Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2000, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 2000
DV
11
Fréttir
Skagfirðingar vilja virkja
- fjölmenni á fundi um virkjunarkosti
DV, SKAGAFIRÐI:___________________
Greinilegt er að mikiU áhugi er
fyrir þeim áformum sem uppi eru
um virkjun í Héraðsvötnum og Jök-
ulsá i Skagafirði. Salurinn í Ljós-
heimum var þéttsetinn nýlega á
fundi sem haldinn var um virkjun-
arkostina.
Fram kom í máli þingmanna kjör-
dæmisins og sveitarstjórnarmanna
að leggja beri mikla áherslu á að
orka frá væntanlegri virkjun eða
virkjunum fari að drjúgum hluta til
atvinnuuppbyggingar í Skagaflrði.
Þorkell Helgason orkumálastjóri
benti hins vegar á að þegar að
breytt skipulag í raforkugeiranum,
sem beindist að aukinni samkeppni
um orkudreifmgu, yrði komið til
framkvæmda að 2 til 5 árum liðn-
um, vildu virkjunaraðilar að sjálf-
sögðu fá sem hagkvæmast verð fyr-
ir orkuna, og myndu væntanlega
ekki afhenda heimaaðilum i Skaga-
firði raforkuna á einhverjum vildar-
kjörum.
Verkefnisstjóm Rammaáætlunar
og Landvemdar kynntu nýtingu
vatnsafls og jarðvarma í Skagafírði
á fundinum. Verkefnishópurinn er
skipaður 15 manns víðs vegar af
landinu, með fjölbreytta þekkingu
og bakgrunn. Verkefnið er að leggja
mat á virkjunarkosti og flokka þá.
Rammaáætlunin fjallar m.a. um
náttúm- og náttúruvemd, útivist og
hlunnindi, þjóðhagsmál og orku-
lindir. Verkefnishópurinn fjallar
um eina 25 virkjunarkosti í landinu
og er ætlað að vinnan taki um 12 ár.
Þær virkjanir sem nú eru í sigtinu
eru í forgangi hvað úttekt varðar og
t.d. er stefnt að því að drög að
skýrslum vegna Kárahnjúkavirkj-
unar verði til taks á næsta ári.
Hagkvæmir virkjunarkostir
Fram kom í máli Sveinbjöms
Bjömssonar, formanns verkefnis-
stjómar, að enn eru miklir mögu-
leikar ónýttir til virkjunar raforku
hér á landi. Þeir em áætlaðir 57
gígavattstundir en búið er að virkja
7,5 gvs. En þó verkefnishópurinn
raði virkjunarkostunum, er það
virkjunaraðilinn sem ákveður hvar
er virkjað.
Pétur Þórðarson, fulitrúi Héraðs-
vatna ehf., skýrði frá undirbúnings-
vinnu vegna Villinganesvirkjunar
en áætlað er að umhverfismat
vegna virkjunarinnar liggi fyrir um
næstu áramót. Áætlað er að þá
muni líða allt að eitt og hálft ár
áður en unnt verði að bjóða virkjun-
ina út og að því gefnu er það í fyrsta
lagi að fimm áram liðnum sem orka
kæmi frá Viilinganesvirkjun.
Páll Pétursson, alþingismaður og
ráðherra, bað Skagfirðinga að vera
þess minnuga hvernig farið hefði
með Blönduvirkjun, orkan hefði
verið flutt burtu og virkjunin orðið
tiltölulega lítil lyftistöng fyrir at-
vinnulífið í héraðinu. Páll sagði
jafnframt að Skagflrðingar hlytu að
vera einhuga um ViUinganesvirkj-
un, en bað þá að geyma Skatastaða-
virkjun.
-ÞÁ
Þú nærð alltaf sambandi
við okkur!
550 5000
©
alla virka daga kl. 9-22
sunnudaga kl. 16-22
dvaugl@ff.is
hvenær sólarhringslns sem er
550 5000
Sýningar- og
reynsluakstursbílar
Á STÓRLÆKKUÐU
VERÐI!
FYRSTIR KOMA FYRSTIR FA
Þeir sem hafa hraðar hendur geta nú tryggt sér bíl af
bestu gerð á enn lægra verði. í nokkra daga seljum við
með góðum afslætti nokkra bíla sem notaðir hafa verið
á sýningum og í reynsluakstri.
Fyrstir koma, fyrstir fá. Ekki missa af þessu tækifæri.
IfjglJlglÍ
HYunoni BÍLAR AF BESTU GERO