Þjóðviljinn - 19.07.1984, Blaðsíða 1
HEIMURINN
MANNLÍF
LANDIÐ
Verðkönnun
Ekki ódýrast í Reykjavík
Fjarlœgðir og flutningskostnaður virðast ekki vega mikið inn í vöruverð í söluturnum
Meðalverð í söluskálum
reyndist vera hærra á höfuð-
borgarsvæðinu en víða á lands-
byggðinni, samkvæmt könnun
Verðlagsstofnunar sem náði til
160 söluskála á landinu. Athygli-
vert er að svo virðist sem verð á
vörum markist ekki af ráði af
Qarlægð frá höfuðborgarsvæð-
inu.
Á ódýrasta og dýrasta staðnum
innan landshluta var mestur
munur á Vesturlandi. Lægst var
verðið í Skaganesti Akranesi en
hæst í Hreðarvatnsskála og mun-
aði 36%. Á Suðurlandi var Olís
Eyrarbakka með lægsta verðið en
í Þjónustumiðstöðinni Þing-
völlum kostuðu sömu vörumar
30% meira. Á Norðurlandi var
munurinn sá sami og á Suður-
landi. ísbúðin Akureyri var ódýr-
ust en söluskáli KS í Fljótum dýr-
astur.
Á Austurlandi reyndist sölu-
skáli Essó á Höfn í Hornafirði
ódýrastur en Shellstöðin í Nes-
kaupstað var með 22% hærra i
verð. Minnstur munur innan
landshluta var á Vestfjörðum eða
um 19%. Verðið var lægst í sölu-
skála KVB á Patreksfirði en hæst
í Hafnarkaffi á Þingeyri.
Ef miðað er við landið allt, þá
reyndist verðið á vörunum í
könnuninni vera lægst í söluskála
Essó á Höfn 377.70 kr. en hæst í
Hreðavatnsskála 544 kr. eða
44% meira. Meðalverð sömu
vörutegunda í 4 söluskálum á
höfuðborgarsvæðinu reyndist
vera 410.79 kr. eða 8.8% hærra
heldur en á Höfn í Hornafirði.
Víða er hægt að fá ódýrari vörar
en í Reykjavík samkvæmt þesari
könnun; Eyrarbakka, Selfoss,
Akranesi, Patreksfirði, Súðavík,
Akureyri, Skagafirði, Höfn, Fag-
urhólsmýri, Eskifirði og Djúpa-
vogi. -óg
Náttúruvernd
Hrópandi
„vandalismi“
Eyðilegging á
Reykjanesskaga
vegna grjótnáms
Hvergi á þessu landi hefur jafn
hrópandi „vandalismi“ átt sér
stað sem á Reykjanesskaga, segir
Jón Jónsson jarðfræðingur í
grcin sinni um náttúruverndar-
mál í Þjóðviljanum í dag.
„Ég hef átt tal við all nokkra
verktaka, sem unnið hafa að
rauðamalarnámi eða öðru grjót-
námi á þessum stað og þeir hafa
nær undantekningarlaust viður-
kennt og harmað hvað mjög þess-
ar aðgerðir spilla útliti landsins
og ófáir hafa lofað að lagfæra sár-
in. Of fáir hafa hins vegar komið
því í framkvæmd. Sums staðar
hefur verið svo langt gengið að
ómögulegt er að lagfæra".
Sjá bls. 19.
I
Sjá bls. 9-17
Enn birtum við fréttir og frásagnir af rispu Þjóðviljamanna um ísafjarðar-
djúp en þessa mynd af Kristjáni Sigurðssyni sjómanni í Bolungarvík tók Atli.
Álver í Eyjafirði
Hópferð
til Alcan
Búið að velja
11 manna
sendinefnd að
skoða
álbrœðslur
Forstjórar Alcan ákváðu þegar
þeir voru hér á Akureyri fyrir
skömmu að bjóða nokkrum
Eyfirðingum að skoða álbræðsl-
ur auðhringsins í Kanada. Sér-
stakur umboðsmaður þeirra til
að velja hópinn var Valur Arn-
þórsson kaupfélagsstjóri. Hann
hefur nú valið 11 menn í lið
Eyfirðinga til að fara þessa för.
Við fyrstu sýn virðist vera um að
ræða hópferð Framsóknar-
manna, þó aðrir slæðist þar með.
Farið verður til aðalstöðva
Alcan í Montreal þarsem rætt
verður við forstjórana. Síðan
munu þeir sýna Eyfirðingum ál-
bræðslur þar í nágreninu. Til
ferðarinnar hafa valist eftirtaldir
menn:
Valur Amþórsson, Jón Sig-
urðsson bæjarfulltrúi Framsókn-
arflokksins, Ingimar Brynjólfs-
son oddviti Arnarneshrepps, Jó-
hannes Geir Geirsson bóndi og
form. kjördæmaráðs Framsókn-
arflokksins, Tryggvi Gíslason
skólameistari, Þóroddur Þór-
oddsson náttúrufræðingur, Finn-
bogi Jónsson framkvæmdastjóri,
Hermann Sveinbjörnsson rit-
'Sstjóri Framsóknarblaðsins Dags,
Tómas Ingi Olrich og bæjarfull-
trúarnir Jón Sólnes og Valgerður
Bjarnadóttir.
-þá
Hagrœðing
Skattheimtan of dýr?
Skattstjóri Vesturlandsumdœmis telur að með því að leggja
niður umboðsmannakerfi skattstofanna megi spara miljónir króna á ári.
Með þvi að leggja niður svonefnt umboðsmannakerfi skattstjóra-
umdæmanna má spara miljónir króna í ríkisrekstrinum á
hverju ári. Tclur Jón Eiríksson skattstjóri Vesturlandsumdæmis að
umboðsmannastörfin séu best komin í höndum bæjar- og sveitar-
jórnarskrifstofa sem ætla megi að vinni þau án endurgjalds.
Nýlokið er fyrri áfanga í starfsemi Samstarfsnefndar um hagræð-
ingu í opinberum rekstri en nefndin hefur starfað undir kjörorðinu
Hagsýni ’84 - Betri þjónusta, lægri kostnaður. Var efnt til sam-
keppni um hagræðingartillögur og bárust fjölmargar sem höfundar
telja að geti sparað í opinberum rekstri, einfaldað hann og bætt
þjónustuna. Þótt umsóknir séu enn að berast hefur verið ákveðið
að veita nokkrum mönnum viðurkenningu fyrir hugvitsamlegar
tillögur og er Jón Eiríksson í þeirra hópi. Þá fá þau Sigurður
Kristjánsson og Sólveig Guðmundsdóttir hjá Gjaldheimtunni í
Reykjavík viðurkenningu fyrir tillögu um að persónuafsláttur renni
til greiðslu á sóknargjaldi, kirkjugarðsgjaldi og gjaldi í fram-
kvæmdasjóð aldraðra. Hingað til hefur afslátturinn aðeins getað
gengið til greiðslu útsvars, eignaskatts og sjúkratryggingagjalds.
Segir í greinargerð tillögunnar að þessi gjöld sem fyrr voru nefnd
séu svo lág að ekki svari kostnaði að innheimta þau þegar engin
önnur álagning er fyrir. Þá hlaut Hörður Bardal viðurkenningu
fyrir að leggja til að þeir sem búa við varanlega örorku þurfi ekki ár
hvert að endumýja læknisvottorð sín til að njóta aðstoðar við kaup
á hjálpartækjum. -v