Þjóðviljinn - 23.08.1966, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 23.08.1966, Blaðsíða 10
Saltað í 14 þús. tumar á 3 dögum RA'UFARHÖFN, 22/8 — Undan- farna þrjá daga hefur veriðsalt- að bér á Raufarhöfn í um 14 þúsund tunnur en í dag ernokk- urt hlé á löndun og söltun þar eö „ræningjaskipin" sem við Raufarhafnarbúar köllum svo. þ. e. síldarflutningaskipm Síldin og Haförninn, eru bæði á miðunum og Ianda skipin beint í þau. Heildarsöltunin hér er nú orð- ir 42.180 tunnur og skiptist hún þannig á stöðvamar: Norðursíld 9656 tunnur, Borgir 8781, Óð- ir.n 5860, Síldin 5198, Björg 5065, Óskarsstöð 4838, Hafsilfur 2659 og Möl 122. 1 dag er aðeins saltað hjá einni stöð, Norðursíld, og verður 10 þúsundasta tunnan því væntanlega söltuS þar í kvöld. Mun þetta vera eina sölt- itmarstöðin á landinu sem kom- m er í 10 þúsund tunnur í sum- ar. SOdarverksmiðjan hefur nú tekið á móti samtals 37.775 lest- «m í bræðslu. 1 dag er sólskin og blíða hér á Raufarhöfn, einhver bezti dag- ur sumarsins. — H.R. Ríkið leigir tvö herhergi fyrir stúdenta í París íslenzka ríkið hefur keypt íeigurétt að tveimur herbergjum á stúdentagarði í nágrenni París- ar til afnota fyrir íslendinga, sem þar stunda háskólanám. Umsóknir um vist í herbergjum þessum næsta vetur þurfa að berast menntamálaráðuneytinu, Stjórnarráðshúsinu við Lækjar- torg, fyrir 30. þ.m. Umsóknar- ^yðublöð fást í ráðuneytinu. (Frá menntamálaráðuneytinu) Tvennt slasast á dráttarvélum á Snæfellsnesi S.l. laugardag urðu tvö slys vestur á Snæfellsnesi, er drátt- arvélum hvolfdi. Um kvöldverðarleytið á laugar- dag fór dráttarvél út af vegin- um skammt frá bænum Grund í Grundarfirði og lenti þar á hvolfi ofan í skurð. 11 ára drengur úr Reykjavík, sem er í sumardvöl að Grund, ,ók drátt- arvélinni og slasaðist hann á brjósti og handleggsbrotnaði. Læknir kom fljótt á vettvang og var drengurinn fluttur í sjúkrahúsið á Stykkishólmi. Stuttu síðar eða um kl. 10 um kvöldið varð húsfreyjan á Setbergi á Skógaströnd undir dráttarvél, sem hvolfdi þar sem hún ók henni á túninu við bæ- inn. Konan var sótt í sjúkrabíl og flutt í sjúkrahúsið í Stykk- ishólmi, og mun hún hafa m j aðmagri ndarbrotnað. Fékk um 70 lestum meira en skipið ber! RAUFARHÖFN, 22/8 — I gærkvöld fékk síldveiðiskipið Dagfari frá Húsavík mjög stórt kast á miðunum norð- austur af Raufarhöfn. Þegar skipið hafði fyllt sig vat enn mikil síld eftir í nótinni. S'ld- arflutningaskipið Haförninn var þarna nærstatt og kall- aði Dagfari i það. Kom Haf- örninn á vettvang og dældi síldinni jafnóðum úr Dagfara og þeir á Dagfara háfuðu úr nótinni. Fékk Dagfari mcð þessum hætti 326 Iestir út úr kastinu, en það er líklegaum 70 lestum meira en skipið ber! — H. R. Þriðjudagur 23. ágúst 1966 — 31. árgangur — 197. tölublað. Síldveiðin: Helgara sant' Menn úr Flugbjörgunarsveitinni bera líkin niður af jöklinum að þyrlunni. — (Ljósm. J.G.) Lík