Þjóðviljinn - 13.05.1964, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 13. maí 1964 — 29. árgangur — 106. tölublað.
Stutt viðtal við vinnings-
hafa i Happdrætti Þjóðvilj-
ans er birt á 12. síðu
ÞJÓÐARTEKJURNAR HAFA VAXIÐ UM 107% FRÁ 1959-1963
Yerkalýðshreylingin krefst síns hlutar af
aukningu jtjóðarframleiðslunnar
Forseti fsiands
sjötugur í dag
Forseti íslands, herra Ásgeir Ás.
geirsson, er sjötíu ára í dag,
13. maí Nokkrar svipmyndir
frá starfsferli forsetans og helztu
æviatriði eru birt á 2. siðu
blaðsins í dag.
□ í útvarpsumræðunum í gærkvöld ræddi Hannibal Valdimarsson^
einkum um hlut launastéttanna í þjóðartekjunum og fullyrðingar stjórn-
arflokkanna um að kröfur verkalýðssamtakanna séu undirrót verðbólgu-
þróunarinnar. Sýndi hann fram á, að þjóðartekjumar hafa vaxið um
107% á sama tíma og kaup hefur hækkað um einungis 55%. Framleiðslu-
aukningin hefur vaxið tvöfalt meira en nemur hækkun kaupsins.
n Eina leiðin til að stöðva óheillaþróun verðbólgunnar, er að samkomulag takizt
á grundvelli þess samningstilboðs, sem Alþýðusambandið hefur gert ríkisstjórninni,
og kvaðst Hannibal binda miklar vonir við þær samningaumleitanir, sem nú færu
fram milli þessara aðila.
í upphafi ræðu sinnar vék
Hannibal að nokkrum atriðum
í ræðum stuðningsmanna ríkis-
stjórnarinar j fyrrakvöld. Kvað
hann nú svo komið, að líkast
væri því að ráðherrarnir vildu
sem mest forðast að ræða póli-
tík — og fulltrúar þeirra legðu
allt kapp á að forða því að
sjónarmið, sem túlkuðu málstað
launþega, fengju að heyrast í
útvarpinu, eins og bezt sézt á
því að Alþýðusambandinu var
neitað um aðild að dagskrá út-
varpsins 1 maí. Venjur eru
brotnar varðandi þetta og andi
stjórnarskrárinnar um óheft
skoðanafrelsi fótum troðinn.
Þetta er líka óhyggilegt.
Sjónvarpsmálið
Sama hefur komið í ljós á
fleirum sviðum. Prófessor Þór-
halli Vilmundarsyni var neitað
um flutning á snjöllu erindi
í útvarpið, þar sem hann túlk-
aði málstað þjóðar sinnar gagn-
vart þeirri menningarlegu for-
smán, sem dátasjónvarpið á
Keflavíkurflugvelli er.
Dýrtíðaraukningin 15%
á ári undir viðreisn
Þá vék Hannibal að stefnu
ríkisstjórnarinnar og sagði með-
al annars:
„Ríkisstjórnin og áróðursmenn
hennar halda þvi fram, að hin
óhugnanlega dýrtíðar- og verð-
bólguþróun hér á landi sé alls
ekki stjórnarstefnunni, heldur
verkalýðshreyfingunni að kenna
Ef þetta væri rétt, vseri það
raunar viðurkenning þess, að
stjórnin hefði alls ekki ráðið
við þessi þýðingarmiklu mál,
heldur misst þau úr höndun-
um. Þannig væri hlutur stjórn-
arinnar ekki allt of góður, þótt
þessi kenning væri rétt. En
þessi kenning er röng með
öllu .
Stefna stjórnarinnar er
gengislækkunar- og dýrtíðar-
stefna. Getur nokkur maður
Framhald á 3. síðu.
Kjarabarátta meginverkefni
Verkamannasambands ísiands
Vorfundur utanríkisrúðherra NATO
Ðjúpstæður ágreiningur um
flest meginviðfangsefnin
HAAG 12/5 — Ljóst er að djúpstæður ágreining-
ur er um flest helztu málin sem liggja fyrir vor-
fundi utanríkisráðherra Atlanzhafsbandalagsins,
sem hófst i Haag í morgun, og hefur þó það ráð
verið tekið að fjalla ekki um sum þau mál sem
ósamkomulag er hvað mest um, eins og t.d. stofn-
un sameiffinlegs kjarnorkuflota bandalagsins.
A þessum fundi NATO. sem
utanríkisráðherrar allra aðiidar-
ríkjanna nema Islands sitja
(Pétur Thorsteinsson sendiherra
er fulltrúi Islands á fundinumþ
er búizt við að helztu málin sem
fjallað verður um verði Kúba og
Suður-Vietnam, be. tilmæli
Bandaríkjastjómar um að NATO-
ríkin veiti sér að málum i af-
stöðunni tii þessara landa taki
bátt f viðskipt.abanninu á Kúbu
og veiti Bandaríkiunum aðstoð
f stríði heirra gegn bióðfrelsis-
hreyfingu Vietcongs í Suður-
Vietnam Þegar er hægt að fuli-
vrða að bessi tilmæli Banda-
ríkiastjómar muni fá dræmar
undirtektir á fundinum.
