Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2001, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2001, Blaðsíða 8
24 MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2001 MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 2001 25 Sport Sport Bikarmeistarar Grindavíkur á heimavelli: Rassskelltir - ÍR í úrslit eftir frækinn sigur á Grindavík Pétur Ingvarsson, þjalfari Hamars, leggur á ráðin gegn Keflvíkingum í gær. Hamar sigraði í leiknum og er kominn í úrslit í bikarnum. DV-mynd HH Hamar sigraði í Keflavík og fer í úrslitaleikinn ÍR vann frækilegan sigur á bik- armeisturunum frá Grindavík, 97-76, og það á heimavelli meistar- anna og eru þar með komnir í úr- slit bikarkeppninnar og mæta þar liði Hamars frá Hveragerði. Gestirnir mættu eins og grenj- andi ljón til leiks og héldu aftur af skotmönnum Grindvikinga með grimmri vörn frá byrjun. Það leiddi til þess að jafnt var nánast á öllum tölum í fyrsta leikhluta og mesti munur á liðunum var sex stiga forysta Grindvíkinga, 22-16, um miðjan fyrsta leikhluta en mikil barátta ÍR undir körfunni færði þeim boltann tvisvar á lokamínútu leikhlutans og staða 24-21 eftir fyrsta leikhluta. Sami barningur var áfram í öðr- um leikhluta og hvorugu liðinu tókst að ná forystu sem neinu nam og staðan í hálfleik 39-39. Það segir nokkuð um baráttu gestanna að þeir náðu að jafna tveimur sek- úndum fyrir hálfleikslok og þeir skoruðu fjögur stig á seinustu mínútunni. Ekki sannfærandi Það var mál manna í hálfleik aö eitthvaö þyrfti að gerast hjá heimamönnum í seinni hálfleik ef ekki ætti illa að fara gegn frískum leikmönnum ÍR. Leikmenn Grindavíkur virkuðu ekki sann- færandi og lykilmenn varla komn- ir á blað í hálfleiknum. Áfram hélt leikurinn og enn var enginn mun- ur á liðunum. Grindvíkingar Njörður og Ragna meistarar Njörður Ludvigsson, TBR, og Ragna Ingólfsdóttir, TBR, urðu Reykjavíkurmeistarar i badmin- ton en Opnu meistaramóti Reykja- víkur lauk í TBR-húsum í gær. Njörður sigraði Brodda Krist- jánsson TBR í úrslitum, 15-11 og 15-14. Ragna mætti Brynju Pét- ursdóttur, TBR, í úrslitum og sigr- aði hana 3-11,13-10 og 11-2. íslandsmet Meistaramóti íslands í fjöl- þrautum innanhúss fór fram um helgina og urðu þau Ólafur Guð- mundsson, HSK, og Vilborg Jó- hannsdóttir, UMSK, hlut- skörpust en Vilborg setti glæsi- legt íslandsmet í sexþrautinni. Úrslit urðu þessi: Sjöþraut karla: 1. Ólafur Guömundsson, HSK 4916 2. Theódór Karlsson, UMSS 4797 3. Jónas Hallgrímsson, FH 4719 Sexþraut kvenna: 1. Vilborg Jóhannsdóttir, UMSS 4407 (nýtt íslandsmet) 2. Ágústa Tryggvadóttir, HSK 4161 (nýtt telpnamet) 3 Gunnhildur Hinriksd., HSK 3956 Bubka loks hættur Sergei Bubka, margfaldur heims- og ólympíumeistari i stang- arstökki, lauk ferli sínum opinber- lega á móti í heimaborg sinni Do- netsk í Úkraínu um helgina. Mik- ill fjöldi áhorfenda fylgdist með þegar honum var veitt æðsta við- urkenning þjóðar sinnar, orða Úkraínuhetjunnar. „Þetta er mjög erfiður dagur fyr- ir mig. ég er rétt að byrja að átta mig á því núna að ég á