Þjóðviljinn - 24.03.1987, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 24.03.1987, Blaðsíða 1
í I. I Alfreft Qfslason stefnir á þýskan meistaratitil með Essen. V-Þýskaland Oruggt hjá Essen Frá Jóni H. Garðarssyni, fréttamanni Þjóðviljans (V-Þýskalandi: Það bendir allt til þess að Essen verði þýskir meistarar í hand- knattleik. Liðið hefur sjö stiga forskot þegar aðeins fimm um- ferðir eru eftir af keppnistímabil- inu. Essen vann nokkuð öruggan sigur gegn Weiche Handewitt, 24-19 um helgina. Staðan í hálf- l^ik var 10-7, Essen í vil. Springel var markahæstur í liði Essen með 8 mörk, Fratz skoraði þrjú og Al- freð 3. Lemgo tapaði á heimavelli fyrir Hofweier, 19-22. í hálfleik var jafnt 10-10. Sigurður Sveins- son var markahæstur hjá Lemgo, skoraði 6 mörk. Göppingen var sex mörk undir í hálfleik, 9-15, gegn Schutterw- ald, en sigraði 26-24. Munaði þar mest um frábæran leik Klempel sem var markahæstur liði Göpp- ingen með 6 mörk. íþróttir Ikvöld Fyrsti leikurinn í Reykjavík- urmótinu í knattspyrnu er í kvöld. Víkingur og Leiknir mæt- ast á gervigrasinu og hefst leikur- inn kl. 20.30. Einn leikur er í úrslitakeppni Úrvalsdeildarinnar. KR og Njarðvík leika síðari leik sinn í Hagaskólanum og hefst hann kl. 20. Njarðvík sigraði í fyrri leiknum og sigri þeir í þessum eru þeir komnir í úrslit. V-Þýskaland Pumpido til Kölnar Forráðamenn Kölnar eru nú á höttunum eftir landsliðsmark- manni Argentínu, Nery Pumpido til að koma í stað Toni Schumac- hers. Útvarpsstöð í Köln skýrði frá þessu og sagði að Schumacher hefði sjálfur átt þessa upp- ástungu. Scumacher sjálfur dundar nú við að spá í tilboð frá ýmsum lið- um víðsvegar um Evrópu. -Ibe/Reuter Handbolti Hörkuleikir í bikarnum Það er engan veginn útséð um hvaða lið komast áfram í undan- úrslit Bikarkeppni HSI. Breiðablik leikur gegn Vals- mönnum á Digranesi á morgun kl. 20. Búast má við hörkuleik. Valur og Breiðablik eru með lið af svipuðum styrkleikaflokki, en Blikamir er erfiðir heim að sækja. Á sama tíma leika í Laugar- dalshöll, Fram og FH. Framarar hafa að engu að stefna í deildinni og leggja því allt í sölumar fyrir Bikarkeppnina. FH-ingar gefa þó líklega ekkert eftir og sýndu það gegn Víkingum hvers þeir em megnugir. Að leik Fram og FH loknum leika í Höllinni Fylkir og Stjarn- an. Fylkismenn eru í fallbarátt- unni í 2. deild, en Stjarnan í efri hluta 1. deildar. Stjaman ætti því ekki að vera í vandræðum. í Vestmannaeyjum taka heimamenn á móti bikarmeistur- unum, Víkingum. ÍBV hefur staðið sig mjög vel hingað til. Slógu KA og HK út, en líkurnar eru þó Víkingum í hag. Leikurinn hefst kl. 20 á morgun. -Ibe Grosswaldstadt tapaði nokkuð óvænt fyrir Swabing á 20-22. Blak Pressan sigraði Pressuliðið sigraði Biaklands- Uðið nú um heigina. Pressan sigraði 3-2. Landsliðið byrjaði þó vel og vann fyrstu tvær loturnar. Eftir það fór pressuliðið að ná betur saman og sigraði í þremur síðustu lotunum. Samúel öm Erlingsson brosir sínu blíðasta og lemur boltanum f gólfið hjá Fram. Mynd; E.