bandarískra flugmanna innast á Eyjafjallajökli Flugvél þeirra fórst með 5 manna áhöfn árið 1952 ■ Um helgina fundust lik þriggja bandarískra flug- manna á Eyjafjallajökli, en rúm 14 ár eru síðan flug- vél þeirra fórst á jöklinum með fimm manna áhöfn. Fannst flugvélarflakið og lík eins flugmannsins á jökl- inum þrem dögum eftir slysið. Sl. laugardag voru þeir Guðjón inn þar sem líkin voru, um 200 Gíslason og Kjartan Benjamíns- son við mælingar þar sem fall- jökullinn er norðanmeginn í Eyjafjallajökli og fundu þeir lík af tveim mönnum þar á jökl- inum. Þeir tilkynntu það strax sýslumanninum í Rangárvalla- sýslu, og var Flugbjörgunar- sve^tin í Reykjavík kplluð á vett- vang. 25 manna hópur úr sveit- inni fór þangað austur í birt- ingu á sunnudag undir stjórn þeirra Sigurðar S. Waage og Magnúsar Þórarinssonar. Björgunarsveitin var komin að jöklinum um hádegisbilið ogum sama leyti kom þangað þyrlafrá hemámsliðinu á Keflavíkurvelli. Þar voru einnig fyrir þeir Guð- jón og Kjartan og vísuðu á stað- metra frá jökulröndinni. Líkin lágu þar með nokkurra metra millibili, og um 10 metra þar frá fannst þriðja líkið. Líkin voru að sjálfsögðu ó- þekkjanleg, en hjá þeim fund- ust ýmsir munir áletraðir nöfn- um, svo að enginn vafi er á að þetta eru lík bandarísku flug- mannanna sem fórust þama á jöklinum fyrir meira en 14 ár- um. Þetta var tjörgunarflugvél frá bandaríska hemum á Keflavík- urflugvelli með fimm manna á- höfn sem fórst þama í blindhríð um vorið 1952. Flakið fannst á þriðja degi frá því er slysiðvarð og rétt hjá því lik eins flug- mannsins. Fleiri lík fundustekki en ýmis ummerki bentu til þess aS hinir fjórir hefðu komjzt lif- andi frá flugvélarflakinu. Þrátt fyrir mikla leit fundust menn- irnir aldrei, en vorið 1964 fundu menn úr björgunarsveitinni Ing- ólfi giftingarhring og skó á svip- uðum slóðum og líkin fundust nú. Flugbjörgunarsveitin bar lík flugmannanna um borð í þyrluna, sem flutti þau til Keflavíkur- flugvallar. tals 1080 lestir ð Um helgina var gott veður á miðunum og góð síld- veiði á svipuðum slóðum og áður. Voru veiðisvæðin tvö, annað 140—150 mílur NA af Raufarhöfn og hitt 110 mílur SA af austri frá Norðfjarðarhomi. Á laugardag og að- faranótt sunnudags var fremur fátt skipa á miðunum en 20 skip til'kynntu afla, samtals 2530 lestir. Á sunnudag og aðfaranótt mánudags tilkynntu 48 skip afla, samtals 7550 lestir, Nam veiðin um helgina því alls 1080 lestum. Sunnudagur: Hoffell SU 85 Raufarhöfn. .. Arnarnes GK 70 lestir. Hafrún ÍS 120 Skírnir AK 130 Snæfugl SU 50 Jón Finnsson GK 220 Heimir SU 100 Þorsteinn RE 140 Jón Garðar GK 340 Mánudagur: Guðbjartur Kristján 180 Raufarhöfn. Guðrún Þorkelsdóttir SU 220 Dalatangi Haraldur AK 190 Fróðaklettur GK 50 Guðbjartur Kristján 120 Helga Björg 120 Gullberg NS 195 Gissur hvíti SF 90 Ingiber Ólafsson GK 290 Þráinn NK 110 Jón Kjartansson SU ^ 240 Gullver