ekki eftir að stökkva framar," sagði Bubka af þessu tilefni. -ÓK breyttu í svæöisvöm, í þeirri von að vinna boltann af ÍR en það gekk ekki eftir og staðan 64-62 þegar síðasti leikhluti hófst og hægt að segja að leikurinn væri í járnum. Reyndar lentu heimamenn í villuvandræöum þvf Pétur Guð- mundsson fékk sína fjórðu villu á þriðju mínútu leikhlutans og El- entínus Margeirsson á sjöundu mínútunni þannig að þeirra naut ekki við. Kristján Guðlaugsson jafnaði fyrir heimamenn strax á fyrstu andartökum síðasta leik- hluta en eftir það var leikurinn ÍR. Á næstu sjö mínútum gerðu þeir út um leikinn með því að skora 15 stig í röð og breyttu stöðunni í 64-79. Eftirleikurinn var síðan næsta auðveldur og sig- ur þeirra fyllilega verðskuldaður. Muna ekki annað eins Undirritaður man vart eftir annarri eins útreið hjá liði Grind- víkinga á heimavelli þvl gestirnir hreinlega völtuðu yfír þá í lokin án þess að þeir ættu svar við einu eða neinu. Leikurinn var ráðleys- islegur og lykilmenn virkuðu eins og hálfgerðir byrjendur í iþrótt- inni. Enginn virtist hafa getu til að taka af skarið og stappa stálinu í menn og hreinlega horfðu á gest- ina fara með sigur af hólmi. Kevin Daley átti nokkrar glæsilegar troðslur sem glöddu ótrúlega fáa áhorfendur og Páll Axel Vilbergs- son átti ágæta kafla í leiknum en Stacy Dragila setti um helgina heimsmet í stangarstökki innan- húss þegar hún stökk 4,63 m á móti sem fram fór í Madison Square Gar- den í New York. Fyrra met hennar var 4,61 m. Þetta mót markar upphaf innan- hússtimabilsins í Bandaríkjunum og því óhætt að segja að Dragila byrji mótið á svipuðum nótum og hún lauk utanhússtímabilinu í Sydney. Hin fertuga Merlene Ottey byrj- hinir leikmennirnir óska þess sennilega að hafa ekki verið með í leiknum. Leikmenn ÍR voru vel að sigrin- um komnir eins og fyrr segir. Þar lögðust allir á árina og skópu liðs- heild sem dugði til sigurs. Eiríkur Önundason fór fyrir sínum mönn- um og átti glæsilegan leik en þeir stóðu honum lítt að baki, Cedric Holmes sem var drjúgur í vörn- inni og Hreggviður Magnússon sem átti skínandi leik. Meiriháttar sigur „Þetta var alveg meiriháttar sig- ur hér i kvöld. Strákarnir rifu sig upp úr lægð sem þeir hafa verið í að undanfömu og þetta var sér- lega ánægjulegt. Við vorum virki- lega tilbúnir frá byrjun og eftir að hafa jafnað fyrir leikhlé heyrði ég á þeim að við gætum alveg farið alla leið. Leikir þessara liða hafa i gegnum tíðina verið miklir bar- áttuleikir og þessi var það. Ég er ekkert farinn að spá í úrslitaleik- inn en hlakka bara til,“ sagði Jón Örn Guðmundsson þjálfari ÍR eft- ir leikinn. Stig Grindavlkur: Kevin Daley 21, Páll Axel Vilbergsson 17, Elentínus Margeirsson 13, Kristján Guðlaugsson 13, Guðlaugur Eyjólfsson 6, Pétur Guð- mundsson 6. Stig ÍR: Eirikur Önundarson 27, Cedric Holmes 20, Hreggviður Magnús- son 18, Steinar Arason 14, HaUdór Kristjánsson 8, Ólafur Sigurðsson 6, Sigurður Þorvaldsson 2, Sigurður Tóm- asson 2. -FÓ aði ekki síður vel og sigraði í 60 m hlaupi, á tímanum 7,20 sek., gegn