Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2001, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2001, Blaðsíða 16
32 MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2001 -w -V Lennox lá Vernharð Þorleifsson, júdókappi frá Akureyri, var heldur betur i ess- inu sínu á Opna breska meistaramót- inu í júdó sem fram fór í Birmingham á Englandi um helgina. Vernharð keppti í -100 kg flokki og gerði sér lít- ið fyrir og hafnaði í öðru sæti. Opna breska meistaramótið er eitt það fræg- asta í Evrópu og þangað er aðeins bestu júdómönnum heims boðið. Tveir Frakkar og einn Belgi Vernharð sat hjá í fyrstu umferð en í þeirri annarri mætti hann Belga sem hann sigraði örugglega. í þriðju umferð lagði hann franskan júdó- kappa og var þar með kominn í und- anúrslit. Þar beið hans annar Frakki en eins og í glímunni á undan tókst Vernharð að sigra. Tap gegn silfurverölaunahafa í úrslitaglímunni mætti Vernharð Kanadamanninum Nicolas Gill, sem vann til silfurverðlauna á Ólympiu- leikunum í Sydney síðastliðið haust. Glíman var hörkuspennandi og hafði Vernharð yfirhöndina lengst af. Þegar ein og hálf mínúta var eftir af glímunni tókst þó Gill að snúa við blaðinu. Hann kastaði Vernharð í gólfið og gerði þar með út um glímuna. Annað sætið var því stað- reynd sem er frábær árangur hjá Vernharð og lofar góðu fyrir heims- meistaramótið sem fram fer í Múnchen í Þýskalandi i júlí næstkom- andi. Snilldin ein „Þetta mót gekk eins og í sögu. Það er eitt það frægasta í Evrópu og það að ná öðru sæti í -100 kg þyngdar- flokki er snilldin ein. Úrslitaviðureig- in var hrikalega erfið enda átti ég í höggi við einn besta júdómann í heimi i mínum þyngdarflokki og þrátt fyrir tap er ekki hægt annað en að vera sáttur. Við erum búnir að æfa eins og skepnur i allan vetur og höfum ein- blínt á æfingar umfram keppni. Við höfum afþakkað boð um keppni á mörgum sterkum mótum og það hefði verið mikið áfall ef enginn árangur hefði náðst á þessu móti hér i Birmingham," sagði Vernharð Þor- leifsson kampakátur þegar DV-Sport náði tali af honum í gær. Stefnt aö toppi í Munchen „Stefnan hefur allan tímann verið að toppa á heimsmeistaramótinu í Múnchen í júlí og hafa allar æfingar mínar miðast við það. Ég hef aldrei verið í jafn góðu formi og stefni hik- laust á að vera meðal sjö efstu í mín- um þyngdarflokki þar. Árangurinn á mótinu um helgina styrkir mig í þeirri trú að ég eigi eftir að gera góða hluti þar,“ sagði Vernharð Þorleifsson í samtali við DV-Sport. -ósk Liöstyrkur til kvennaliös Vals: Hrafnhildur og Drífa - hafa skrifaö undir tveggja ára samning - í öðru sæti á Opna breska meistaramótinu í júdó Systurnar Hrafnhildur og Drifa Skúladætur hafa skrifað undir tveggja ára samning við kvennalið Vals í handknattleik. Hrafnhildur lék ekkert í vetur vegna barneignar en Drífa spilaði með norska liðinu Sola. Þetta er mikill liðstyrkur fyrir hið unga og efnilega lið Vals og sam- kvæmt öruggum heimildum DV- Sports mun þriðja systirin, Dagný, sem lék með FH síðastliðinn vetur, Bandaríski hnefaleikakapp- inn Hasim Rahman kom held- ur betur á óvart aðfaranótt sunnudagsins þegar hann rot- aði Bretann frábæra Lennox Lewis í fimmtu lotu í viður- eign þeirra í