Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2001, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2001, Blaðsíða 5
Ifókus uLt ■ SÆUISVEITIN Á CATAUNA Þaö verður fjör á Catalina, Hamraborg, í kvöld því Sælusveitin ætlar að leika. Ókeypis inn og snyrtilegur klæðnaður er skilyrði. ■ SÍLDARVALS Á LÆKNUM Það verður stuð á Kaffi Læk í kvöld þar sem hann Njalll i Holti ætlar aftur að stíga á sviö og jafnvel taka einn Síldarvals fyrir gestina. f Böl 1 ■ RAUÐ GLEÐI j ÁRSELI Það verður rautt ball í Árseli í kvöld og eiga þá allir að mæta í rauðum föt- um. Gamanið stendur frá 20 til 23 og eru allir 16 ára og eldri velkomnir. C-Klassí k ■ HEIÐURSTÓNLEIKAR í AKUREVRARKIRKJU Kammerkórinn Schola cantorum við Hallgríms- kirkju í Reykjavík heldur kórtónleika í Akureyrar- kirkju klukkan 17.00 til heiðurs Áskeli Jónssyni, 90 ára. Með kórnum koma fram einsöngvarar úr röðum kórfélaga, þau Kirstin Erna Blöndal sópran, Gubrún Finnbjarnardóttir alt og Guólaugur Viktors- son tenór ásamt orgelleikaranum Kára Þormar. Á efnisskránni eru verk eftir þá feðga Áskel Jónsson og Jón Hlöóver Áskelsson, ásamt latneskum mótettum eftir norsku tónskáldin Knut Nystedt og Kjell Mörk Karlssen. Stjórnandi Schola cantorum er Hörður Áskelsson. ■ KAMMERTÓNLEIKAR j FRÍKIRKJUNNI Tónlist- arskóli Reykiavíkur stendur fyrir kammertónleik- um í Fríkirkjunni kl. 17. Á efnisskrá eru: Strengja- kvartett nr. 1 op. 29 í a-moll, 1. þáttur eftir Franz Schubert, Tríó op. 1 nr. 3, 1. þáttur eftir L. van. Beethoven, Trois piéces bréves eftir Jacques Ibert og Oktett fyrir strengjakvintett, klarínettu, horn og fagott D803 op. 166eftir Franz Schubert. Aðgang- ur ókeypis og allir velkomnir. ■ REOUIEM EFTIR MOZART Kór Hafnarfjarðar- kirkju ásamt félögum úr kór Kópavogskirkju flytja Requiem, Mozarts kl. 15.00 í Hásölum, safnaöar- heimili Hafnarfjarðarkirkju. Einsöngvarar eru Elín Ósk Óskarsdóttir söpran, Anna Slgríður Helga- dóttir alt, Jóhann Friðgeir Valdimarsson tenór og Jóhann Smári Sævarsson bassi. Konsertmeistari, Zbigniew Dubik, ásamt félögum úr Sinfóníuhljóm- svelt íslands. Stjórnendur Natalia Chow og Julian Hewlett. ■ SINFÓNÍAN LEIKUR SÖNGLEIKJATÓNLIST Sinfóníuhljómsveit íslands leikur söngleikjatónlist á tónleikunum klukkan 17 í dag. Hljómsveitarstjóri er Martin Yates og söngvarar eru Debbie Gravitte, Liz Callaway, Greg Edelman og Stephen Bogardus sem öll koma úr leikhúsum á Broadway. ■ TÓNLEIKAR í BREIÐHOLTSKIRKJU Þrír kórar halda sameiginlega tónleika í Breiðholtskirkju kl. 15. Kórarnir eru Gerðubergskórinn (kór Félags- tarfs Gerðubergs), Þingeyingakórinn og M.R.60. Aðgangseyrir er kr. 1.000 en 500 kr. fyrir eldri borg- ara. Allir hjartanlega velkomnir. ■ ÞREK OG TÁR í DOMUS VOX Söngleikjadeild Domus Vox sýnir söng- og leikdagskrána Þrek og Tár, byggöa á samnefndu leikriti eftir Ólaf Hauk Símonarson, klukkan 14 og 20. Leikritið var sýnt viö mikla aðsókn í Þjóðleikhúsinu fyrir