Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2000, Blaðsíða 7
7
FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 2000___________________________
I>V Fréttir
_________Sandkorn
Garöar Örn Ulfarsson
netfang: sandkorn@ff.is
Mogginn biður griða
Eins og fram hef-
ur komið hefur Sig-
urbjörn Einarsson
biskup verið kærð-
ur til Siðanefndar
Prestafélagsins
j vegna ósmekklegra
ummæla sinna um
i gagnrýnendur
framkvæmdar
Kristnihátíðarinnar. Sigurbjörn mun
nú hafa fengið frest til mánaðamóta
að gera nefndinni grein fyrir sjónar-
miðum sínum í málinu. Morgunblað-
inu, sem studdi Kristnihátíð til síð-
asta blóðdropa, finnst „leiðinlegt að
horfa upp á neikvæðar umræður" og
bað biskupi griða í forystugrein um
helgina. „Ekki væri úr vegi að leyfa
einum merkasta andlega leiðtoga
þjóðarinnar að vera í friði,“ sagði
Mogginn. Skyldi manninum ekki
leiðast að láta krossfesta sig? söng
Megas. Skyldi biskupi þykja þörf á
náðunarbeiðni Morgunblaðsins fyrir
sina hönd?
Láttu mig í friði, Paul!
Allir vita ai
kvöldverði Sir
Pauls McCartneys
á Café Óperu í ný-
legri heimsókn
hans hérlendis og
spunnust af því
miklar sögur. Ein
sagan segir að inn
á Óperu hafi komið
ungur piltur á sínu fyrsta stefnu-
móti. Stefnumótið átti að hafa geng-
ið illa og drengurinn fengið snjalla
hugmynd þegar hann rak augun í
McCartney. Hann afsakaði sig við
dömuna og laumaðist að borði bitils-
ins. Með eftirgangsmunum fékk
strákur bítilinn til að koma að sínu
borði og kasta á sig kveðju eins og
um gamlan vin væri að ræða. Pilt-
urinn sest síðan aftur hjá stúlkunni
en stuttu síðar kemur McCartney
röltandi fram hjá.
„Blessaður, gamli vinur,“ hrópaði
McCartney til stráksa sem leit við
með vanþóknunarsvip og sagði:
„Paul, hef ég ekki margsagt þér
að láta mig í friði!“...
Ungmenni í lendaskýlu
íslensk íjölskylda fór
til kirkju í Noregi á
dögunum. Slíkt þykir
j reyndar ekki í frásög-
ur færandi út af fyrir
sig, sérstaklega ekki
þar í landi. Með í fór-
inni var þriggja ára
drengur og var sér-
í staklega tekinn eið-
stafur af þeim stutta
um að hafa hægt um sig og þegja
þunnu hljóði inni í helgidóminum.
Þeim stutta varð starsýnt á Jesú
Krist þar sem hann hékk á krossi
eins og gengur og gerist í kirkjum.
Það blasti fljótlega við að drengurinn
var að springa á limminu og myndi
rjúfa þagnarbindindið íyrir messu-
lok. Og loks gat snáðinn ekki orða
bundist. Hann sneri sér að pabba
sínum, benti á frelsarann og sagði
stundarhátt: „Sjáðu pabbi! Mowgli!!...
Sigurganga Guðna
Guðni Ágústsson
landbúnaðarráð-
herra leikur á als
oddi nú um hábjarg-
ræðistímann. Guðni
hefur verið ódeigur
í yfirlýsingagerð,
m.a. um matarskatt
og jarðasölu, milli
þess sem hann
sprangar í sínum framsóknargrænu
reiðbuxum um velli hestamanna
ellegar opnar litskrúðugar landbún-
aðarsýningar. Sjálfskipaðir stjóm-
málaskýrendur þykjast skynja að
þessi fyrirferð á ráðherranum sé alls
ekki eðlileg enda eigi menn því að
venjast að stjómmálamenn liggi í
dvala frá páskum fram undir jól.
Spekingarnir segja að Guðni sé á
fullu að undirbúa framboð sitt til
varaformanns í Framsóknarflokkn-
um, eða hugsi jafnvel til enn hærri
metorða. Sérstaka eftirtekt hefur
vakið hversu viðnámið er lítið...
Lítil áhrif af Sleipnisverkfalli
DV, AKUREYRI:____________________
Talsverður kraftur virðist vera í
ferðaþjónustunni á Norðurlandi um
þessar mundir og aðilar í ferðaþjón-
ustu, sem DV hefur rætt við, segja að
áhrif verkfalls bifreiðarstjóra í
Sleipni séu lítil sem engin. verkfallið
hafi haft áhrif um tíma en eftir að
samningar tókust hjá Sérleyfisbilum
Akureyrar hf. komst ástandið í nær
eðlilegt horf. Þó hefur það einhver
áhrif á ferðamannastrauminn að
ekki er ekið hjá Norðurleið hf. milli
Reykjavíkur og Akureyrar. Veður
hefur yfirleitt verið mjög gott á
Norðurlandi i sumar og það hefur
orðið til þess að lyfta upp ferðalögum
íslendinga í landshlutanum.
HrafnhUdm- Elín Karlsdóttir, að-
stoðarhótelstjóri Fosshótels KEA á
Akureyri, sagðist ekki hafa handbær-
ar tölur tU að vitna i en hún sagði
ferðamannastrauminn hafa tekið
seint við sér en farið vel í gang þegar
það gerðist. „íslendingar eru aUtaf á
ferðinni þar sem veður er gott og við
höfum notið góðs af því að undan-
förnu. Hér hefur verið ágætlega bók-
að og er áfram þannig að þetta lítur
vel út,“ sagði Hrafnhildur.
Friðrik Sigurðsson, hótelstjóri á
Hótel Húsavík, sagði mikið vera að
gera eins og venjulega. „Það hefur
aldrei verið neitt vandamál að reka
hótel hér á sumrin. Júnímánuður
var mjög góður og það sem af er júlí
og þetta lítur vel út fram á haustið
þangað tU losna fer um á hótelunum
í Reykjavik en þá hætta ferðaskrif-
stofurnar að bóka út á land.
Það er hins vegar lítið annað fram
undan í vetur en að loka hótelinu í
einhverja mánuði, það hefur ekki
verið gert hér en ég á fastlega von á
því að það verði niðurstaðan núna
enda eftir litlu að slægjast," sagði
Friðrik.
Hann segir að verkfall Sleipnis
hafi lítil sem engin áhrif haft á sinn
rekstur. „Ég hef eiginlega ekki orðið
var við verkfallið á annan hátt en
þann að hingað komu einu sinni
verkfallsverðir vegna einhvers
ágreinings.
Okkar gestir eru aðaUega í skipu-
lögðum hópferðum og þá hefur verið
leitað tU þeirra fyrirtækja um akstur
sem ekki eru með Sleipnismenn í
vinnu,“ sagði Friðrik.
-gk
Toifæran
Þnðja umferð Formula
Off Road Open, DV-Sport to
fer fram við Litlu kaffistofuna á morgun laug;
Keppnin hefst klukkan 11.00 méð tveimur þrautum
TOYOTA
BP /
!
1 :
|iS9