Þjóðviljinn - 20.07.1986, Blaðsíða 20
Borgara-
stríð í
munka-
lýðveldinu
Aþos er á austustu tánni sem gengur suður úr
Khalkidhikiskaga, fyrir sunnan Þessalóníku.
Áhinuhelga
fjalli Aþos í
Grikklandi
takastáyngri
munkar, sem
aðhyllast
kristinn
kommúnisma
og þeireldri,
sem eru
ákœrðirfyrir
listaverka-
þjófnað og
fleiramiðurgott
Munkar á Aþos: hér hefur verið munklífi í meira en þúsund ár.
Á hinu helga fjalli Aþos í
Grikklandi er þúsund ára
gamalt munkalýöveldi. Þar
nefur nú komið til mikils á-
greinings og jafnvel haodalög-
mála milli yngri munka, sem
vilja að allir lifi við sameignar-
skipulag, og nokkurra eldri,
sem vilja halda i einkacignar-
réttinn og fleira þesslegt.
í klaustrinu Vatopedi hafa um
tuttugu munkar lokað sig inni og
kallað á lögreglumenn til að
standa vörð um klausturdyrnar,
til að koma í veg fyrir innrás yngri
munka, sem vilja koma á sinni
röð og reglu í þessu klaustri.
Hér er um að ræða ekki aðeins
það fræga „kynslóðabil" heldur
meiriháttar uppgjör milli „endur-
nýjunarafla“ og „hefðarsinna" á
Aþos.
Var að deyja út
Áratugum saman hefur litið
svo út sem þetta frægasta munk-
lífi í grískum rétttrúnaðarsið væri
að deyja úr elli. Þegar haldið var
upp á þúsund ára afmæli
klausturs á Aþos árið 1963 töluðu
menn um hátíðahöldin sem „út-
fararmessu" þessa sérstæða
samfélags, sem leyfir engu
kvenkyns inn fyrir sín vébönd -
ekki hænum, læðum, hryssum -
hvað þá konum.
Árið 1943 voru um 2900 munk-
ar á Aþos en árið 1971 voru að-
eins 1145 eftir. Tímans tönn hjó
jafnt og þétt skarð í raðir munk-
anna og nýir bættust ekki við
árum saman. Það var sett upp í
h'kindareikningi, hvenær munkar
dæju með öllu út á fjallinu helga.
En viti menn - árið 1972 hófst
endurnýjunaralda sem kom flest-
um að óvörum. Ungir menn,
margir vel menntaðir, sneru baki
við heiminum og leituðu til Aþos.
Um það bil 700 nýliðar hafa síðan
bæst í hópinn og þrátt fyrir háa
dánartölu meðal hinna öldruðu
Sœðisbanki
nóbelsverðlaunahafa
Bernard Shaw fékk eitt sinn
bréf frá glæsikvendi þar sem hún
bauðst til að ala honum afkvæmi:
„ímyndaðu þér bara hvað slíkt
barn yrði vel af guði gert, með
líkamann minn og gáfurnar þín-
ar.“ Shaw svaraði um hæl: „Stór-
kostlegt, en hvað ef barniö erfði
nú útlitið mitt og gáfurnar þín-
ar?“
Því er þessi saga rifjuð upp hér
að árið 1980 stofnaði bandarískur
kaupsýslumaður, Robert Gra-
ham að nafni, sæðisbanka
Nóbelsverðlaunahafa. Sæðis-
banki þessi varð þegar í stað mjög
umdeildur og þóttust menn
kenna í hugmyndinni bergmál frá
tíma Hitlers og hins hreina aríska
kynstofns. Það gekk því ekkert
alltof vel að fá nóbelsverðlauna-
hafana til að leggja ínn sæði á
reikning. Aðeins þrír létu til-
leiðast og vitað er hver einn
þeirra er en hinir tveir hafa ekki
viljað láta nafns síns getið.
Nóbelsverðlaunahafinn sem
stigið hefur fram í dagsljósið er
William Shockley, sem fékk nó-
belsverðlaun í eðlisfræði árið
1956 ásamt tveim öðrum.
Á þeim sex árum sem liðin eru
síðan bankinn var opnaður hafa
tuttugu börn fæðst með úttekt
móður þeirra í bankanum. Nokk-
ur þessara barna hafa sýnt
skarpar gáfur, en svo er þó ekki
með öll börnin. Þau eru víst upp
og ofan einsog börn eru flest.
