Þjóðviljinn - 27.05.1964, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 27.05.1964, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 27. maí 1964 — 29. árgangur — 116. töluglað. Hvenær er unnt að greiða hærra kaup ? Þjóðartekjurnar hafa meir en tvöfaldast frá 1959, og viðskiptakjörin hafa einnig stórbatnað á sama tíma Gamla apótekið verður flutt að Árbæ □ Gylfi Þ. Gíslason, viðskiptamálaráðherra og fyrrverandi hagfræðiprófess- or, kom fram í útvarpsþætt- inum „Á blaðamannafundi“ í fyrrakvöld, og átti ráð- herrann að ræða þar um vandamál efnahagslífsins og verðbólguna. Allt mál ráð- herrans snerist f yrst og fremst upp í fullyrðingar um að nú mætti með engu móti hækka kaupgjald í landinu, þótt ráðherranum vefðist tunga um tönn að útskýra þau hagfræðilegu lögmál, sem krefðust þess. Fram að þessu hefur það ver- ið uppáhaldskenning hagspek- inga viðreisnarinnar að undir- stöður launahækkana væru auk- in framleiðsla og hagstæð við- skiptakjör út á við. Þjóðartekj- ur hafa vaxið um 107% frá því í ársbyrjun 1959. Kaup verka- manna hefur samtímis haskk- að um 55%, en þeirri hækkun kaupmáttarins hefur verið rænt jafnóðum aftur með beinum að- gerðum rfkisvaldsins. sem dembt hefur nýjum verðhækkunum yfir launþega um leið og þeir hafa samið um smávægilegar bætur vegna dýrtíðarinnar. Við- skiptakjör síðustu ára eru held- ur ekki afsökun fyrir þessum afglöpum Gylfa Þ. Gíslasonar og samráðherra hans. Á síðustu árum hefur verð á ýmsum út- flutningsvörum okkar stöðugt farið hækkandi á heimsmark- aðinum. 1 nýlegu hefti af Fjár- málatíðindum Seðlabankans, er út kom ekki alls fyrir löngu, er t.d. línurit, sem sýnir, að við- skiptakjör okkar bötnuðu um ca. 12% á árinu, — einmitt þeg- ar ríkisstjómin felldi gengið til að ræna aftur auknum kaup- mætti vinnandi fólks eftir verk- föllin sumarið 1961. Með þessum aðgerðum og öðr- um svípuðum hefur ríkisstjórn- inni tekizt að lialda niðri kaup- mætti Iaunamia, þrátt fyrir vax- andi framleiðslu, stórhækkandi þjóðartekjur og bætt viðskipta- kjör, en allt eru þetta rök fyr- ir hærra kaupi vinnandi fólks, og er hér með skorað á hæst- virtan viðskiptamálaráðherra að mótmæla því með hagfræðileg- um rökum. Sýslunefndar- maður kjörinn í Hveragerði Sl. sunnudag fór fram kosning sýslunefndarmanns í Hveragerði. Tveir listar komu fram. D-listi, borinn fram af Sjálfstæðismönn- um, og H-listi, borinn fram af óháðum. Úrslit urðu þau að D- listi hlaut 103 atkvæði en H- listinn 112 atkvæði og var kjör- inn af honum Þórður Jóhanns- son kennari. Á kjörskrá voru 345 en at- kvæði greiddu 219, 4 seðlar voru auðir. Skipstjórnarmenn mótmæla óeðlilega lágu fiskverði Sjómennirnir á Suðurnesjum krefjust heiðurlegs uppgjörs KEFLAVÍK. 26. maí. — Sjó- menn á Suðurnesjum eru mjög óánægðir með þessi vertíðarlok, en ekki sízt vegna þess að upp- gjör allt er i ólestri og töfum, einkum þorsknótarbátanna. Það ísold gullna nú í koll Kristmanni! I gær var enn áfram haldið réttarhaldi í meið- yrðamáli Kristmanns Guð- mundssonar gegn Thor Vil- hjálmssyni. Fyrir rétt kom skólastjóri einn hér í bæ og lýsti yfir, að hann hefði færzt undan komum Krist- manns eftir að hafa lesið bókina fsold hin gullna, vildi ekki mann er þjóf- kenndi heila stétt! Þá voru lögð fram í réttinum hæfn- isvottorð sem skólastjórar utan af Iandi og tveir j Reykjavík hafa veitt Krist- manni. Nánar verður sagt frá réttarhaldinu á morg- un. er krafa sjómanna að þvi vcrði kippt í lag áður en síldarvertíð- in hefst. Talið er í verstöðvunum að það geti tafið fyrir síldarvertíð- inni ef fáeinir útgerðarmenn reyna að hafa fé af sjómönnum vegna fyrirskipunar LlÚ-forust- unnar. Það er krafa sjómanna og annarra sem eiga sitt und- ir því að síldveiðarnar takist vel. að ekki komi til stöðvun- ar veiðanna af þessum sökum. Einnig er mikil óánægja með- al sjómanna með h'ð óeðlilega lága fiskverð og vinnubrögð þau sem undanfarið hafa verið viðhöfð við ákvörðun þess. Skipstjóra- og stýrimannafé- lagið Vísir f Keflavík hélt fund 23. þ.m og var bar einróma samþykkt bess ályktun um fiskverðið: „Fundur haldinn í Skipstjóra- og stýrimannafélaginu Vísi í Keflavík 23. maí 1964 mótmæl- I ir óeðlilega lágu fiskverði á fs- landi o<’ sérstaklega þó þcim vinnubrögðum, sem