Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2002, Blaðsíða 8
28
+
29
Sport
Fjárhagsvandræði
hjá Breiðabliki?
- hugsanlega Kanalausir eftir áramót
Körfuknattleiksdeild Breiðabliks á
við fjárhagsvandræði að etja þessa
dagana og svo gæti farið að liðið
spilaði án Bandaríkjamanns seinni
hluta Intersportdeildarinnar.
Einar Pétursson, formaður deild-
arinnar, staðfesti í samtali við DV-
Sport í gær að reksturinn væri erfið-
ur.
„Það hefur gengið illa hjá okkur
að íjármagna reksturinn í deildinni
það sem af er tímabili. Fyrirtæki
hafa verið erfið viðureignar og þær
fjáraflanir sem við höfum staðið fyr-
ir hafa ekki skilaö nægilega miklu.
Við þurfum að sýna aðhald í rekstr-
inum og það er klárt að við þurfum
að leita allra leiða til að halda rekstr-
arkostnaði í lágmarki," sagði Einar.
Hann sagði jcifnframt að það hefði
komið til tals að láta Bandaríkja-
manninn Kenny Tate fara en það
yrði neyðarúrræði því að mikil
ánægja ríkti með Tate og spila-
mennsku hans í vetur.
„Tate er góður leikmaður, ljúfur
og þægilegur drengur, og ef hann
hyrfi á braut þá væri það eingöngu
ef við sæjum fram á að vera að keyra
deildina á kaf í skuldir. Það ætlum
við ekki að gera heldur reka hana á
ábyrgan hátt,“ sagði Einar Pálsson í
samtali við DV-Sport i gær. -ósk
Birna Valgarösdóttir hefur átt mjög góöan vetur meö Keflavíkurliöinu en var
í mjög strangri gæslu systranna Kristínar Bjarkar Jónsdóttur og Maríu
Káradóttur og skoraöi „aöeins" 7 stig. Hér skorar hún tvö þeirra án þess að
María komi neinum vörnum viö. DV-mynd Siguröur Jökuil
HL NBA-DEILDIN
Úrsllt á fimmtudag:
New Jersey-LA Lakers .... 98-71
Kidd 27 (11 frák., 8 stoös.), Harris 19,
Martin 16 (9 frák.), Rogers 16,
Jefferson 11 - Bryant 21, O’Neal 19.
Sacramento-San Antonio . . 81-83
Webber 23 (12 frák.), B. Jackson 21,
Bibby 17 - Duncan 23 (14 frák.), S.
Jackson 18 (8 frák.), Smith 11.
Úrslit á föstudag:
Toronto-Miami.............77-97
Lenard 19, A. Williams 17, McCoy 11
- Butler 25, Jones 17, Best 12, B.
Grant 11 (9 frák.), James 11.
Indiana-Chicago...........101-86
B. Miiier 26 (14 frák.), Harrington 19
(8 frák.), Mercer 16 - Fizer 26 (12
frák.), Rose 18, Marshall 15 (9 frák.).
Boston-Minnesota..........108-99
Pierce 42 (14 frák.), McCarthy 14,
Walker 13 - Garnett 27 (8 frák.),
Nesterovic 19 (13 frák.), Hudson 16.
Philadelphia-LA Lakers . 107-104
Iverson 32 (9 stolnir), Van Hom 20 (11
frák.), Coleman 18 - Bryant 44 (10
stoös.), O’Neal 26 (14 frák.), Fisher 13.
Detroit-Cleveland.......109-107
Hamilton 27, Williamson 19, C.
Robinson 15 (8 frák.) - R. Davis 42 (8
frák.), Ilgauskas 20, Wagner 14.
Memphis-Milwaukee.........95-84
Person 23, Gasol 18 (14 frák.), Gooden
13 - Cassell 19, Thomas 18, Mason 14,
Allen 14.
Dallas-Utah ...............81-93
Nowitzki 28 (17 frák.), Nash 25, Finley
16 - Harpring 19, Cheaney 18, Malone
16 (12 frák.), Ostertag 16.
Houston-Atlanta...........101-82
Francis 23 (8 stoðs.), Mobley 22, Ming
17 (8 frák.) - G. Robinson 28, Abdur-
Rahim 20, Terry 10 (10 stoðs.).
Denver-Orlando.............80-89
Howard 20, White 16, Harvey 15 -
Kemp 17, Garrity 17, Hill 16 (10 frák.),
M. Mffler 15.
Seattle-New Orleans.......86-88
Lewis 26 (12 frák.), Payton 15,
Drobnjak 12, D. Mason 12 - Mashburn
30 (10 frák.), B. Davis 20, Wesley 18.