Þykir sumum bankinn hafa sann-
að, að gáfnafar sé ekki endilega
arfgengt, heldur hafi uppeldið
ekki síður áhrif á einstaklinginn.
Sálfræðingurinn Lewis Term-
an hefur rannsakað arfgengni
gáfna allt frá því árið 1921. í 65 ár
hefur verið fylgst með 1500 ein-
staklingum frá Kaliforníu og
afkomendum þeirra og sýnir sú
rannsókn að ekki er óalgengt að
börn óvenju gáfaðra einstaklinga
fæðist með lægri greindarvísitölu
en foreldrarnir. Úttekt í sæðis-
bankanum er því ekki örugg fjár-
festing.
Videnskab for alle
munka, sem fyrir voru, eru nú um
1300 munkar á Aþos. Fyrir tíu
árum var meðalaldur munka 60
ár en nú er hann kominn niður í
40 ár.
Nýr siður
En brátt kom til árekstra milli
nýliða og hinna „gömlu“. Flestir
yngri munkar vildu nefnilega
koma á þeim sambýlisháttum
sem banna einkaeignarrétt.
Bræðurnir lifa, matast, vinna og
biðjast fyrir í fullkomnu
sameiningar- og jafnréttisþjóðfé-
lagi. Hverju klaustri er stjórnað
af ábóta sem kosinn er í lýðræðis-
legum kosningum og verður að
hafa verið öðrum til fyrirmyndar í
líferni.
Þessir siðir ráða nú í flestum
hinna 20 klaustra sem starfa á
Aþos. En fyrirvar annar lífsmáti,
sem gerði ráð fyrir því að munkar
væru sjálfstæðir, ættu sínar
eignir, bæðust fyrir þegar þeim
sýndist. Þetta frelsi þykir hafa
haftnokkrardökkarhliðar. Með-
al eignarréttarmunka hafa orðið
fullmörg dæmi um listaverka-
þjófnaði (verðmætum íkonum er
stolið og þeim smyglað frá Aþos
og þeir seldir fyrir morð fjár).
Einnig segir sagan, að þótt öllu
kvenkyns sé bannaður aðgangur
að Aþos, sé þar með ekki sagt að
kynlíf tíðkist þar ekki - þykja
„hefðarmunkar“ ýmsir hafa
stundað hómósexúalisma meira
en við væri unað á helgum stað.
Nýliðarnir voru fullir af siðbót-
arákafa og hafa því viljað koma
sínum siðum yfir á öll klaustrin.
Þeim hefur tekist að snúa þrem
„hefðarklaustrum" nýlega. En
munkarnir tuttugu, flestir vel við
aldur, sem sitja í einu elsta og
ríkasta klaustrinu, Vatopedi,
vilja engu breyta. Þeir hafa neit-
að tilskipunum frá Aþos-stjórn
um siðbót og vísað frá sér ákær-
um um listaverkastuld og fleira
misjafnt. Þeir hafa og snúið sér til
patríarkans í Konstantínópel,
sem er æðsti maður grísku kirkj-
unnar, en hann hefur ekki viljað
svara bréfum þeirra.
Og á meðan loka gamalmunk-
ar sig inni undir lögregluvernd...
(Byggt á Spiegel)
20 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
3nætur \
fyrir aóeins
4.800 kr.
Pað er ekki á hverjum degi sem hægt verður að
gista á Hótel Örk í þrjár nætur fyrir aðeins
4.800. krónur.
nú gefst þeim sem vilja kynnast af eigin raun
þessu umtalaða hóteli tækifæri til að gista þar
á sérstöku kynningarverði.
Innifalið í verðinu er gisting fyrir einn ásamt
morgunverði (continental). Aðgangur að
sundlaug og gufubaði ásamt aðstöðu til að
leika golf eða tennis. Þá er einnig sparkvöllur
og hlaupabrautir fyrir þá sem vi(ja trimma.
Frítt fyrír börn sem ekkl hafa náð 12 ára
aldri.
Allar frekari upplýsingar hjá tlótel Örk
tlveragerði í síma 99-4700 eða á staðnum.
HQTEL
ORK
ekkert venjulegt hótel...