Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1996, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1996, Blaðsíða 50
58 afmæli LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1996 TV\7~ Lilja Margeirsdóttir Lilja Margeirsdóttir, húsfreyja og fyrrv. verslunarmaður, til heim- ilis að Bergi í Reykholtsdalshreppi, verður sextug á morgun. Starfsferill Lilja fæddist í Þórshöfn í Færeyj- um og ólst þar upp fyrstu níu árin en síðan í Reykjavík. Hún lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræða- skóla Vesturbæjar og stundaði síð- ar nám við húsmæðraskóla í Dan- mörku. Lilja stundaði afgreiðslustörf hjá Magnúsi Benjamínssyni úrsmið, skrifstofustörf hjá SÍS, afgreiðslu- störf hjá Kornelíusi Jónssyni á Skólavörðustíg, skrifstofustörf hjá BP og var sölustjóri hjá Steinavör hf. á árunum 1969-89. Þau hjónin fluttu að Bergi 1989 og hefur Lilja stundað hrossabúskap og trjárækt síðan jafnframt heimilisstörfum. Lilja er ritari sóknarnefndar, syngur í kirkjukór og Freyjukórn- um og starfar með ungmennafélag- inu og kvenfélaginu í sinni sveit. Þá er hún trúnaðarmaður SÁÁ. Fjölskylda Lilja giftist 25.8.1956 Flosa Ólafs- syni, f. 27.10. 1929, leikara, rithöf- undi og hagyrðingi. Hann er sonur Ólafs Jónssonar, f. 1905, d. 1989, verslunarmanns, og Önnu Odds- dóttur, síðar Stephensen, f. 1908, d. 1980, kaupkonu. Kjörforeldrar Flosa voru Flosi Sigurðsson,. f. 1874, d. 1952, trésmiður, og Jónína Jónatansdóttir, f. 1869, d. 1946, hús- móðir. Sonur Lilju og Flosa er Ólafur, f. 13.10.1956, tónlistarkennari í Kaup- mannahöfn, kvæntur Elísabetu G. Halldórsdóttur, nema í handa- vinnukennslu, og eru börn þeirra Anna Ólafsdóttir, f. 22.4. 1980, og Flosi Ólafsson, f. 25.3. 1992. Systkini Lilju eru Margrét, f. 22.5. 1933, sölufulltrúi í Reykjavík; Guðjón, f. 6.3. 1942, forstjóri í Reykjavík; Ingólfur, f. 4.5. 1948, rit- höfundur og blaðamaður í Reykja- vík; Sigurjón, f. 8.2. 1953, d. s. á; Óskar Helgi, f. 11.6. 1954, vinnu- maður í Reykjavík. Foreldar Lilju: Margeir Sigur- jónsson, f. 22.11. 1907, d. 1.11. 1987, forstjóri í Reykjavík, og eftirlifandi k.h., Kristín Laufey Ingólfsdóttir, f. 2.7. 1910, húsmóðir. Ætt Margeir var sonur Sigurjóns, söðlasmiðs í Hafnarfirði, bróður Finnboga Arndals skálds. Sigurjón var sonur Jóhanns, b. í Ósgröf, bróður Jónasar, langafa rithöfund- anna Svövu og Guðrúnar Jakobs- dætra og bróður þeirra, Jökuls, föður rithöfundanna Elísabetar, 111- uga, Hrafns og Unnar. Jóhann var sonur Jóns, b. í Mörk, Finnboga- sonar. Móðir Margeirs var Margrét, systir Guðrúnar, móður Ingveldar Gísladóttur, myndlistarmanns og rithöfundar í Hafnarfirði. Margrét var dóttir Þorleifs, b. í Vatnsholti, Jónssonar, b. í Hrútsstaðahjáleigu, Bjarnasonar, b. á Syðra-Velli, Þor- grímssonar, bróður Ingimundar, langafa Jóns í Hellukoti, langafa Gísla, langafa Einars Más Guð- mundssonar rithöfundar. Ingi- mundur var faðir Beinteins, sem var langafi Helgu, langömmu Ját- varðs Júlíussonar rithöfundar; langafi Elísabetar, langömmu