnt og kl. 17. leikrit- ið Góðan daginn, litla svín. Síðari listadagar Síðari listadaga fara fram sólstöðu- tónleikar með dúettnum Súkkati, farið verður í fjallgöngu á Gullkistu, haldin verður sérstök ljóðadagskrá, Strokkvartettinn heldur tónleika, leikritið Sápa 2; Sex við sama borð verður sýnt og einnig barnaleikritið Ástarsaga úr fjöllunum. Einnig verð- •ur svokallað Laxnessherbergi opið í Héraðsskólanum en Halldór Laxness sat oft viö skriftir í skólanum. Lista- dagarnir standa til 2. júlí. Sumarsýning Kjarvalsstaöa: íslensk myndlist - borgarlistamaöur útnefndur Sumarsýning Kjarvalsstaða, Is- lensk myndlist, verður formlega opnuð á þjóðhátíðardaginn kx. 16. Er hún yfirlitssýning á íslenskri myndl- ist frá þessari öld og verður haldin í öllum salarkynnum Kjarvalsstaða. Að sögn starfsmanns Listasafnsins er sýningin gleðitíðindi fyrir íslenska ferðaþjónustu því hún er mjög áhugaverð fyrir ferðamenn. Á sýn- ingunni verða olíumálverk, grafik, textílverk, leirlist og verk unnin með blandaðri tækni eftir mikinn fjölda íslenskra listamanna. 17. júní mun einnig borgarlista- maður verða útnefndur á Kjarvals- stöðum og honum veitt viðurkenn- Norræna húsið: Island i dag Island i dag verður á dagskrá Nor- ræna hússins alla sunnudaga í sum- ar kl. 17.30. Er það fyrirlestur um íslenskt samfélag fluttur á einhveiju Norðurlandamálinu. Næsta sunnu- dag mun Einar Kari Haraldsson halda fyrirlestur á sænsku. í sumar verður kynning á Norræna húsinu og norrænu samstarfi alla mánudaga kl. 17.30 og íslenskt kvik- myndakvöld verður kl. 19 á mánu- dögum. Opið hús verður alla fimmtu- daga kl. 20. Nú standa vfir tvær sýningar í Norræna húsinu, Norrænir brunnar, sem er umhverfislistasýning, og sýn- ing er tengist ferð sænska lista- mannsins Alberts Engströms til ís- lands 1911. Björg Tveten Stjemstad Verk eftir norsku myndlistarkon- una Björgu Tveten Stjernstad verða sýnd í MIR-salnum næstu daga. Sýn- ingin verður opnuð í kvöld kl. 18. Á sýningunni verða um 50 myndir, all- ar unnar á síðustu misserum. Björg sýndi verk sín fyrst opinberlega árið 1995 en síðan þá hefur hún haldiö á þriðja tug einkasýningi, auk þess sem hún hefur átt verk á fjölda sam- sýninga. Sýningin verður opin til 25. júní, á virkum dögum kl. 16 til 19 en um helgar kl. 14 til 19. Eitt verkanna á sýningunni. DV-mynd SIS ing. Formaður menningarmála- nefndar veitir verðlaunin. Minjasafnið á Akureyri Minjasafnið á Akureyri, Aðalstræti 58, er opið 17. júní frá kl. 11 til 17 sem aðra daga. í safninu stendur yfir sýning á verðlaunagripum úr minjagripasam- keppni Handverks og er þetta næst- síöasta sýningarhelgi. Sýningin hef- ur farið víða um land. Aðgangeyrir er 250 kr. en ókeypis er fyrir börn að 16 ára aldri og eldri borgara. Málverkasýning í Þrastarlundi Agatha Kristjánsdóttir hefur opnað málverkasýningu í Þrastarlundi sem stendur til 25. júní. Agatha hefur afl- að sér þekkingar meö sjálfsnámi og sótt ýmis námskeið. Þetta er þrett- ánda einkasýning Agöthu. Allar myndirnar eru unnar með olíu á mesonit í Þrastarlundi í ár. Einkasýning: Þorri Hringsson Þorri Hringsson opnar níundu einkasýningu sína í Gallerí Greip í dag kl. 18. Á sýningunni verða olíu- málverk og teikningar. Þorri hefur haldið einkasýningar í Reykjavík og Amsterdam og tekið þátt í fjölda sam- sýninga. Sýningin er opin frá kl 14. til 18 alla daga nema mánudaga og stendur til 2. júlí. Ásmundarsafn: Listaverkabók Ásmundarsafn hefur gefið út vand- aða listaverkabók um list Ásmundar Sveinssonar. Bókin er jafnframt sýn- ingarskrá sýningarinnar Stíllinn í list Ásmundar Sveinssonar. í þessari bók er ætlunin aö gefa yfirlit yfir ólíkar myndgerðir í list Ásmundar og draga fram þau sérkenni sem ein- kenna list hans. Nýr salur Kjartan