átt hafa sér stað undanfarið í störfum verð- lagsráðs sjávarútvegsins, þar sem ekkert tillit hcfur verið tek- ið til sívaxandi dýrtíðar og þar 1 af leiðandi vaxandi framfærslu- kostnaðar sjómanna og fjöl- skyldna þeirra. Fundurinn krefst þess, að verðákvörðun verði alltaf lokið, áður en veiðar hefjast. Nú skor- ar fundurinn á alla sjómenn að hefja ekki síldveiðar fyrr en verð á sumarsíld Iiggur fyrir. Fundurinn telur að full þörf sé á endurskoðun Iaga um verð- lagningu sjávarafurða.” ÞESSA DAGANA er verið að rífa hið gamla og fornfræga hús Gamla apótekið við Aust- urvöll en eigandi þess, Þor- steinn Scheving Thorstcinsson lyfsali hafði gefið Reykjavíkur- borg húsið með því skilyrði að það yrði endurreist að ein- hverju Ieyti uppi í Árbæ. ÞJÖÐVILJINN átti í gær tal við Lárus Sigurbjörnsson safnvörð og innti hann eftir sögu húss- ins og fyrirhugaðri endurreisn þess að Árbæ. -¥• HÚSIÐ ER byggt árið 1834 af fyrsta apótekaranum í Reykja- vík, Oddi Thorarensen, sagði Lárus. og var apótekið þar til húsa fram um 1920. Er þctta því eitt með allra elztu húsum bæjarins. Húsið hefur verið mjög vönduð bygging á sinni tíö en því hefur verið marg- sinnis breytt, bæði allri inn- réttingu og eins byggðir við það skúrar og settir á það kvistir. Er ætlunin að endurreisa húsið í sem upprunalegastri mynd hvað ytra útlit snertir, Þó verð- ur kvisturinn sem snýr út að Austurvclli og ekki cr uppruna- legur látinn halda sér. ÆTLXJNIN ER að koma upp í húsinu sýningarsal þar sem sýnt verður ýmislegt er varðar sögu Reykjavíkur og einstakra húsa. Verður komið upp gömlu apóteki í öðrum enda hússins og ennfremur verður sýnd ýmis gömul læknatæki. ■¥ ÞÁ SAGÐI LÁRUS að ætlunin væri að koma upp sjóminja- safni að Arbæ í gamalli sjóbúð og ennfremur hefði sér komið til hugar að ef gömlu Bern- höftshúsin yrðu flutt að Árbæ að sctja upp i þeim handiðnað- arsafn. Er slíkt safn þcgar til og er það geymt í kjallara Iðn- skólahússins. AÐ LOKUM sagði Lárus að nú væri vcrið að vinna að skipu- lagningu sýningarsvæðisins í Árbæ en of snemmt væri enn að skýra frá því máli. Gamla apótekið við Austurvöll. Þegar er búið að rífa hluta af þak- inu en hliðin Austurstrætismegin stóð enn uppi er þessi mynd var tekin. — (Ljósm. Þjóðv. Ari Kárason). Cuggnur Alþýðu- fíokkurinn á söl- unni á bv. Jání? ■ Gert hafði verið ráð fyrir að í gær yrði haldinn fundur í bæjarstjórn Hafnarfjarðar og væri ætlunin að láta bæjarfulltrúa íhaldsins og Alþýðuflokksins rétta upp hendurnar með hinni smánarlegu sölu togarans Júní úr landi. ■ Ekki varð af fundinum og er talið líklegt að hin gífurlega óánægja sem risið hefur vegna þessarar óverj- andi ráðstöfunar á almannaeign hafi heyrzt alla leið upp í ríkisstjórnina, og sé meira að segja Emil Jónssön orðinn smeykur um fylgi flokksins í Hafnarfirði ef samvinnan við íhaldið á að kosta það að ganga af bæjarútgerðinni dauðri. ■ Hafnfirðingar leituðu í Alþýðublaðinu í gær eftir vörn fyrir bæjarútgerðina og mótmælum Verkamannafé- lagsins Hlífar gegn hinni smánarlegu ákvörðun um söluna á Júní, en fundu fátt. Samnlngum haldið áf ram Q Samningafundir halda stöðugt áfram fyrir milli- göngu sáttasemjara ríkisins milli samninganefndar verka- lýðsfélaganna af Norðurlandi og Austurlandi og fulltrúa atvinnurekenda. Hafa samningfundir staðið fram eftir nóttu undanfarið og var fundur enn boðaður í gærkvöld. | | Viðræðurnar milli fulltrúa Alþýðusambandsins og fulltrúa ríkisstjórnarinnar hafa einnig haldið áfram. MIKIL ÁTÖK f LIMA Sjá síðu 25 ára afmæli Kven- félags sósíalista | | 30. marz sl. voru liðin 25 ár frá stofnun Kvenfé- lags sósíalista. í tilefni afmælisins kom núverandi stjórn félagsins saman til fundar í fyrrakvöld ásamt nokkrum af fyrrverandi formönnum félagsins og voru fréttamaður og ljósmyndari frá Þjóðviljanum mættir á fundinum. Er irásögn af starfsemi félagsins birt á 4. síðu blaðsins í dag. , | Myndin hér að ofan er af 5 af 7 konum er gegnt hafa formannsstörfum í félaginu og mættar voru á fund- inum en þær eru talið frá vinstri. Fremri röð: Hallfríður Jónasdóttir og Valgerður Gísladóttir. Aftari röð: Helga Rafnsdóttir, Margrét Sigurðardóttir og Elín Guðmunds- dóttir. t «

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.