Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1996, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1996, Blaðsíða 8
22 FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1996 13"^" iiim helgina Selfoss: Brúarhlaup Brúarhlaupið á Selfossi er að festast í sessi og fleiri og fleiri sem koma í bæinn þann taka orðið þátt i því. Brúarhlaupið i ár verður á morgun og mun hefjast um kl. 10.00 á Ölfusárbrú. Einkunnarorð hlaupsins er núna: „Fyrir betra líf án tóbaks“. Með þesu kjörorði munu hlauparar og hjólreiðafólk leggja lið baráttu í landinu gegn reykingum og skaðsemi þeirra. Þátttakendur geta hlaupið, hjólað, skokkað eða gengið en í boði verða vegalengdir allt frá 2,5 km upp i maraþon. Sigurvegarar fá kjúkling í verð- laun, það er að segja karl og kona sem verða fyrst í hverri yegalengd fá kassa af kjúklingi frá ísfugli en allir þátttakendur fá verðlaunapen- ing. Maraþonsigurvegaramir fá fría gistingu ásamt morgunverði í Gesthúsum á Selfossi eða á Hótel Vík í Mýrdal. Skráning fer fram í Kjarnanum á Selfossi og á skrifstofu UMFÍ að Fellsmúla 26. -KE Hér má sjá þrjá af framkvæmdaaðilum Brúarhlaups Selfoss ásamt fulltrúa frá Isfugli sem gefur verðlaunin. Frá vinstri: Rafn Haraldsson, Óskar Sig- urðsson, Elísabet Kristjánsdóttir og Sigurður Jónsson. DV-mynd KE Danshúsið: Enskur söngvari í heimsókn Paul Somers hefúr frábæra rödd sem spannar geysiiega breitt radd- svið. Hann hefur verið í skemmt- anaiðnaðinum undanfarin 20 ár og kemur hingað beint frá Benidorm á Spáni þar sem hann hefur skemmt undanfarin ár. Hann hefur skemmt Heyrst hefur að þessi sé frábær skemmtikraftur. víðs vegar i heiminum, meðal ann- ars í spilaborginni heimsfrægu, Las Vegas, og einnig í Ástralíu. Stíll og lagaval Pauls Somers er í meginatriðum tónlist í likingu við þá sem Barry Manilow, Neil Diam- ond, Tom Jones, Elvis Presley og þess háttar tónlistarmenn spiluðu. Paul verður um helgina í Dans- húsinu og einnig næstu helgar. -ilk Norræna húsið: Rússnesk tónlist Tveir góðir saman Þeir Magnús Kjartansson og Kristján Óskarsson úr KOS ætla að leika á Næturgalanum um helgina. Maggi Kjartans er allri þjóðinni að góðu kunnur enda hefur hann vin- sæll skemmtikraftur um árabil auk þess sem Kristján er heimsfrægur á Næturgalanum. Á Næturgalanum er einnig hægt aö sjá alla helstu íþróttaviðburði heimsins á risaskjá og á sunnudag- inn verður enski boltinn á þeim skjá. Það er því hægt að horfa á Magn- ús, Krisfján og enska boltann á Næt- urgalanum í Kópavogi um helgina. -ilk Magnús Kjartansson er alltaf hress. Til íslands eru komin í heimsókn hjón. Það eru þau Anna Mois Levy og Gregory Arthur Myers. Þau ætla að kynna rússneska píanótónlist eft- ir Medtner, Myaskovsky og Skrja- bin í fundarsal Norræna hússins á sunnudaginn. Dagskráin þeirra byrjcir kl. 17.00 og mun Myers hafa hugsað sér að flytja fyrirlestur og Anna ætlar að leika verk eftir áður- nefnd tónskáld. Anna Mois Levy fæddist í Búlgar- íu og stundaði tónlistamám þangað til hún lauk B.Mus. prófi árið 1980. Hún stundaði framhaldsnám í pí- anóleik og tónvísindum í Moskvu og lauk doktorsprófi árið 1990. Hún hefur bæði haldið tónleika og starf- að við tónlistarkennslu í Búlgaríu og Kanada. Þess má geta að hún hef- ur haldið erindi í búlgarska útvarp- inu um íslenska samtíðartónlist. Rússnesk píanótónlist veröur kynnt á sunnudaginn. Perlur Kjarvals Á morgun verður mikið inn að vera á Kjarvalsstöðum. Auk sýninga tveggja listamanna, sem þar munu opna sýningar á verkum sínum, munu perlur úr Kjarvalssafni einnig verða sýndar. Þá má sjá landslagsmálverk, figúratif málverk, teikningar og vatnslitamyndir eftir Kjarval. Sýning- unni er ætlað að gefa innsýn í þá fjölbreytni sem einkenndi verkefnaval Kjarvals. Samtímis verða dregnir fram hæfileikar hans tii að skilgreina og túlka á persónulegan hátt viðfangsefni sín og skirskota til íslenskrar þjóðtrúar og menningararfleifðar. Sýning þessi mun standa til 22. desember. -ilk Gallerí Sýnirými í galleríkeðjunni Sýnirými eða The Showspace Galleries verða opn- aðar þrjár sýningar á morgun. í gallerí Sýniboxi, sem er viðar- kassi utan á vegg Dún- og fiður- hreinsunarinnar við Vatnsstig, sýn- »fr G.R. Lúðvíksson