Guðjónsson grafiklista- maður sýnir á fyrstu sýningunni i nýjum sal íslenska grafíkverkstæðis- ins, Tryggvagötu 15. Kjartan er einn af stofnendum félagsins íslensk graf- ík. Sýnir hann eldri grafíklistaverk á sýningunni sem er hluti af 50 ára afmælishátíð Norræna myndlistar- bandalagsins. Sýningin stendur til 30. júní og er opin kl. 14 til 18 alla daga nema mánudaga. Heilagur andi Myndlistarsýningu Þóru Þórisdótt- ur lýkur á sunnudag. Á sýningunni eru innsetningar og málverk. Tákn- myndir eru fengnar úr biblíunni. Sýningin er í listhúsinu Við hamar- inn, Strandgötu 50, Hafnarfirði. Varmahlíð: Ljósmyndir Sigríður Soffia ljósmyndari opnar sýningu á Polaroid Transfer ljós- myndum í galleríinu Lundi, Varma- hlíð, Skagafirði, á sunnudag kl. 17. Opið verður alla daga frá kl. 9 til 18. Sýningin stendur til 16. júlí. Sýning í Eden Jóhanna Hákonardóttir heldur myndlistarsýningu í Eden, Hvera- gerði, sem lýkur nú á sunnudag. Á sýningunni eru bæði olíumálverk og vatnslitamyndir frá þremur síðustu árum til sýnis. Berglind Ýr Myndlistarsýning er í útibúi Spari- sjóðs Reykjavíkur og nágrennis að Alfabakka 14. Þar eru sýnd verk Berglindar Ýrar Sigurðardóttur. Sýningar eftir Sigurjón Ólafsson, „Þessir kollóttu steinar". Verðlauna- myndband með sama heiti einnig til sýnis. Listhúsið i Laugardal Engjateigi 17, sími 680430 Þar stendur yfir myndlistarsýning á verkum eftir Sjofn Har. Sýning- in ber yfirskriftina „Islensk nátt- úra, íslenskt landslag". Sýningin er opin virka daga kl. 13-18 og laugardaga kl. 11-16. MÍR-salurinn Vatnsstíg 10 Sýning á verkum eftir norsku myndlistarkonuna Björg Tveten Stjernstad verður opnuð í dag kl. 18. Á sýningunni eru um 50 myndir, stórar og smáar, allar unnar á síúustu mánuðum eða misserum. Sýningin stendur til 25. júní og er opin á virkum dög- um kl. 16-19 en um helgar kl. 14- 19. Nesstofusafn Neströð, Seltjarnarnesi Safnið opið á sunnudögum, þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum kl. 13-17. Póst- og símaminjasafnið Austurgötu 11, Hafnarf., simi 54321 Opið sunnud. og þriðjud. kl. 15- 18. Saf n Ásgríms Jónssonar Bergstaðastræti 74 Vormenn í íslenskri myndlist nefnist sýning á verkum eftir Ás- grím Jónsson og nokkra samtíð- armenn hans. Sýningin stendur til 31. ágúst og er opin alla daga nema mánudaga kl. 13.30-16. SPRON Álfabakka 14 Þar eru til sýnis verk Berglindar Ýrar Sigurðardóttur. Sýningin stendur til 29. september og er opin frá mánudegi til föstudags kl. 9.15-16. StofnunÁrna Magnússonar Árnagarði við Suðurgötu Handritasýning opin kl. 14-16 alla daga nema sunnudaga fram, til 1. september. Við hamarinn Strandgötu 50, Hafnarfirði Myndlistarsýningu Þóru Þóris- dóttur „Heilagur andi" lýkur sunnudaginn 18. júní. Á sýning- unni eru innsetningar og málverk. Önnurhæð Laugavegi 37 Opnuð hefur verið sýning á verk- um Jan Voss, Henriétte van Egt- en, Andrea Tippel og Tomas Schmit. Til sýnis eru teikningar, munir og bækur gerðar af lista- mönnunum. Sýningin stendur til loka júní og er opin á miðviku- dögum kl. 14-18. Eden Hveragerði Jóhanna Hákonardóttir heldur myndlistarsýningu í Eden. Á sýn- ingunni eru bæði olíumálverk og vatnslitamyndir málaðar á síðustu þremur árum. Sýningunni lýkur 18. júní. Eden er opið alla daga til kl. 23 á kvöldin. Keramikgalleríið Lundur Varmahlíð, Skagafirði Sigríður Soffía Ijósmyndari opnar sýningu á Polaroid Transfer Ijós- myndum sunnudaginn 18. júní kl. 17. Opið alla daga kl. 9-18. Sýningin stendur til 16. júlí. Minjasafnið Aðalstræti 58, Akureyri í safninu stendur yfir sýning á verðlaunagripum úr minjagripa- samkeppni Handverks - reynslu- verkefnis og er þetta næstsíðasta sýningarhelgi. Opið daglega kl. 11-17.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.