Þjóðviljinn - 03.01.1979, Síða 14

Þjóðviljinn - 03.01.1979, Síða 14
14 SIÐA— 'ÞJÓÐVILJINN MiCvikudagur 3. janúar 1979 FUNDURA SAUÐÁRKRÓKI Ragnar Arnalds menntamála- og samgöngu- ráðherra mun á næstu dögum halda fundi á þétt- býlisstöðum á Norðurlandi vestra eins og venja hefur verið nú um langt skeið. Fyrsti fundurinn verður á Sauðárkróki n.k. fimmtudagskvöld 4. janúar og hefst hann i Villa Nova kl. 21. Næsti fundur verður væntanlega á Skagaströnd á föstudagskvöld, á Hvammstanga og Blönduósi á laugardag, en þessir fundir verða nánar aug- lýstir siðar. Á fundunum mun Ragnar ræða stjórnmálaviðhorfið og hagsmunamál kjör- dæmisins, auk þess sem hann mun svara fyrir- spurnum. Fundirnir eru öllum opnir. Hafnarhreppur Höfn i Hornafirði Auglýsing um lóðaúthlutun Þeim, sem hyggjast hefja byggingar- framkvæmdir á árinu 1979 og ekki hafa fengið úthlutað lóð,er hér með gefinn kost- ur á að sækja um lóðir. Fyrirhugað er að úthluta lóðum undir einbýlishús i hverfi við Hrishól. Nánari uppl. um lóðirnar eru veittar á skrifstofu byggingarfulltrúa Hafnarbraut 27 Höfn Hornafirði. Lóðarumsóknum skal skilað á skrifstofu byggingarfulltrúa á sérstökum eyðublöðum, sem þar fást, fyrir 15. jan. 1979. Athygli er vakin á þvi, að eldri umsókn- ir um lóðir þarf að endurnýja. Byggingarfulltrúi. Sveinafélag pípulagningarmanna Akveðið hefur verið að viðhafa allsherjar- atkvæðagreiðslu um kjör stjórnar og trún- aðarmannaráðs. Framboðslistum skal skilað á skrifstofu félagsins að Skipholti 70 fyrir kl. 18.00 þann 5. janúar 1979. Stjórnin. Blaðberar óskast Vesturborg: Melhagi Tómasarhagi Austurborg: Grensásvegur Breiðagerði Vesturberg Kópavogur: Viðihvammur DJÖÐVIUINN Siðumúla 6, simi 8 13 33 Réttarstada Framhaldaf 10. siðu kemur hvergi nærri, nema rannsóknaraðilar óski atbeina hans i einstökum afmörkuðum tilvikum, svo sem til gæsluvarð- haldsúrskuröar, leitar, eða halds á munum. Heimildir sakbornings og verjanda til að fylgjast meö rannsókninni og kynna sér sakar- gögn meöan á rannsókn stendur eru svo takmarkaðar, að þær eru i raun nánast engar og undir geðþóttaákvörðun rannsóknar- manna komið, hvað sakborningur og verjandi fá að vita um sakar- gögn og gang rannsóknarinnar þar til rannsókn er lokiö, ákæra hefur verið gefin út og málið er komið i hendur dómara. Réttur við frumrannsókn Þar sem frumrannsókn hjá rannsóknarlögreglu er nú ætlað að vera grundvöllur málshöfð- unar á hendur sakborningi án þess að til sakadómsrannsóknar komi, nema i undantekningartil- vikum.og lögregluskýrslur höfuð- sönnunargögn i sakarmálum, er augljóst að tryggja verður réttarhagsmuni sakbornings strax á frumrannsóknarstigi málsins. Meðan rannsóknarvaldið var i höndum Sakadóms var þaö sak- borningi nokkur vernd, að dóm- arar stjórnuöu rannsókn og meðferð mála og gættu að nokkru i raun hagsmuna sakbornings gagnvart lögreglu og ákæruvaldi. Þessu er nú ekki lengur til að dreifa og málum þannig háttað, að rannsóknarhagsmunir sitja i fyrirrúmi en mannréttindi og réttarhagsmunir sakbornings eru bornir fyrir borð. Betur tryggt annarsstaðar Réttarfarsákvæði frændþjóða okkar á