Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2002, Blaðsíða 20
20
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2002
íslendingaþættir_______________________________________________________________________________________________________PV
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
90 ára_____________________________
Guðrún Soffía Gísladóttir,
Skjólvangi, Hrafnistu, Hafnarfirði.
Haraldur Jóhannsson,
Skeljanesi 2, Reykjavík.
Svafa Hlldur Halldórsdóttir,
Sörlaskjóli 7, Reykjavík.
89 #ra_____________________________
Herdís Erlendsdóttir,
Háaleitisbraut 43, Reykjavík.
80 ára_____________________________
Aöalheiöur Guðmundsdóttir,
Aöaltjörn í, Selfossi.
Anna Bergsdóttir,
Þórhólsgötu 1, Neskaupstað.
Oddgeir A. Ottesen,
Hrafnistu, Reykjavík.
Yngvi Ólafsson,
Skúlagötu 52, Reykjavík.
75 ára_____________________________
Bjarndis Friðriksdóttir,
Bugðulæk 20, Reykjavík.
Sessetja Jóna Karlsdóttir,
Merkurteigi 3, Akranesi.
70 ára_____________________________
Höskuldur Eyfjörð Guðmannsson,
Hverfisgötu 32, Reykjavík.
Magnús Þorleifsson,
Neðstaleiti 9, Reykjavík.
60 ára_____________________________
Conkordia Konráðsdóttir,
Torfufelli 48, Reykjavik.
Hanna M. Benediktsdóttir,
Vallarási 4, Reykjavík.
Jóhann Ólafsson,
Grundargerði 24, Reykjavík.
Mikael Magnússon,
Skaftahlíð 10, Reykjavík.
Sigurður L. Einarsson,
Miðholti 7, Mosfellsbæ.
50 ára_____________________________
Guðjón Egilsson,
Dælengi 8, Selfossi.
Guðríður Þorvaröardóttir,
Lindarbraut 23, Seltjarnarnesi.
Guðrún Siguröardóttir,
Baugstjörn 13, Selfossi.
Gunnar F. Sigursteinsson,
Öldugötu 10, Dalvík.
Milorad Todorovic,
Baldursgötu 10, Keflavík.
Sif Ragnhildardóttir,
Kleppsvegi 74, Reykjavík.
Stefán Árnason,
Austurbergi 12, Reykjavík.
Þorlákur Pétursson,
Neshaga 5, Reykjavík.
40 árg_____________________________
Guðjón Gunnarsson,
Mururima 17, Reykjavtk.
Guðmundur Baldvin Guðmundsson,
Byggðavegi 122, Akureyri.
Margrét Gunnarsdóttir,
Álfheimum 52, Reykjavík.
Víöir Ragnarsson,
Hjaltabakka 18, Reykjavík.
%\ l#
Aðventu- e íiðískrossar
12V - - 34V
Sent í póstkröfu
Sími 431 1464 og 898 3206
Halldór Halldórsson
skrifstofumaður í Hafnarfirði
Halldór Halldórsson skrifstofumað-
ur, Suðurhvammi 11, Hafnarfirði, er
fimmtugur í dag.
Starfsferill
Halldór fæddist í Reykjavík og ólst
upp í Langholts- og Vogahverfi.
Hann lauk búfræðiprófi frá Hvann-
eyri 1970 og prófi sem matvælatæknir
í Þrándheimi 1975.
Halldór starfaði hjá Iðnaðar- og bú-
vörudeild SÍS á Akureyri og í Reykja-
vík, 1972-81. Hann starfaði á Skatt-
stofu Reykjaness í Hafnarfirði
1981-84, hjá Vamarliðinu á Keflavík-
urflugvelli 1984-95, í forsætisráðu-
neytinu 1995-97 og hefur starfað hjá
ER, Endurskoðun og Reikningsskil
ehf., Hafnarfirði, frá 1997.
