Þjóðviljinn - 12.03.1977, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 12.03.1977, Blaðsíða 1
UÚBVIUINN Laugardagur 12. mars 1977 — 42. árg. — 59. tbl. I skýrslu Þjóöhagsstojnunar um hag iðnaöarins og samanburö við nokkur lönd AFSKRIFTIR hvergi hærri en hér Afskriftir, fyrningar og aukaafskriftir fyrirtækja eru hvergi meiri en á Is- landi. Þetta kemur fram f ritinu „Hagur iðnaðar", sem Þjóðhagsstofnun hef- ur nýlega gefið út og f jall- ar um áhrif aðildar Islands aðEFTAog friverslunar- samningsins við EBE á iðnaðinn. 1 töflu á blaðsiöu 162 i riti þessu eru afskriftir fjármuna bornar saman við þaö sem tiðkast i sex löndum. Ef tekið er meðaltal 10 ára rekstrar hlutafélaga I iönaöi litur dæmið þannig vlt að þvi er tekur til afskrifta, aukaafskrifta og verðstuðulsfyrninga: Met í afskriftum íslendingar eiga metið i af- skriftum ef tölur um þrjár fyrr- greindar tegundir þeirra eru lagðar saman. Heildartölurnar eru þessar: island 1.229.000,- Bretland 1.062.000,- Danmörk 627.000,- Finnland 850.000,- Noregur 586.000,- Sviþjóð 918.000,- V.-Þýskal. 1.035,- Meðaltal 901.000,- Almennar afskriftir Þegar almennar afskriftir i is- lensku fyrirtæki eru 629 þús. kr., Framhald á bls. 18 | SKRÝTIN HAGFRÆÐI: \ Maí seldur úr landi Ctgeröarráö Hafnarfjarðar „Hversvegna ekki að breyta mun hafa ákveðið að selja tog- Mai i nótaskip og láta það afla arann Mai úr landi, svo hafn- fyrir miljaröa á loönu en leyfa firðingar fái leyfi tii að kaupa jafnframt að keyptur sé togari skuttogara, en sem kunnugt er fyrir togarann Mai, sem yrði bannar rikisstjórnin að keyptur nótaskip og gæti þvi aldrei orðið sé skuttogari nema annar togari togskip framar”, sagði Óskar. sé seldur úr landi i staðinn. Tog- Akveðið mun að norskur aðili, arinn Maf er systurskip Sigurö- sem ætlar að selja hafnfirðing- ar RE og Vikings AK en þeim um, skuttogara taki Mai upp I togurum hefur sem kunnugt er fyrir um 100 milj. Isl. króna, en verið breytt i nótaveiðiskip með það sem á stendur nú, er að bæj- einstökum árangri eins og Sig- arútgerð Hafnarfjaröar biður urður hefur sýnt. eftir lánafyrirgreiðslu hér heima til kaupa á skuttogaran- ,,Ég verð að segja eins og er um> sem aU5Vjtaö er margfalt aö þaö vekur furöu sina aö selja dýrari en Mai. þurfi Mai úr landi svohægt sé aö þaó vekur sannarlega furðu kaupa skuttogara”, sagði Óskar að hafnfiröingar skuli neyðast; Vigfússon formaður Sjómanna- til aö selja Mai úr landi i stað sambands Islands. Hann sagðist þess að breyta skipinu I nóta- alveg geta skilið það sjónarmið skip og láta það moka upp að fjölga ekki togurum, en íoðnu, eins og Sigurður RE, þarna er alls ekki um þaö að systurskip Mai, hefur gert und- ræða. aniarin ár. —S.dór Athyglisverð niðurstaða Verömæti loðnu- aflans 8 miljarðar Það er ekki nema eðlilegt að menn spyrji hvert sé útflutningsverðmæti þess metloðnuafla, sem kominn er á land á þessari vertið. Að þvi er fróðustu menn telja mun útflutnings- verðmæti þeirra 463 þúsund lesta af loðnu, sem á land eru komin, nema um 8 milj- örðum króna, mjöl og lýsi. t gær var engin loðnuveiði að kalla, aðeins tveir bátar tilkynntu um afla, samtals 800 lestir. Bræla var á miðunum, auk þess sem tugir báta liggja i höfnum, biðandi eftir löndun. —S.dór Munið ráðstefnu herstöðva- andstæðinga