LA Clippers-Phoenix .......76-87
Jaric 18 (9 stoðs.), Zhizhi 16, A. Mffler
10 - Marion 20 (12 frák.), A.
Stoudamire 18 (11 frák.), Marbury 16.
Golden State-Portland . . 111-113
J. Richardson 23, Arenas 23, Jamison
21, Murphy 14 - Wells 28, R. Wallace
16, Anderson 15, Patterson 14.
Úrslit á laugardag:
Atlanta-Philadelphia......79-77
Abdur- Rahim 28, Newble 15, Terry
12, Glover 10 - Van Hom 18 (9 frák.),
Snow 17, Iverson 13, McKie 13.
Cleveland-Boston...........82-89
Wagner 25, R. Davis 21, Ilgauskas 15
(8 frák.) - Pierce 26 (10 frák.), Walker
23 (10 frák.), E. Wffliams 14.
New Jersey-Detroit.......100-92
Kidd 27 (12 stoðs.), Jefferson 19,
Harris 16, Rogers 13, Martin 12 - C.
Robinson 19, Bfflups 14, Hamilton 13.
Minnesota-Houston .........98-86
Gamett 27 (11 frák.), Hudson 15, R.
Strickland 14 - Francis 24 (10 frák.),
Ming 12 (12 frák.). Mobley 12.
Chicago-Indiana..........110-103
Rose 28, Fizer 18, Marshall 16 (15
frák.), J. Williams 14 (13 stoðs.),
Mercer 13 - B. Mffler 26 (13 frák.), R.
Mffler 22, Harrington 18 (9 frák.).
Milwaukee-New York........94-90
Cassell 25 (9 stoðs.), Redd 21, A.
Mason 16 - Houston 17, Thomas 16 (12
frák.), Sprewell 13, Eisley 13.
San Antonio-Washington .. 92-81
Parker 21, Duncan 18 (11 frák.), S.
Jackson 17, D. Robinson 11 -
Stackhouse 19, Jordan 16, Laettner 16,
Haywood 10.
Phoenix-Sacramento .... 110-101
Marion 28 (8 frák.), Marbury 28, A.
Stoudamire 16 (12 frák.) - Webber 29
(15 frák., 11 stoðs.), Bibby 19 (8 stoös.),
Stojakovic 16, B. Jackson 11.
Portland-Seattle...........81-80
D. Anderson 27, R. Wallace 14 (9
frák.), Randolph 10 - Lewis 20 (9
frák.), B. Barry 13 (9 stoðs.), Payton
12 (8 stoðs.).
LA Clippers-Denver..........92-89
Jaric 22, Olowokandi 18, Fowlkes 16
(9 frák.), A. Miller 10 - Howard 30,
Yarbrough 16, M. Blount 11, Hilario
10. -ósk
KR semur við Stomski
Kvennalið KR hefur náð samkomulagi við bandarísku stúlkuna Jessie
Stomski um að hún leiki með liðinu það sem eftir er vetrar og KR-liðið
er þar með síðasta lið 1. deildar kvenna til að næla sér í erlendan leik-
mann. KR er íslands- og bikarmeistari síðustu tveggja ára en hefur mátt
þola mikinn mannamissi í vetur, nú síðast þegar Guðrún Arna Sigurð-
ardóttir fór úr axlarlið í úrslitaleik Kjörísbikarsins gegn Keflavík og
verður frá í 6 vikur.
Stomski var valin inn í WNBA-deildina síðastliðið vor af liði Charlotte
Sting en hætti við að reyna sig í deild þeirra bestu eftir að hafa nýlokið
erfiðu lokaári með Wisconsin-háskólanum. Stomski skoraði 18,3 stig og
tók 8,9 fráköst á lokaári sínu í skólanum þar sem hún var valin í hóp
bestu leikmanna hákskólaboltans. Stomski er 22 ára framherji, 1,88 á
hæð, og því mjög athyglisverður leikmaður sem ætti aö verða KR-liðinu
mikill styrkur. -Ben
Jón Arnór meö 14 stig í 21 stigs tapi
Jón Arnór Stefánsson og félagar hans í þýska úrvalsdeildarliðinu
Trier sitja á botninum eftir 21 stigs tap, 65-86, á heimavelli gegn
RheinEnergie frá Köln. Jón Amór skoraði 14 stig og gaf 4 stoðsendingar
í leiknum sem var fjórði tapleikur liðsins í röð. -ÓÓJ
MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2002 MÁNUDAGUR 23. DESEMBER 2002
DV DV
Sport
esprýðh
Kjörisbikarmeistarar Keflavikur. Frá vinstri Anna Maria Sveinsdottir. spilandi þjálfári
Birna Valgarðsdóttir, Sonia Ortega, Erla Porsteinsdóttir, Ingíbjörg Lara Gunnarsdóttir.
