Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2000, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2000, Blaðsíða 1
19 Stoke komið á Wembley íslendingaliðið Stoke City tryggði sér í gær- kvöldi sæti í úrslitum í bikarkeppni neðri deildarliða á Englandi. Stoke bar sigurorð af Rochdale, 1-0, í síðari undanúrslita- leikmnn í norðurriðli keppninnar en Stoke vann fyrri leikinn, 3-1, og því sam- anlagt, 4-1. Það var Peter Thorne sem skoraði eina marka leiksins á 86. mínútu. Brynjar Bjöm Gunnarsson lék allan leikinn í liði Stoke, Arnar Gunnlaugsson var í byrjunarliðinu en var skipt út af á 57. mínútu fyrir Bjarna Guðjónsson. Sigur- steinn Gíslason var hins vegar ekki í leikmanna- hópnum. Stoke leikur gegn Bristol City, sem er í 11. sæti C-deild- arinnar 12 stigum á eftir Stoke, og fer leikurinn fram á Wembley- leikvanginum. -GH Lilleström vill fá Einar Þór Forráðamenn norska A-deildarliðsins Lilleström hafa leitað til KR-inga um að fá Einar Þór Daníelsson leigðan fram til 28. maí en norska liðið á í miklum vand- ræðmn vegna meiðsla í leikmannahópnum. Sjö leikmenn eru á sjúkralistanum nú þegar aðeins rúmar tvær vikur er þar til keppni í norsku A-deildinni hefst. Rún- ar Kristinsson er einn þeirra sem era frá en hnémeiðsli eru að plaga hann og er óvíst hvenær hann verður orðinn góður af þeim. „Það er engin niðurstaða komin í þetta mál en það skýrist í vikunni. Ef af því verður að ég fari út mun ég koma heim 14. maí enda viil KR að ég komi heim áður en íslandsmótið hefst,“ sagði Einar Þór í samtali við DV í gær. Þrír íslendingar leika með Lilleström. Auk Rúnars eru Indriði Sigurðsson og Grétar Hjartarson hjá félaginu en þeir komu til félagsins eftir timabilið i haust. Þeir hafa báðir fengið að spreyta sig i æfingaleikjum liðsins og Grétar fiskaði vítaspymu í siðasta leik liðsins. -GH/GÖ Ágúst næsti landsliðsþjálfari Ágúst Jóhannsson sem stýrt hefur kvennaliði Vals í handknattleik í vetur verður að öll- um líkindum næsti þjálfari kvennalandsliðsins í handknattleik. Hann tekur þá við starfi Theodórs Guðfinnssonar en samningur hans við HSÍ rennur út í næsta mánuði. Ágúst hefur á undanfömum dögum verið í viðræðum við HSÍ og er búist við að gengið verði frá ráðningu hans i stöðu landsliðsþjálfara innan skamms en jafnframt hefur verið rætt um að Ágúst hafi yfirumsjón með yngri landsliðum kvenna. Hættir meö Valsliöiö Ágúst skýrði leikmönnum Vals frá þvi á æfingu i gær að hann myndi hætta starfi sinu hjá Val en hann tók við liðinu fyrir tímabilið. Undir hans stjórn varð Valur bikarmeistari en féll úr leik i 8-liða úrslitum um íslandsmeistaratitilinn eftir að hafa tapað oddaleik gegn FH. -GH Sinisa Mihajlovic, leikmaður Lazio, og Tore Andre Flo hja Cheisea kljást hér í skallaeinvígi í leik liöanna i Lundúnum í gær þar sem Lazio fór meö sigur af hólmi. Ragnar á heimleið - Valencia kannaðist ekkert við umsamda greiðslu Þegar á hólminn kom reyndist ekkert á bak við það samkomulag sem búið var að gera á milli ÍR-ingsins Ragnars Óskars- sonar og spænska félagins Valencia um leigusamning á leikmanninum. Ragnar fór utan fyrir síðustu helgi og hóf æfingar með Val- encia en þegar átti að skrifa undir leikheimild reyndist óhreint mjöl vera í poka- horninu og neituðu ÍR-ing- ar að gefa grænt ljós á hana. Ragnar átti að leika fyrsta leik- inn með Valencia á laugadaginn kemur gegn Bidasoa. Valencia kannaðist ekkert við þá greiðslu sem nefnd var fyrir leig- una. Ljóst er að einhver misskiln- ingur hefur orðið á milli umboðs- mannsins og spænska liðsins eða hreinlega að um vanefndir hafi ver- ið um að ræða. Ragnar átti upphaflega að leika með liðinu það sem eftir er af deildar- keppninni en skammt er til loka áður en úrslita- keppni átta efstu liða hefst. Ef liðinu hefði tek- ist að komast i þá keppni þá átti að framlengja leig- una til loka tímabilsins. Valencia er í 10. sæti í deildinni. Þess má geta að Val- encia sóttist eftir Guðmundi Hrafn- kelssyni á sl. sumri en Guðmundur kaus frekar að fara til þýska liðsins Nordhorn. Valencia gerði þess í stað samning við norska landsliðs- markvörðinn, Gunnar Fosseng. -JKS KA í klandri Karlalið KA í handknattleik hefur orðið fyrir miklum skakkafollum á undanfomum vikum og sjúkralistinn hjá liðinu er orðinn ansi langur. Leikstjóraandinn Halldór Sigfússon fótbrotnaði á dögunum og leikur ekki meira með á tímabilinu og sömu sögu er að segja af Geir Aðalsteinssyni en hann fmgurbrotnaði í síðustu viku. Daninn Lars Walther er meiddur í vinstri öxl og hefur lítið sem ekkert leikið með KA-mönnum í síðustu leikjum. Hann kom aðeins inn á í leiknum gegn Val á mánudaginn en gat htið beitt sér. Fyrirliðinn Jóhann G. Jóhannsson fékk hnykk á hálsinn í leik gegn FH á dögunum og hefúr verið slæmur sið- an. Hann fer í myndatöku í dag og þá skýrist hvort hann geti spilað í úr- slitakeppninni. Nýjustu meiðslin í herbúðum norð- anmanna eru hjá Heimi Ámasyni en hann varð fyrir meiðslum í leiknum gegn Val á mánudagskvöldið. Vöðva- festing í þumalfmgri hægri handar shtnaði og er búið að setja gifsspelku á höndina. Áður en þessi ósköp dundu yfir létu KA-menn Danann Bo Stage fara frá félaginu en hann er kominn til Uðs við felag á Spáni. KA-menn hefla keppni í 8-liða úr- slitunum um íslandsmeistaratitiUnn á sunnudagskvöldið en þá taka þeir á móti FH-ingum. „Það er ekki hægt að segja að ástandið sé gott hjá okkur og hvert áfaUið á fætur öðru hefur dunið yfir okkur. Það er svo komið að ég hef þurft að kalla á stráka úr 3. flokknum til að mæta á æfmgar. Á þessari stundu er með öUu óvíst hvort þessir leikmenn sem era meiddir geti spilað leUcinn gegn FH en það verður að segj- ast eins og er að það lítur ekki vel út með Heimi og Walther. En það þýðir ekkert að leggja árar í bát. Við notum þá leikmenn sem eru tU og síðan verð- ur bara að koma í ljós hvemig okkur reiðir af,“ sagði AtU i samtaU við DV, en hann býst við hörkuleikjutn gegn FH-ingum. -GH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.