Þjóðviljinn - 05.06.1976, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 05.06.1976, Blaðsíða 6
6 StOA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 5. júní 1976. Laus staða Starf forstöðumanns félagsmiðstöðvar i Bústaðasókn er laust til umsóknar og veit- ist frá 1. ágúst. Gert er ráð fyrir hálfu starfi i fyrstiiLaun skv. kjarasamningi borgarstarfsmanna. Umsóknareyðublöð ásamt starfslýsingu og menntunarkröfum fást á skrifstofu æskulýðsráðs, Frikirkjuvegi 11, simi 15937. Umsóknarfrestur er til 15. júni. ÆSKULÝOSRÁO REYKJAVÍKUR SÍMI 15937 ÆSKULÝÐSRÍÍÐl Frá Flensborgarskóla Umsóknir um skólavist næsta vetur þurfa að hafa borist skólanum i siðasta lagi 10. júni. Skólameistari RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður LANDSPÍTALINN YFIF^ÆKNIR Staða yfirlæknis á brjóstnolsaðgerðadeild spitalans er laus til umsóknar frá 1. september 1976. Umsóknir er greini aldur, námsferil og fyrri störf ber að senda stjórnarnefnd rikisspitalanna, Eiriksgötu 5, fyrir 5. júli n.k. AÐSTOÐARLYFJAFRÆÐINGUR óskast i hálft starf i lyfjabúri rikis- spitalanna. Æskilegt er að hann geti unnið fyllt starf i mánaðartima i sumar vegna afleysinga. Upplýsingar veitir lyf jafræðingur á Landspitala simi 24160. HJUKRUNARFRÆÐINGAR óskast nú þegar eða eftir samkomulagi til afleysinga og i fast starf. Vinna hluta úr fullu starfi kemur til greina. Upplýsingar veitir forstöðu- kona simi 24160. KÓPAVOGSHÆLIÐ SÁLFRÆÐINGUR óskast til starfa frá 15. júni n.k. Starfsreynsla og viðbótarmenntun er nýtist i starfi nauðsynleg. Nánari upplýsingar veitir f orstöðumaðurinn. Umsóknum, er greini aldur, menntun og fyrri störf ber að senda Skrifstofu rikisspitalanna, fyrir 1. júli n.k. SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA BÓKARI óskast til starfa i launa- deild hið fyrsta i fast starf. Upplýsingar veitir starfsmanna- stjóri. Reykjavik, 4. júni 1976. SKRIFSTOFA RÍ KISSPÍTALANNA V EIRÍKSGÖTU5,SÍM111765 Leikári Þjóðleikhúss er að Ijúka Leikári Þjóðleikhússins er senn aö ljúka. Ef frá eru taldar þær sýningar, sem sérstaklega eru tengdar Listahátiö, eru aöeins eftir örfáar sýningar. Siðustu sýningar á tmyndunarveikinni verða nú um aelgina, mánudag (annan i hvitasunnu) og miövikudag, en siöan veröur farið i leikför með þennan sigilda gamanleik um Austur- og Noröurland. Fyrsta sýningin veröur þegar hinn 11. júni á Höfn i Hornafiröi. Þá er aðeins eftir ein sýning á Litlu flugunni i Leikhúskjallaranum og verður Sigfús Halldórsson á þeirri sýningu, sem er á þriðjudag 8. júni,— Myndin er úr Imyndunarveikinni. Sjötugur: Jón Kr. Guðjónsson verkamaður, Eskifirði Mér er tjáð að hann Jón frá Hólum eins og mér er enn tamt að kalla hann, sé sjötugur i dag. Þessum siunga baráttufélaga er mér ljúft að senda bestu árnaðaróskir á, þessum merku timamótum. Jón hefur um dag- ana verið verkamaður, bóndi og sjómaður. Hann hefur borið þau starfsheiti, sem hæst ber jafnan i huga mér. Maðurstarfa og strits, sem hvergi hlifði sér i daglegri baráttu fyrir stórri fjölskyldu. En brauðstritið hefur aldrei smækkað hann, hann hefur einnig verið maður baráttunnar á hug- sjónasviðinu. Ungur hreifst hann af kenning- um sósialismans, enn á hann ófölskvaða trú sina á islenskan sósialisma og sigur hans. Slika menn er gott að þekkja, gott til þeirra að leita og hljóta af lær- dóm og enn betra að eiga vináttu þeirra og samfylgd i baráttunni. Eskifjörður var fyrr á árum ein- hver merkasti staður á landinu I baráttusögu islensks sósialisma. Hvergi mun hlutfallslega jafn stór hópur hafa skipað sér undir merki sósialismans i skugga kreppunnar i einu byggðarlagi á tslandi og þar. Kommúnista- flokkurinn var þar forystuafl fyrir rétti hins fátæka og snauða, foringinn var hinn snjalli og gáfaði menntamaður, Arnfinnur Jónsson skólastjóri og honum fylgdu að málum öflug og harð- snúin sveit verkafólks og sjó- manna, stéttvist fólk sem ótrautt stefndi framá viiVruddi brautina fram til betra lifs. Verðugt væri það góðum fræðimanni að gera hinni