fJarí Rós Karlsdóttir. Rannveig Randversdóttir, Kristín Blöndal fyrirliöi, Vala Rún
Björnsdóttir og Svava Ósk Stefánsdóttir. DV-mynd Siguröur Jökull
Keflavíkurstúlkur unnu Kjörísbikarinn í fyrsta sinn á laugardaginn:
Yfirburðir fvrir iól
- Keflavík vann fimmtánda sigurinn í röð, 80-54, á KR í Smáranum
Keflavík vann Kjörísbikar kvenna í
fyrsta skipti þegar liðið sigraði KR
örugglega í úrslitaleik á laugardag,
80-54. Þetta er í þriðja sinn sem
kvenfólkið keppir um þennan bikar.
KR sigraði fyrir tveimur árum og
Grindavík síðasta vetur. Fyrir fram
var reiknað með sigri Keflavíkur sem
ekki hefur tapað leik í vetur og vann
KR með 55 stiga mun ekki alls fyrir
löngu og því hægt að segja að úrslitin
hafi verið eftir bókinni. Munurinn var
36 stig þegar skammt var eftir af
leiknum, 80-44, en KR gerði síðustu 10
stigin í leiknum og tókst aðeins að
rétta sinn hlut.
Keflavík byrjaöi leikinn af krafti og
komst í 10-0. KR tefldi fram leynivopni
í leiknum þar sem Kristín Jónsdóttir
lék með liðinu og byrjaði hún inn á hjá
KR. KR svaraði þessum tíu stigum
Keflavíkur í röð með fimm stigum en
engu að síður voru leikmenn KR í
miklum vandræðum með sterka vörn
andstæðinga sinna. Munurinn var níu
stig eftir fyrsta leikhluta, 16-7, en
Keflavík byrjaði annan leikhluta eins
og þann fyrsta með þvi að gera tiu
fyrstu stigin og munurinn var því
orðinn 19 stig, 26-7. Rannveig
Randversdóttir kom inn af bekknum
hjá Keflavik í þessum kafla bar-
áttuglöð og skilaði það sér í stolnum
boltum og sóknarfráköstum. KR var
enn þá í vandræðum með að fmna
leiðir fram hjá vöm Keflavíkur og
þegar það tókst voru leikmenn liðsins
klaufar að nýta ekki færin betur.
Staðan í hálfleik var 40-15 og nokkuð
ljóst að Keflavik færi með sigur af
hólmi og bara spuming hversu stór
sigurinn yrði.
KR varð síðan fyrir áfalli þegar
Guðrún Sigurðardóttir meiddist á öxl
og varð að yfirgefa leikstað svo hægt
væri að hlúa að henni. Guðrún hafði
spilað einna best í KR-liðinu. Sóknin fór
síðan að ganga betur hjá KR í seinni
hálfleik og Helga Þorvaldsdóttir, sem
skoraði ekki stig í fyrri hálfleik, skoraði
átta stig í þriðja leikhluta og María
Káradóttir hitti úr tveimur þriggja stiga
körfum. Munurinn fór engu að síður í
32 stig i þriðja leikhluta þar sem
Keflavík lék mjög góðan sóknarleik og
allir leikmenn liðsins vora með á
nótunum og jafnvægið gott.
Fjórði leikhluti var síðan formsatriði
og fjaraði leikurinn út i rólegheitum.
Liðsheild Keflavíkur er gríðarlega sterk
og varla veikan blett að finna. Liðið
spilar sterka vörn og allir leikmenn
liðsins virðast vera á sömu blaðsíðunni
sóknarlega. Ef einhver taugaveiklun er í
leik liðsins þá er Anna María
Svemsdóttir, þjálfari liðsins, dugleg að
skipta sér inn á og koma með yfirvegun
í sóknarleikinn. Allir leikmennirnir
skiluðu sínu og verður að teljast líklegt
að þetta Keflavíkurlið eigi eftir að vinna
fleiri úrslitaleiki þetta árið.