Halldór hefur setið í stjórnum
handknattleiksdeilda Þórs á Akureyri
og Hauka í Hafnarfirði, körfuknatt-
leiksdeildar ÍR og verið þar formaður
í tvö ár og Golfklúbbsins Keilis í
Hafnarfirði og formaður þar í tvö ár.
Hann situr nú sem varamaður í stjórn
Golfsambands íslands, er formaður
Karlakórsins Þrasta í Hafnarfirði frá
2000, formaður Kötlu, sambands sunn-
lenskra karlakóra, frá 2001, sat í
stjórn sjálfstæðisfélagsins Þórs í Hafn-
arfirði og var formaður þess um
árabil og situr nú í fram-
kvæmdastjóm Verkalýðsráðs Sjálf-
stæðisflokksins.
Fjölskylda
Dóttir Halldórs er Þorgerður María
Halldórsdóttir, f. 10.4.1983, nemi.
Systkini Halldórs eru Sigrún C.
Halldórsdóttir, f. 10.6. 1947, fulltrúi á
ísafirði; Jóhann Halldórsson, f. 15.4.
1951, leigubifreiðarstjóri í Hafnarfirði;
Sigurður V. Halldórsson, f. 3.2. 1954,
d. 26.4. 1994, körfuknattleiksdómari;
Valgerður G. Halldórsdóttir, f. 14.10.
1965, grafískur hönnuður í Hafnar-
firði.
Foreldrar Halldórs: Halldór V. Sig-
urðsson, f. 13.7.1924, d. 27.10.1993, rík-
isendurskoðandi, og k.h„ Kristrún Jó-
hannsdóttir, f. 2.11. 1927, d. 10.6. 1996,
húsmóðir.
Ætt
Halldór var sonur Sigurðar, múr-
arameistara á Akranesi, Símonarson-
ar, b. í Götu í Holtum, Símonarsonar,
b. i Hallstúni í Holtum, Eyjólfssonar.
Móðir Símonar í Hallstúni var Þor-
gerður Símonardóttir, systir Magnús-
ar, langafa Einars Bjarnasonar, pró-
fessors og ríkisendurskoðanda. Móðir
Sigurðar var Gróa ljósmóðir Guð-
mundsdóttir, b. á Staðarhöfða á Akra-
nesi, Ásmundssonar, og Steinunnar
Sæmundsdóttur, málara á Hellum á
Landi, Gíslasonar, bróður Guðrúnar,
móður Guðmundar Guðmundssonar
skólaskálds.
Móðir Halldórs ríkisendurskoð-
anda var Valgerður, dóttir Halldórs,
b. í Simbakoti á Eyrarbakka, Álfsson-
ar, af Bergsætt, bróður Guðrúnar,
ömmu Sigurðar E. Guðmundssonar,
fyrrv. forstjóra Húsnæðisstofnunar
ríkisins. Móðir Valgerðar var Val-
gerður, systir Þorsteins, langafa
Sturlu Böðvarssonar samgönguráð-
herra. Valgerður var dóttir Þorleifs,
b. á Ytri-Ásláksstöðum á Vatnsleysu-
strönd, Jónssonar, b. í Hvammi í
Lóni, Ketilssonar, bróður Ragnhildar,
langömmu Vilmundar Jónssonar
landlæknis. Móðir Þorleifs var Sigríð-
ur Halldórsdóttir, b. í Þórisdal, Þor-
leifssonar, bróður Halls, langafa Þor-
leifs, alþm. í Hólum, afa Sigurðar
Pálssonar rithöfundar. Hallur var
emnig langafí Þórbergs Þórðarsonar
rithöfundar.
Kristrún var dóttir Jóhanns, um-
sjónarmanns í Gamla Bíói í Reykja-
vik, bróður Páls, b. í Dalbæ. Jóhann
var sonur Guðmundar, b. í Dalbæ,
Guðmundssonar, b. í Traðarholti í
Stokkseyrarhreppi, Guðmundssonar.