Jóhannesarborg í Suður-Afríku. í boði voru einnig ganga til liðs við Val ef hún fer ekki utan að spila. Ágúst yfirþjálfari Vals Ágúst Jóhannsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari kvenna, hefur tekið við stöðu yfirþjálfara Vals auk þess sem hann mun verða aðstoðarþjálf- ari hjá meistaraflokki karla og kvenna. Auk þess mun hann sjá um séræfingar fyrir elstu.flokkana. Systurnar Drífa, Hrafnhildur og Dagný Skúladætur saman á góðri stund. tveir heimsmeistaratitlar, WBC og IBF, og átti Lewis, sem var bæði þungur og and- stuttur, aldrei möguleika gegn Rahman sem rotaði Lewis með þungu hægri handar höggi. -ósk NBA-DEIIDIN Úrslitakeppnin Austurdeild Philadelphia-Indlana.....78-79 McKie 18, Iverson 16, Snow 14, Mutombo 12 (22 frák., 5 varin skot) - Rose 17, Miller 17, Best 16 (10 stoðs.), O’Neal 12 (20 frák.), Croshere 12. Staóan í einvíginu er 1-0 fyrir Indiana Pacers. Miami-Charlotte..........80-106 House 16, Mourning 14, Jones 14, Grant 10 (10 frák.) - Mashburn 28, Davis 23, Wesley 17, Robinson 14. Staðan í einvíginu er 1-0 fyrir Charlotte Hornets. New York-Toronto..........92-85 Houston 23, Thomas 17 (13 frák.), Spreweil 13, Jackson 11, Camby 8 (18 frák.) - A. Davis 19 (15 frák.), A. Williams 19 (8 stoðs.), Carter 13, Oakley 12. Staðan í einvíginu er 1-0 fyrir New York Knicks. Vesturdeild Utah-Dallas ..............88-86 Malone 26, Marshall 12 (10 frák.), Russell 12 (12 frák.), Stockton 12 (18 stoðs.), Manning 12 - Finley 26, Nowitzki 20 (12 frák.), Nash 20, Howard 14 (9 frák.). Staðan í einviginu er 1-0 fyrir Utah Jazz. San Antonio-Minnesota . . . 87-82 Duncan 33 (15 frák.), Anderson 12, Robinson 11 (9 frák.), Porter 11 - K. Garnett 25 (13 frák.), Brandon 16 (8 stoðs.), Szczerbiak 13, Peeler 11, Garrett 10. Staðan í einviginu er 1-0 fyrir San Antonio Spurs. Sacramento-Phoenix .......83-86 Webber 27 (15 frák.), Stojakovic 13 (10 frák.), Divac 13 (8 frák.), Williams 10 - Marion 21 (10 frák., 3 varin skot), Kidd 18 (14 stoðs.), Rogers 18, Robinson 16. Staóan í einvíginu er 1-0 fyrir Phoenix Suns. Eitt mark Magdeburg, liö Alfreðs Gísla- sonar og Ólafs Stefánssonar, lék fyrri leik sinn i úrslitum EHF- keppninnar gegn króatíska lið- inu Metkovic Jambo í Magde- burg í gær. Fyrir leikinn talaði Alfreð Gíslason um að Mag- deburg þyrfti á 4-5 marka sigri að halda í veganesti fyrir seinni leikinn í Króatíu en sú varð því miður ekki raunin. Magdeburg sigraði í leiknum með einu marki, 23-22, eftir að staðan i hálfleik haföi verið, 11-10, fyrir Metkovic. Lokamínútur leiksins voru æsispennandi. Metkovic Jambo leiddi með tveimur mörk- um, 22-20, en með mikilli þraut- seigju tókst leikmönnum Magde- burg að skora þrjú síðustu mörk leiksins og tryggja sér nauman sigur. „Sóknarleikurinn hjá okkur var slakur. Við keyrðum ekki nægilega mikið á þá og það virk- aði eins og við værum ragir,“ sagði Alfreð Gíslason eftir leik- inn. Ólafur Stefánsson átti rólegan dag í liði Magdeburg og skoraði tvö mörk. Markahæstir hjá Magdeburg voru Rússinn Oleg Kuleschow og Stefan Kretzsch- mar með sex mörk. Frakkinn Joel Abati skoraði fjögur og landi hans, Gueric Kervadec, skoraði þrjú mörk. -ósk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.