Norðurlöndum, ályktan- ir Mannréttindanefndar Evrópu- ráðsins i þessum efnum og þróun mála i lýðfrjálsum rikjum hefur öll gengið i þá átt, að tryggja mun betur en hér tiökast mannréttindi grunaðra manna og sakaðra. Er það sérstakt áhyggjuefni, hversu illa er búið að réttarhagsmunum sakborninga hérlendis miðað við grannþjóöirnar, einkum með hliðsjón af þeirri viðtæku beitingu gæsluvaröhalds, sem hér á sér stað og veldur óþolandi öryggis- leysi fyrir fólk. Stjórn L.M.F.l. telur að við núverandi ástand verði ekki unað og sé íslandi sem réttarriki til vansæmdar. Stjórnin væntir þess, að ráðu- neytið sjái sér fært að taka mál þessi til gagngerrar endur- skoðunar hiö allra fyrsta og er reiðubúin til samstarfs og samvinnu i þvi efni. 1 stjórn Lögmannafélags Islands: Guðjón Steingrimsson hrl., formaöur, Hákon Arnason hrl., varaformaður, Skarphéöinn Þórisson hdl., gjaldkeri, Stefán Pálsson hdl., ritari, og Jón E. Ragnarsson hrl., meðstjórnandi. Nýtt hefti Framhald af 3. siðu. Karlsson og Jóhönnu Sveins- dóttur og ádrepa eftir Þröst Ólafsson. Aftast er efnisyfirlit 39. árgangs Timaritsins. Timaritsheftiö er 112 blaðsiöur en allur árgangur- inn rúmar 450 blaðsiöur. Timaritið er sent félags- mönnum Máls og menningar endurgjaldslaust, en árgjald er nú 3.500 krónur. Timaritiö er prentaö I Prentsmiöjunni Odda hf. Ritstjóri er Þorleif- ur Hauksson. Ávarp forseta Framhald af bls. 6 húsi verðbólgunnar, en hana má kalla samnefnara fyrir það sem nú þrengir svo mjög að þjóð vorri. Þarer viöramman reip aö draga, en sá er eldur heitastur sem brennur ámanni hverju sinni, og það er engin léttúð þótt minnst sé á að oft hefur áöur syrt i álinn en siðan skinið upp og vel ræst úr. Vera má að nú reyni meira en oft áður á þolinmæöi, þrekog góöviid stjórnmálamanna vorra og um leið þjóöarinnar allrar, en þá er að neyta þeirra eiginleika af öllu afli, og mun vel fara. . Góðir áheyrendur. Ariö sem var á ýmsan hátt ár mikilla tið- inda hér álandi, gleðitiðinda en einnig mikilla sorgartiðinda. Hugur vor leitar i samúð til þeirra sem um sárt eiga að binda vegna ástvinamissis af slysförum og öörum ótimabærum sökum. Og ekki gistir hamingjan hvert hús og heimili um þessi áramót fremur en endranær. Megi þó hækkandi sól vera tákn þess og áminning að aftur getur birt þar sem dimmter i ranni. Mætti einn- ig þeim meðbræðrum vorum leggjast likn með þraut, sem sak- ir ellivanmáttar, sjúkleika eða fangavistar fá ekki notiö þeirrar náðar að mega ganga til verka á komandi degi, þvi að sú er llfs- fylling mannanna mest. Ég óska yður öllum, góðir landsmenn, eft- ir þvisem auðið má veröa, góðrar heilsu, lifsgleði og sálarfriðar. Gleðilegt nýjár. í þinghlé Framhald af 4. siðu. fara þeir Matthias og Styrmir á vergang þótt Haraldur verði samkvæmt bréfi Verslunar- ráðsins að hætta rekstri Morgunblaðsins innan tiöar. Matthias gæti t.d. fengið vinnu hjá Norræna þýöingarsjóönum og Styrmir leitað á náðir hinna mörgu félagslegu aðila sem leysa á farsælan hátt slikan vanda á félagslegum grund- velli. Þungfært Framhald af 1. siðu Fjallvegir á Austurlandi voru ófærir, en unnið var að þvi að ryöja