Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1997, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1997, Blaðsíða 6
26 MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 1997 íþróttir DV * \ Z* 3. DEILD KARLA A-riöill: Ármann-Framherjar .........12-2 Haukar-ÍH...................5-1 Hamar-KFR...................0-4 Smástund-Léttir ............3-5 Haukar Lokastaðan: 14 12 2 0 54-15 38 Árxnann 14 9 1 4 47-27 28 Léttir 14 8 2 4 39-23 26 Framherjar 14 6 2 6 39-54 20 Smástund 14 5 1 8 29-39 16 ÍH 14 4 3 7 28-37 15 KFR 14 3 3 8 28-35 12 Hamar 14 2 0 12 20-54 6 B-riðill: Afturelding-Njarðvík..........3-2 GG-Bruni .....................2-5 Grótta-KSÁÁ...................5-1 Snæfell-Víkingur Ó............1-4 Lokastaðan: Víkingur Ó. 14 11 2 1 48-17 35 Afturelding 14 11 1 2 42-12 34 Njarðvík 14 9 3 2 49-20 30 Bruni 14 6 0 8 24-35 18 GG 14 5 2 7 25-35 17 KSÁÁ 14 4 2 8 29-43 14 Grótta 14 4 1 9 22-36 13 Snæfell 14 0 1 13 13-54 1 C-riöill: Emir Í.-Reynir Hn.............7-0 HVÍ-Bolungarvík..............1—12 Lokastaðan: Emirís. 12 11 0 1 92-12 33 Bolungarvík 12 9 0 3 83-19 27 ReynirHn. 12 4 0 8 37-41 12 HVÍ 12 0 0 12 5-145 0 D-riðill: Hvöt-Tindastóll................1-0 Magni-KS .....................0-2 Nökkvi-Neisti H...............2-1 Lokastaöan: TindastóU 15 12 2 1 48-13 38 KS 15 12 1 2 44-15 37 Hvöt 15 9 0 6 43-26 27 Nökkvi 15 4 0 11 20-56 12 Neisti H. 15 3 2 10 16-31 11 Magni 15 1 3 11 1444 6 E-riöill: Höttur-Neisti D...............3-1 Lokastaðan: Höttur 8 3 2 2 18-12 14 Leiknir F. 8 2 4 2 13-16 10 NeistiD. 8 2 2 4 21-24 8 Þessi lið mætast í átta liða úrslit- um deildarinnar: Haukar-Afturelding Vikingur Ó.-KS TindastóU-Höttur Emir Ís.-Ármann Fýlkir á flugi 1-0 Kristinn Tómasson (10.) 1- 1 Kristján Jóhannsson (54.) 2- 1 Ólafur Stlgsson (60.) Fylkismenn eru á mikilli siglingu í 1. deildinni í knattspymu og á fostudagskvöldið unnu þeir sinn fjórða sigur í röð þegar þeir unnu Reyni i Sandgerði, 2-1, á heimavelli sínum í Árbænum. Með sigrinum komust Árbæingar upp í 7. sæti deildarinnar en Reynismenn sitja sem fastast á botninum, em enn án sigurs og fátt virðist geta komið í veg fyrir fall þeirra i 2. deildina. Nokkurt jafnræði var með liðun- j um í leiknum en Fylkismenn vom þó hættulegri í sóknaraðgerðum sínum og sköpuðu sér fleiri færi en Sandgerðingar. Eftir mjög brösótt gengi í sumar virðast Fylkismenn vera komnir á rétta sporið. Leik- menn eru komnir með sjálfstraust og allur leikur liðsins er mun heil- steyptari en fyrr í sumar. 