og mun sýning hans bera yfirskriftina Brauð, mýs og browserar. Opnunin verður kl. 16.00. f símsvaragalleríinu Hlust sýnir Steingrimur Eyfjörð Kristmundsson viðtal. Símanúmer Gallerí Hlustar er 551 4348. í Gallerí Barmi, sem er sífarand- gallerí, sýnir Einar Garibaldi Ei- riksson. Berandi í þetta sinn er ítalski listfræðiprófessorinn Bruno Mussolini en hann mun ferðast með Gallerí Barm og þar meö sýningu Einars frá Mílanó og suður til Sikil- eyjar með viðkomu á helstu menn- ingarstöðum Ítalíu. Sýningartími útibúa Gallerí Sýni- rýmis er mánuður og eru nýjar opn- anir sérhvern langan laugardag á Laugaveginum. -ilk I MESSUR Áskirkja: Vegna sumarleyfa starfs- fólks Áskirkju er minnt á guösþjón- ustu í Laugameskirkju. Árbæjarkirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Organleikari Sigrún Steingrims- dóttir. Prestarnir. Breiöholtskirkja: Guösþjónusta kl. 11. Prédikunarefhi: Gleymist okkur aö þakka? Samkoma Ungs fólks meö hlutverk kl. 20. Gísli Jónasson. Bústaðakirkja: Guðsþjónusta kl. 11.00. Organisti Guðni Þ. Guð- mundsson. Pálmi Matthíasson. Digraneskirkja: Messa kl. 11. Alt- arisganga. Organisti Sólveig Sigríö- ur Einarsdóttir. Sóknarprestur. Dómkirkjan: Messa kl. 11.00. Prest- ur sr. Hjalti Guðmundsson. Org- anisti Marteinn H. Friðriksson. Dómkórinn syngur. Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta kl. 10.00. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. Organisti Kjartan Ólafs- son. Fella- og Hólakirkja: Guösþjón- usta kl. 11. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Organisti Lenka Mátéová. Prestarnir. Grafarvogskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Altarisganga. Organisti Bjami Þór Jónatansson. Guðsþjón- usta á Hjúkrunarheimilinu Eir kl. 15.30. Vígt verður nýtt orgel sem er minningargjöf til heimilisins. Vig- fús Þór Ámason. Grensáskirkja: Messa fellur niður vegna framkvæmda er tengjast njju kirkjunni. Sóknamefnd. Hafnarfjarðarkirkja: Kl. 11.00. Sunnudagaskóli í Hvaleyrarskóla. Umsjónarmenn séra Þórhallur, Bára og Ingunn. Kl. 14.00. Guðsþjón- usta við upphaf fermingarstarfs. All- ir prestar Idrkjunnar þjóna. Org- anisti Natalia Chow. Vænst er þátt- töku fermingarbarna og foreldra þeirra. KirkjúkafTi eftir guðsþjón- ustu. Kl. 18.00. Tónlistarguðsþjón- usta. Tónlistarflutning annast Natalía Chow organieikari, Martin Frewer fiðluleikari og María Wess fiöluleikari. Prestur séra Þórhallur Heimisson. Hallgrímskirkja: Messa kl. 11.00. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Org- eltónleikar kl. 20.30. Jonathan Brown orgelleikari frá Cambridge á Englandi. Clare College Chapel Cho- ir frá Cambridge syngur fjölbreytta kirkjutónlist undir stjóm Timothy Brown. Hjallakirkja: Fjölskylduguðsþjón- usta kl. 11. Kór kirkjunnar syngur. Organisti Oddný J. Þosteinsdóttir. Kristján Einar Þorvaröarson. Háteigskirkja: Messa kl. 11.00. Sr. Tómas Sveinsson. Keflavíkurkirkja: Guösþjónusta kl. 11. Guðspjall dagsins: Tíu líkþrá- ir. Ræöuefhi: Hvetjir era hinir lík- þráu í dag? Prestur: Ólafur Oddur Jónsson. Kór Keflavíkurkirkju syngur. Organisti og söngstjóri: Steinar Guðmundsson. Kópavogskirkja: Guðsþjónusta fell- ur niður vegna breytinga í kirkj- unni. Sólcnamefhdin. Landspftalinn: Messa kl. 10.00. Sr. Jón Bjatman. Langholtskirkja, Kirkja Guð- brands biskups: Messa kl. 11.00. Prestur sr. Ólöf Ólafsdóttir. Org- anisti Jón Stefánsson. Kór Lang- holtskirkju (hópur II) syngur. KafFi- sopi eftir messu. Lauganeskirkja: Guðsþjónusta kl. 11.00. Félagar úr Kór Laugames- kirkju syngja. Organisti Gunnar Gunnarsson. Kvöldguðsþjónusta kl. 20.30. Lifandi tónlist frá kl. 20.00. Ól- afur Jóhannsson. Neskirkja: Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.00. Prestur sr. Halldór Reynis- son. Á eftir verður farið í gróður- setningarferð I Heiðmörk. Óháði söfnuðurinn: Guðsþjónusta kl. 14.00. Bamastarf hefst á sama tfma. Kaffi og maul eftir messu. Seljakirkja: Guösþjónusta kl. 14. Ath. breyttan messutíma. Sr. Val- geir Ástráðsson prédikar. Organisti Hörður Áskelsson. Sóknarprestur. Seltjamameskirkja: Messa kl. 11.00. Prestur sr. Gylfi Jónsson. Org- anisti Violeta Smid.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.