nokkrum árum. Leikstjóri er Margrét Eir. Tónlistarstjórn er í höndum Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. Sýningar fara fram í sal skólans, Skúlagötu 30, annarri hæð. Að- göngumiðar eru seldir við innganginn. Nánari upp- lýsingar á vef skólans: www.domusvox.is. ■ BURTFARARTÓNLEIKAR DAVÍÐS ÞÓRS Davíð Þór Jónsson heldur burtfarartónleika í sal Tónlist- arskóla FÍH, Rauðagerði 27, kl, 17. Á efnisskrá tónleikanna eru aðallega frumsamin lög og ópusar eftir Keith Jarrett og Dave Douglas. Með honum á tónleikunum spila Jóel Pálsson á saxófón, Valdi- mar Kolbeinn Sigurjónsson á kontrabassa, Helgi Svavar Helgason á trommur og slagverk og Matth- ías M.D. Hemstock á trommur og siagverk. Að- gangur er ókeypis og allir eru hjartanlega velkomn- ir. ■ GRADUALE NOBILI HELDUR TÓNLEIKA Gradu- ale Nobili heldur tónleika í Langholtskirkju kl. 20. Á efnisskránni eru þau verk sem kórinn syngur í keppni evrópskra æskukóra í Karlund, Danmörku. M.a. verður frumflutt verk sem Þorkell Sigurbjörns- son samdi sérstaklegafyrir keppnina, verk eftir Hildigunni Rúnarsdóttur, Jón Nordal og sameigin- legt keppnisverk sem danska tónskáldið Peeter Bruun samdi. Auk þess verða flutt verk eftir Hróð- mar Inga Sigurbjörnsson, Ruth Watson Hender- son, Knut Nystedt og Einojuhani Rautavaara. Eftir hann flytur kórinn Suite de Lorca víð texta Feder- ico García Lorca og Lapsimessu (Barnamessu) þar sem strengjasveit, að mestu skipuð kórfélögum, mun leika með. ■ VORTÓNLEIKAR FÓSTBRÆÐRA Karlakórinn Fóstbræður heldur sína árlegu vortónleika í Lang- holtskirkju klukkan 14 í dag. Auk kórsins koma þau Rannveig Fríða Bragadóttir messósópran og Jóhann Friðgeir Valdimarsson tenr fram, bæði meö kórnum auk þess sem þau 'syngja saman nokkra dúetta. Efnisskráin er mjög fjölbreytt og flutt verða verk eftir Atla Heimi Sveinsson, Hjálmar H. Ragn- arsson, Anton Bruckner, Francis Poulenc, Zoltán Kodály og Orlando di Lasso.Jónas Ingimundarson sér um píanóleik og stjórnandi Fóstbræðra er Árni Harðarson. ■ VORTÓNLEIKAR LÚÐRASVEITARINNAR SVANS Lúðrasveitin Svanurinn heldur vortónleika klukkan 15 í dag i Neskirkju. Fjölbreytt og lífleg tón- list verður leikin sem allir hafa gaman að, ferskar útsetningar af velþekktum suður-amerískum danslögum, göngutónlist og stærri hljómsveitar- verk. •Sveitin ■ DISKÓÁORMINUM Það veröur dúndrandi diskó á Orminum með tilheyrandi. ■ HAFRÓT Á RÁNNI Hljómsveitin Hafrót spilar á Ránni, Keflavík i kvöld. Mikið fjör. ■ KUSK Á VH> POLLINN Hljómsveitin KUSK sér a n $. a rjj...L..Lí 1.......1.Z....a b r í I 1 í f ið F F T T P V T M M II um rytma fyrir dansglaöa á Við Pollinn. ■ PENTA Á KAFFI AKUREYRI Hljómsveitin Penta skemmtir á Kaffi Akureyri. Slagverksleikari Greif- anna, Ingólfur Sig., sér um gestaleik. ■ PÁLL ÓSKAR Á N-1 Diskódrottning okkar ís- lendinga hann Páll Óskar skemmtir gestum á N-1 bar í Reykjanesbæ. ■ SKUGGABALDUR í GLAUMBÆ Diskórokktekiö og