T r-kn 'íínTin<;TTÍórnIii
Þaö má sjá af bvi að vestur-
býzka stjómin, sciin þó er talin
tryggasti bandamaður Bandaríkj-
anna. reyndist ófáanleg til að
verða við tilmælum McNamara
landvarnaráðherra um aðstoð við
Bandaríkin f stríði þeirra f Suð-
ur-Vietnam, en McNamara var í
Bonn um helgina gagngert f
bessu skyni. Haft er eftir stjóm-
arerindrekum f Bonn að þessi
treaða vesturþýzku stjómarinnar
aefi til kynna hve Rusk utanrfk-
;sráðherra muni reynast þungur
-óa,,rínn á fundinum í Haag.
Ajiélc+aðíi Frakka
Afstaða Bonnstjómarinnar í
iiessu máli er talin markast af
beirri vfirlýstu stefnu frönsku
stjómarinnar að semja beri frið
í Suður-Vietnam og gera alþjóða-
samning um hlutleysi landsins og
nágrannaríkjanna.
Franska stjómin er einnig al-
gerlega andvíg viðskiptabanni
Bandaríkjanna á Kúbu og hefur
sýnt það í verki með þvf að
veita ríkisábyrgð á víðtækum
viðskiptasamningum við Kúbu.
önnur NATO-ríki hafa einnig
algerlega hafnað tilmælum
Bandaríkjanna um að taka þátt
í viðskiptabanninu á Kúbu. og
engar líkur á þvf að þau breyti
beirri afstöðu sinni. hve ein-
dregnum tilmælum sem beint
verður til þeirra á NATO-fund-
Ræða Rusks
Rusk flutti fyrstu ræðuna á
fundinum í Haag og fjallaði hún
einkum um Kúbu og Suður-Viet-
nam. Hann kvaðst vona að önn-
ur NATO-ríki endurskoðuðu af-
stöðu sína til Kúbu í ljósi þeirr-
ar staðreyndar að Kúba ógnaði
örvggi alira v«:turlanda og kvað
hú
ýr aflahlutar í Rvík —12.
nauðsynlegt að öll NATO-rfki
legðu eitthvað af mörkum til
baráttunnar gegn kommúnisman-
um í Suður-Vietnam.
Forseti Alþýðusambands íslands HANNIBAL VALDIMABS-
SON, að flytja ávarp á stofnþingi Verkamannasambands
íslands. HERMANN GUÐMUNDSSON, formaður HLÍFAR
í Hafnarfirði setti þingið.
í ályktun stofnþings Verkamannasambands íslands um
kjaramál er meginverkefnum hinna nýju samtaka lýst þannig:
,,Verkamannasamband Islands mun skoða það sem megin-
verkefni sitt að einbeita kröftum félaganna sem að því standa
og samtakamætti þeirra til þess ...:
að sem jafnastar og öruggastar kjarabætur til handa verka-
mannastéttinni koini árlega til framkvæmda, vinnutími verði
styttur í áföngum og án skerðingar heildartekna, fulikomnu
Iaunajafnrétti kvenna og karla verði komið á, á sem allra
skemmstum tíma, orlofsréttindin aukin og hlutur verkamanna-
stéttarinnar miðað við aðrar Iaunastéttir verði bættur“.
Verkamannasambandið lýsir yfir stuðningi við ályktun Al-
þýðusambands Islands um stöðvun verðbólgunnar og raun-
hæfar kjarabætur, varar eindregið við ofbeldisaðgerðum gegn
verkalýðshreyfingunni og leggur áherzlu á, að náist ekki samn-
ingar eftir friðsamlegum leiðum hljóti verkalýðshreyfingin að
beita öllum mætti samtakanna til að rétta hlut alþýðu.
Ályktunin um kjaramál og viðtal við Eðvarð Sigurðsson, for-
mann Verkamannasambands Islands, er birt á 4. síðu.
ASV styður ályktun ASf -
Vestfjarðafélög segja upp
Á fulltrúafundi Alþýðusam-
bands Vestfjarða sem haldinn
var ó fsafirði sl. sunnudag var
samþykkt samhljóða að lýsa yf-
ir fyllsta stuðningi við ályktnn
miðstjórnar Alþýðusafbands ts-
Iands uni kaupgjaldsmálin og
fagngð jafnframt þeim viðræð-
um sem nú eru hafnar á milli
fulltrúa verkalýðssamtakanna,
atvinnurekenda og ríkisstjórn-
arinnar um vandamálin og lýst
yfir þeirri von, að viðræður
þessar leiði til friðsamlegrar
lausnar, sem tryggi verkalýðn-
um aukið efnahagslegt öryggi,
aukna vinnuvernd og batnandi
lífskjör.
Ennfremur samþykkti fundur-
inn samhljóða að leggja til við
sambandsfélögin að þau segi
upp öllum samningum sínum
varðandi kaup landverkafólks
fyrir 20. þ.m., en gildistími um-
ræddra samninga er til 21. júní
næstkomandi.
■ Náið samstarf og sam-
staða
Á fundinum urðu miklar um-
ræður um skipulagsmál verka-
lýðshreyfingarinnar, og um að-
ild sambandsfélaga Alþýðusam-
bands Vesturlands að hinu ný-
stofnaða Verkamannasambandi,
en það mál hefur verið til at-
hugunar hjá hinum einstöku fé-
lögum í Vestfjörðum.
Fundurinn samþykkti að ef
vestfirzku félögin hefðu ekki
gerzt meðlimir Verkamannasam-
bandsins áður en samningar
hefjast við atvinnurekendur. að
leita eftir sem nánustu samstarfi
og samstöðu við Verkamanna-
sambandið um samningsgerðina,
og þá á þeim grundvelli. að um
landssamning verði að ræða
varðandi öll helztu atriði samn-
ingsins. — (Samkvæmt frétta-
tilkynningu frá ASV).
V
t