ÓI Blak Þróttarar meistarar Þróttarar tryggðu sér íslands- meistaratitUinn sjöunda árið í röð, með sigri gegn Fram, 3-1, f síðari úrslitaleik liðanna. Þróttarar sigruðu í fyrstu hrin- unni, 15-8, en Fram vann næstu, 9-15. Þróttarar unnu þriðju hrin- una 15-7. Síðasta hrinan var jöfn og spennandi, en þegar staðan var 10-10 tóku Þróttarar við sér og tryggðu sér íslandsmeistaratit- ilinn með sigri 15-12. Leifur Harðarson fyrirliði Þróttar lék með þeim að nýju og hafði góð áhrif á liðið. Hann lék ekki með Þrótti gegn KA í bik- arnum, en þá tapaði Þróttur sín- um fyrsta bikarleik í áraraðir. Þetta er ekki ný tilfinning fyrir Þróttara. Þetta er sjöunda árið í röð sem þeir vinna íslandsmótið og frá 1977 hafa þeir unnið 15 bikara og þá er Reykjavíkur- mótið ekki talið með. Framarar geta verið ánægðir með árangur sinn. Þeir hafa ekki náð svona langt áður og hafa komið á óvart í vetur. Víkingar tryggðu sér 3. sætið með sigri gegn IS, 3-1. ÍS vann fyrstu hrinuna 9-15, en Víkingar sigruðu þrjár síðustu 15-5, 15-8, og 15-11. Þetta er í fyrsta sinn sem ÍS kemst ekki í verðlauna- sæti á íslandsmótinu. -Ibe V-Þýskaland Stórsigur Gladbach í Bremen Sex mörk í síðari hálfleik. Bayern enn á toppnum Frá Jóni H. Garðarssyni, fréttamanni Þjóðviljans í V-Þýskalandi: Werder Bremen hafði ekki tap- að leik á heimaveUi í tæp þrjú ár þartil á laugardaginn. Þá fengu þeir Gladbach í heimsókn og máttu þola stórtap, 1-7. Það er greinilegt að ekkert fær stöðvað Gladbach þegar þeir ná sínum besta leik. En það leit ekki út fyrir stórsigur í hálfleik. Þá var staðan 1-0 Gladbach í vil og leikurinn frekar jafn. En tvö mörk frá Criens, og eitt mark frá Rahn og Hochstatter komu Gladbach í 4-0. Pezzey náði að minnka muninni, en Krauns, Bakalorz og Dresen bættu við þremur mörkum til að fullkomna stórsigur Gladbach. Bayem vann einnig stórsigur, gegn Nurnberg. Nurnberg voru búnir að vinna fimm leiki í röð og búist var við hörkuleik og upp- selt. Annað kom á daginn. Hinir ungu leikmenn Nurnberg báru allt of mikla virðingu fyrir Bayem og töpuðu stórt 4-0. Það vom Rummenigge, Wohlfarth, Hoen- es og Matthaus sem skomðu mörk Bayem. það er greinilegt að Köln hefur fundið arftaka Schumachers í markinu. Hinn 19 ára gamli Illg- ner átti frábæran leik með Köln gegn Leverkusen þegar þeir sigr- uðu 1-0. Það var Uwe Bein sem skoraði sigurmark Kölnar eftir góða sendingu frá Morten Olsen. Klaus Fischer lék sinn fyrsta leik með Bochum, eftir að hafa dregið fram skóna að nýju. Og það var ekki að spyrja að því hann skoraði mark og lagði upp annað í 3-1 sigri Bochum gegn Kaiserslautem. Knabel og Wo- elk skomðu hin tvö mörk Boc- hum, en Kohr minnkaði muninn fyrir Kaiserslautern. Láms Guðmundsson kom inná í fyrsta sinn í langan tíma gegn Schalke. Leiknum lauk með jafn- tefli, 0-0. Það var reyndar Atli Eðvaldsson sem fór útaf í hans stað. Hamburger SV unnu sannfærandi sigur gegn Frankfurt á útivelli, 1-3. Theiss kom heima- mönnum yfir, en Lux, Okonski og Droltner skoruðu mörk Hamburger. Staóan f Bundesllgunnl: B.Munchen.....21 10 10 1 41-21 30 Hamburg.......21 12 5 4 41-22 29 Leverkusen....20 12 2 6 38-21 26 Stuttgart.....20 10 5 5 35-20 25 Kaiserslaut...21 9 6 6 35-27 24 W.Bremen......21 10 4 7 39-43 24 Köln..........21 9 5 7 31-27 23 Dortmund......20 8 6 6 44-27 22 Nurnberg......22 8 6 8 41-39 22 Gladbach......21 7 7 7 38-30 21 Uerdingen.... 19 7 6 6 27-26 20 Bochum........21 5 10 6 24-22 20 Schalke.......21 7 6 8 32-37 20 ijudagur 24. mars 1987 Logi Bergmann Eiösson K (Ani/ll IIAIkl _ CÍ£>A

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.