Móðir Guðmundar í Dalbæ var Guð-
rún Guðmundsdóttir. Móðir Jóhanns
var Guðfinna Kolbeinsdóttir, b. í
Stóru-Mástungu, Eiríkssonar, b. á
Hömrum í Gnúpverjahreppi, Kol-
beinssonar, b. á Hlemmiskeiði, Eiríks-
sonar, ættföður Reykjaættar, Vigfús-
sonar. Móðir Eiríks á Hömrum var
Solveig Vigfúsdóttir. Móðir Guðfmnu
var Jóhanna Bergsteinsdóttir, b. í
Stóru-Mástungu, Vigfússonar.
Móðir Kristrúnar var Steindðra
Camilla Guömundsdóttir, b. á Skúfslæk
og Sólheimum, Brynjólfssonar. Móðir
Steindóru var Guðrún Gestsdóttir.
Afmælisbarnið tekur á móti gestum
íostudaginn 27. desember nk. í Þrasta-
salnum að Flatahrauni 21, Hafnar-
firði, milli kl. 17.00 og 19.00.
Sjötugur
Bóas Gunnarsson
verkstjóri að Stuðlum við Mývatn
Fjölskylda
Bóas Gunnarsson verkstjóri, Stuðl-
um við Mývatn, varð sjötugur á
sunnudagmn var.
Starfsferill
Bóas fæddist í Bakkagerði í Reyðar-
firði og ólst upp í Reyðarfirði. Hann
var í Bamaskóla Reyðarfjarðar,
stundaði nám við Hérðaðsskólánn á
Laugum 1950-52, við Vélskóla íslands
á Akureyri 1952-53 og við Stýri-
mannaskólann á Akureyri 1958.
Bóas hefur búið í Mývatnssveit frá
1952, fyrst í Vogum III 1952-59 en þá
byggði hann Stuðla í landi Voga og
hefur búið þar síðan.
Bóas stundaði sjómennsku frá
Reyðarfírði, lengst af á Snæfugli SU-
20, 1947-63, var verkstjóri hjá Létt-
steypunni í Mývatnssveit 1963-66 og
við Kísiliðjuna í Mývatnssveit
1966-2000.
Bóas hefur sinnt sveitarstjómar-
störfum í Mývatnssveit og starfað
með Björgunarsveitinni Stefáni í Mý-
vatnssveit.
Bóas kvæntist 30.12. 1952 Kristínu
Sigfúsdóttur, f. 6.12. 1933, húsmóður.
Hún er dóttir Sigfúsar Hallgrímsson-
ar, bónda og organista í Vogum III í
Mývatnssveit, og k.h., Sólveigar Stef-
ánsdóttur húsfreyju.
Böm Bóasar og Kristinar em Mar-
grét Bóasdóttir, f. 28.11. 1952, söng-
kona í Reykjavík, maður hennar er
séra Kristján Valur Ingólfsson, f.
28.10. 1947, og eiga þau tvö böm; Hin-
rik Árni Bóasson, f. 23.6. 1954, vél-
fræðingur í Reykjavík, kona hans er
Guðbjörg Ásdís Ingólfsdóttir, f. 21.2.
1954, verslunarmaður og eiga þau þrjú
börn; Gunnar Bóasson, f. 8.2.1956, vél-
fræðingur á Húsavík, kona hans er
Friðrika Guðjónsdóttir, f. 19.2. 1957,
hárskerameistari, og eiga þau fjögur
börn; Sólveig Anna Bóasdóttir, f. 19.4.
1958, doktor i guðfræði, búsettur í
Kópavogi, maður hennar er Baldur
Tumi Baldursson, f. 30.6. 1959, doktor
í húðlækningum, og eiga þau tvö
böm; Ólöf Valgerður Bóasdóttir, f.
