Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2000, Blaðsíða 10
10
Útlönd
FÚSTUDAGUR 14. JÚLÍ 2000
I>V
Björgunarstörf í Bombay
200 hreysi eyöilögðust í
aurskriðunni.
Tugir létust í aur>
skriðu í Bombay
á Indlandi
Að minnsta kosti sextíu manns
létu lífið er aurskriða féll á
fátækrahverfi í Bombay á Indlandi í
fyrradag. Óttast er að fimmtíu séu
enn grafnir í rústunum. Ólíklegt er
talið að einhverjir séu á lífl í
rústunum en tekist hefur að bjarga
46 manns.
Miklar rigningar og flóð hafa
verið á svæðinu í nokkra daga og
hafa yfir áttatíu látist af völdum
veðurhamsins.
í Bombay eyðilögðust um 200
hreysi í skriðunni. Skriður eru
algengar á tímum monsúnrigninga í
Indlandi sem vara í fjóra mánuði.
Vopnabúrið
Uppreisnarmenn gefa vopn sín.
Speight lætur
vopn af hendi
Þjóðernissinnar á Fídjí, sem
héldu m.a. fyrsta indverskættaða
forætisráðherra eyjanna í gíslingu í
56 daga, afhentu hermálayfirvöldum
vopnabúr sín í gær. Leiðtogi upp-
reisnarmanna, George Speight, af-
henti vopnin við opinbera athöfn í
þinghúsinu í Suva í gær en þar á
meðal voru 60 sjálfvirk vopn, 14
skammbyssur, jarðsprengjur og gas-
grímur. „Þetta eru ekki endalokin.
Þetta er upphafið. Það er heilmikil
vinna fyrir höndum í þessu landi,“
sagði Speight sem vonast eftir ráð-
herrastöðu í nýrri ríkisstjóm.
Barak og Arafat á klukkustundarfund saman:
Tekist á um ein-
stök málsatriði
Bill Clinton sneri aftur tíl
Camp David í gærkvöldi eftir að
hafa setið ráðstefnu um málefni
blökkumanna i Baltimore. Leið-
togamir tveir, Yasser Arafat og
Ehud Barak, höfðu þá ræðst við
ásamt sendinefnum í fjarveru
Clintons og var mál manna að
eftir undirbúning viðræðnanna
síðastliðna tvo daga hefðu menn
loks verið í stakk búnir til að
ræða einstök mál og málefni í
þaula. Þetta staðfesti m.a. örygg-
ismálaráðherra ísraels, Shlomo
Ben Ami, í samtali við ísraelska
útvarpið en Ben Ami situr í
sendinefnd Israela í Camp David
í Maryland.
Fram að þessu hafði Clinton
átt fundi með Barak og Arafat
sínum í hvoru lagi en í gær
reyndi á það í fyrsta skipti hvort
leiðtogamir tveir gætu ræðst við
undir fjögur augu. Talsmaður
Bandarikjaforseta, Richard
Boucher, staðfesti á blaðamanna-
fundi að leiðtogamir tveir hefðu
ræðst við undir fjögur augu og
sagði að þeir hefðu átt um
klukkustundarfund saman.
„Þeir ræddu saman að eigin
frumkvæði en okkur var kunn-
ugt um fundinn," sagði Boucher
meðal annars. Hann ítrekaði þó
að menn skyldu fara varlega í að
draga ályktanir, jafhvel þó létt
yfirbragð væri yfir friðarvið-
ræðunum og leiðtogamir af-
slappaðir.
Arafat kallaði eftir liðsauka
frá Palestínu til að aðstoða hann
í friðarviðræðunum og til að
forðast þrýsting frá Bandaríkj-
unum um að deilur ísraela og
Palestinumanna yrðu leystar í
eitt skipti fyrir öll. Sendinefndin
lenti á flugvellinum í Was-
hington í gær en óvist er hvenær
hún mun taka þátt í viðræðun-
um. Óhætt er að segja að nokkur
urgur hafi verið í mönnum
vegna þessa og þykir það draga
nokkuð úr því frekar en hitt að
endanlegt samkomulag náist.
Bandarískir ráðamenn gáfu
engu að síður i skyn að hugsan-
legt væri að undanþága yrði
veitt frá ákvæði viðræðnanna
um að einungis leiðtogar og
Bill Cllnton sendinefndir þeirra mættu taka
Clinton var fjarri góðu gamni í gær en sneri þátt í friðarviðræðunum i Camp
aftur til CD síðdegis. David.
Sjaldgæf sjón
Sjóotrar eru falleg dýr en stofninn var friðaöur á sínum tíma eftir að hafa verið nær útdauöa vegna ágangs
veiðimanna og ásóknar í verðmætan feid þeirra. Myndin aö ofan er tekin undan ströndum Aleutia-eyja.