sterkum andstæðingum, s.s. Chryste Gaines, sem varð önnur. Ottey var ekki eini öldungurinn sem stóð sig vel á mótinu en Johnny Grey, 41 árs Bandaríkjamaður vann 800 m hlaupið, á tímanum 1:50,40 mín. Þá vann Jearl Miles-Clarke sitt fyrsta 800 m hlaup innanhúss en hún á bandaríska metið í greininni utanhúss. -ÓK Hið ótrúlega og baráttuglaða lið Hamar úr Hveragerði gerði sér lítið fyrir og skellti heimamönnum úr Keflavík í undanúrslitum bikarkeppn- innar í körfuknattleik í gær i leik sem var æsispennandi, framlengdur og virkilega skemmtilegur. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 89-89 en einni -framlengingu síðar var lokastaðan 94-97 og leikmenn Hamars stigu villt- an stríðsdans enda í fyrsta sinn í sögu félagsins sem sæti í úrslitaleiknum er tryggt en sem vonlegt er voru Keflvík- ingar að sama skapi niðurlútir. Þrátt fyrir að aldrei megi afskrifa lið Hamars þá bjuggust flestir viö að Kefl- víkingar, með sína sterku blöndu af ungum og efnilegum leikmönnum og eldri og reyndari, myndu sigra því staða þeirra í deildinni er öllu betri en Hamarsmanna og þeir hafa unnið til margra titla í gegnum tíðina og þá tap- ar liðið ekki oft leik á heimavelli. Lið Hamars hefur verið ansi köflótt í vetur og flestir sigrar hafa komið á heima- velli en nú nýverið lögðu þeir íslands- meistara KR á útivelli og nú Keflvík- inga og svo virðist sem liðið sé búið að vinna bug á útivallardraugnum sem svo lengi hefur hrellt þá. Sprengikraftur Hamarsmenn hófu leikinn betur og voru fyrri til að skora megnið af fyrsta fjórðungi en góöur leikkafli Keflvík- inga í lok hans tryggði þeim tveggja stiga forystu. I öðrum fjórðungi hélst jafnræði með liðunum og þau skiptust á að hafa foystu en þegar flautað var til leikhlés var staðan jöfn, 38-38. Kefl- vikingar mættu geysilega ákveðnir til leiks í þriðja fjórðungi og um tíma var mikill sprengikraftur í liðinu og allt leit út fyrir að þeir myndu stinga af en ■Hamarsmenn héngu á seiglunni inni í leiknum þannig að þegar fjórðungnum lauk voru Keflvíkingar einungis með átta stiga forystu. Leikmenn Hamars máttu þakka fyrir að forysta Keflvík- inga var ekki töluvert meiri en að sama skapi voru Keflvíkingar eilítlir klaufar að fara ekki inn i fjórða leik- hluta með þægilegra forskot. Stutt milli feigs og ófeigs Fjórði leikhluti var geysilega spenn- andi en Hamar jafnaði 70-70 þegar hann var tæplega hálfnaður og jafnt var á flestum tölum en þegar ein min- úta og fimmtíu og fjórar sekúndur voru eftir náðu Keflvíkingar sex stiga for- ystu, 86-80, og þegar ein mínúta og þrjár sekúndur voru eftir var munur- inn fjögur stig. Hamar minnkaði mun- inn í tvö stig með góðri körfu frá Hjalta Pálssyni þegar þrjátíu og ein sekúnda var eftir og var spennan þá orðin nán- ast óbærileg. Það er vitað að stutt er á milli feigs og ófeigs og Magnús Þ. Gunnarsson, leikmaður Keflvíkinga, komst að raun um það í gær. Þegar tuttugu og ein sek- únda var eftir af venjulegum leiktíma tók hann þriggja stiga skot og hefði hann hitt væru það Keflvíkingar sem