Þjóðviljinn - 18.07.1991, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 18.07.1991, Blaðsíða 7
VlÐTMJB Þessi maður á ekki að vera í leiguíbúð út í bæ enda þótt hún sé undir gæslu. Hann átti að vera undir stððugri gæslu áður en hann framdi morðið en það brást. Fjölskyldan hans réð ekk- ert við hann áður. Það hefur sýnt sig að hann er hættulegur og við teljum að hann ætti fremur að vera á Kleppi þar til réttargeð- deild tekur til starfa, segir Linda Hafsteinsdóttir, systir Hafdísar Hafsteinsdóttur sem myrt var þann 14. febrúar síðastliðinn. Ætt- ingjar hinnar myrtu hafa nú í huga að óska eftir opinberri rannsókn á því hvernig þessi hörmulegi atburður gat átt sér stað og mótmæla meðferð heilbrigðisráðherra á málinu. „Við höfum algjörlega verið sniðgengin. Samúðin er öll með morðingjanum sem hefur verið sleppt úr haldi en íjölskylda þol- andans virðist réttlaus," segir Linda. Fjölskyldan hugleiddi í vor að óska eftir opinberri rannsókn að ráði Rannsóknarlögreglunnar þar sem margir endar voru lausir í málinu eftir að maðurinn var úr- skurðaður ósakhæfur. Lögfræðing- ur ráðlagði þeim þó að bíða og sjá til. Auk þess dundi annað áfall á fjölskyldunni þegar faðirinn lést úr hjartasjúkdómi mánuði eftir morð- ið. Nú hafa aðstandendumir hins vegar fengið nóg eftir að morðing- inn var leystur úr haldi og sendur í íbúð út i bæ og hafður undir eftir- liti fjölskyldu sinnar á meðan eng- in önnur úrræði virðast til í kerf- inu. „Þegar maðurinn var úrskurð- aður ósakhæfur var málinu lokað mjög fljótlega,“ segir Linda. „Það hefúr enginn talað við okkur, rétt eins og við værum ekki til, nema sá sem stjómaði rannsókn lögregl- unnar. Fjölmiðlar hafa blásið upp mikla samúð með þessum manni og sagt hann þroskaheftan. Það er ekki rétt og það höfðum við ekki heyrt áður þau ár sem við höfum haft kynni af honum í gegnum systur mína. Maðurinn er miklu fremur geðveikur og þroski hans hefúr aldrei verið ákvarðaður af sérfræðingum. Það er ekki heldur rétt að á milli þeirra Hafdísar hafi verið ást- arsamband. Þau vom búin að vera vinir í tólf ár og vom í skóla sam- an um tíma. Við emm líka ósátt við að hún sé afgreidd sem vangef- in og réttlaus einstaklingur. Hafdís systir var hefl í þroska vegna hæg- fara vöðvarýmunarsjúkdóms sem jafhframt hafði áhrif á hreyfígetu hennar. Við emm ekki sátt við að þessi maður fái að ganga laus þvi hann er hættulegur umhverfi sínu. Við höfúm frétt að það hafi verið leigð íbúð undir hann og með henni sé fylgst. Þegar hann framdi morðið var hann vistaður um óákveðinn tíma i sambýli fyrir vangefna í Njörvasundi vegna þess að ekki fannst samastaður fyrir hann. Við höfúm haft kynni af honum í gegn- um árin og hann kemur mjög vel fram og er kurteis en hann hefur mikið skap. Það þurfti oft að stilla hann, sagði systir mín, en hann bar það ekki með sér að vera þroska- heftur. Hann átti að vera undir fullri gæslu og með fylgdarmann í Njörvasundi þar sein hann var óstabíll og átti það oft til að strjúka. Sá fylgdarmaður hafði hætt störfum nokkur áður en morð- ið var framið og enginn var ráðinn i staðinn.“ Rétt er að geta þess að Þjóð- viljinn hafði samband við Rann- sóknarlögreglu ríkisins og fékk þessar upplýsingar staðfestar þar. Linda segir að fjölskyldan hafi ekki fengið nein svör um hvemig á því stóð að eftirlit með manninum var ekki sem skyldi. „Síðar kom það í ljós að þegar systir mín fór til mannsins í Njörvasundi í þá heimsókn, sem varð hennar síðasta, þá sá hana enginn koma,“ segir hún. „Þama á að vera starfsfólk sem fylgist með þeim sem koma og fara og með þeim skilyrðum fékk hún leyfi hjá móður okkar til að heimsækja hann. Af einhveijum ástæðum var starfsfólkið ekki nálægt og virðist hafa verið að taka til einhvers stað- ar í húsinu. Þetta er allt óljóst og við höfúm ekki fengið skýr svör um þetta heldur. Hún fór til hans með nýjar plötur til þess að stytta honum stundimar. Hann gaf lögreglunni þá ástæðu fyrir morðinu að hún kom til hans á fimmtudegi en ekki þriðjudegi og hann hefði reiðst henni fyrir það. Morðið var framið á hryllileg- an hátt og greinilega af sjúkum manni. Oldcur hefúr ekki verið sagt hvar hann náði í morðvopnið né hvert það var en það sem við vitum er að lögreglan taldi mörg stungus- ár á líkama hennar. Maðurinn faldi líkið undir rúmi í einn og hálfan sólarhring og gekk mjög vel frá öllu saman. Mamma talaði meira að segja við hann í millitíðinni og þá sagði hann henni að Hafdis hefði komið í heimsókn en hefði stoppað stutt og ætlað í heimsókn til vina sinna. Hann tal- aði eins og ekkert hefði í skorist en starfsfólk á heimilinu sagði hann þó hafa hagað sér eitthvað ein- kennilega um kvöldið. Við skiljum ekki hvers vegna þessi maður fær meðhöndlun sem aðrir fá ekki. Margur annar er lát- inn dúsa í fangelsi fyrir minni brot og við teljum að hann hefði átt að vera þar þangað til réttur staður er fundinn. Það væri að minnsta kosti betra að hann væri þar eða á Kleppi heldur en hjá fjölskyldu sinni sem treysti sér ekki til að sjá um hann áður. I tímaritsgrein sem birtist ný- lega er honum vorkennt mikið, systir mín afskrifúð sem þroska- heft og látið eins og þetta hafi bara gerst óvart. Þetta erum við ekki sátt við. Verknaðurinn var hræði- legur og maður getur ekki gleymt slíku. Það hafa margir mikla samúð með honum og það er áreiðanlega rétt að fangelsismál hér eru í ólestri. En okkur finnst heilbrigðis- ráðherra ekki vera maður til að leyfa manninum að fara heim án þess að ráðfæra sig við sérffæð- inga. Ráðherra talaði um í blöðum að maðurinn væri að veslast upp í fangelsi en auðvitað yrði heilbrigð manneskja ekki síður eftir sig eftir að hafa framið slíkan verknað á vini sínum. Ég skil ekki hvemig hefur verið tekið á þessu máli. For- eldrar hans tala um að hann hafi verið afskaplega óheppinn með sitt líf áður en hann framdi morðið, en það er svo margur amiar sem hefur átti við erfiðleika að etja. Það mætti spyija hvar ætti að draga lín- una. Af hveiju sendum við bara ekki alla heim og gefum þeim ann- an séns?“ -vd. Hafdls Hafsteinsdóttir var 25 ára þegar hún féll fyrir morðingjahendi þann 14. febrúar siðastliðinn. Myndin var tekin um ári áður en hinn hörmulegi atburður átti sér stað. Síða 7 ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 18. júlí 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.