Þjóðviljinn - 22.09.1973, Blaðsíða 12
DJQÐVHMN
Laugardagur 22. september 1973
Almennar upplýsingar um lækna-
þjónustu borgarinnar eru gefnar i
simsvara Læknafélags Reykja-
vikur, simi 18888.
Kvöld-, nætur- og helgarþjónusta
lyfjabúöanna i Reykjavik vikuna
21. - 27. september verður i Lyfja-
búöinni Iöunni og Garösapóteki.
Slysavarðstofa Borgarspitalans
,er opin allan sólarhringinn.
'Kvöld-, nætur-og helgidagavakt á
Heilsuverndarstöðinni. Simi
21230.
Olof Palme:
ȃg
mun
sitja
sem
fastast
Stokkhólmi 21/9 — Olof
Palme, forsætisráðherra Sví-
þjóðar, lýsti þvi yfir i dag cftir
fund i miðstjórn sósialdemó-
krata að flokkur sinn myndi
rcyna að halda stjórnar-
taumunum út kjörtimabilið
sein cr þrjú ár. Iiann sagði
cinnig að hann teldi enga þörf
fyrir að láta nýjar kosningar
fara frain.
Hann sagði á blaðamanna-
fundi að hann hefði trú á þvi að
sósialdemókratar gætu stjórn-
að áfram með svipuðum ár-
angri og verið hefur þrátt fyrir
jafna þingmannatölu borgara-
legra og verkalýðsflokka.
Palme benti á að fram að
þessu hefði stjórnin ætíð notið
stuðnings a.m.k. eins stjórn-
arandstöðuflokks i öllum
mikilvægum málum og hann
bjóst við að það myndi ekki
breytast. Hann sagði að
stjórnin myndi i hverju máli
fyrir sig taka afstöðu til þess
hvar stuönings yrði leitað.
Gösta Bohman, formaður
Hóflega sameiningarflokks-
ins, lét i dag i ljós þá skoðun
sína að Palme bæri að segja af
sér. Forsætisráðherraefni
stjórnarandstöðunnar, Thor-
björn Falldin, hefur ekki enn
krafist þess að Palme segi af
sér en þó hefur hann haft það
við orð aö siðferðilega séð
bæri honum að gera það.
CHILE
Marxiskir flokkar bannaðir
Mótspyrna enn
Santiago 21/9 — Pinochet hers-
höfðingi og leiðtogi hershöfð-
ingjakiikunnar i Chile hélt i dag
blaðamannafund með crlendum
fréttariturum. Hann sagði að
marxiskir flokkar yrðu bannaðir
en önnur pólitisk réttindi yrðu
innleidd að nýju ,,þegar fólkið
æskir þess” eins og hann orðaði
það.
Hann visaði á bug öllum stað-
hæfingum þess efnis að banda-
riska stjórnin hefði stuttvaldarán-
ið gegnum CIA. „Ekki einu sinni
konan min vissi um þetta fyrir-
fram”, sagði hann.
Pinochet vildi ekkert tjá sig um
framvindu mála á næstunni i
Chile en lagði rika áherslu á að
farin yrði „þjóðleg” leið.
Þó enn sé viða veitt mótspyrna
gegn valdaráni hershöfðingjanna
eru þeir hinir bjartsýnustu á að
lafa við völd. Segja þeir að næsta
skref verði að gera efnahagsáætl-
un og nýja stjórnarskrá og er
hvort tveggja i undirbúningi.
Augusto Pinochet Ugarte; póli-
tisk réttindi endurreist „þegar
fólkið vill það”.
Pinochet kvað valdaránið hafa
verið nauðsynlegt til að binda
endi á deilurnar við leiðtoga
Alþýðufylkingarinnar. Þá endur-
tók hann klisjuna um að til hafi
veriðýtarleg áætlun um valdarán
af hálfu marxista og að i þvi
valdaráni hefði verið gert ráð
fyrir að myrða helstu leiðtoga
stjórnarandstöðunnar.
Búist er við að herforingja-
klfkan muni ekki sitja við völd
lengur en henni þykir nauðsyn-
legt til að koma á „röð og reglu”.
