Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2001, Blaðsíða 2
18
MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2001
Sport
i>v
Óvissa um þátttöku blaklandsliðsins á Smáþjóðaleikunum í San Marínó:
Leikmenn þurfa að borga
- landsliðsfólk þarf sjálft að leggja fram helming kostnaðar eigi Island að vera með lið
Forsenda þess að blaklandslið
karla og kvenna geti tekið þátt í smá-
þjóðaleikunum í San Marínó eftir
rúman mánuð er að leikmenn leggi
sjálfir fram helming þess kostnaðar
sem fylgir hverjum leikmanni.
Blaksamband íslands er í dag vel
rekið sérsamband innan ÍSÍ þrátt fyr-
ir litla rekstrarstyrki. Fyrir
nokkrum árum námu skuldir sam-
bandsins rúmlega sex milljónum
króna. Forráðamenn sambandsins
slógu þá lán í banka og gerðust sjálf-
ir ábyrgðarmenn fyrir skuldum
iþróttarinnar. í dag er þessi skuld að
fullu greidd og sambandið með já-
kvæða eiginfjárstöðu og eitt fárra
sérsambanda sem hafa verið rekin
réttum megin við núllið síðustu sex
árin.
Heildarkostnaður vegna þátttöku í
blakkeppni smáþjóðaleikanna nemur
um þremur miUjónum króna en ÍSÍ
styrkir sambandið að nokkru leyti,
en engu að síður þarf sambandið að
punga út um 1,8 miUjónum króna
vegna leikanna.
Steypir sér ekki í skuldir
Þessa peninga á Blaksamband ís-
lands ekki til og ekki stendur til að
sambandið steypi sér í stóra skuld
vegna þátttökunnar í San Marino,
ekki frekar en Frjálsíþróttasamband-
ið sem hefur lýst því yflr að það
dragi saman seglin og sendi innan
við helming þeirra þátttakenda sem
fyrirhugað var að senda. Þessi þróun
er óæskUeg íþróttanna vegna og eftir
stendur sú undarlega staöreynd að
leikmenn blaklandsliðanna og hugs-
anlega annarra landsliða þurfa aö
greiða um 50 þúsund krónur hver úr
eigin vasa ef þeir eiga að geta keppt
fyrir íslands hönd á leikunum.
Samkvæmt heimildum DV-Sport
munu leikmenn blaklandsliðanna
mjög ósáttir við þessa þróun mála en
ætla engu að síður að stefna að þátt-
töku í leikunum. Það má því gera
ráð fyrir að þeir geti náð einhverjum
aurum upp í kostnaðinn með betli
hér og þar en afganginn verða þeir
aö greiöa úr eigin vasa.
Hinn eini og sanni vett-
vangur
Smáþjóðaleikar eru hinn eini og
sanni vettvangur fyrir landslið okkar
og þar á landsliðsfólk íslands góða
möguleika á viðundandi árangri eins
og dæmin sýna og sanna. Margir af
okkar fremstu afreksmönnum hafa
einmitt markað skref velgengninnar
með þátttöku á leikunum.
Það hlýtur því að teljast sorgleg
staöreynd ef landsliðsmenn í íþrótt-
um á íslandi þurfa að bregða sér í
líki betlara og greiða sjálfir kostnað
við að keppa á leikum sem smáþjóða-
leikar eru fyrir íslands hönd árið
2001.
Hjá öörum þjóðum, sem senda lið
á smáþjóðaleikana er þessu öfugt far-
ið. Þar greiða ólympíunefndir og
íþróttasambönd aÚan kostnað og
leikmenn geta einbeitt sér að íþrótt-
inni óskiptir og fá jafnvel styrki til
að undirbúa þátttökuna.
íþróttasamband tslands hefur úr
litlum fjármunum að spila og öár-
framlag hins opinbera til ÍSÍ hefur
aldrei veriö í eðlilegu samræmi við
mikilvægt starfs sambandsins, fjölda
meðlima svo ekki sé minnst á for-
varnargildi íþróttanna sem ráða-
menn kannast aðeins við á hátíðar-
stundum þegar þeir skunda með
blómvendi í Leifsstöð og kaupa at-
kvæði fjöldans.
Það hlýtur samt að vera eitt meg-
inmarkmið forystumanna ÍSÍ að
gangast við þeim verkefnum sem
samtökin gefa sig út fyrir að sjá um
og velta ekki byrðinni yfir á sérsam-
böndin sem flest hver hafa úr litlu að
spila. Eitt megininntak íþróttahug-
sjónarinnar er að allir skuli jafnir i
leik. Menn hljóta að spyrja hvort svo
sé þegar ÍSf greiðir fullan kostnað og
hluta af undirbúningskostnaði þátt-
takenda á Ólympíuleikunum en
gengst síðan ekki við ólympísku
verkefni sem smáþjóðaleikarnir eru.