plötusnúðurinn Dj. Skuggabaldur heldur uppi skuggaiegri stemningu í Glaumbæ í Ólafsfirði í kvöld. Skuggi spilar ABBA, Rammstein og allt þar á milli. Það kostar 500 kall eftir miðnætti þannig að það borgar sig að vera í fyrra lagi. ■ STUÐ Á ODDVITANUM Það er mergjað fjör á Oddvitanum, Akureyri, er BéPé&Þegiðu mæta á svæðið. ■ SÓLDÓGG Á FESTI Stuðgrúppan Sóldögg spilar aö lokinni Fegurðarsamkeppnl Suöurnesja á Festl í Grindavík. •Leikhús ■ FÍFL í HÓFl Gamanleikritið Fífi í hófi verður frum- sýnt klukkan 20 I kvöld í Gamla bíói (í húsi is- lensku óperunnar). Leikstjóri er María Sigurðar- dóttir. Miðasala i síma 5114200. Örfá sæti eru laus. I RAULANDI í RIGNINGUNNI Leikritiö Syngjandi í rigningunni eftir Comden, Green, Brown og Fred verður sýnt klukkan 20 I kvöld á Stóra sviði Þjóð- leikhússins. Örfá sæti laus. ■ BLÚNDUR & BLÁSÝRA Leikritið Blúndur & blá- sýra, eftir Joseph Kesselring, verður sýnt í dag, klukkan 19, á Störa sviði Borgarleikhússins. ■ KONTRABASSINN Einleikurinn Kontrabassinn eftir Patrick Súskind er sýndur klukkan 19 í kvöld í Borgarleikhúsinu. Ellert A. Ingimundarson leikur og ieikstjóri er Kjartan Ragnarsson. Örfá sæti eru laus. ■ SNIGLAVEISLAN Snlglaveislan eftir Ólaf Jóhann verður sýnd i Iðnó klukkan 20 í kvöld. Gunnar Eyj- ólfsson, Sigurþór Albert Heimisson, Sunna Borg og Hrefna Hallgrímsdóttir fara með helstu hlutverk og leikstjóri er Sigurður Sigurjónsson. Uppselt. ■ VITLEYSINGARNIR Leikritið Vitleysingarnir eft- ir Ólaf Hauk Símonarson er sýnt í kvöld klukkan 20 í Hafnarfjaröarleikhúsinu. Þeta er siöasta sýning. ■ SJEIKSPÍR EINS OG HANN LEGGUR SIG Hall- dóra og co sýna í kvöld klukkan 20 Sjeikspír eins og hann leggur sig í Loftkastalanum. Nokkur sæti laus. ■ SNUÐRA OG TUÐRA - AUKASÝNING Klukkan 14 í dag verður aukasýning á leikritinu Snuðru og Tuðru eftir löunni Steinsdóttur í Móguleikhúsinu við Hlemm. •Kabarett ■ ABBA-SÝNING Á BROADWAY Allra síðasta sýn- ing á þessari feikivinsælu sýningu á Broadway. Söngvarar í sýningunni eru Kristján Gíslason, Rúna Stefánsdóttir, Birgitta Haukdal, Hulda Gestsdótt- ir, Guðbjörg Magnúsdóttir og Jón Jósep Snæ- bjömsson. Hljómsveit Gunnars Þóröarsonar leikur undir á sýningunni. Diskótek eftir sýningu. •Opnanir ■ ANNA HALLIN OG OLGA BERGMANN í LISTA- SAFNI ASÍ Sýningar á verkum Önnu Hallin og Olgu Bergmann verða opnaðar i Listasafni ASÍ, Freyju- götu 41, í dag. Sænska listakonan Anna Hallin sýn- ir málverk og teikningar í gryfju safnsins og heitir sýning hennar Soft Plumbing. Hún sækir myndefni sitt einkum í heim örvera og annarra frumstæðra lífsforma og bregður á leik með ófyrirsjáanlegt hegðunarmynstur þeirra. Olga sýnir í Ásmundarsal safn verka unninna meö blandaðri tækni sem hún kallar Rannsóknarstofu Doktor Bergmanns, en þar er rýnt í furðumöguleika erfðaverkfræði og klónun- ar, þar sem raunveruleikinn og ævintýrið geta skipst á hlutverkum. Listasafn ASl er opið alla daga nema