Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2001, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2001, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2001 23 Jessica Gaspar, bandariski leikmaöur Grindavíkur í kvennakörfunni, átti frá- bæran leik gegn ÍS í gær. Gaspar skor- aði 37 stig í leiknum, en myndin er tákn- ræn því þrjár Stúdínur, Hafdís Helga- dóttir, Jófríöur Halldórsdóttir og Lovísa Guömundsdóttir, umkringja hana en án þess þó að ná aö stööva hana. DV-mynd Guðmundur NBA-DEIIDIN Boston-Indlana..............101-93 Pierce 31, Walker 24 (18 frák., 9 stoös.), Johnson 22 - Rose 24, Forster 17, Miller 15. Kjörísbikar kvenna í körfu: Fráb Hafi Jessica Gaspar einhvern tím- ann sannað ágæti sitt hér á landi þá var það í fyrri leik Grindavikur og ÍS í Kjörísbikar kvenna í gær sem Grindavík vann með tiu stiga mun, 70-60. Gaspar átti frábæran leik, var allt i öllu úti um allan völl og auk þess að skora 37 stig, mörg hver af miklu harðfylgi, þá tók hún 17 frá- köst, stal 12 boltum, sendi 7 stoðsendingar og fiskaði níu villur á Stúdínur í skemmtilegum leik. Leikurinn var í járnum allan fyrri hálfleik og jafnt var í hléi, 34-34. ÍS náði reyndar sex stiga forustu í upphafi annars leikhluta, 22-28, en Jesscia skoraði niu síðustu stig Grindavíkur í hálfleiknum og jafnaði leikinn. Grindavíkurstúlkur lögðu grunnin að sigrinum með því að skora átta fyrstu stigin í seinni hálfleik og leiddu mest með 19 stigum, 69-50, þegar þrjár mínútur voru eftir. ívar Ásgrímsson, þjálfari ÍS, tók þá leikhlé og ÍS náði að klóra í bakkann og minnka muninn i tíu stig fyrir seinni leikinn í Kennara- háskólanum eftir rúma viku. Síð- asta karfan gæti orðið mikilvæg en Alda Leif Jónsdóttir, besti leikmað- ur ÍS í leiknum, stal þá sínum ní- unda bolta í leiknum og minnkaði muninn í tíu stig. Unndór Sigurðsson stýrði þama Grindavíkurliðinu til sjötta sigurs- ins í röð í vetur og liðið er enn ósigrað. „Jéssica er hér til að bakka ungu stelpurnar upp og hún átti frá- bæran leik. Ég er sáttur við leikinn og það að ná nítján stiga forskoti. Þá var ég að leggja áherslu á það við stelpumar að þetta væri bara fyrri hálfleikur en þær misstu aðeins ein- beitinguna í lokin, en tíu.stiga sigur er mjög fínt veganésti í seinni leik- inn. Nú sest maður niður og skoðar þennan leik og undirbýr stelpurnar fyrir að mæta þeim aftur í deildinni því það er sá leikur sem við hugsum um núna,“ sagði Unndór í leikslok í gær. Stig Grindavíkur: Jessica Gaspar 37 (17 fráköst, 7 í sókn, 12 stolnir, 7 stoðs., hitti 3 af 5 þriggja stiga skotum), Sigríð- ur Anna Ólafsdóttir 14, Ólöf Helga Páls- dóttir 10, Sólveig Gunnlaugsdóttir 6, Jovana Stefánsdóttir 3. Stig ÍS: Alda Leif Jónsdóttir 24 (9 stolnir, 8 fráköst, 3 varin), Lovísa Guð- mundsdóttir 13 (8 fráköst), Hafdís Helga- dóttir 12 (10 fráköst, 3 varin skot), Stella Rún Kristjánsdóttir 5, Cecilia Larsson 4, Þórunn Bjarnadóttir 2. -ÓÓJ Valsstúlkur áttu aldrei KR-konur unnu 22 stiga sigur í Hveragerði KR-stúlkur unnu sinn fimmta leik í röð í Kjörísbikarkeppni kvenna þegar þær sigruðu Hamar í Hveragerði með 22 stiga mun, 45-67, í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum. KR vann fyrstu keppnina í fyrra með því að vinna alla 4 leiki sína þá. KR skoraði sex fyrstu stigin í leiknum gegn Hamri í gær, KR leiddi 23-8 eftir fyrsta leikhluta og komst mest í 8-31 eftir 13 mínútna leik. Keith Vassell, þjálfari KR, not- aði þá tækifærið til að skóla ungu stelpurnar og forskotið hélst í kringum 20 stigin út leikinn. í hálfleik stóð 18-38 og KR-liðið leiddi meö 19 stigum eftir þriðja leikhlutann, 32-51. Stlg Hamars: Marja Krijanovskja 14, Ragnheiður Magnúsdóttir 7 (7 fráköst), Álfhildur Þorsteinsdóttir 7 (4 stolnir), Ragna Hjartardóttir 5, Fríða Kristins- dóttir 5, Eygerður Tómasdóttir 3 (8 frá- köst), Bára Jónsdóttir 2, Rakel Grettis- dóttir 2. Stig KR: Hildur Sigurðardóttir 15 (9 frá- köst), Helga Þórvaldsdóttir 13, Georgia Kristiansen 10, Gréta María Grétarsdótt- ir 9 (5 fráköst, 5 stolnir, 4 stoðsending- ar), Hafdís Gunnarsdóttir 6, Kristín Arna Sigurðardóttir 5, Eva María Grét- arsdóttir 5, Lilja Oddsdóttir 2 (10 frá- köst), Eva Emilsdóttir 2. -ÓÓJ Jessi Philadelphia-Charlotte . . . 