1 jöfnu liði Fylkis átti Ólafur Stígsson besta leikinn og sigurmark leiksins gerði hann upp á eigin spýtur með því að tæta vöm Reynismanna í sig. Líkt og í mörgum leikjum í sum- ar voru Reynismenn síst lakari aöil- , inn í leiknum og með smáheppni hefðu þeir getað náð stigi í þessum leik. Heilladísimar vora hins vegar sem fyrr ekki á bandi Sandgerðinga. Unglingalandsliðsmaðurinn Krist- ján Jóhannsson var bestur í liði Reynis og Sigurður B. Sigurðsson stóð sig vel í markinu. Maður leiksins: Ólafur Stígs- son, Fylki. -GH Norsku meistararnir í Trondheims Örn fagna Norðurlandameistaratitlinum í Kopavogi á laugardaginn. Ann Kristin Arönes, markahæsti leikmaður mótsins, er lengst til vinstri í aftari röð. DV-mynd S Norðurlandamót kvenna í knattspyrnu í Kópavogi: Norsku bestar - Trondheims Örn Norðurlandameistari - Breiðablik í 4. sæti Trondheims Öm frá Noregi vann Fortuna Hjörring frá Danmörku með yfirburðum, 5-0, í úrslitaleik Norðurlandamóts kvenna í Kópa- vogi á laugardaginn. Fortuna hafði unnið mótið tvö undanfarin ár. Brit Sandaune skoraði tvö mörk í úrslitaleiknum og þær Ragnhild Guldbrandsen, Ann Kristin Arönes og Monica Enild eitt hver. Blikastúlkur ekki langt frá framlengingu Álvsjö AIK frá Svíþjóð vann Breiðablik, 3-2, í leik um bronsverð- launin. Sænska liðið byrjaði mun betur og komst í 3-0 en Kristrún Daðadóttir og Ásthildur Helgadóttir minnkuðu muninn fyrir Blikastúlk- ur og þær vom ekki langt frá því að jafna metin og ná í framlengingu. Loks vann HJK Helsinki frá Finn- land öruggan sigur á úrvalsliði KSÍ, 3-0, í leiknum um 5. sætið. Besti árangur okkar til þessa „í heildina séð er ég mjög ánægð með okkar útkomu og mótið í heild. Fjórða sætið er besti árangur okkur tÚ þessa og á þessu móti erum við alltaf að spila við nokkur af bestu félagsliðum Evrópu,“ sagði Sigfríð- ur Sophusdóttir, markvörður Breiðabliks, við DV í gær. „Ég tel að við höfum sýnt að sterkustu liðin hér á landi, við og KR, eigum fullt erindi í keppni á móti þessum liðum. Munurinn felst fyrst og fremst í aðstöðu, norsku stúlkumar þurfa t.d. aðeins að vinna hálfan daginn og landsliðs- konurnar þar eru á launum hjá knattspyrnusambandinu. Þátttakan í svona móti gefur líka mjög mikilvæga reynslu, ekki síst fyrir ungu stelpurnar hjá okkur sem voru margar að spila í fyrsta skipti við lið í þessum styrkleika- flokki,“ sagði Sigfríður. Riðlakeppninni lauk á föstudag. Trondheims Örn vann HJK, 2-0, fékk 6 stig i A-riðli. Breiðablik fékk 3 og HJK ekkert. Fortuna Hjörring og Álvsjö AIK skildu jöfn, 1-1, í B-riðli. Fortuna fékk því 4 stig, Álvsjö 2 og úrvalslið KSÍ eitt stig. Ann Kristin Arönes úr Trond- heims Öm varð markahæst á mót- inu með 4 mörk. Næst kom Julia Carlson, Álvsjö, með 3 mörk. -VS Höfuð, herðar, hné og tær íy 1« DEILD KARLA Dalvík-Víkingur R. 2-1 KA-FH 0-1 Fylkir-Reynir S. . 2-1 Þróttur R.-Breiðablik 3-2 ÍR-Þór 3-2 Þróttur R. 13 10 2 1 31-10 32 ÍR 13 9 2 2 36-16 29 Breiðablik 13 8 2 3 20-10 26 FH 13 7 3 3 24-15 24 Þór A. 13 6 1 6 19-26 19 KA 13 4 4 5 19-21 16 Fylkir 13 4 2 7 17-21 14 Víkingur R. 13 4 1 8 14-20 13 Dalvík 13 2 3 8 16-31 9 ReynirS. 