Guð- mundar, foður Jónasar rithöfund- ar, og langafi Sigríðar, langömmu Júlíu, móður Sveinbjöms I. Bald- vinssonar rithöfundar. Þorgrímur var sonur Bergs, ættföður Berg- sættarinnar, Sturlaugssonar. Móð- ir Margrétar var Margrét Eyjólfs- dóttir af Kópsvatnsætt. Laufey er dóttir Ingólfs, verk- stjóra í Reykjavík, Daðasonar, b. á Setbergi, bróður Kristjáns, afa Sig- fúsar Daðasonar skálds. Daði var sonur Daníels, b. í Litla-Langadal, Sigurðssonar, Sigurðssonar, skálds og hreppstjóra þar, Daðasonar. Móðir Ingólfs var María er varð hundrað og sex ára, systir skáld- anna Herdísar og Ólínu. María var dóttir Andrésar, formanns í Skál- eyjum, Andréssonar. Móðir Andr- ésar var Guðrún Einarsdóttir, syst- ir Þóru, móður Matthíasar Jochumssonar skálds, og systir séra Guðmundar á Kvennabrekku, föður Theodóru Thoroddsen skáld- Lilja Margeirsdóttir. konu, ömmu Dags Sigurðarsonar skálds. Móðir Maríu var Sesselja Jónsdóttir, systir Sigríðar, móður Björns Jónssonar ráðherra, fóður Sveins forseta. Móðir Laufeyjar var Lilja Hall- dórsdóttir, systir Lárusar, prests á Breiðabólstað. Móðir Lilju var Elín Bárðardóttir. Móðir Elínar var Sol- veig, systir Ragnheiðar, ömmu Jó- hanns Gunnars Sigurðssonar skálds. Lilja er að heiman. Til hamingju með afmælið 5. maí 90 ára Karl Bergmann Sveinsson, JJjörvasundi 9, Reykjavík. Indiana Albertsdóttir, Fannborg 1, Kópavogi. 85 ára Míarfríður Sigurðardóttir, Hátúni 10A, Reykjavík. 80 ára Ragnheiður Jóhannsdóttir, húsfreyja að Bakka, Ölfusi, verður áttræð á þriðjudaginn. Eiginmaður hennar er Engil- bert Hannesson, bóndi á Bakka. Þau hjónin taka á móti gestum í Hraunholti, Dalshrauni 15, Hafn- arfirði, á afmælisdaginn milli kl. 16.00 og 19.00. Anna M. Vest, frá Sunnba á Suðurey.J'ær- eyjum; Stáfnesvegi 14, Sandgerði. verður áttræð á mánudaginn. Eiginmaður hennar var Jak- ob Vest frá Vági á Suðurey sem er látinn. Anna heldur upp á daginn með bömum og nánustu vinum í Verkalýðshúsinu í dag, laugardag- inn 4.5. Guðlaug Sigurbergsdóttir, Skólabraut 3, Stöðvarfirði. 75 ára Ingibjörg Jóns- dóttir (Imma), brigader í Hjálp- ræðishernum, Freyjugötu 9, Reykjavík. Eiginmaður Ingibjargar er Óskar Jónsson, brigader í Hjálpræðishemum. Imma tekur á móti gestum í sal Hjálpræðishersins - Herkastalan- um, Kirkjustræti 2, Reykjavík, á morgun, sunnudaginn 5.5., kl. 14.00-17.00. Ragnhildur Guðbjörnsdóttir, Hábæ 33, Reykjavík. Guðmundur HaOdórsson, Ásmundamesi, Kaldrananes- hreppi. 70 ára Skarphéðinn Pálsson, Hátúni 12, Reykjavík. Skarphéðinn tekur á móti ætt- ingjum og vin- um í félagsheim- ili Sjálfsbjargar í Reykjavik, Hátúni 12, á morgun, sunnudaginn 5.5., eftir kl. 17.00. Borghildur Þorleifsdóttir, Bláskógum 11, Hverageröi. Borghildur tekur á móti ættingj- um og vinum í félagsheimili Ölf- usinga í Hveragerði í dag, laugar- daginn 4.5., frá kl. 15.00. Sigurður Ámason, Nýbýlavegi 64, Kópavogi. Ingibjörg Steinþórsdóttir, Árbraut 17, Blönduósi. Valgerður Pálsdóttir, Túngötu 47, Eyrarbakka. Guðlaug Gísladóttir, Grensásvegi 60, Reykjavík. 