Hjá KR var fátt um fina drætti. Liðið
á þó nokkuð inni og á eftir að koma
sterkara til leiks eftir áramót með
erlendan leikmann. Þá á liöið inni
leikmenn eins Hönnu Kjartansdóttur og
Grétu Mariu Grétarsdóttur. Kristínu
Jónsdóttur tókst ekki að hafa áhrif á
leikinn enda hefur hún ekkert æft í
vetur og verið í námi erlendis. Hildur
Sigurðardóttir var í strangri gæslu
Sonju Ortega en það losnaði um Hildi í
lokin þegar leikurinn var nánast búinn.
Helga fann sig ekki en það var
lykilatriði fyrir KR að hún spilaði vel ef
KR hefðu átt að eiga möguleika í
Keflavík að þessu sinni.
-Ben
Atta stórsigrar
Keflavíkur í röð
Keflavík vann á laugardaginn
áttunda stórsigur sinn í röð,
sigraði með meiri mun en 20
stigum. Alls hefur Keflavíkurlið-
ið unnið 11 af 15 leikjum sínum í
vetur með meira en tveggja tuga
mun og þann tólfta síðan með 19
stigum.
Átta stórsigrar t röð:
21. des. KR (Kjörís).. 86-54 (+26)
18. des Njarðvík (bikar) . 56-82 (+26)
16. des KR (deild).... 92-37 (+55)
11. des. ÍS (Kjörís) . 60-85 (+25)
7. des. Haukar (deild) . . . 43-78 (+35)
21. nóv. Njarövík (deild) . 82-42 (+40)
16. nóv. ÍS (deild)... 85-53 (+32)
14. nóv. Haukar (Kjörís) . 46-69 (+23)
15 sigrar Keflavíkur í röð:
Deild ..........10-0 (6 þeirra +20)
Kjörísbikar .....4-0 (4 þeirra +20)
Bikar............1-0 (1 þeirra +20)
Samtals .... 15-0 (11 þeirra +20)
Allir titlar í húsi
hjá Keflavík
Keflavík vann á laugardaginn
fyrsta sigur sinn í fyrirtækjabik-
ar kvenna en liðið hafði tapað í
fyrstu tveimur úrslitaleikjum
keppninnar. Þar meö hefur
Keflavík unnið alla stóru titlana
sem í boði eru hjá KKÍ.
Karlar
islandsmeistarar...............5
Bikarmeistarar.................3
Fyrirtækjameistarar............4
Deildameistarar ...............5
Meistarar meistaranna..........1
Samtals.......................18
Konur
íslandsmeistarar ..............9
Bikarmeistarar................10
Fyrirtækjameistarar............1
Deildameistarar ...............6
Meistarar meistaranna..........3
Samtals.......................29
Keflavik hefur því unnið samtals 47
titla í meistaraflokki karla og kvenna
á árunum 1988 til 2002. -ÓÓJ
kki nóg að stoppa
!ara einn leikmann
- sagði Anna María Sveinsdóttir, spilandi þjálfari Kefla-
víkur, eftir kærkominn sigur í Kjörísbikarnum
f ■■ i! f f J J / m % 4v Ye' ‘\ /
,,3 / Vliffift íl ■ .... íl J 1 rt vor [ t * k ■ w \ '
RL v-~- K 4- _ A K V /f k JI j.
„Það var virkilega kær-
komið að vinna þennan
bikar. Við mættum virki-
lega tilbúnar til leiks og
þrátt fyrir að hafa unnið
KR með 55 stigum fyrir
stuttu þá var ekkert van-
mat af okkar hálfu og er ég
ánægð með það. Mér
fannst þetta aldrei vera ör-
uggt fyrr en farið var að
líða á seinni hálfleikinn.
Þó svo að við kæmumst 20
stig yfir snemma í fyrri
hálfleik þá er það enginn
munur sem KR getur ekki
brúað og því urðum við að
halda áfram að spila af
sama krafti," sagði Anna
María Sveinsdóttir, spil-
andi þjálfari Keflavíkur,
við DV eftir leikinn.
„Mér brá ekkert við að
sjá Kristínu Jónsdóttir í
búningi fyrir leikinn og
datt í hug að KR myndi
nota hana í leiknum. Hún
átti greinilega að stoppa
Birnu Valgarðsdóttur en
það er bara ekki nóg að
stöðva einn leikmann hjá
okkur þar sem breiddin er
það góð. Við lögðum
áherslu á að stöðva Hildi
Sigurðardóttur og Helgu
Þorvaldsdóttur því þær
hafa verið í fararbroddi í
leik KR í vetur.