Reykj avíkurborg;
Borgarskipuktg
A
KÓPAVOGSBÆR
Auglýsing um deiliskipulag í Kópavogi og Reykjavík
Reykjanesbraut við Mjódd - umferðarskipulag
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með auglýst
til kynningar tillaga að umferðarskipulagi Reykjanesbrautar við Smiðjuveg/Mjódd
Tillagan liggur frammi í sal Borgarskipulags og Byggingarfulltrúa Reykjavíkur,
Borgartúni 3, 1. hæð og á skrifstofu Bæjarskipulags Kópavogs, Fannborg 6, virka
daga kl. 10:00 - 16:00 frá 14. júlí til 11. ágúst 2000.
Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega til Borgarskipulags
Reykjavíkur eða Bæjarskipulags Kópavogs eigi síðar en 25. ágúst 2000.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillögurnar innan tilskilins frests, teljast sam-
þykkir.
Kona lést af
sjaldgæfri
salmónelluteg-
und í Danmörku
Sjö konur á aldrinum 35 til 81 árs
hafa smitast af salmónellutegund
sem er ónæm fyrir venjulegum
sýklalyfjum. Ein kona, 41 árs, hefur
látist af völdum sjúkdómsins. Kon-
umar smituðust eftir að hafa verið
lagðar inn á sjúkrahús.
Fyrstu tilfellin af salmónellubakt-
eríunni Typhimurium U302 upp-
götvuðust um miðjan júní. Rann-
sóknin beinist nú fyrst og fremst að
því hvaða matvæli voru keypt inn á
sjúkrahúsin á meðan konurnar lágu
þar.
Talið er að fleiri sjúklingar hafi
smitast þó þeir hafi ekki orðið svo
alvarlega veikir að ástæöa hafi þótt
til að rannsaka það sérstaklega.
wmvmm
Bradley styður Gore
Bill Bradley öld-
ungadeildarþing-
maður, sem tapaði
fyrir A1 Gore, vara-
forseta Bandaríkj-
anna, í forkosning-
um demókrata,
lýsti í gær i fyrsta
sinn afdráttarlaust
yfir stuðningi við varaforsetann.
Hétu þeir harðri baráttu við George
Bush, forsetaframbjóðanda
repúblikana.
Rannsókn á barsmíðum
Bandaríska alríkislögreglan og
saksóknari í Philadelphiu hafa haf-
ið rannsókn á barsmíðum lögreglu-
manna á særðum blökkumanni.
Leiðtogar blökkumanna hvetja
menn til að sýna stillingu.
Umhverfisspjöll
Bandarískir hermenn í S-Kóreu
hafa viðurkennt að hafa fleygt efna-
úrgangi í helsta fljót Seoul í febrúar
síðastliðnum.
Tjáningarfrelsi
Vladimir Pútín, forseti Rúss-
lands, vísaði því á bug i gær að
hann hefði í hyggju að takmarka
tjáningarfrelsi. Sagði hann ótta fjöl-
miðlakónga stafa af þvi að þeir ótt-
uðust að missa völd sín.
Sögulegur samningur
Bandaríkin og Víetnam undirrit-
uðu í gær sögulegan viðskiptasamn-
ing. Ryður samningurinn braut fyr-
ir eðlilegum viðskiptum þessara
fomu fjenda.
Taskan seld
Margaret
Thatcher, fyrr-
verandi forsætis-
ráðherra Bret-
lands, lýsti í gær
yfir ánægju
sinni með að ein
af handtöskun-
um hennar
frægu skyldi selj-
ast á 100 þúsund pund á uppboði.
Kaupandinn er skoskur kaupsýslu-
maður sem sagði að stefna
Thatchers hefði auðveldað honum
að safna auði. Ágóðanum af sölunni
verður varið til góðgerðarmála.
Olíuverð hækkar
Olíuverð hækkaði í gær á mark-
aði í London þar sem óljóst þótti
hvort af neyðarfundi olíufram-
leiðsluríkja yrði.
Skipulagði morð
Fyrrverandi
ástkona Rauls
Salinas, bróð-
ur Carlos Sal-
inas, fyrrver-
andi Mexíkó-
forseta, grein-
ir frá því i bók að Raul hafi skipu-
lagt morð á fyrrverandi mági sin-
um. Raul afplánar nú 27 ára fangel-
isdóm vegna morðsins. Carlos Sal-
inas er nú í sjálfskipaðri útlegð á
Kúbu vegna hneykslisins.
Flýja trúarstríð
íbúar Molúkkaeyja flúðu í gær
átök milli kristinna og múslíma
sem blossuðu upp á ný. Að minnsta
kosti sjö létu lífið og tólf særðust í
átökunum.