28.3.1960, framkvæmdastjóri í Reykja-
vík, sambýlismaður hennar er Helgi
Bjarnason, f. 10.4. 1954, framkvæmda-
stjóri og eiga þau eitt bam; Sigfús
Haraldur Bóasson, f. 28.3. 1960, bú-
fræðingur í Reykjadal í Suður-Þing-
eyjarsýslu, kona hans er Þóra Fríður
Björnsdóttir, f. 22.11. 1963, húsmóðir
og eiga þau fjögur böm; Bóas Börkur
Bóasson, f. 20.8. 1962, rafvirki í
Reykjavík, kona hans er Eyja Elísabet
Einarsdóttir, f. 20.8. 1964, hárskera-
meistari og eiga þau þrjú böm; Ragn-
eiður Bóasdóttir, f. 30.12. 1964, náms-
og starfsráðgjafi í Kópavogi og á hún
tvö börn; Birgitta Bóasdóttir, f. 3.3.
1973, þroskaþjálfl í Reykjavík.
Alsystkini Bóasar: Una Sigríður, f.
5.4. 1924; Sigrún, f. 5.1. 1926; Aðalheið-
ur, f. 9.1.1927; Friðrik, f. 17.12.1929, d.
16.4.1938; Reynir, f. 13.9.1931; Fjóla, f.
14.5. 1935; Ragnhildur Sigfríð, f. 15.5.
1937; Sólveig, f. 17.4. 1944.
Hálfsystkini Bóasar, samfeðra: Sig-
urbjörg, 17.6. 1907, nú látin; Jón, f.
15.5. 1908, nú látinn; Lára, 14.9. 1909,
nú látin; Sólborg, f. 4.12. 1910, nú lát-
in; Ásgeir, f. 21.4. 1912, nú látinn;
Anna, f. 18.10. 1913, nú látin; Hjalti, f.
5.11. 1914, nú látinn; Páll, f. 16.3. 1916,
d. í júlí 1916; Páll, f. 6.10. 1917; Ingvar,
f. 18.2. 1919, nú látinn.
Foreldrar Bóasar vom Gunnar Bó-
asson, f. 10.5.1884, d. 28.7.1945, útvegs-
bóndi, og Margrét Stefanía Friðriks-
dóttir, f. 7.7. 1899, d. 4.5. 1975, hús-
freyja.
Fyrri kona Gunnars Bóassonar var
Una Sigríður Jónsdóttir, f. 11.6. 1884,
d. 4.1. 1922, húsfreyja.
Sendu skeytin á
ci|\A
Tal)
1848
1415
(Síminn) eða
Glugginn>Nýtt>
Jóladagatal
(íslandsimi,BTGSM)
Taktu þatt i skemmtilegum jolaleik! Sendu SMS-skeytið JOL og svo dagafjolda til
jóla t.d. JOL 10, ef 10 dagar eru til jóla. Þú færð strax tilbaka SMS sem segir til um
hvort þú hafir unnið og þá hvað. Glæsilegir vinningar gefnir á hverjum degi, því oftar
sem þú tekur þátt því meiri möguleika áttu á vinningi.
Glæsilegir vmnmgar a hverjum degi, ípottinum eru
Flugferð fyrir 2 til Evrópu 3 mán. áskriftir að Stöð 2 Á aðfangadag er
frá Flugleiðum 3 mán. áskriftir að Sýn ferð fyrir tvo til Evrópu að
28“ sjónvarpstæki frá BT Gjafabréf frá Oasis eigin vali með Flugleiðum og
Gjafabréf frá BT að upphæð Matarkörfur frá 10-11 28" sjónvarps-tæki frá BT,
kr. 15.000 Nokia farsímar og inneign hjá TAL ásamtfleiru.
Gamecube tölvur frá BT Áskrrftir að Séð & heyrt
Ferðageislaspilarar frá BT Jólatré frá Björgunarsv. Hafnarfj. á'daganl'néma24
DVD diskar frá BT Áskriftir að DV
Geisladiskar frá BT Konfektkassar frá Góu - Lindu
ISfOKIA
oas s
CONMKTING
rí'rtl f
Vmnmgar dreifast afhandahofi
á dagana nema 24. des.
öfEU
iat
Vmnmga skal vitja hja Smart auglýsmgum, Höfðabakka 9,110 RVK, miðvikudaga
millikl. 12 og 16. Vinninga skal sækja fyrir8.1.2003