13 0 2 11 8-34 2 Markahæstir: Kristján Brooks, ÍR..............15 Einar öm Birgisson, Þrótti R. .. . 8 Kjartan Einarsson, Breiðabliki .. 8 Guðjón Þorvarðarson, ÍR...........7 Vignir Sverrisson, Þrótti R.....6 Steingrímur Eiðsson, KA...........6 Brynjar Gestsson, FH..............6 ííj2. DEIID KARLA Fjölnir-Þróttur N.............2-4 Þorvaldur Logason, Kristinn Kæme- sted - Vilberg Jónasson 2, Þráinn Haraldsson, Daöi Ámason. Sindri-Æglr................frestað Völlurinn ófær vegna rigninga. Selfoss 13 9 3 1 34-23 30 KVA 14 9 2 3 38-25 29 Víöir 13 9 1 3 38-20 28 HK 13 9 1 3 32-22 28 Leiknir R. 13 5 3 5 27-16 18 Völsungur 14 5 2 7 24-32 17 Ægir 13 3 4 6 30-30 13 Þróttur N. 14 4 0 10 30-39 12 Fjölnir 14 3 2 9 23-41 11 Sindri 13 2 0 11 1945 6 Vörnin hélt hjá ÍR-ingum 1- 0 Guöjón Þorvarðarson (13.) 2- 0 Geir Brynjólfsson (20.) 3- 0 Kristján Brooks (28.) 3-1 Páll V. Gíslason (32.) 3-2 Hreinn Hringsson (76.) - Þróttur vann toppslaginn gegn Breiðabliki, 3-2 1- 0 Einar Öm Birgisson (18.) 2- 0 Logi U. Jónsson (39.) 2- 1 Þórhallur Hinriksson (42.) 3- 1 Gunnlaugur Einarsson (45.), víti 3-2 Atli Kristjánsson (84.) „Það má alltaf búast við svona hörku þegar topplið mætast. Ég er mjög ánægður með hvemig strák- amir héldu á málum i þessum leik og börðust af krafti allan tímann. Við vorum ákveönir í því að spila skynsamlega en þetta varð erfitt eft- ir að við misstum mann út af og þeir náðu að pressa á okkur. Það er ekkert orðið tryggt með úrvalsdeild- arsæti. Þetta er bara eitt skref okk- ar af mörgum sem þarf að stiga til að komast þangað," sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari og leikmaður Þróttar, eftir að hafa fagnað vel með sínum mönnum góðum sigri liðsins á Breiðabliki í toppslag 1. deildar á fóstudagskvöldið þar sem stuðnings- menn og leikmenn Þróttar sungu „höfuð, heröar, hné og tær“ af mikl- um móð þegar sigurinn var í höfh. Leikurinn var harður og bráð- fjörugur, þá sér í lagi í fyrri hálfleik þar sem Blikar gáfu tóninn með góðu færi áður en Þróttarar tóku öll völd. í síðari hálfleik misstu Þrótt- arar einn leikmann sinn út af með rautt spjald. Blikar gengu þá á lagið og pressuðu stíft að marki heima- manna en náðu aðeins að setja eitt mark þrátt fyrir að ráða gangi leiksins. „Það er ekki gott að tapa i svona mikilvægum leik en þetta er langt í frá að verða búið. Leikur okkar hef- ur verið of sveiflukenndur og við átt í erfiðleikum að skapa okkur góð færi en það verður lagað og við ætl- um okkur upp,“ sagði Kjartan Ein- arsson, leikmaður Blika, eftir leik- inn. Maður leiksins: Fjalar Þor- geirsson, markvörður Þróttar, sem lék af miklu öryggi. -ÖB ÍR-ingar ætla ekki að gefa neitt eftir i aö tryggja sér sæti í efstu deild í fyrsta sinn. Sigurleikurinn gegn Þór á laugardag, 3-2, var þó ekki auðunninn og langt frá því að kallast sannfærandi. Eftir