Þá munu verða haldnar kosning-
ar þar sem eingöngu „lýðræðis-
flokkar” fá að bjóða fram.
Það þykir tákna að millistéttin
setji traustsittá herforingjana að
gengi dollarans fellur dag frá
degi á svartamarkaðnum. Þá
þykir það einnig styrkja klikuna i
sessi að stjórnir Perú og Argen-
tinu hafa á ný tekið upp eðlilegt
stjórnmálasamskipti við Chile.
Aftur á móti rufu Sovétrikin
stjórnmálasamband við landið.en
eflaust láta valdaræningjarnir
það sér i léttu rúmi liggja.
Engan
yfirdóm
hér
Rikisstjórn Islands hefur hvað
eftir annað krafist þess að bresk
herskip verði kvödd burt af svæð-
inu, enda hafi þau engan rétt til
að sigla á islensk varðskip eða
koma á annan hátt i veg fyrir að
þau framfylgi islenskum lögum,
og áskilur rikisstjórnin sér rétt til
að slita stjórnmálasambandi ef
slikum aðgerðum er áfram beitt.
Ákvörðun i þvi efni mundi tekin á
grundvelli sönnunargagna Land-
helgisgæslunnar og hlutaðeigandi
sjódóms.
Rikisstjórnin og utanrikismála-
nefnd eru sammála um að niður-
staða islensks sjódóms sé að
sjálfsögðu lokaorðið i deilum út af
ásiglingum breskra herskipa á is-
lenzk varðskip, enda sé þar um
opin réttarhöld að ræða og að ekki
komi þvi til greina að samþykkja
neins konar yfirdóm yfir islensk-
um dómstólum.
Verkamenn deila við Landsvirkjun
Niu verkamenn
Landsvirkjunar sem
vinna við að setja upp
vinnuskúra vegna fyrir-
hugaðra framkvæmda
við Sigölduvirkjun lögðu
niður vinnu í fyrradag,
vegna ágreinings við
Landsvirkjun um út-
skrift vinnuseðla. Unnu
þessir menn heldur ekki
i gær.
Landsvirkjun sendi i gær frá
sér eftirfarandi fréttatilkynn-
ingu;
„I tilefni af auglýsingu i hádeg-
isútvarpinu i dag, sem undirrituð
var „verkamenn Landsvirkjunar
við Sigöldu”, óskar Landsvirkj-
un, að eftirfarandi komi fram:
Við Sigöldu er ekkert verkfall,
enda hefur það ekki verið boðað.
Hins vegar hættu niu verkamenn
úr einum starfshópi vinnu sl. mið-
vikudagskvöld vegna ágreinings
um útskrift vinnuseðla. Er þar
sjónarmiö Landsvirkjunar, aö út-
skrift verkamanna hafi ekki verið
I samræmi við gildandi kjara-
samninga. Uppsögn verkamann-
anna er i fyllsta máta I samræmi
viö gildandi kjarasamninga, þar
sem þeir höfðu unnið það stutt hjá
fyrirtækinu, að þeim bar ekki að
hafa frest á uppsögn sinni. Það
skal tekið fram til að forðast
hugsanlegan misskilning, að hér
er um starfsmenn Landavirkjun-
ar að ræða, en ekki verktaka, sem
þar vinna á vegum Landsvirkjun-
ar”.
Blaðið hafði samband við Þóri
Danlelsson, framkvæmdastjóra
Verkamannasambandsins, vegna
þessa máls I gær.
Þórir sagði að efnislega hefði
auglýsing sú sem birtist i útvarp-
inu i hádeginu i gær verið á þann
veg, að þeir sem i striðinu við
Landsvirkjun uppi við Sigöldu
standa, hefðu skorað á félaga sina
innan ASI aö styöja þá I barátt-
unni við Landsvirkjun, sem vill
lækka kaup þeirra.
Þórir sagði að deilan þar efra
stæði um það hvernig eigi að
skrifa vinnutima, en þar hafa
verið skrifaðir fleiri timar á
hvern mann en unnir hafa verið,
og fleiri en ströngustu ákvæði
samninga kveða á um. Ekki vissi
Þórir á hvaða forsendum þetta
hefði tíðkast. Ætlun Landsvirkj-
unar mun hafa verið að heimila
ekki þessa umfram-timaskrift, en
þá lögðu þessir 9 menn niður
vinnu.