60 ára_________________________ Erla Óskarsdóttir, Hlégerði 31, Kópavogi. Sigursteina Margrét Jónsdóttir, Neðstaleiti 2, Reykjavík. John WiUiam Mc.Tiernan, Austurgötu 7, Stykkishólmi. Edda Magnúsdóttir, Bjarnastöðum, Hvítársíðuhreppi. Haudiur Bergsteinsson, Bræðratungu 4, Kópavogi. 50 ára Sigríðiu: Guðmundsdóttir, Vogalandi 6, Reykjavík. Guðrún Sigursteinsdóttir, Nönnugötu 14, Reykjavík. Gunnar Njálsson, Dalseli 33, Reykjavík. 40 ára________________________ Úlfar Arason, Klöpp, Svalbarðsstrandarhreppi. Kristrún HaUgrímsdóttir, Bakkastíg 15, Eskifirði. Egill Aðalsteinsson, Kársnesbraut 127, Kópavogi. Vignir Jónsson, Óðinsgötu 22A, Reykjavík. Rebekka Jónsdóttir, Nökkvavogi 18, Reykjavík. Elisabet Guðrún Nönnudóttir, Hjallabraut 19, Hafnarfirði. Aðalheiður Guðmundsdóttir, Seftjörn 13, Selfossi. Guðrún Stefánsdóttir, Sigríðarstöðum, Hálshreppi. Ingibergur H. Hafsteinsson, Skúlaskeiði 14, Hafnarfirði. Björg Einarsdóttir, Hæðagarði 6, Höfn í Hornafirði. Jakob Þór Pétursson, Frostaskjóli 26, Reykjavík. Jóna María Sigurgísladóttir, Esjuvöllum 3, Akranesi. Þórey Jónsdóttir Þórey Jónsdóttir fótaaðgerða- fræðingur, Flyðrugranda 2, Reykja- vík, verður sextug á morgun. Starfsferill Þórey fæddist á Þorvaldsstöðum í Breiðdal í Suður-Múlasýslu og ólst upp í Breiðdalnum við öll al- menn sveitastörf. Auk þess vann hún í fiskvinnslu á vetrum á Fá- skrúðsfirði. Þórey flutti tvítug til Þingeyrar við Dýrafjörö þar sem hún var bú- sett næstu fimm árin. Hún flutti til Akraness 1960. Auk húsmóður- starfa var hún þar starfsmaður Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi í fjölda ára, starfaði í mörg ár hjá Haraldi Böðvarssyni og Co, starfaði við leikskóla á Akranesi og var næturvörður við heimili fjölfatlaðra á Akranesi. Þórey flutti til Reykjavíkur 1986 og hóf þá nám í fótaaðgerðum. Síð- ustu sex árin hefur hún starfað við fótaaðgerðir á Elli- og hjúkrunar- heimilinu Grund. Þórey hefur sungið í kór og starf- að í leikfélaginu og verklýðsfélagi á Akranesi, auk þess sem hún sat í stjórn þessara félaga. Hún er nú fé- lagi í Myndlistarklúbbi Hvassaleit- is. Fjölskylda Þórey á fjórar dætur frá tveimur hjónaböndum. Dætur hennar eru Guðný Jóna Ólafsdóttir, f. 3.2.1957, sjúkraliði og húsmóðir á Akranesi, en maður hennar er Guðjón Guð- mundsson alþm. og eiga þau þrjú börn, Eyþór Ólaf, Kristjönu og Erlu Þóru; Daðey Þóra Ólafsdóttir, f. 15.7. 1959, bæjarritari á Siglufirði, og á hún eina dóttur, Ólöfu Völu Schram; Erla Ólafsdóttir, f. 29.9. 1961, bókari í Domus Medica en maður hennar er Fjölnir Þorsteins- son rafeindatæknir og eru börn þeirra Fanndís og Þorsteinn Freyr; Eygló Peta Gilbertsdóttir, f. 30.5. 