Eftir síðasta þing ÍSÍ á Akureyri var
rómur gerður að því að tekið skyldi
þátt í smáþjóðaleikunum í San Mar-
Inó með glæsibrag. Lítið fer fyrir
þeirri glæsimennsku nú þegar lands-
liðsmenn íslands þurfa að borga
brúsann og ganga um betlandi til að
geta keppt í íslenska landsliðsbún-
ingnum á mjög stóru alþjóðlegu móti
í íþróttum.
-SK
^ Lokahóf körfuknattleiksmanna fór fram um helgina:
Ólafur og Kristín
- valin bestu leikmenn vetrarins af félögum sínum í körfunni
Kristín Björk Jónsdóttir og Ólafur
Jón Ormsson, hér aö ofan, bæöi úr
KR, voru kosin best f körfunni í vetur.
Til hægri eru svo lið ársins í karla- og
kvennaflokki.
Lokahóf körfuknattleiksfólks fór
fram á Broadway á föstudagskvöld-
ið og var þar útdeilt verðlaunum til
leikmanna sem sköruðu fram úr í
vetur.
Ólafur Jón Ormsson og Kristín
Björk Jónsdóttir, bæði úr KR, voru
valin bestu leikmenn íslandsmóts-
ins en bæði eru fyrirliðar Vestur-
bæjarliðsins.
Bestu nýliðarnir í karla- og
kvennaflokki voru valin Jón Amór
Stefánsson, KR, og Svava Ósk Stef-
ánsdóttir, Keflavík. Leifur Garðars-
son var valinn besti dómarinn
þriðja árið i röð og í fimmta sinn
alls og svo var Erlingur Snær Er-
lingsson valinn efnilegasti dómar-
inn.
Þá voru gömlu félagamir úr
Haukum, þeir Pétur Ingvarsson,
þjálfari Hamars í Epsondeildinni,
og Henning Henningsson, þjálfari
KR í 1. deild kvenna, valdir bestu
þjálfararnir.
Lið ársins
- hjá körlunum
Logi Gunnarsson.........Njarðvík
Eirikur önundarson............ÍR
Jón Arnór Stefánsson .........KR
Ólafur Jón Ormsson ...........KR
Óðinn Ásgeirsson.........Þór Ak.
Lið ársins
- hjá konunum
Hildur Sigurðardóttir.............KR
Marín Rós Karlsdóttir .... Keflavík
Sólveig Gunnlaugsdóttir.........KFl
Kristín Björk Jónsdóttir ........KR
Hanna B. Kjartansdóttir...........KR
Það vakti enn fremur athygli að
erlendir atvinnumenn unnu til tíu
af 14 verðlaunum fyrir tölfræðina
en listinn yftr verðlaunahafa úr töl-
fræðinni var annars þessi:
Besta vítanýting í 1. deild kvenna: Theó-
dóra Káradóttir, Keflavík, 83,3%.
Besta vítanýting i Epsondeildinni: Guð-
jón Skúlason, Keflavík, 91,4%.
Besta nýting úr 3ja stiga skotum í 1. d.
kv. Hafdís Helgadóttir, ÍS, 34,4%.
Besta nýting úr 3ja stiga skotum í Epson-
deildinni: Alexander Ermolinskij,
Skallagrími, 49,2%.
Flest stig í 1. deild kvenna: Jessica
Gaspar, KFÍ, 24,1.
Flest stig í Epsondeildinni: Dwayne Font-
ana, KFÍ, 33,0.
Flest fráköst í 1. deild kvenna: LaDrina
Sanders, UMFG, 17,0.
Flest fráköst í Epsondeildinni: Shawn
Myers, Tindastóli, 16,4.
Flest varin skot í 1. deild kvenna: He-
ather Corby, KR, 5,3.
Flest varin skot í Epsondeildinni: Calvin
Davis, Keflavík, 3,41.
Flestir stolnir boltar í l. deild kvenna:
Jessica Gaspar, KFÍ, 5,1.
Flestir stolnir boltar í Epsondeildinni:
Warren Peeples, Skallagrími, 3,95.
Flestar stoðsendingar i 1. deild kvenna:
Jessica Gaspar, KFÍ, 5,3.
Flestar stoðsendingar í Epsondeildinni:
Warren Peeples, Skallagrími, 6,9.
Besti erlendi leikmaður í 1. deild kvenna:
Jessica Gaspar, KFÍ.
Besti erlendi leikmaöur í í Epsondeild-
inni: Calvin Davis, Keflavík.
DV-Sport fékk verðlaun
DV-Sport fékk verðlaun í hófmu
þegar Óskar Ó. Jónsson, blaðamað-
ur DV-Sport, var valinn fjölmiðla-
maður ársins af KKÍ en við sama
tækifæri var heimasíða KR-inga í
körfunni, www.kr.is/karfan, valin
besta heimasíða vetrarins. Heima-
síða ÍR var þar í öðru sæti og síður
KFÍ og Keflavíkur jafnar í þriðja
sætinu.
Þá fékk Ólafur Þór Jóhannsson,
gullmerki sambandsins fyrir frá-
bært starf fyrir körfuboltahreyfing-
una. Ólafur lætur nú af setu í stjórn
KKÍ en hann hefur verið varafor-
maður sambandsins frá 1996.