mánudaga, frá 14-18, og stendur sýn- ingin til 29. april. ■ HERE. THERE AND EVERYWHERE í GALL- ERÍ®HLEMMUR.IS í dag, klukkan 14, verður opnuö sýning Erlu Haraldsdóttur og Bo Melin, Here, there and everywhere, í galleri@hlemmur.is. Með sýningunni leika Erla og Bo sér að því að skekkja þann raunveruleika sem við eigum að venjast í okkar daglega umhverfi. Þau breyta hinni einsleitu Reykjavík í fjölþjóðlega borg, með aðstoö stafrænt myndbreyttra Ijósmynda. Við undirbúning sýningarinnar ferðuðust Erla og Bo til San Franciso og Berlínar, þar sem þau mynduðu stórborgarsamfélagið og íbúa þess. Sýningin stendur til 29. april. ■ ODP NERDUM - KITCHMÁLARINN - Á KJARVALDSSTÖÐUM Norski málarinn Odd Nerdrum er mættur til islands til að vera viðstaddur opnun sýningar sinnar á Kjarvalsstöðum í dag klukkan 16. Odd hefur sérstööu innan samtímalistar. Hann hefur bæöi vakið óbeit og aðdáun með þvi að beita ögrandi tilfinningalegri höfðun og vera gamaldags af fullri einurð. Odd Nerdrum er einn af helstu sagnamönnum okkar tíma, djúpsær og sifelit sjálfum sér samkvæmur i málverkum sem alltaf eru í beinum tengslum við eigið lífshlaup. Hann hefur skapað sér sérstakt landslag og sinn einkalega takmarkalausa tíma. Mikilvægasta tema í verkum hans er utangarðsmaðurinn, sá sem kýs sér stað við jaðarinn eða hefur verið hafnað.Djarfleg ummæli Odd Nerdrum í fjölmiðlum hafa vakið athygli almennings á honum. Á sýningunni má sjá þróun hans sem málara frá miðjum níunda áratugnum en sérstök áhersla er lögð á verk frá síðasta skeiöi - eftir hina storkandi yfirlýsingu um að hann væri kitsch málari.Allt frá því Odd Nerdrum kom fyrst fram árið 1964 hefur verið Ijóst að módernisminn var honum ekki að skapi. Fyrirmyndir sínar sótti hann i staðinn til Ijóstækni Rembrandts og 17. aldar-raunsæis Carvaggios. Á áttunda áratugnum gæddi hann list sína oftast félagslegum og pólitískum vísunum en verkin frá hinum níunda hafa um sig goðsagnakenndan hjúp. Verurnar í verkumhans frá þessum tíma eru einatt á reiki um einhverskonar eyöilönd. Odd kom til íslands i fyrsta sinn vorið 1986 og fann þar fyrir ytri ásýnd þess landslags sem bjó innra með honum, þar sem mörkin hafa leyst upp milli fjarlægrar fortíðar, nútímans og framtíðarinnar. Á fyrri helmingi tíunda áratugarins gætti vaxandi óþreyju og kvíða í verkum hans og samband karls og konu þróast þá í hatrömm átök á léreftinu. Heldur miidari blær stafar af Ijósieitum og léttleikandi málverkum frá sumrinul997. Málarinn hefur á undanförnum árum gert sér kyn og líkamsferli að tema og í mörgum verka hans er á ferli tvíkynjungur þar sem karl og kona blandast í eitt. Síðla árs 1977 sagðist Odd smátt og smátt hafa komist að þeirri niðurstöðu að hann væri kitsch málari. Ha ■ LJÓSMYNDAÆTINGAR FYRR OG NÚ í ÍSLENSKRI GRAFÍK í dag, kl. 16, verður opnuð sýning í sal félagsins íslensk grafík, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17 (hafnarmegin), á Ijósmyndaætingum. Á sýningunni er kynnt saga Ijósmyndaætingar á síöustu öld. Elsta verkið er frá byrjun aldarinnar, eftir Ijósmyndarann Edward Steichen, af málaranum Frans von Lenbach. Myndin er unnin með tækni sem kallast photogravure en það er aðferð sem notuð var í kringum síöustu aldamót til að prenta Ijósmyndir. Meö þessari aðferö er hægt að fjölfalda Ijósmyndina án þess að gæðin rýrni nokkuö. Áferð prentsins þykir einstök, tónar eru djúpir og flauelsmjúkir. Photogravure-tæknin þykir flókin og þarf mikla þjálfun til að ná góöum árgangri. Á síðustu áratugum hafa hins vegar verið þróaðar nýjar og aðgengilegar aðferðir sem hafa orðið til að endurvekja áhuga manna á Ijósmyndaætingum. Á sýningunni eru verk eftir átta listamenn og eru þau ýmist unnin með hinni upprunalegu photogravure- aðferð eða hinum nýju aðferöum. Listamennirnir eru Edward Steichen, Lennart Olsen, Lasse Mellberg/Samuel Llndskog, Maria Backström, Helgi Snær Sigurösson, Björn Bredström og Eli Ponsaing. Sýningin er opin fimmtudaga- sunnudaga, frá 14-18, 7.-29. apríl (lokað á skírdag og föstudaginn langa). ■ GULLMOLAR j LISTHÚSI ÓFEIGS Gullmolar nefnist fyrsta einkasýning Sesselju Tómasdóttur myndiistarkonu, sem hún opnar í Listhúsi Ófeigs, Skólavörðustíg 5, í dag, klukkan 15. Sesselja sýnir portrait af dóttur sinni og vinum hennar sem öll eru á fjórða ári. Sesselja hefur fylgst með þessum börnum frá fæðingu og reynir hér að láta persónutöfra þeirra njóta sín í myndunum sem eru allar unnar með oliu á striga. Sesselja hefur veriö að kljást við mannamyndir frá ööru ári í MHÍ. í lokaverkefni sínu vann hún tvö málverk af frænku sinni og andlitsmynd af dóttur sinni. Þetta er fyrsta einkasýning Sesselju en hún hefur tekið þátt í sex samsýningum. Hún rak gallerí Ustakot um níu mánaða skeiö ásamt öðrum listakonum. í framhaldi af þvi fjárfesti Sesselja í húsnæði aö Auðbrekku 25 i Kópavogi, þar sem hún rekur vinnustofu og gallerí. Sesselja útskrifaðist frá MHÍ árið 1999, ásamt því að stunda nám við Winchester School of Art í Englandi. Sýningin verður opin á verslunartíma og stendur til 25. apríl. ■ UÓSMYNDASÝNING í GALLERÍ GEYSI Björn Þór Björnsson opnar Ijósmyndasýningu í Gallerí Geysi, Hinu húsinu v/lngólfstorg, í dag, á milli 16 og 18. Björn er tvítugur að aldri og er við nám á listasviði Fjölbrautaskólans i Breiðholti. Sýningin stendur til 22. apríl. Allir eru velkomnir á opnunina eða siðar. ■ SIGRÍÐUR RÓSINKARSDÓTTIR í STÓÐLAKOTI Sigríöur Rósinkarsdóttir opnar i dag sýningu sina á vatnslitamyndum í Stöðlakoti, Bókhlöðustíg 6, klukkan 14. Sigriður er fædd að Snæfjöllum á Snæfjallaströnd við ísafjarðardjúp og stundaði nám við myndlistadeild Baðstofunnar í Keflavík í nokkur ár. Hún hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum hérlendis og erlendis. Verkin á sýningunni eru flest unnin á síðustu tveim árum. Sýningin er opin daglega frá 14-18 (lokað Páskadag) og