Þjóðviljinn - 23.04.1983, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 23.04.1983, Blaðsíða 19
Helgin 23. - 24. apríl 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19 Og engin mynd er færð á stall (Ljósm. Atli). BÖRN AÐ LEK Skagfírðingabók Opnuð var á sumardaginn fyrsta á Kjarvalsstöðum sýning áverkum Þorbjargar Pálsdóttur: börn eru þar að leik, allar myndirnar lýsa hreyfingu og stellingum af leikvelli og úti í horni stendur kona með ósýnilegt barn í holum maga. Ernir Snorrason rithöfundur segir í bók um listakonuna: „Lík- ami okkar er hol, sem hefur innra umhverfi aðskilið frá ytra um- hverfi, sem er það sem við sjáum. Líkamskennd Þorbjargar er allt önnur. Hún sér manninn sem eitt frumulag, eins og verpt laufblað. Innra umhverfi aðskilið ytra um- hverfi er ekki til...“ Ég er oft spurð að því, segir Þor- björg í spjalli við blaðamann, af hverju myndir mínar séu holar, áferðin gróf, til hvers þennan óhugnað? Satt að segja vakir allt annað fyrir mér en að vekja óhugnað, og kannski eru þau viðbrögð eitthvað farin að renna af mönnum. Gróf áferð finnst mér gefa verkunum meira líf en ef þau væru slétt og pússuð. Og hin holu form? Mér finnst þettá samspil ntilli innra rýmis og þess sem um lykur, þessi leikur með opin og lokuð form gefa verkunum nreiri spennu og sjálf- stæði. Mér finnst líka að stelling- arnar verði ákveðnari, afdráttar- lausari þegar fígúrurnar eru holar og þar með meira lifandi. I sömu átt - að gera verkin meira lifandi - gengur það líka, að ég set myndirn- ar aldrei á stall, þær standa eða sitja eða liggja beint á gólfi, eða garði. Stellingarnar, hélt Þorbjörg áfram, móta ég fyrst í vír og vef svo utanum blautum gifsbindum. Síð- an klippi ég niður glerræmur og dýfi í polyester og við þetta verð ég að hafa þunga grímu og mikla gúmíhanska. Þessi verk hafa staðist tímans tönn takk bærilega. En ekki skal ég neita því, að ég vildi gjarna vita þau öll í bronsi - efniviðurinn þessi hér er mér ekkert heilagt mál... Ernir Snorrason leiðir blaða- mann að polyesterstúlku sem heldur á leikfangi, venjulegri rellu. Hver annar, spyr hann, hefði dirfst að setja sitt verk við hliðina á svona rellu...? áb. Út er komið 11. bindi Skagfirð- ingabókar, rits Sögufélags Skag- firðinga. í þessu bindi er, sem jafn- an áður margt að finna sem þcir, er unna sögulegum fróðlcik, geta ekki látið fram hjá sér fara. Bókin hefst á sýslulýsingu „yfir Skagafjarðarsýslu 1863-1872“ eftir Eggert Briem sýslumann. Er lýs- ingin rituð á Reynistað 31. des. 1875. Þá er ritgerð eftir Jón Mar- geirsson, „Friðrik konungur V. og Island". í einskonar skýringarfor- mála fyrir ritgerðinni segir höfund- ur m.a.: ,.Um miðja 18. öld var komið að því, að skipaður yrði, fyrsti íslenski landfógetinn og fyrsti íslenski amtmaðurinn. Það kom í hlut Skagafjarðarsýslu að leggja til mann í embætti landfógeta. Það, sem hér var að gerast. var hluti af breytingu, sem varð á stefnu Dan- astjórnar gagnvart íslandi. Kon- ungur Danmerkur var þá Friðrik V. og verður afstaða hans til ís- lands skoðuð í eftirfarandi rit- smíð“. Gísli Brynjólfsson segir í fróð- legri og ýtarlegri grein frá afa sín- um, sr. Gísla Jóhannessyni, sem fæddur var í Hofstaðaseli 19. okt. 1817. Dreif margt á daga Gísla þótt ekki næði hann háum aldri, dó aðeins 48 ára gamaiL og var þá prestur á Reynivöllum í Kjós. Hannes Pétursson skáld ritar þátt um Þangskála-Lilju og birtast þar nokkrar stökur eftir hana, en Lilja var ágæta vel