Þjóðviljinn - 31.05.1949, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 31.05.1949, Blaðsíða 1
14- árgangnr. Þriðjadagur 31. raaí 1949. 118. töIuMáí. Æsbulýðsfylkingin efnir til skemmtiferðar dagana 4.- 6. júní n. k. Farið verður ausfur í Vík í Mýrdal, með viðkomu hjá Skógarfossi, í Dyrhólaey og víðar. ■ taka tilkynnist fyrir fimmtu- dagskvöld í skrifstofu félags ins. Ferðancfnd. 700.000 wianna konnnún- istaher sækir til Kanton Tvær fylkingar kommúnistaherja í Kína hafa náð saman. 12 km. frá Sjangsa, mikilvægri járnbrautarborg við járnbrautina milli Hanká og Kanton. Meðan utanríkisiáðherrar fjórveldanna ráða ráð- úm sínum í París um framtíð Þýzkalands, hefur Þýzka þjóðarráðið, skipað fulltrúum frá öllum her- námssvæðum, samþykkt uppkast að stjórnarskrá fyr- ir allt Þýzkaland og kosið nefnd til að fara til Par- ísar og leggja hana fyrir ráðherrana. Fund Þjóðarráðsinsi sátu 2000 fulltrúar, þar af yfir 200 frá Vestur-Þýzkalandi, en marg ir fulltrúar af hernámssvæðum Vesturveldanna kcmust ekki til Berjínar, þar eem fundurinn var haldinn, vegna þess að hernámsstjómimar neituðu þeim um fararleyíi. Stjórnar- skráin var saanþykkt með öil- um greiddum atkvæðum gegn einu. Stjórnarskrám tryggir Þjóð- verjum málfrelsi, prentfrelsi, Loks róuðust veðurguðirnir svo að Lincoln City gat Ieikið sinn fyrsta leik. Norðan kaldi var og Iéku Valsmenn undan hoisutn í fyrri Iiálfleik. Til að byrja með var leikur beggja mótaður af stórum spörkum eins og menn væru að þreiía fyrir sér. Leikurinn berst aftur og fram án þess ao skipu lag náist. Smátt og smátt fara Bretamir að ná samleik sem gefur hættuleg áhlaup að marki Vals; sérstaklega er það vinstri útherji sem sýnir góðan leik og skiptingar við innherjann. Vörn Vals er óvenjuörugg og vel stað sett, og bjargaði oft vel. Sigurð ur lék nú vinstri bakvörð en Haf steinn miðframvörð. Bretar eru oft nærgöngulir og komast oft hættulega nærri. Knötturinn , gengur upp eftir köntunum og miðja þeir oft laglega. Sókn Vals er alltaf of stórbrotin'; langar spyrnur undan vindinum sem er auðvelt fyrir bakverðina að taka. Framherjarnir geta ekkj sameinazt um sóknina. Fyira markið eftír 32 mín. -af leák. Um miðjan hálfleikinn hefur vinstri útframherji komizt inn fyrir og skaut enn í stöngina; og rétt á eftir eiga þeir hættu- legt skot framhjá. Mark Bretanna kom þegar 32 min. voru af leik. Knötturinn kemur eftir miðju vallarins, mið herjinn fær hann, tekst að losna við Hafstein og skjóta óverj- andi í mark, 1:0. — Valur á áhlaup en þau eru ekki hnitmið uð og tækifæri þeirra ekki opin. Síðari hálfleik byrja Bretar með sókn og halda henni góða stund, og eftir 5 mín. á vinstri útherji enn hörkuskot í stöng- ina. (En sú heppni að ekki er búið að hringlaga stengurnar!). Þeir eiga hörð skot framhjá og fastan skalla, sem Hermann ver. Vörnin er stöðugt vel stað- sett og ver allt. Þegar nokkuð líður á hálfleikinn, fer leikurinn að verða jafnari og Valur að gera áhlaup við og við, en í flest um tilfellum slitnuðu þau sund- ur og urðu ekki hættuleg. Síð ara markið kom tveimur mín. fyrir leikslok, beint úr horni frá vinstri útherja. Beztu mennirnir á vellinum. Beztu menn í liði gestanna voru vinstri útherji, vinstri bak I vörður og miðframvörður. Inn- herjarnir voru einnig góðir. Lið- i I ið sem heild var jafnt. Bretarn- j ir voru fljótari á knöttinn og : leiknari, og spyrnur þeirra ör- j uggari. Þeír eru vel að | þessum sigri komnir og eins' þó hann hefði verið ögn stærri. Béztu menn Valsliðsins voru Halldór Halldórsson, sem leit- aði manna og fann þá. Guð- brandur átti góðan leik og gætti erfiðasta mannsins. Sigurður var líka. öruggur, Ellert í síðari hálfleik. Framherjarnir voru veikari hluti Hðsins. Aftasta vömin sterkasti hlutinn. Verður. gaman að sjá Bretana . í þeim leikjum sem eftir eru, ! þegar þeir fara að venjast vell- , inum sem þeir virðast þó hafa , furðu gott vald á. Dómari var Guðjón Einarsson og dæmdi vel. Áhorfendur voru margir. F. H. trúfrelsi, fundafrelsi og frelsi til stjómmálastarfsemi. Tryggð ur er réttur til að þjóðnýta at- vinnufyrirtæki. Skylt er að láta þjóðaratkvæði ganga um öll lög ef viss hundraðshluti kjós- enda krefst þess. Ekki tekið tíllit tíl vilja þýzku þjóðarinnar A fundi utanrikisráðherr- anna. í París í gær hafnaði Vishinskí tillögum þeim, sem Bevin bar fram fyrir hönd Vesturveldanna í fyrradag. Vishinskí sagðist ekki einungis vera ósammála tillögunum í einstökum atriðum heldur grundvallaratriðum. I þeim er, sagði hann, ekkert tillit tekið til vilja og hagsmnna þýzku bjóðarinnar. Vesturveldin krefj ast að Bonnstjórnarskráin sé !