rólega byrjun liðanna kom góður kafli ÍR-inga á 20 mínútum i fyrri hálfleik. Hann skilaði þriggja marka fomstu sem Þórsarar náöu ekki að vinna upp þrátt fyrir stífa pressu að marki Breiðhyltinga. ÍR-ingar, sem höfðu öll völd á vellinum megnið af fyrri hálfleik, duttu aftur á móti niður eftir þriðja markið og Þórsarar, sem virtust ætla að láta „mala“ sig á upp- hafsmínútum leiksins, komu aftur inn í leikinn. Vítaspyma sem Ólafúr Gunnars- son, markvörður ÍR-inga, varði frá Páli V. Gíslasyni á 36 mínútu vó Sóunt þungt í lokin en hún hefði galopnað leikinn og gefið Þórsumm færi á að ógna ÍR-liðinu. Þórsarar vora síöan mun hetri í seinni hálfleik en ÍR-vömin, með Kristján Halidórsson fremstan í flokki, hélt út og liðið er nú með 29 stig í öðra sæti deildarinnar. Af mörkum leiksins skilja tvö eft- ir góðar minningar. Annað mark ÍR-inga var glæsilegt skallamark Geirs Brynjólfssonar og Hreinn Hringsson Þórsari þandi netmöskva ÍR-liðins af löngu færi. ÍR-ingar skiluðu þremur stigum i hús en Þórsarar, sem hafa verið að sýna á sér ýmsar hliðar í sumar, hefðu með örlítillri heppni geta náð inn stigum í þessum leik. Maður leiksins: Kristján Hall- dórsson ÍR. -ÓÓJ Dalvík á enn von O-l Sigurjón Kristjánsson (3.) 1- 1 Rúnar Bjamason (49.) 2- 1 Þorleifur K. Árnason (70.) Dalvíkingar eiga enn von um að halda sæti sínu í 1. deild eftir 2-1 sigur á Vikingum á Dalvík á föstudagskvöldið. Fyrir Víkinga þýða þessi úrslit að þeir eru komnir í fallhættu á ný eftir að hafa aðeins fengið eitt stig i síðustu fimm leikjun- um. Eins og staðan er virðist líklegast að Dalvík og Víkingur bítist um að forðast þau örlög að fylgja Reyni niður í 2. deild. Útlitið var ekki bjart fyrir Dalvíkinga lengi vel því Siguijón Kristjánsson skoraði glæsilegt skalla- mark fyrir Víkinga í upphafi leiks. Heimamenn gáfust þó ekki upp og náðu að knýja fram sinn annan sigur á tímabilinu með tveimur skallamörk- um í síðari hálfleiknum. Maður leiksins: Heiðmar Felixson, Dalvík. FH í baráttunni DV, Akureyri: 0-1 Lúðvlk Arnarson (53.) FH-ingcU- gerðu góða ferð til Akureyrar á fóstu- dagskvöld þegar þeir lögðu KA í frekar tilþrifalitlum leik, 0-1. Þar með em þeir áfram í baráttunni um sæti í efstu deild en norðcmmenn sigla lygnan sjó í 1. deild. Leikurinn einkenndist af baráttu um miðjuna þar sem FH-ingar höfðu ráðin lengstum. Gestimir vom beittari, án þess þó að skapa sér mörg tækifæri, sem löngum hefur háð liðinu í sumar. Lítið gekk upp hjá KA-mönnum í fyrri hálfleik og ógnuðu þeir marki FH lítið sem ekkert. í síðari hálfleik var sama upp á teningunum, FH-ingar vom meira með boltann. Mark þeirra kom eftir vel útfærða sókn. Lúðvík Amarson rak endahnútinn á hana með hnitmiöuðu skoti í bláhomið. Maður leiksins: Davíð Ólafsson, FH. -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.