veginn I Fagradal, og til stendur að opna leiðinatil suður- fjarðanna allt til Djúpavogs i dag. Frá Djúpavogi er svo fært alla leiö til Reykjavikur, en þó var orðið all-þungfært á Breiða- merkursandi I gær, enda byrjað- ur skafrenningur þar. Hellisheiði og Þrengslavegir voru fær i gær svo og aðal-vegir á Suöurlandsundirlendi. Þó var viða þungfært i uppsveitum Arnessýslu. Þessar upplýsingar fengum við hjá vegaeftirliti Vegageröarinn- ar, en þar var jafnframt tekið fram aö þar sem spáð er vaxandi vindi, mætti búast við aö vegir sem I gær voru sæmilega færir, lokuöust með litlum sem engum fyrirvara ef skefur. —S.dór #ÞJÓÐLEIKHÚSIti SONUR SKÓ'ARANS OG DÓTTIR BAKARANS i kvöld kl. 20 sunnudag kl. 20 MATTARSTÓLPAR ÞJÓÐFÉLAGSINS 6. sýning fimmtud. kl. 20 Hvlt aðgangskort gilda 7. sýning laugardag kl. 20 A SAMA TIMA AÐ ARI föstudag k. 20 Litla sviðið: IIEIMS UM BÓL fimmtudag kl. 20.30 Miðasala 13,15—20 simi 11200 LKIKFFIAG REYKIAVlKUR LÍFSHASKI i kvöld kl. 20.30 laugardag kl. 20.30 SKALD-RÓSA fimmtudag kl. 20.30 75. sýning sunnudag kl. 20.30 VALMOINN föstudag kl. 20.30, örfáar sýningar eftir Miðasala i Iðnó kl. 14—20.30 simi 16620 Gestaleikur í Norræna húsinu THE EXQUI- SITORS Fimmtudagur 4. jan. kl. 21.00 Föstudagur 5. jan kl. 21.00 Laugardagur 6. jan. kl. 17.00 Sunnudagur 7. jan. kl. 17.00 og 21.00 Miðasala I Norræna húsinu. Snjór Framhald af 16 siðu stjóri að farið væri að flytja snjó af götunum ýmist á opin svæði eöa út fyrir bæinn. Afkastamestu tækin i þvi tilliti eru ýtuskóflurn- ar, en borgin á einnig snjóblásara sem notaður er um nætur. Ingi Ú. Magnússon sagöist að lokum vera mjög ánægður með vinnu sinna manna og taldi hann að eins vel væri að gatnahreinsuninni staðið og nokkur kostur væri. Þá hefðu fridagarnir einnig orðiö til þess að menn hefðu bjargað sér betur sjálfir. —AI Alþýöubandalagiö NÝARSGLEÐI ABK Nýársgleði Alþýöubandalagsins i Kópavogi verður i dag, laugardag 30. desember, I Þinghól og hefst kl. 15.00. Fjölbreytt skemmtiatriði. Skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Stjórn ABK Alþýðubandalagsfélag Grindavikur heldur fund I Festi laugardaginn 30. des. kl. 2. Gestur fundarins verður Lúðvik Jósepsson og annar fulltrúi Alþýðubandalagsins á Suöurnesj- um. — Stjórnin. Almennur félagsfundur ABK Almennur félagsfundur verður haldinn hjá Alþýöubandalaginu i Kópa- vogi miðvikudaginn 10. janúar kl. 20.30. Fundarefni: aöild ABK að bæjarstjórn Kópavogs, stefnumótun og fjárhagsáætlun bæjarins fyrir árið 1979. — Stjórn ABK Þrettándaíagnaður ABK Þrettándafagnaður Alþýðubandalagsins i Kópavogi verður haldinn I Þinghól n.k. laugardag. Skemmtiatriði og dans fram eftir nóttu. Félag- ar eru hvattir til aö mæta vel og taka meösér gesti. — Stjórn ABK ^WIW—WIIIMMI Hll........................mMlllilll.BIIIWHWIIill^ Eiginkona min elskuleg Þorbjörg Magnúsdóttir Stórholti 25 sem andaðist þann 21. desember veröur jarösungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 5. janúar kl. 13.30. Fyrir hönd barna, tengdabarna, systkina og annarra vandamanna. Guðmundur Jónsson

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.