Ekki vissi Þórir hve marga
tima hér er um að ræða, en blaðið
hefur fregnað eftir krókóttum
vegum sannleikans, að um sé að
ræða 500 krónur eða svo til hvers
manns á viku hverri.
—úþ
Haustsýning FÍM
á Kjarvalsstöðum
kennir margra grasa i stil og
túlkunarmáta, en „til-
hneigingin virðist heldur vera
I átt til þess fingúratifa,”
sagði Leifur Breiðfjörð. — t
sýningarnefnd eru auk hans
Hringur Jóhannesson, Bragi
Ásgeirsson, Svavar Guðnason,
Einar Þorláksson Hrólfur Sig-
urðsson, Guðmundur Bene-
diktsson, Magnús A. Árnason
og Sigurjón Olafsson.
116 verk eftir 55 listamenn
Félag íslenskra myndlistar-
manna opnar haustsýningu I
sýningarsalnum i Kjarvals-
stööum i dag klukkan 18, og
stendur sýningin til sunnu-
dagsins 30. september og
verður opin kl. 16-22 alla daga.
Sýna þar fimmtiu og fimm
listamenn, þar af þrjátiu
félagsmenn og tuttugu og
fimm utanfélagsmenn. Alls
eru hundrað og sextiu verk á
sýningunni af þrjú hundruð
tuttugu og einu, sem inn var
sent. Næsta haustsýning
félagsins áður var i Norræna
húsinu i september 1971.
Leifur Breiðfjörð, formaður
sýningarnefndar, sagði Þjóð-
viljanum að það væri félags-
mönnum óblandin ánægja að
geta nú haldið sýningu i verð-
ugum húsakynnum. Það hefði
alltaf verið stefna félágsins að
gera haustsýningarnar aö ár-
vissum lið i myndlistarlifi
höfuðborgarinnar. Siðan
Listamannaskálann gamia
leið, hefði félagið verið á hrak-
hólum með húsnæði fyrir
haustsýningarnar. Ennþá
hefði félagið ekki fengið
starfsaðstöðu, sem nauð-
synleg væri til þess að hægt
„Hann hcitir nú frá höfundar-
ins hálfu Karlinn i tunglinu, en
við köllum hann okkar á milli
Allsherjargoðann”, sagði einn
listamannanna um þessa
höggmynd Magnúsar A. Arna-
sonar.
væri að undirbúa sýningar
sem þessar lengi og rækilega.
,, Það er þó forsenda þeirrar
reisnar, sem við viljum að
verði yfir þessu olnboga-
barni,” sagöi Leifur.
Málverkin eru sem fyrr
mest áberandi liður sýningar-
innar, en þar að auki eru
sýndar höggmyndir, vefn-
aður, teikningar, grafik og
vatnslitamyndir. Nitján lista-
mannanna, sem verk eiga á
sýningunni, eru nú i fyrsta
sinni með á haustsýningu hjá
félaginu.
Heildarsvipur sýningar-
innar er allfjölbreytilegur og
þó nokkuð fjörlegur, enda eru
þarna hver i bland við annan
eldri og þekktari listamenn og
ungir og nýir af nálinni;
þannig sagði Hringur
Jóhannesson, einn úr
sýningarnefndinni, okkur að
þrir nemeilda sinna úr
Myndlistarskólanum frá þvi á
siðasta starfsari ættu þarna
verk. Þarna sýnir lika einn
Akureyringur, örn Ingi, og
mun þetta vera i fyrsta sinn að
Norðlendingur búsettur fyrir
noröan er með á haustsýningu
Félags islenskra myndlistar-
manna.
Eins og nærri má geta,
Eirikur Arni Sigtryggsson er einn ungu mannanna á sýningunni. Kven-
menn og fallosar eru mjög áberandi atriði i list hans, en hér hefur hann
aukheldur fiska með, eins og eðlilegt má kalla hjá þjóð, sem byggir allt
sitt á sjávarútvcgi.