stendur hún til 22. april. ■ ÁSGEIR GUÐBJARTSSON í SJÓMINJASAFNINU Sýning Ásgeirs Guöbjartssonar verður opnuö í Sjóminjasafni íslands í dag klukkan 13. Ásgeir er fæddur 28. júní 1927 og hefur allt frá unga aldri haft brennandi áhuga á ýmiss konar handverki og veiðiskap. Ekki hefur Ásgeir fengiö sérstaka menntun til listsköpunar heldur veriö drifinn áfram af einlægum áhuga við að gera sýnilegar hugmyndir sem blundað hafa í hugskotinu á hverjum tíma. Hann hefur unnið í frístundum við að skera út í tré, bein (hvaltennur), plast og gler. Þá hefur hann á síðari árum gert athyglisverðar myndir, þar sem hráefniö er aðallega vindlahringir. Ásgeir hefur alla tíð haft afar hljótt um sín áhugamál sem lúta að listsköpun. Telur að þetta sé aöeins skemmtileg fristundaiðja ætluð honum, hans fjölskyldu og vinum til einhverrar gleði. Hann hefur nú látið til leiöast að sýna nokkur verk sín t Sjóminjasafninu í Hafnarfirði ef það gæti orðiö öðrum hvati til þess að gera hugmyndir sínar að veruleika í handverki. Sýning Ásgeirs stendur yfir í apríl og maí en Sjóminjasafnið er opiö frá 13-17 um helgar. ■ EYÐIBÝLI í PAKKHÚSINU Á HÖFN í HORNAFIRÐI Ljósmyndasýning Eyðibýli meö verkum þeirra Brians Sweeney og Nökkva Elíassonar sló svo eftirminnilega í gegn í borginni að nú ætla íbúar Hafnar í Hornafirði að fá að njóta hennar líka. Sýningin verður sett upp i Pakkhúsinu í plássinu í dag og verður tii sýnis eitthvað fram yfir páska. ■ HREFNA HARÐARDÓTTIR í LISTASAFNI BORGARNESS í dag, frá 15-17, opnar Hrefna Haröardóttir sýningu áleirverkum í Listasafni Borgarness sem ber yfirskriftina Afturhvarf. Leirverk Hrefnu eru innblásin af hugmyndum lettneska mál- og fornleifafræðingsins Marija Gimbutas (1921-1994) um gyðjudýrkun á forsögulegum tíma og einnig verða til sýnis leirvasar sem nefnast Steinar. Hrefna Harðardóttir stundaði nám á myndlistarbraut MA og í Myndlista- oghandíðaskóla íslands 1992-95 og útskrifaðist úr Leirlistadeild. Hún hefur sótt námskeið í grafík, Ijósmyndun og leirlist í Frakklandi, á Italíu, í Ungverjalandi og Englandi og tekið þátt í mörgum samsýningum en þetta er önnur einkasýning hennar. Listasafn Borgarness er til húsa í Safnahúsi Borgarfjarðar, Bjarnarbraut 4-6, Borgarnesi, og veröur sýningin opin þegar safnið er opið, 13-18 alla virka daga og 20-22 á fimmtudagskvöldum. Sýningin stendur til 4. maí. ■ IÐUNN ÁGÚST$DQTTIR í BLÓMASKÁLANUM VÍN Iðunn Ágústsdóttir opnar málverkasýningu í Blómaskálanum Vin í Eyjafjarðarsveit í dag, kl. 14. Sýningin er opin fram til 19. april. •Fundir ■ MÁLÞING UM KALDA STRÍÐIÐ OG KVIK- MYNDIR Málþing er haldiö i Nýlistasafninu í tengisum við kvikmyndahátíðina Pólítík þar sem rætt verður um kalda strtðið og kvikmyndlr þar sem rætt verður um þá sýn sem Sovétrikin og Bandaríkin höfðu á hugmyndakerfi hvor annarra og ekki síst hvernig þau lýstu eigin samfélagi. ■ FYRIRLESTUR UM FÓSTURMÁL OG VEL- FERÐ BARNA Gunvor Andersson prófessor held- ur opinberan fyrirlestur í boði Félagsráðgjafar við Háskóla íslands og Endurmenntunarstofnunar HÍ. ki. 14.15 í Lögbergi, stofu 101. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku og ber yfirskriftina Chlld welfare and foster care seen from different per- spectives. Gunvor Andersson er meðal fremstu sérfræðinga á Norðurlöndum á sviði rannsókna á fósturbörnum. Hún er stödd hér á landi til að halda fyrirlestra fyrir starfsfólk í félagsþjónustu sem stundar þriggja anna nám í barnaverndar- starfi viö Endurmenntunarstofnun Hl. ■ MÁLSTOFA UM FERPAMENN OG VIRKJANIR Landvernd og verkefnlsstjórn rammaáætlunar um nýtlngu vatnsafls og jarövarma boða til mál- stofu kl. 14 þar sem kynntar verða niðurstöður rannsóknar á viðhorfum innlendra og erlendra ferðamanna til svæða á hálendinu, m.a. með til- liti til mannvirkja. Málstofan verður haldin sam- timis í Reykjavík, á Akureyri, Sauðárkróki og á Eg- ilsstöðum með hjálp fjarfundabúnaðar. í Reykja- vík verður málstofan til húsa í Námunni, Endur- menntunarstofnun Háskóla íslands, á Akureyri í Salnum, í húsnæði Háskólans á Akureyri við Þingvallastræti 23, á Sauðárkróki hjá Þróunar- sviöi Byggöastofnunar, Skagfirðingabraut 21, og á Egilsstöðum verður hægt að fylgjast með í fjarfundaveri í Menntaskólanum á Egilsstöðum. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn. Bí ó ■ KVIKAR MYNDIR 1 NÝLÓ Kvikmyndahátíðin Kvikar myndir er nú haldin í annað sinn, frá 29. mars til 8. april, í Nýlistasafninu og í salarkynn- um MÍR við Vatnsstíg og er yfirskrift þessarar hátíðar Pólitík. Eins og yfirskriftin gefur til kynna þá er umfjöllunarefni hátíðarinnar pólítík og verða yfir 50 myndir sem því hugtaki tengjast sýndar. Þann 7. apríl verður haldið málþing í tenglsum við hátíðina þar sem rætt verður um kalda stríðiö og kvikmyndir þar sem rætt verð- ur um þá sýn sem Sovétrikin og Bandaríkin höfðu á hugmyndakerfi hvor annarra og ekki slst hvernig þau iýstu eigin samfélagi. Nýlistasafnið er opið alla daga 14-18. * Stendur þú fyrir einhverju^ Sendu upplýsingar i j• iriail fokuníviokus.is/lnx C)t>Ö 5020 Tökum gamla símann upp í nýjan Ef þú gerist áskrifandi að farsímaþjónustu Íslandssíma tökum við gamla símann þinn upp í nýjan. Með því að bindast Íslandssíma í tólf mánuði og greiða reikninginn með greiðslukorti, býðst þér nýr farsími á einstökum kjörum: engin útborgun og 12 jafnar greiðslur sem dreifast á símareikninginn næstu 12 mánuði. Að auki bjóðast þér enn lægri mínútugjöld. Kynntu þér tilboð fslandssíma í 800 1111, á islandssimi.is eða heimsæktu söluaðila okkar: Bókval Akureyri, Griffil, Hátækni, Heimilistæki, Heimskringluna, Japis, Kalíber, Nýherja eða Símabæ og kynntu þér þetta frábæra tilboð. Nokia 3310 695 á mánuði eða 8.337 kr. með uppítöku á eldri síma, Þú færð 6.879 kr. fyrir gamla símann Íslandssími GSM GPRS GLUGGINN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.