átin gilda um allt Þýzkaland, en sú stjórnarskrá var samin að þýzku þjóðinni forspurðri og henni þvingað upp á Vestur- Þýzkaland af Vesturveldunum. Hernámslög Vesturveldanna taka ekkert tillit til óska Þjóð- verja. um friðarsamninga og brottför hemámsliðanna. Sam bandgríkjakerfið, sem Vestur- veldin krefjast að komið sé á, þýðir sundurlimun en ekki sam- einingu Þýzkalands. Vishinskí sagði ennfremur, að Vesturveld in væru að reyna að beita Sovétríkin nanðung, en það myndu þau aldrei sætta sig við. Hann boðaði frekari and- mæli af sinni hálfu gegn tillög- unum á næsta fundi. Fréttaritarar í París segja, að þar séu menn enn vongóðir um, að málarniðlun takizt. um efnahagslega einingu Þýzka- lands þótt óvænlega horfi um stjóraarfarslega einingu þess. Sjangsa er höfuðstaður Hún anfylkis, hrísgrjónaforðabúrs Kína. Sumar hersveitir kommún ista nálgast jámbrautina fyrir sunnan Sjangsa úr austri. Kuomintangstjórnin í Kanton sagði af sér í fyrradag og Lí Tsúngjen forseti fól fyrrverandi yfirdómara í Hæstarétti Kína að mynda nýja stjórn. TiJkynnt hefur verið í Kanton að von sé að Sjang Kaisék þangað næstu daga til að taka á ný við for- ystu Kuomintang. Kommúnistar í Sjanghai hafa opnað skrifstofu til að sjá um skipti við útlendinga. Endur- teknar hafa verið fyrri yfirlýs- ingar, ao líf og eignir útl. verði verndað, en þeir verði að hlýða lögum og fyrirmælum alþýðu- yfirvaldanna. Fjöldi erlendra skipa- og flugfélaga hefur beðið kommúnista um léyfi til að hef ja á ný samgöngur við Sjang hai. Kommúnistar hafa ákveðið, llt-1 Verkfall hafnarverkamanna breiðist út á vesturströnd Bret lands. Það er algert í Bristol og Avonmoúth og í gær fjölg- aði verfa.llsmönnum í Liverpool um helming. Áskoranir Dea- j kins, forseta flutningaverka- ! mannasambandsins til verka- manna um a.ð hverfa aftur til vinnu, hafa engin áhrif haft. Verkfall jámbrautarmanna í Austur-Englandi var enn út- j breiddara um síðustu helgi en næstu helgi á undan. að peningaskiptum í Sjanghai og Nanking skuli lokið 5. júní. Er einn kommúnistajúan greidd ur fyrir hverja 100.000 Kuomin, tangjúan. Þ)óðvii)asöfmmin: 16 dagar eftir — Barónsdeild held- ur enn 1 sæti í hvert sinn sem alþýða þessa lands hefur háð kjara- deilu hefur Þjóðviljinn blað hennar reynzt henni ómiss- andi máttarstólpi. Án hans liefði hún eltki náð þeirn kjarabótiim sem hún hefur náð á undanförnum árum. Nú þegar mikill hluti þess- arar alþýðu stendur í liarð- vítugri baráttu fyrir því að fá hlut sinn réttan vegna hinna miklu kjaraskerðinga núverandi ríkisstjórnar er það enn einu sinni Þjóðvilj- inn sem eitt allra blaða tek- ur upp skelegga baráttu fyr- ir því að alþýðan nái rétti sÍEum. Hverjum aiþýðu- manni og konu er það ljóst hve stór þáttur Þjóðviljinn er í Iííi þeirra. Sósíalistafélag Reykjavíkur er nú í f jársöfn- un fyrir Þjóðviljann. Það hef ur ákveðið að safna 100 þús. krónum fyrir 15. júní n. k. Féiagið. Iieitir á alla alþýðu nú sem fyrr að bregðast vel við. Tekið er á móti framlög- um á skrifstofu Sósíalistafé- lags Reykjavíkur Þórsgötu 1. TÖKUM Á. NÁUM MARK- INU. Hernámstjórn Breta í Þýzka- landi, hefur l&tið fangelsa'Max Reimann, foringja Kommúnista flokksins. Herréttur Breta dæmdi Reimann í fangelsi s. 1. vetur fyrir að mótmæla klofn- ingu Þýzkanlands. Mótmæli gegn fangelsun Reimanns streyma að úr öllum hlutum Þýzkalands. Er bent á, að Bret- ar hafi virt að vettugi þinghelgi, persónu- og málfrelsi með því að fangelsa hann. ííið er herlið ræðst á verkamenn z Patinotinnánumum Fregmlr haía borizt frá Buenos Aires um aá 150 manns liafi beðið bana í fyrradag, er herlið réðist á verkfallsmenn við Patínótinnámurnar í Bóiivíu. Námur þessar eru auð- ugustu tinnámur í heimi og í eigu bandarísks auðhrings, sem hafði hafnað kjarabótakröfum verkamanna og látið Bóliviustjórn, sem hringurinn hefur í vasa sínum, hand- taka forystumenn verkamanna og reka þá í útlegð. Er verkameim létu sig ekki að heldur var herliði skipuð að ráðast á þá, með þeim afleiðingum, að 150 manns biðu bana. Bólivíustjórn tilkynnti í gær, að „Icgum og reglu hefði verið komið á“ við námurnar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.