hagorð. - Guðvin Gras- maðkurinn kominn ábók IÐUNN hefur gefið út leikritið Gunnlaugsson segir frá síðasta för- umanninum í Skagafirði, Sveini Sveinssyni, löngum kallaður Sveinn lagsmaður. Sveinn var fæddur 1857 og andaðist 1946. - Þórhildur Sveinsdóttir bregður upp gamalli svipmynd úr Stafns- rétt. Sigurjón Björnsson segir frá ánni, sem hvarf og rekur minningar um hana, en söguhetjan er Sauðá- in, sem féll í gegnum Sauðárkrók en var síðar bægt frá bænum og veitt í Áshildarholtsvatn. Sakna margir eldri Sauðkrækingar þar vinar í stað. - Haldið er áfram birt- ingu á annál úr Skagafirði 1936- 1938, en hann er ritaður af Stefáni Vagnssyni. - Gunnhildur Björns- dóttir í Grænumýri segir frá hjá- setu á Miklabæ í Blönduhlíð sum- arið 1914. - Loks er „Samtíningur . um mislingasumarið 1882“ eftir Sölva Sveinsson. Skagfirðingabók er rúmar 200 bls. Ritstjóri hennar er Ögmundur Helgason en auk hans skipa rit- stjórnina þeir Sölvi Sveinsson, Hjalti Pálsson og Gísli Magnússon. Greinarkorn þetta átti að birtast í síðasta helgarblaði Þjóðviljans og gerði það, en aðeins að nokkru. Felldir voru niður tveir kaflar, trú- lega til þess að geta pressað efnið inn í afmarkað rúm. Við þær aðgerðir er undirritaður ekki sáttur og væntir þess, að til þeirra komi ekki öðru sinni. Grasmaðk eftir Birgi Sigurðsson, en það var frumsýnt hjá Þjóðleikhúsinu 14. apríl. Þetta er fjórða leikrit Birgis sem sýnt er á sviði, en hin þrjú hafa verið leikin á vegunt Leikfélags Reykjavíkur. Persónur eru fimm: Unnur, Har- aldur, eiginmaður hennar, Bragi, systursonur Unnar, Gréta, dóttir Haralds og Atli bróöir hans. Leikritið fjallar um samskipti þess-. arar fjölskyldu innbyrðis ög átök, sem þar verða þegar tekið er að gera upp málefni fortíðarinnar. - mhg. sunnudagskrossgátan 7 X ~3~ <r 7T T' 8 T~~ 10 X H ^— 20 )X // 9 V 13 </■ 9 V II )9 15 )0 )0 T~ 2 /S“ /7- 12 8 /r 19 f V k \/ (p # 2 y 20 2! 22 19 )S V 3 9 23 9 )iT 19 20 ð Q/ )o 9 3 zo )0 15 v> 3 á> )D * <P 15 7 y M 25 3 9 )8 /9 V )l 3 )9 )7 19 9 7 hf— 2¥ J~ C\D V r 9 & V 2(> 27 Zo V 22 9 2& ZC, 7- 7- /9 V 2 20 ¥ S? 25~ 9 9 8 2o T~ b V )S" 9- 20 )9 20 )o )0 V )0 7 9 )8 >5 19 V 9 7- 29 9 )0 V Z<7 Q? 3 zo ¥ V ,ss 2b % 9 9 3 <£ 2C> 3 9 <£ / 30 3 y ó ¥ 3 12 Z* T~ S2 7- 21 S2 )l Cj 31 ZO y 19 2¥ Nr. 368 Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá götuheiti í Reykjavík. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðvilj- ans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt „Krossgáta nr. 368“. Skilafrest- ur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa. 29 9 // /9 /7 3 2j0 Stafirnir mynda íslensk orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er lá- eða lóðrétt. Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp, því með því eru gefnir stafir í allmörgumorðum.Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa stafi hvern í sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka fram, að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða og breiðum, t.d. getur aldrei a komið í stað á og öfugt. SVAVA JAKOBSDÓTTIR Verðlaunin Verðlaun fyrir krossgátu nr. 364 hlaut Melkorka Sigurð- ardóttir, Njálsgötu 39B, Rvík. Þau eru Oresteia eftir Æskilos í þýðingu Helga Hálfdanarsonar. Lausnar- orðið var Herjólfur. , AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ Verðlaunin að þessu sinni eru smásögur Svövu Jakobs- dóttur, Gefið hvort öðru, IÐUNN sem lðunn gaf út í vetur.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.