NS 160 Dagfari ÞH 326 Heiðrún II. ÍS 75 Náttfari ÞH 130 Ásþór RE 160 Helgi Flóventsson ÞH 230 Baldur EA 80 Loftur Baldvinsson EA 150 Jón á Stapa ÖH 130 Þórður Jónasson EA 60 Ársæll Sigurðsson GK 120 Ögri RE 140 Hernámsiliðið heldur sýningu: Allir íslendingar bobnir á Völlinn! f gær barst Þjóðviljanum fréttatilkynning frá Upplýsinga- bjónustu "Bandaríkjanna þarsem segir að n.k. sunnudag, 28. ágúst, muni hernámsliðið á Keflavík- urflugvelli efna til sýningar á Vellinum fyrir almenning, og hefst sýningin kl. 1 e.h. og er tekið fram í fréttatilkynning- unni að „allir íslendingar" séu velkomnir. Um sýninguna segir m.a. svo í fréttatilkynningunni: Sýndar verða ýmsar gerðir flugvéla og margskonar annar búnaður og tæki. Auk þess verð- ur sýningargestum heimilt að skoða ný skólahús, íþrótta- og leiksvæði og annan útbúnað, svo og ýmsa aðra staði stöðvarinn- ar, þar á meðal slökkvistöð vall- arins, en slökkviliðið er skipað bæði íslendingum og Bandaríkja- mönnum. Slökkviliðið mun sýna slökkvistarf, og verður nofuð skemmd þota við það atriði. Ennfremur geta gestir sýning- arinnar fengið að skoða veður- stofuna, en þar starfa Islend- ingar og Bandaríkjamenn saman. Verði veðurskilyrði ekki óhag- stæð, er ráðgerð mikjl flugsýn- ing klukkan 3 e.h. ásamt fall- hlífarstökki. Einnig munu björg- unarsveitir vallarins sýna björg- unarstörf með þyrlu. Við vallarhliðið verður af- hentur leiðbeiningabæklingur, og í honum eru sýndir m.a. þeir staðir, sem opnir verða sýning- argestum. Orbiter hefur myndatöku uf lendingurstöðum á tunglinu KENNEDYIÍÖFÐA 22/8— Banda- ríska tunglfarið „Lunar Orbiter l.“ hóf í dag að taka myndir af stöðum á tunglinu sem taldir eru heppilegir til lendingar fyr- ir mönnuð geimför og gera bandarískir vísindamenn sér enn vonir um að þær myndir geti gefið mikilsverða vitneskju enda þótt ekki hafi tekizt að geravið bilunina á annarri myndavélinni. Ætlunin var að tekið væri á móti fyrstu myndunum í kvöld, en nokkrir dagar munu líða áð- ur en vitað er með vissu hvort þær eru nægilega skýrar til að hægt verði að velja lendingarstað eftir þeim. Áður en þessi myndataka hófst hafði braut „Orbiters" verið breytt þannig að nú er tungl- nánd þess aðeins tæpir 60 km og úr þeirri fjarlægð voru fyrstu myndimar í dag teknar. Bilun- in á annarri Ijósmyndavélinni er i útbúnaði sem átti að tryggja það' að myndirnár yrðú ''Skýl'ar þrátt fyrir þann tiltölulega mikla hraða sem er á tunglfarinu. Fyrstu myndirnar sem frá „Or- biter“ bárust og voru af frá- hverfu tunglsins voru mjög góð- ar, og af þeim má ráða að ekki er mikill munur á landslaginu Framhald á 7. síðu. ÍElliði GK 170 | Snæfell EA 230 | Eldborg GK 170 Sóley ÍS _ 196 Guðbjörg ÍS ’ 208 Hannes Hafstein EA 150 Framnes ÍS 80 Ólafur Magnússon EA 200 Dalatangi Sólfari AK 200 Fagriklettur GK 170 Sveinbjörn Jakobsson SH 160 Ól. Friðbertsson ÍS 180 Hafþór RE 120 Fiskaskagi