Stigin dreifast
Hjá okkur dreifðust
stigaskorið vel. Við spilum
vel sem heild þar sem allir
era að hjálpast að og leika
hver fyrir annan. Þá
stjómar Marín Karlsdóttir
leik liðsins virkilega vel og
hefur blómstrað í vetur.
Hún keyrir hraðaupp-
hlaupin vel og stillir síðan
upp þegar það á við. Hún
stjómar hraðanum mjög
vel. Þá hefur hún líka
tekið af skarið þegar þess
hefur þurft."
Spurð út í framhaldið
sagði Anna María að hin
liðið væra að styrkja sig og
reiknaði því með jafnari
keppni eftir áramót. „Bæði
Haukar og KR eiga eftir að
vera mun sterkari eftir
áramót þar sem bæði lið
munu tefla fram erlendum
leikmanni." -Ben
Kristín Blöndal lyftir Kjörísbikarnum, fyrst fyrirliða hjá kvennaliði Keflavíkur. Kristín átti góðan
leik eins og allt Keflavíkurliöið sem vann úrslitaleikinn örugglega. DV-mynd Sigurður Jökull
Keflavík-KR 80-54
Úrslitalelkur Kjörlsbikars kvenna 21. des.
6-0, 10-2, 10-5, 16-5 (16-7), 26-7, 29-10,
31-14, 36-15 (40-15), 40-16, 44-18, 50-20,
54-23, 58-29, 62-29 (66-34), 66-36, 71-58,
74-42, 80-44, 80-54.
Keflavík to ■8
Mln. Skot Vlti £ £ o O C0 &JD V C/3
MarínRós 26 10/3 3 2 7
Kristln 26 7/5 1/0 5 6 10
Bima 26 11/3 1/1 4 3 7
Ortega 32 12/7 3/2 7 6 16
Erla 22 11/7 10 0 14
AnnaMaría 16 10/5 3/3 4 1 13
Svava 19 7/1 5 3 3
Rannveig 17 6/2 2/2 7 1 6
Lára 9 2/2 2 4
Vala Rún 7 2/0 2 0
Samtals 78/35 10/8 49 22 80
Sóknarfráköst: (16) Ortega 3,
Rannveig 3, Kristín 3, Bima 2, Anna
Maria 2, Erla 2, Lára.
Stolnir boltar: (13) Ortega 3, Birna
3, Marín Rós 2, Rannveig 2, Kristín 2,
Anna María 1.
Varin skot: (6) Ortega 3, Erla, Vala
Rún, Bima.
3ja stiga skot• (11/2, 18%) Marín 3/1,
Svava 4/1, Anna 1/0, Birna 3/0.
Tapaöir boltar: 20. Villur: 23.
mt Mín. Skot Víti | | Stig
Hildur 40 11/4 11/8 11 2 16
María 32 7/2 4/0 3 1 6
Kristín 14 5/0 2/1 3 1 1
Helga Þ. 40 16/5 2/0 11 3 10
Guörún 21 5/2 5/3 6 1 7
Tinna 20 4/1 4/3 3 3 5
Hafdís 9 1/0 2/2 0 1 2
Georgia 20 9/3 1 3 7
Halla 4 0 0 0
Ingibjörg 0
Samtals 62/27 22/18 39 12 74
Sóknarfráköst: (15) Hildur 7, Helga
4, Kristin Björk 3, Guðrún Ama.
Stolnir boltar: (7) Helga 2, Tinna 2,
Georgia 2, Hafdis.
Varin skot: (3) Helga, Kristin Björk,
Guðrún Arna.
3ja stiga skof (19/3, 16%) María 7/2,
Georgia 4/1, Guðrún 2/0, Hildur 3/0,
Helga 3/0.
Tapaóir boltar: 24. Villur: 13.
Dómarar (1-10): Kristinn Albertsson
og Bjami Gaukur Þórmundsson (8).
GϚi leiks (1-10): 6.
Áhorfendur: 80.
Maður leiksins:
Sonia Or-
tega
Hún spilaöi vel (
sókninni og
klippti Hildi Sig-
urðardóttur út í
vörninni. Hildur
skoraði nánast öll
stigin sín þegar Ortega
bekknum.