ættu sæti í bikarúrslitaleiknum en boltinn fór ekki ofan í þótt ótrúlega litlu hefði munað og f staðinn náöi Skarphéðinn Ingason frákastinu og á honum var brotið og hann fór á vítalín- una og fékk tækifæri til að jafna leik- inn þegar nitján sekúndur voru eftir; taugar allra í íþróttahúsinu voru þand- ar til hins ýtrasta en Skarphéðinn var sallarólegur og setti bæði vítin örugg- lega niður. Keflavík fékk tækifæri til að klára leikinn en vörn Hamars var góð og Hjörtur Harðarson tók erfitt skot á síðustu sekúndunni en það geig- aði og framlenging staðreynd. Þess ber að geta að Calvin Davis, leikmaður Keflvíkinga, fékk sina fjórðu villu þeg- ar þrjátíu sekúndur voru liðnar af fjórða leikhluta og veikti það liðið óneitanlega og Hamarsmenn voru duglegir að notfæra sér það og sér í lagi Hjalti Pálsson. Þegar fáar sekúnd- ur voru eftir af venjulegum leiktíma fékk Davis svo sína fimmtu villu og því naut hans ekki við í framlengingunni. Sætur sigur Framlengingin var geysispennandi og þegar ein mínúta og tuttugu og fimm sekúndur voru eftir af henni var staðan jöfn, 94-94, en glæsileg þriggja stiga karfa frá Pétri Ingvarssyni og karfa úr hraðaupphlaupi frá Chris Dade stuttu seinna tryggðu Hamars- mönnum óvæntan og sætan sigur og sæti í úrslitaleiknum eins og áður var vikið að. Þessi leikur hafði mikið skemmtanagildi og sáust glæsileg til- þrif í bland við mörg mistök enda mik- ið í húfi og spennustigið hátt. Hjá Keflavík voru þeir Gunnar Einarsson og Calvin Davis bestir og þá átti Guð- jón Skúlason ágætan leik. Hjá Hamri voru þeir Pétur Ingvarsson og Chris Dade sterkastir en Hjalti Pálsson, Skarphéðinn Ingason og Gunnlaugur Erlingsson stóðu fyrir sínu. „Við urðum bikarmeistarar HSK fyrir tveimur árum og kannski bætum við öðrum bikar 1 safnið í ár,“ sagði brosandi og sigurreifur Pétur Ingvars- son, þjálfari og leikmaður. Hamars, sem enn eina ferðina hefur sýnt fram á hvað barátta og ósérhlífni getur skil- að miklu. Stig Keflavíkur: Gunnar Einarsson 23, Calvin Davis 22, Guðjón Skúlason 15, Jón N. Hafsteinsson 11, Birgir Ö. Birgisson 9, Magnús Þ. Gunnarsson 8, Hjörtur Harðarson 6 Stig Hamars: Chris Dade 27, Pétur Ingvarsson 25, Hjalti Pálsson 12, Gunn- laugur Erlingsson 12, Skarphéðinn Ingason 12, Lárus Jónsson 7, Svavar Svavarsson 3. -SMS Stacy Dragila horfir hér á slána þar sem hún svífur yfir methæðina. Reuter Stangarstökk kvenna: Heimsmet - Stacy Dragila byrjar tímabilið vel ísfirðingar stríddu Keflvíkingum á heimavelli: Umdeild tæknivilla - reyndist vendipunktur í leiknum Keflavíkurstúlkur tryggðu sér sæti í úrslitaleik í bikarkeppni kvenna enn einu sinni er þær lögðu KFÍ á heimavelli, 66-56, á laugar- dag, eftir að gestimir höfðu leitt, 23-32, í hálfleik. Það voru heimamenn sem höfðu þar frumkvæðið í fyrsta leikhluta með Brooke Schwartz í aðalhlut- verki. Stúlkan sú gerði 11 af 17 stig- um heimamanna, en hjá gestunum var Jessica Gaspar með sjö af 14 stigum þeirra. í öðrum leikhluta snerist dæmið hins vegar við og sterk vörn ísfirðinga hélt Keflavík- urliðinu í