AK 140 Freyfaxi KE 110 Engey RE 150 Framhald á 7. síðu. 297 stádentar innrituðust í Háskóla Islands í haust 297 stúdentar létu innrita sig í Háskóla íslands fyrir næsta skólaár, en innrifun er nýlega Iokið. Verða þá um 1100 stúd- entar við nám í Háskólanum í vetur. Hinir nýju stúdentar skiptast þannig eftir deildum: 92 í BA- RKÍ hefur fjársöfnun vegnu juriskjálftunnu / Tyrklundi Rauða krossi íslands hefur borizt beiðni frá Alþjóða Rauða krossinum um aðstoð til handa þeim sem misst hafa heiynili 'sín j jarðskjálftunum í Tyrklandi, sem frá er sagt á öðrum stað í blaðinu. Er hjálparsjóður RKÍ nú að hefja fjársöfnun í. þessu skyni og mun peningunum verða várið til meðalakaupa. í fréttatilkynningu sem Þjóð- viljanum hefur borizt frá RKÍ um söfnunina segir m.a. svo: Eins og kunnugt er af frétt- um útvarps og blaða hefur fjöldi manns farizt og misst heimili sín í jarðskjálftunum í austur- hluta Tyrklands. Rauði hálfmáninn í Tyrklandi hefur beðið Alþjóða Rauða kross- inn um aðstoð, og hefur hjálp borizt frá birgðastöð Rauða krossins í Beirut. Þá hefur hr. Edward Fischer, fulltrúi Alþjóða Rauða krossins í Genf, verið sendur til Tyrklands til aðstoð- ar við skipulagningu hjálpar- starfsins. Alþjóða Rauði krossinn hefur beðið systurfélög Rauða hálfmán- ans um allan heim að veita að- stoð eftir beztu getu. Hjálparsjóður RKÍ er að und- irbúa peningasendingu til með- alakaupa skv. hjálparbeiðni Al- þjóða Rauða krossins, pg mun hjálparsjóður RKÍ hefja fjár- söfnun nú þegár. Dagblöðin í Reykjavík hafa boðizt til að taka á móti framlögum, og RK-deild- irnar um land allt munu einnig taka á móti framlöguTn. Skrifstofa Reykjavíkurdeildar- innar er að Öldugötu 4, sími 14658. Söfnunin mun standa yf- ir til 10. september n.k. deild, 65 í læknisfræði, 36 í lög- fræði, 32 í verkfræði (þar af tvær stúlkur), 25 í viðskipta- fræði, 24 í forspjallsvísindi, 16 i tannlækningar, 5 í lyfjafræði lyfsala og 2 í guðfræðideild. Ótaldir eru 20—30 erlendir stúdentar sem munu koma hing- að til náms í íslenzkum fræð- um, einnig hafa um 40 umsókn- ir borizt frá erlendum stúdent- um flestum norskum, um nám í læknadeild, en 5—6 þeirra munu fá inngöngu í deildina. Enn er óvíst hve margir verða teknir til náms í tannlækning- um, en í fyrra var deildin al- veg lokuð nýjum stúdentum. Nýir stúdentar við Háskólann verða heldur fleiri í ár en i fyrra og er aukningin svo til öll í læknadeild. Drengur meiðist í gær varð óhapp í Hampiðj- unni, en þó var ekki um vinnu- slys að ræða þar eð þetta- var í matarhléinu. Nokkrir unglingar voru með fíflalæti á vinnustaðn- um, að sögn rannsóknarlögregl- unnar, og þegar fimmtán óra drengur var að kasta sér upp í þverbita datt hann á gólfið og kom niður á andlitið. Rifnaði við það vör drengsins en ekki var vitað hvort hann meiddist frekar þegar síðast fréttist.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.