pólitisku sögu Eskifjarðar á kreppuárunum skil, þótt minna megi á ágætan eskifirðingaþátt Jóns Rafnssonar i þeirri hollu bók ,,Vori i verum”. Jón Kr. var ekki lengi i vafa, hann skildi og gegndi timans kalli og jafnan siðan hefur hann verið hinn ötuli og trausti liðsmáður sósialismans á hverjum þeim vettvangi sem baráttan hefur verið háð. Hann var um tima i hreppsnefnd á Eskifiröi, þegar átökin stóðu þar sem hæst og afturhaldið þar reyndi að kné- setja hin róttæku öfl með hvers- kyns bolabrögðum. Þannig var og er Jón ætiö tilbúinn, án þess nokkurntimann aðota sinum tota. Slika liðsmenn á hugsjónin marga, þar er Jón i minum huga i fremstu röö. Þar kemur hvoru- tveggja til, ágæt greind og skilningur og ódrepandi baráttu- seigla. Þar hefur hans indæla eiginkona, Þóra Snædal, hvergi verið eftirbátur manns sins og fá- titt mun það, að öll börn þeirra hjóna skuli svo einlægir liðsmenn hugsjónarinnar sem raun ber vitni. Kynni okkar Jóns eru orðin býsna löng. Hann var bóndi á Hólmum i Reyðarfirði, þegar ég kynntis honum fyrst og öll þau kynni er mér ljúft og skylt að þakka. Barnahópurinn var stór, en fjölskyldan dugleg og samhent og bú átti Jón ágætt er hann varð að hætta og fara aftur út á Eski- fjörð og hefur starfað þar siðan. Minnisstæðastar eru mér heim- sóknir þeirra hjóna fyrir kosningar. Eldlegur áhugi þeirra fyrir málefninu, sigurvissan á hverju sem gekk og þó var meira um að finna þá glaðværu hlýju og gamassemi sem ætið voru ofar- lega i þeim hjónum báðum. Trausta vináttu þeirra met ég mikils og sonur minn naut þess ósvikið i fyrra aö þar skipar hjartahlýjan öndvegi og hann biöur um sérstaka afmæliskveðju til Jóns nú. Helstu atriðin úr lifshlaupi hans skulu hér stuttlega tiunduð. Fæddur er hann 5. júni 1906 að Kolmúla við Reyðarfjörð. For- eldrar hans voru hjónin Kristin Jónsdóttir og Guðjón Jónsson út- vegsbóndi þar og viðar. Á barns- aldri flyst Jón til Eskifjarðar og fer fljótlega að stunda sjó með föður sinum og sjómennskan er svo hans aöalstarf fram um 1940 er verður fyrir þvi óhappi að fót- brotna illa. Þá hafði hann með dugnaði sinum komist yfir bát og hefur án efa þótt það hart að þurfa að leggja sjómennskuna á hilluna fyrir fullt og allt, svo mjög sem hún var honum hugleikin. Þá er það sem hann bregður á það ráð að gerast bóndi og flyst að Hólmum i Reyðarfirði og þar býr hann i 25 ár, frá 1942 til 1967 að hann flyst aftur á Eskifjörð eins og áður sagði. Árið 1929 giftist hann Þóru Snædal Jónsdóttur frá Eskifirði. Börn þeirra urðu alls 12, tvö munu hafa dáið i fæðingu, en einn son misstu þau 7 ára gamlan. Þrjár dætur og sex syni eiga þau á lifi, Ragnhildi, hús- móður i Reykjavik, Guðjón kennara á Akureyri, Jón húsa- smiðameistara á Sauðárkróki, Gisla starfsmann Verkalýðsfél. Vopnafjarðar, Guðna Þór hús- gagnasmiðameistara á Eskifirði, hann var alinn upp af systur Jóns og manni hennar, Selmu hús- móður i Reykjavik, Auðberg lækni á Djúpavogi, Þorvald véla- mann á Reyðarfirði og Helgu hús- móður á Reyðarfirði. Allt er þetta hið mannvænleg- asta greindar- og dugnaðarfólk. Barnabörnin munu nú komin eitthvað á fjórða tuginn. Ekki get ég svo skilist hér við að ég minn- ist ekki á þá laundrjúgu glettni sem Jón lumar jafnan á og i kjöl- far hennar fylgir hin ágætasta hagmælska, enda var Jón ölafs- son, ritstjóri og skáld, langafi hans svo ekki er langt að leita i þeim efnum. Ég skal ekki þreyta afmælis- barnið á frekara rausi, en að lok- um vil ég færa honum minar bestu þakkir fyrir langa og góða viðkynningu, senda honum ein- lægustu afmæliskveðjur og árnaðaróskir með framtiðina um leið og Alþýðubandalagið á Austurlandi þakkar einum sinum besta félaga og óskar honum allra heilla. Og þér, Þóra min, óska ég til hamingju með að eiga þennan siunga eiginmann, og ykkur báðum óska ég farsældar á ókomnum árum. Itelgi Seljan. Pípulagnir ! Nýlagnir, breytingar, hitav^itutengingar. Simi :56!)2‘) (milli kl. 12 og I og eítir kl. 7 á kvöklin).

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.