1972, háskólanemi í Múnster í Þýskalandi. Systkini Þóreyjar eru Sigurður, f. 1916, nú látinn, kaupmaður og formaður Bílstjórafélagsins Trausta; Kristín Björg, f. 1917, nú látin, húsmóðir á Fáskrúðsfirði; Árni Björn, f. 1918, leigubílstjóri á Hreyfli; Björgólfur, f. 1919, bóndi á Tungufelli í Breiðdal; Helga Björg, f. 1920, fyrrv. húsfreyja að Geithell- um í Álftafirði, nú búsett á Egils- stöðum; Einar Björgvin, f. 1922, húsasmíðameistari í Borgarnesi; Oddný Aðalbjörg, lengst af hús- móðir á Fáskrúðsfirði, nú búsett í Reykjavík; Hlíf Þórbjörg, f. 1924, húsmóðir á Seltjarnarnesi; Jónas, f. 1926, nú látinn, vegaverkstjóri á Breiðdalsvík; Hlífar Pétur, f. 1929, bóndi að Þorvaldsstöðum í Breið- dal; Guðmundur Þórður, f. 1930, bóndi að Þorvaldsstöðum í Breið- dal; Óskar Sigurjón, f. 1932, húsa- smíðameistari á Seltjarnarnesi. Haraldur Sveinsson Haraldur Sveinsson (Búi) verk- stjóri, Bláhömrum 4, Reykjavík, er sjötugur í dag. Starfsferill Haraldur fæddist í Reykjavík en ólst upp í Saltvík á Kjalarnesi. Að lokinni skólagöngu hóf hann störf hjá Reykjavíkurborg þar sem hann hefur .starfað síðan, eða í fimmtiu og fimm ár. Fjölskylda Haraldur kvæntist 4.6. 1949 Stellu Lange Sveinsson, f. 14.7. 1928, húsmóður. Hún er dóttir Jörgens P. Lange og Guðrúnar Ein- arsdóttur Lange. Börn Haralds og Stellu eru Reyn- ir Haraldsson, f. 4.3. 1949, deildar- stjóri í Reykjavík, kvæntur Esther Halldórsdóttur húsmóður og eru börn þeirra Halldóra Ósk og Hörð- ur Rafn; Gunnar Haraldsson, f. 7.10. 1950, sendibílstjóri í Reykja- vík, kvæntur Unni Einarsdóttur húsmóður og eru dætur þeirra Kristjana Stella, Guðrún Bryndís og Erna Sif en fósturdóttir Gunn- ars og dóttir Unnar er Guðný Sig- ríður Jónsdóttir og er hennar mað- ur Jón Guðmundsson; Einar Har- aldsson, f. 9.7. 1955, lagermaður í Danmörku, en kona hans er Bryn- dís Ingibjörg Jónsdóttir húsmóðir og eru dætur þeirra Eva Dögg og Aníta en fósturdóttir Einars og dóttir Bryndísar Ingibjargar er Sig- urlaug Ýr; Sonja Haraldsdóttir, f. 14.9. 1957, skrifstofumaður i Hafn- arfirði, en maður hennar Þorlákur Guðbrandsson vélaverkstæðismaö- ur og eru dætur þeirra Linda Rós og Bóel Eir sem er látin; Stefán Örn Haraldsson, f. 27.10.1960, verk- stjóri í Reykjavík. Systkini Haralds: Haukur Sveinsson, f. 28.9. 1917; Sigrún Sveinsdóttir, f. 25.1. 1920; Sveindís Foreldrar Þóreyjar voru Jón Björgólfsson, f. 1881, bóndi á Þor- valdsstöðum í Breiðdal, og Guðný Jónasdóttir, f. 1891, húsfreyja á Þorvaldsstöðum. Ætt Jón var sonur Björgólfs, b. í Snæhvammi og á Kömbum í Stöðv- arfirði, Stefánssonar, b. í Snæ- hvammi, Þórðarsonar. Móðir Björgólfs Stefánssonar var Þórunn Eyjólfsdóttir. Móðir Jóns var Kristín Jónsdótt- ir, b. á Þverhamri, Bjarnasonar og Vilborgar Björnsdóttur. Guðný var dóttir Jóns, b. á Dísa- stöðum, Erlendssonar. Haraldur Sveinsson. Sveinsdóttir, f. 11.11. 1922, d. 16.5. 1989; Theodóra Sveinsdóttir, f. 28.5. 1924; Guðrún Sveinsdóttir, f. 6.11. 1928, d. 6.7. 1991; Konráð R. Sveins- son, f. 22.3. 1930. Foreldrar Haralds voru Sveinn Jónsson, f. 13.6. 1889, d. 12.3. 1966, áhaldavörður hjá Reykjavíkur- borg, og Kristín Sigurðardóttir, f. 21.7. 1898,'d. 8.9. 1979, húsmóðir. í tilefni dagsins taka Haraldur og Stella á móti gestum að heimili sínu að Bláhömrum 4 eftir kl. 16.00 í dag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.