aðeins sex stigum í leik- hlutanum og forysta gestanna 9 stig í hálfleik. Fátt benti til þess að heimamenn myndu rétta sinn hlut í þriðja leik- hluta og forskot gestanna ávallt átta til tíu stig. En á fyrstu 52 sekúnd- um fjórða leikhluta sýndu Keflvík- ingar hvað koma skyldi og gerðu þeir sjö stig og munurinn skyndi- lega aðeins eitt stig. Tinna Björk rauf þá þögn KFÍ með tveimur góð- um körfum og kom KFÍ í 5 stiga for- ystu en Keflvíkingar fóru þá loks að hitta utan af velli. Vendipunkturinn Er sex mínútur voru eftir átti sér stað vendipunktur leiksins. Þá fékk Jessica Gaspar sína íjórðu villu í baráttu um frákast og í kjölfarið tæknivillu og því útilokun frá frek- ari þátttöku í leiknum. Á skammri stund var allt sjálfstraustið sem geislaði af gestunum komið í hendur heimamanna og þær gengu á lagið og frá stöðunni 55-55 skor- uðu þær 11 stig gegn einu og sigruðu, 66-56. Brooke Schwartz var atkvæðamest heimamanna, en þær Erla, Marín og þá sér- staklega Svava gerðu mikilvægar körfur í fjórða leikhluta. Hjá gestunum lék Jessica Gaspar mjög vel meðan hennar naut við. Sólveig lék einnig mjög vel í fyrri hálfleik og þær Fjóla, Stefanía og Tinna áttu sömu- leiðis íínan leik. Smáhiksti Kristinn Óskarsson, þjálfari Keflavíkur, var ánægður í leikslok; „Sóknarleikurinn hikstaði hjá okk- ur í öðrum og þriðja leikhluta, og í raun var Brooke ein um aö taka af skarið í þeim fyrsta. En við lékum sem lið í lokaleikhlutanum, og þetta lið þekkir ekkert annað en að gera vel og liðið á skilið að vera komið í Höllina. Við erum án okkar helsta skorara (Birnu Valgarðsdóttur) og eigum hana því inni i fram- haldinu. Það er styrkur að sigra á ekki nema tveimur góðum leikhlutum." Ósanngjörn tæknivilla Karl Jónsson, þjálfari KFÍ, var að vonum vonsvikinn í leikslok. „Við vorum of mik- ið til baka eftir að við náð- um forystu, en á meðan voru þær ákveðnar í aðgerð- um sinum. Vendipunktur leiksins er þegar Jessica fær mjög ósanngjarna tækni- villu, og ég hefði haldið að hún fengi aðvörun áður. En þetta var leikur tveggja frábærra liða og bæði lið sýndu sínar bestu hliðar en þær áttu lokaorðið að þessu sinni.“ Stig Keflavíkur: Brooke Schwartz 28, Erla Þorsteinsdóttir 15, Svava Stefáns- dóttir 9, Marín Rós Karlsdóttir 6, Kristín Blöndal 5, Sigriður Guðjónsdóttir 3. Stig KFÍ: Jessica Gaspar 17, Sólveig Gunnlaugsdóttir 14, Tinna B. Sigmunds- dóttir 12, Fjóla Eiriksdóttir 9, Stefanía Ásmundsdóttir 4. -EÁJ Erla Þorsteinsdóttiir átti góöan ieik fyrir Keflavík gegn KFÍ. Stúdínur í heimsókn í vesturbænum: Mættu ofjörlum sínum - KR-stúlkur áttu ekki í miklum vandræðum með vængbrotið lið ÍS „Ég er mjög ánægður með stelpurnar þar sem þær komu með hárréttu hugafari í þennan leik. Við vorum að spila okkar besta leik eftir áramót og mér fannst aldrei vera nein spuming hvort liðið færi með sigur af hólmi,“ sagði Henning Henningsson, þjálfari KR, eftir að hafa sigrað ÍS, 72-47, í undanúrslitum bikarkeppni KKÍ í KR- heimilinu á laugardag. KR byrjaði leikinn gegn Stúdínum af miklum krafti og hittnin