Þjóðviljinn - 29.06.1976, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 29.06.1976, Blaðsíða 1
UOBVIUINN Þriðjudagur 29. júni 1976 —41. árg. —139. tbl. Steingrímur Hermannsson, fram- kvœmdastjóri Rannsóknaráðs ríkisins: Taka ber spá- dóma svörtu skýrslunnar alvarlega Ég tel mjög óráölegt að taka spádóma svörtu skýrslunnar ekki mjög alvarlega, sagöi Steingrim- ur Hermannsson, framkvæmda- stjóri Rannsóknaráös rikisins og ritari Framsóknarflokksins, er Þjóöviljinn ræddi viö hann i gær. Blaðið sneri sér til Steingrims vegna ummæla Matthiasar i Þjóöviljanum sl. fimmtudag að hann óttaðist ekki þó að þorskafl- inn færi i 320 þúsund lestir á þessu ári eða um 100 þúsund tonn fram yfir það sem fiskifræðingar hafa talið hæfilegt skv. svörtu skýrsl- unni. Svarta skýrslan var for- senda spádóma sem gerðir voru i skýrslu Rannsóknarráðs rikisins um sjávarútvegsmál og greint var frá opinberlega. Ég er sammála Matthiasi um það út af fyrir sig að ég trúi ekki á svörtu skýrsluna, enda er átrún- aður óþarflega stórt orö að nefna i þessu sambandi. En ég tel hik- laust að leitast beri við að fara sem mest eftir henni. Eg tel að með svo miklum veiðum hér við land á þorski sé teflt á tæpasta vaöið, og ég vil benda á að fiski- fræöingar hafa talið að heldur beri að lækka töluna um þorsk- veiöar hér við land en að hækka hana. Svarta skýrslan er tilkomin fyrir störf vinnuhóps um sjávar- útvegsmál og ég þekki vel þær forsendur sem þar er byggt á. Ég leyfi mér aö fullyrða að þær tölur sem þar birtast séu visindalega vel grundaðar og þar er beitt að- ferðum sem islenskir visinda- menn og erlendir eru sammála um að rétt sé að nota. Ég tel því að allt sem fer veru- lega yfir það mark sem svarta skýrslan gerir ráð fyrir stefni þorskstofninum i hættu. Greinar um kosninga- slag á Ítalíu Blaðamaöur Þjóðviljans, Arni Bergmann, var á ítalíu um kosningar þær, er fram fóru þar fyrir rúmri viku. Vegna talsambandsörðugleika gat hann ekki flutt fréttir jafnóðum af þeirri hríð. En f dag hefstgreinaf lokkur blaðamannsins um heyrt og séð í kosningaslag i Róm. Næsta grein kemur svo á morgun. Or sumarferð Alþýðubandalagsins á sunnudaginn var, en þátttakendur i henni voru hátt á 9. hundrað manns og mikil stemning ríkjandi. Sjá opnu og 10. síðu. (Ljósm.:eik) Kerplöturnar vantar mjög viða og á einum staönum haföi vantaö plötur viö sama keriö i fimm vik- ur. Vikulega mætti þó öryggiseft- irlitiö á staöinn án þess aö heimta tafarlausar úrbætur. Maöurinn á þessari mynd stigur vinstra fæti á kerplötuna viö eitt keriö. — gsp Yfirmenn í Alverinu ganga breiðu götuna: Freistandi að láta kerplöt- urnar mæta afgangi 1 heimsókn Þjv. til Álvers- manna i Straumsvik sl. föstudag komu margar dauöagildrurnar i ljós þar sem verkamenn vinna i kerskálunum tveimur. Að sögn Sigurðar T. Sigurðssonar, trúnað- armanns i kerskálum, hafa for- ráðamenn enda stundum valið sér breiða veginn, þ.e. lokað aug- unum fyrir slæmum aðbúnaöi og notað mannskapinn allan til framleiðslustarfa i stað þess aö vinna að nauðsynlegum lagfær- ingum. Eitt af þvi sem Siguröur nefndi eru svokallaðar kerplöntur, sem lagðar eru meðfram hverju keri. Maðurinn á meðfylgjandi mynd styður einmitt vinstra fæti sinum á eina slika. Sigurður sagöi aö viða vantaði þessar plötur og væri þá slysahætta veruleg. A göngu- ferð okkar um skálana mættum við einmitt einum vinnufélaga Siguröar sem var i vinnu á fyrsta degi eftir langt veikindafri. Hafði hann hlotið beinbrot og fleiri meiðsli er vagn sem hann ók lenti með hjólin á milli gólfs og kers — en kerplatan var ekki fyrir hendi. Sigurður sagði það fasta reglu að menn frá öryggiseftirlitinu kæmu á hverjum þriöjudegi og litu á aðbúnaðinn og þá m.a. á kerplöturnar og ásigkomulag þeirra. Skv. reglunni ætti siðan að kippa hverjum hlut i lag fyrir lok þeirrar sömu viku og væri gert ráð fyrir sérstökum mönnum i slikar lagfæringar. Hann sagði það þó margoft koma fyrir að mennirnir væru teknir i önnur störf á meðan ekkert væri gert til að draga úr slysahættunni og benti á t.d. eitt ker, sem staðið hafði i fimm vikur án nokkurrar kerplötu. Oryggisverðir höfðu þó skoðað það ker vikulega allan timann, ef marka má þá reglu, sem á að vera i heiðri höfð. — Þessir menn hjá öryggiseft- irliti rikisins hafa enga þekkingu né áhuga á þvi sem hér er aö ger- ast, sagði Sigurður trúnaöarmað- ur. — Við höfum hringt i þá og Framhald á bls. 14. Skipulagsleysi rafmagnsmála A fundi fréttamanna með þeim Helga Bergs, stjórnarformanni Rafmagnsveitna rikisins og Val- garði Thoroddsen rafveitustjóra i gær létu þeir báöir i ljós þá per- sónulegu skoðun sina að skipu- lagsleysi og glundroöi i yfirstjórn rafmagnsmála stæði þeim málum mjög fyrir þrifum. Eins og kunnust er hafa margar stofnanir á hendi rannsóknir I orkumálum og rekstur rafmagns- mannvirkja. Rekur sig þar eitt á annars horn og stundum eru tveir aðilar að gera svipaðar rann- sóknir. Nú er verið að gera rafmagns- linu frá Akureyri að Kröflu og sér RARIK um framkvæmdir fyrir iönaðarráöuneytið. Hins vegar veit enginn enn sem komiö er hver mun sjá um rekstur þessar- ar linu, hvort það verður Kröflu- virkjun, Laxárvirkjun, Raf- magnsveitur rikisins, Lands- virkjun eða hugsanlega Norður- landsvirkjun, það er óráðin gáta. — GFr Rafmagnsverð hækkar Hinn 1. júli nk. mun heildsölu- henni liggur nú krafa um hækkun verð á rafmagni um allt land á smásöluverði sem ekki hefur hækka um 15%. Rikisstjórnin hef- verið tekin afstaöa til. ursamþykktþessahækkunoghjá — GFr

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.