10 SÍDA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 19. marz 1974. • -—r" T C7 D JxpSöðfltP Islandsmótiö í blaki: UMFB varð íslands- meistari UMF Biskupstungna varð islandsmeistari í blaki eins og flestir bjuggust við, en liðiö hefur verið í nokkrum sérf lokki í því móti sem lauk sl. sunnudagskvöld. Liðið er skipað nemendum frá íþróttakennaraskólanum á Laugarvatni, sem keppa undir merki UMFB. Helstu andstæðingar þeirra voru einnig frá Laugarvatni, UMF Langdæla, en það lið er að mestu skipað kennurum frá skólunum á Laugarvatni og má segja að þessi tvö lið séu nær ósigrandi fyrir önnur blak- lið hér á landi, en í uppgjörinu þeirra á milli varð UMFB sterkara. Um siöustu helgi fóru síðustu 5 leikir mótsins fram. Á laugar- Aðalfundur Víkverja Ungmennafélagið Vikverji heldur aðalfund sinn að Hótel Esju sunnudaginn 24. mars n.k. og hefst hann kl. 14. Auk venjulegra aðalfundar- starfa verður rætt um starf- semina á þjóðhátiðarárinu. Fram oröiö meistari í mfl. kvenna geröi jafntefíi við Víking 10:10 og þaö dugöi Fram-stúlkunum til sigurs í mótinu Pram varð Islandsmeistari I mfl. kvenna sl. sunnudag með þvi að gera jafntefli við Viking 10:10 en Fram þurfti aðeins eitt stig úr þeim tveim leikjum sem liðið átti eftir fyrir þennan leik til að hreppa titilinn. Siðasti leikur mótsins milli Fram ög Vals skiptir þvi engu máli en þessi tvö liðhafa barist um islandsmeistaratitilinn sl. 5 ár og eru og hafa verið i algerum sérflokki i kvennaboltanum. Fram-liðið var greinilega þrúgað af taugaspennu í þessum leik, cnda mikiðihúfi. i fyrstu gekk þó allt vel og útlit fyrir stórsigur. Til að mynda var staðan í leikhléi 8:3 Fram i vil. En I siðari hálfleik gekk allt á afturfótunum og leiknum lauk með jafntefli 10:10. Fram skoraði þvi ekki nema 2 mörk allan siðari hálfleikinn. En þetta dugði og Fram er orðið islandsmeistari i mfl. kvenna. Annar leikur fór fram i mfl. kvenna á sunnudaginn en þá sigraði Valur FH mcð miklum yfirburðum eða 17:6 eftir að hafa haft yfir i leikhléi 8:3. daginn sigraði UMF Biskups- tungna UMS Eyjafjarðar 3:1. Hrinurnar fóru 15:2 — 15:1 — 21:23 og 15:0. Þá sigraðí UMF Laugdæla ÍMA einnig 3:1, hrin- urnar fóru 15:11 — 15:12 — 14:16 og 15:12. Siðustu 3 leikirnir voru svo leiknir f Laugardalshöllinni á sunnudagskvöld. i fyrsta leiknum sigraði UMF Laugdæla UMS Eyjafj. 3:1; 8:15 — 15:2 — 15:2 og 15:6. Þá var komið að leik fS og Vikings um 3. sætið i mótinu. Þetta varð all sögulegur leikur sem stóð i nær 2 tima, enda eins jafn og frekast má verða. ÍS tryggði sér 3ja sætið með þvi að sigra 3:2. Hrinurnar fóru þannig: 15:4 — 15:7 — 11:15 — 10:15 en úrslitahrinuna vann svo IS 15:13. Sfðasti leikur mótsins var á milli UMF Biskupstungna og tMA. UMFB varð að vinna þennan leik til að hreppa islands- meistaratitilinn. UMFL hefði unnið mótið ef UMFB hefði tapað leiknum. En iþróttakennaraefnin gáfu ekkert eftir og menntaskóla- piltarnir frá Akureyri áttu aldrei neina möguleika. UMFB sigraði 3:0, 15:9 — 15:9 og 15:10,og þar með var tslandsmeistarastyttan komin i þeirra hendur og verður geymd næsta árið i iþrótta- kennaraskólanum á Laugarvatni. Röðin i mótinu varð þvi þessi: 1. UMF Biskupstungna. 2. UMF Laugdæla. 3. IS 4. Víkingur. 5. ÍMA 6. UMS Eyjafjarðar. tslandsmeistarar'UMFB i blaki. 2. deild í handknattleik: Þróttur og Grótta leika til úrslita Þróttur tryggði sér úrslitaleik með því að sigra KR 24:16 Það verður aukaleikur milli Þróttar og Gróttu um það hvort liðið leikur i 1. deild I handknattleik næsta vetur. Þróttur sá til þess sl. sunnu- dag með þvi að sigra KR með miklum yfirburðum eða 24:16 i siðasta leik þessara liða i 2. deildarkeppninni. Úrslita- leikurinn milli Gróttu og Þróttar fer fram á laugardag- inn kemur. Leikur Þrdttar og KR á sunnudaginn var allan timann heldur ójafn, Þróttarar höfðu nær allan timann yfir, enda höfðu þeir allt að vinna en KR ekki neitt, og einkenndi það leik KR-inga nokkuð. i leikhléi hafði Þróttur yfir 8:6 en KR tókst að jafna snemma i siðari hálfleik 10:10. Uppúr þvi tók Þróttur öll völd á vellinum og komst i 17:10 og þar með var ekki lengur spurning um hvort liðið myndi sigra heldur hve stór sigur Þróttar yrði og hann varð eins og áður segir 24:16 Það verður áreiðanlega skemmtilegur ieikur þegar Grótta og Þróttur leika til úr- slita um hvort heldur áfram upp i 1. deild. Þessi lið hafa leikiðsaman tvisvar í vetur og unnið sinn hvorn leikinn. Þróttur sigraði Gróttu á Sel- tjarnarnesinu, en Grótta sigraði hinsvegar þegar liðin mættust i Laugardalshöllinni. Þetta er i :sja sinn á 5 árum sem Grótta stendur við inn- ganginn i 1. deild en aldrei hefur liðinu tekist að komast innfyrir. Hinsvegar hefur Þróttur ekki komist svona nærri l. deild frá þvi liðið féll niður á sinum tima. Oft hefur þó Þrótti verið spáð sigri 12. deild og svo var einnig nú og kannski er loks komið að þvi að Þróttur standi við fyrir- heitið. -S.dór Sveinlaugur Guðmundsson skorar hér eitt af mörkum Þróttar I leiknum gegn KR á sunnudaginn.