Munið ráðstefnu herstöðva- andstæðinga um erlenda auð- hringi og sjálfstæði tslands. Ráðstefnan er öllum opin og hefst I Tjarnarbúð klukkan eitt eftir hádegi. Framsöguerindi flytja ólaf- ur Ragnar Grimsson, Kjartan óiafsson, Jónas Jónsson og Jón Kjartansson. Sérkröfur í mótun hjá Dagsbrún „Það er unnið af fullum krafti að mótun sérkrafna okkar I Dags- brún, þessa dagana. Við höfum haldið fundi með ýmsum sérhópum og eigum eftir að halda marga fleiri,” sagði Guðmundur J. Guðmundsson varaformaður Dagsbrúnar er við ræddum við hann I gær. Guðmundur sagði að það væri gifurlega mikið verk aö móta þessar sérkröfur, taka þyrfti til- lit til svo margra hluta, og halda fundi með mörgum sérhópum. Guðmundur sagði aö mikil harka væri i Dagsbrúnarmönnum um þessar mundir, meiri en oftast áður. „Menn eru afar óánægðir með kjörin, enda hefur sú óða- verðbólga sem rikt hefur fariö afar illa með kjör manna”, sagði Guðmundur. Ekki hefur enn verið boöaður sáttafundur, með samninganefnd ASl og atvinnurekendum, en á mánudaginn kemur mun nefnd ASI ganga á fund rikisstjórnar- innar og skýa fyrir henni þær kröfur, sem gerðar eru á hendur rikisvaldinu. „Það er eðlilegt að beðið sé með að kalla saman samningafund þar til rætt hefur verið við rikis- stjórnina sagði Guðmundur J. Guðmundsson að lokum. —S.dór Stjórnin spáir 30% verd- bólgu á þessu ári Sem kunnugt er af fréttum fóru tryggingafélögin fram á það, að fá að hækka iðgjöld af tryggingum um 44% og rökstuddu þessa hækkunarbeiðni með þvi að þarna væri aðeins fylgt verð- . bólgunni, sem yrði á þessu ári. Rikisstjórnin leyfði hinsvegar 37% hækkun og viðurkennir þar með að verðbólgan á þessu ári veröi 30%. Félag isl. bifreiðaeigenda lagöi hinsvegar til, að hækkunin yrði ekki nema 26% og fór þar eftir spá Þjóðhagsstofnunar um verð- bólgu á árinu 1977. Þórður Sverrisson, hag- fræðingur FIB sagði i gær aö það væri alveg ljóst, að með þvi að leyfa 37% hækkun, væri rikis- stjórnin að gera spá Þjóðhags- stofnunar að engu og sjálf rikis- stjórnin spáði þar með 30% verðbólgu I landinu á þessu ári. Þessi hækkun á iðgjöldum tekur gildi frá 1. mars. Sjálfs- ábyrgð bifreiðaeigenda veröur óbreytt. —S.dór Straumrof eftir Laxness frumsýnt 1 Iðnó á miðvikudag A miðvikudagskvöld verður frumsýnt hjá Leikfélagi Reykja- vlkur leikritið Straumrof eftir Halldór Laxness og sama dag kemur það út I bókarformi hjá Helgafelli. Þetta leikrit var samið á einni viku árið 1934, aö þvi er Halldór sagöi á blaðamannafundi i gær, er hann tók sér fri frá þvi að semja Sjálfstætt fólk. I lok nóvember þaö ár var þaö svo sýnt i Iönó og olli nokkru fjaðrafoki og hneykslun I bænum. Þetta er fjöl- skylduharmleikur og reykviking- ar spuröu gjarnan, hvort hér væri fariö af stað til að afsiöa Islenskt hjónalif. Hvaö um þaö. Sýningar urðu ekki nema 5 og Ragnar i Smára, sem lika var á blaða- mannafundinum I gær, sagðist hafa veriö á frumsýningu og ým- ist heföi fólk setið þar með sam- anbitnar varir eða klappað ákaf- lega. Leikstjóri er Brynja Bene- diktsdóttir. Nánar veröur sagt frá leikritinu á þriðjudag. —GFr Brynja Benediktsdóttir leikstjóri og Halldór Laxness á blaðamannafundi I gær: Atti kannski að grafa undan sjálfu hjónabandinu? (Ljósm. Þjv. gel.)

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.