var gríðarlega góö. KR beitti 2:2:1 pressuvöm og féll aftur í 2:3 svæðisvörn. Leikurinn var hraður fyrir vik- ið og mun hraðari en gengur og gerist í kvennakörfunni. Þegar fyrsti leikhluti var rúmlega hálfnaður og KR yfir, 22-6, tók Henning byrjunarliðið ú taf. í kjölfarið datt dampurinn úr sóknarleik KR. ÍS fór að beita pressuvörn og minnkaði muninn i sex stig, 22-16, en nær komust Stúdínur ekki. KR tók fljótlega aftur öll völd á vellinum þegar byrjun- arliðsmennirnir fóru að tínast inn á aftur og lék engin betur en Kristín Jónsdóttir sem hitti úr öllum sínum skot- um utan af velli og var með 15 stig i fyrri hálfleik. Stað- an í hálfleik var 36-26 fyrir KR. Stór þriggja stiga karfa KR jók síðan forskot sitt í þriðja leikhluta og var vöm liðsins mjög sterk. Gréta Grétarsdóttir og Hanna Kjart- ansdóttir fóru fyrir liðinu í sókn og gerði Gréta stóra þriggja stiga körfu í lok þriðja leikhluta og kom KR 17 stigum yfir, 53-36. Við þessa körfu játuðu Stúdínur sig sigraðar en heimastúlkur léku við hvem sinn fingur það sem eftir lifði leiks og leikgleðin skein úr hverju andliti. Lið KR átti sinn besta leik í langan tíma og vom lykilmanneskjur að hitta vel. Kristín átt enn einn stórleikinn í vörn og sókn og Hildur Sig- urðardóttir var einnig í miklum ham. Hanna var sterk aö vanda og Gréta er alhliða leikmað- ur sem skilar griðarlega stóm hlutverki í liðinu og er að gera hluti sem eru ekki áberandi. Vængbrotiö liö Stúdínur mættu einfaldlega oflörlum sínum að þessu sinni enda er liðið frekar vængbrotið þessa dagana. Meira að segja þjálfari liðsins, Ós- valdur Knudsen, gengur ekki heill til skógar og er með hönd í fatla. Stella Rún Kristjánsdóttir meiddist í byrjum annars leikhluta og var það ekki á bætandi. Cecilía Larsson var góð í öðr- um leikhluta og Hafdís Helgadóttir gerði það sem hún gat og reyndi að drífa sitt lið áfram. Lovísa Guðmundsdóttir komst ágætlega frá leiknum en meiðsli í ökkia héldu aftur af henni. Kristín Jónsdóttir sækir hér aö körfu ÍS en hún átti mjög góöan leik. DV-mynd E.ÓI. Einfaldlega betri „KR-liðið var einfaldlega betra i dag. Þær vom að hitta vel í þessum leik á meðan sóknarleikur- inn hjá okkur gekk brösulega. Ég bjóst ekki við að KR myndi spila svæðisvörn og það tók okk- ur svolítið út af laginu í byrjun leiks. Við höfum verið óheppin með meiðsli en það afsakar ekki þetta tap að þessu sinni,“ sagði Ósvaldur Knud- sen, þjálfari ÍS, við DV að leik loknum. Stig KR: Kristín Jónsdóttir 17 (5 stolnir, 8/10 í skot- um), Hanna Kjartansdóttir 17, Hildur Sigurðardóttir 16 (10 fráköst), Gréta Grétarsdóttir 9 (11 fráköst, 6 stoðsendingar), Guðrún Sigurðardóttir 4, Sigrún Skarphéðinsdóttir 3, Guðbjörg Norðflörð Elíasdóttir 3, María Káradóttir 2, Helga Þorvalsdóttir 2. Stig ÍS: Hafdis Helgadóttir 10, Cecilía Larsson 9, Lovísa Guðmundsdóttir 7 (6 fráköst, 4 varin skot), Júl- ía Jörgensen 6, María Leifsdóttir 5, Jófríður Halidórs- dóttir, Stella Rún Kristjánsdóttir 3, Þórunn Bjamadótt- ir 2. -BG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.