100-86 Iverson 33, Harpring 21, Coleman 10, Claxton 10 - Mashburn 21, Davis 20, Wesley 10, Maglioire 10. Washington-Milwaukee . . 98-107 Jordan 31 (hitti úr 12 af 24 skotum og 7 af 8 vítum), Hamilton 15, Jones 13 - Cassell 27, Állen 22 (9 stoös.), Robin- Það var strax á brattann að sækja hjá Valsstúlkum sem sóttu ÍBV heim í átta-liða úrslitum í gær. Eyjastúlk- ur byrjuðu leikinn af miklum krafti á meðan ekkert gekk upp hjá gestun- um og heimaliðið tryggði sér nánast sigurinn á fyrsta stundarfjórðungi leiksins. ÍBV sigraði með tólf mörk- um og var sigurinn síst of stór. Breytt liö ÍBV Lið ÍBV hefur tekið nokkrum breytingum að undanfórnu, liðið hef- ur fengið tO liðs við sig sterkan er- lendan leikmann en á móti hefur Andrea Atladóttir dottið út vegna meiðsla. Það virðist hins vegar ekki koma að sök og liðið virðist sterkara sem aldrei fyrr. ÍBV komst í 6-0 áð- ur en Hafrún Kristjánsdóttir skoraði fyrsta mark gestanna á áttundu mín- útu. Ekki skánaði ástandið fyrir Val þegar fyrirliði liðsins, Eivör Pála Blöndal, þurfti aö yfirgefa völlinn vegna meiðsla. Valsstúlkum gekk af- ar illa að komast fram hjá vamar- múr ÍBV, það var helst þegar Hafrún fékk boltann inni á línunni að þær fengu opið færi. Eyjastúlkur slökuðu hins vegar nokkuð á i seinni hluta fyrri hálfleiks en héldu samt sem áð- ur sex marka forystu og staðan í hálf- leik var 13-7 fyrir ÍBV. HafiValsliðið átt veika von um sigur í leiknum þá voru leikmenn ÍBV ekki lengi að slökkva þann vonarneista. ÍBV skor- aði fimm mörk gegn einu á fyrstu fimm mínútunum og tryggði sér end- anlega sæti í undanúrslitum keppn- innar. Mestur varð munurinn þrett- án mörk en um miðjan seinni hálf- leik fóru varamennirnir að spreyta sig en munurinn hélst nánast sá sami út leikinn og lokatölur urðu því 28-16. Dagný Skúladóttir átti góða spretti með ÍBV og hún sagði eftir leikinn að hún hefði átt von á jafnari leik. Gengum frá þeim í byrjun „Við gengum eiginlega frá þeim í byrjun, komumst í 6-0 og þá var þetta bara búið enda förum við ekki að tapa svoleiðis forystu á heima- velli. Það kom mér mjög á óvart hversu slakar Valsstelpur voru. Ég átti von á jöfnum og spennandi leik en við byrjuðum mjög vel í leiknum og brutum þær bara niður. Við ætl- um okkur alla leið í þessari keppni en við eigum mikið inni enda vorum við að fá nýjasta leikmanninn á mánudaginn þannig að við erum að spila okkur saman núna.“ Eivör Blöndal, fyrirliði Vals, var að vonum svekkt með að vera dottin út úr bikarnum. „Ég var aldrei í vafa um að við ættum möguleika í leikn- um en við vorum að gera okkur þetta miklu erfiðara en við hefðum getaö. Sóknarleikurinn var lélegur og varn- arleikurinn og markvarslan í molum þannig að þetta var bara álls ekki okkar dagur. Þetta er alls ekki mun- urinn á liðunum enda vorum við að gera allt of mikið af mistökum sjálfar en við gerum á eðlilegum degi. Við eigum hins vegar nóg inni og þó að við séum úr leik í bikarnum þá ætl- um við okkur að gera vel í íslands- mótinu." -jgi Mörk ÍBV: Theodora Visockaite 9/1, Ana Pérez 8, Dagný Skúladóttir 4, Ingi- björg Jónsdóttir 4, Aníta Eyþórsdóttir 1, Isabel Ortis 1, Milana Mileuvic 1. Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir 13, Iris Sigurð- ardóttir 4/1. Mörk Vals: Hrafnhildur Skúladóttir 5/2, Hafrún Kristjánsdóttir 3, Drífa Skúla- dóttir 3, Árný Björg tsberg 3, María Mad- sen 1, Elfa Björk Hreggviðsdóttir 1. Varin skot: Sóley Halldórsdóttir 2, Berglind Hansdóttir 2/1. son 13. Cleveland-Dallas ........94-107 Jones 20, Murray 17, Doleak 17, Mill- er 7 (16 stoðs.) - Nowitzki 28, Finley 22, Bradley 15. Atlanta-Utah ............111-79 Golver 19, Abdur-Rahim 19, Kukoc 13 - Marshall 14, Ostertag 9, Crotty 9, Kirilenko 9. Phoenix-Orlando ..........92-93 Marbury 25, Marion 20, Hardaway 12, Rogers 12 (10 frák.) - McGrady 24, Ewing 22 (15 frák.), Hill 14. Chicago-LA Clippers .... 102-106 Miller 19 (16 frák.), Mercer 17, Fizer 14 - Brand 20 (7 frák.), Richardson 19, Mclnnis 16 (9 stoðs.). Toronto-Golden State.....89-82 Carter 24, Davis 18, Clark 14 - Dampier 22 (14 frák.), Jamison 19, Hughes 9.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.