%~
var
Vassell spilar með Hamarsmönnum á nýju ári:
Ótrúleg vinnubrögð
- sagöi Robert O’KeHey við DV-Sport
Hamarsmenn, sem era í áttunda
sæti Intersport-deildarinnar í
körfúknattleik, sögðu á laugardag-
inn upp samningi við bandaríska
leikmanninn Robert O’Kelley sem
leikið hefur með þeim í vetur.
O’Kelley hefur skorað 31,4 stig
að meðaltali í leikjunum ellefu
sem hann hefur spilað með Hamri
í Intersportdeildinni í vetur en það
var greinilega ekki nóg fyrir for-
ráðamenn Hamars sem ákváðu að
láta hann fara og fá í staðinn
Kanadamanninn Keith Vassell
sem er íslendingum að góðu kunn-
ur eftir að hann spilaði með KR.
DV-Sport ræddi við O'Kelley í
gær og spurði hann út í þessa
óskemmtilegu jólagjöf Hvergerð-
inga.
„Ég er mjög hissa á því að þeir
skuli hafa ákveðið að segja upp
samingnum við mig. Mér finnst ég
hafa spilaö vel, skorað yfir þrjátíu
stig að meðaltali í leik og var
farinn að hlakka til seinni hluta
mótsins. Við höfum verið að bæta
okkur undanfarið og því kom mér
þetta mjög á óvart,“ sagði O’Kelley
í samtali við blaðamann DV-Sport
í gær.
O'Kelley sagði að vinnubrögðin,
sem stjórn Hamars og þjálfari liðs-
ins, Pétur Ingvarsson hefðu við-
haft varðandi uppsögn hans, væra
ótrúleg og engu lík.
„Þetta var í fréttum einhverrar
sjónvarpsstöðvar i gærkvöld (laug-
ardagskvöld) og klukkutíma
seinna hringdi einn félaga minna í
liöinu, Ægir Gunnarsson, og sagði
mér tíðindin. Ég varð auðvitað
mjög hissa og sár yfir því hvernig
að þessu var staðið. Stjórnin talaði
reyndar við mig i morgun (í gær)
en ég hef hvorki heyrt hósta né
stunu frá Pétri (Ingvarssyni), þjálf-
ara liðsins, og finnst það mjög
skrýtið," sagði O'Kelley og bætti
við hann vonaðist til að finna sér
annað lið fljótlega.
Það verður þó ekki á íslandi því
að reglur kveða á um að erlendir
leikmenn megi aðeins spila með
einu félagi á hverju tímabili.
Á íslandi á ný
Allir körfuknattleiksáhuga-
menn á íslandi þekkja Kanada-
manninn Keith Vassell sem lék
síðustu fimm tímabil með KR og
varð meðal annars aðalmaðurinn
á bak við íslandsmeistaratitil fé-
lagsins vorið 2000.
Vassell er góður alhliða leik-
maður sem gelur leikið bæði sem
sem bakvörður og framherji.
Vassell glímdi við langvinn
meiðsli síðustu tvö árin með KR
sem átti eflaust nokkurn þátt í því
að hann skilaði ekki sömu tölum
og fyrstu þrjú ár sín hjá liðinu.
Hann skoraði 16,9 stig og tók 10,3
fráköst að meðaltali með KR-liðinu
á tímabilinu i fyrra.
Þegar Vassell kom fyrst til KR
um áramótin 1997 til 1998 ger-
breytti hann hins vegar vesturbæj-
arliðinu. Það vann 9 af síðustu ell-
efú leikjum sínum þar sem Vassell
skoraði 25,9 stig og tók 11,9 fráköst
að meðaltali. Hamarsmenn vonast
eflaust til að Vassell hafi svipuð
áhrif á Hamarsliðið enda hafði KR
aðeins unnið 5 af 11 leikjum sínum
fyrir áramótin þegar Vassell kom
fyrst en KR-liðið lauk timabilinu á
því að leika um titilinn.
-ósk/ÓÓJ
Verður skrýtið að
spila á móti KR
- sagöi Keith VasseH við DV-Sport
„Það verður skrýtið að spila
gegn KR-ingum þegar ég kem aftur
til íslands,“ sagði Kanadamaður-
inn Keith Vassell þegar DV-Sport
sló á þráðinn til hans í gær.
Vassell, sem er nýgenginn til
liðs við Hamar í Hveragerði, sagði
í samtali við DV-Sport að honum
litist vel á að spila með Hamri.
Hamar er með gott lið og ég
vona að ég geti fært þeim það sem
upp á vantar til að þeir verði í
toppbaráttunni," sagði Vassell.
Vassell sagðist ekki hafa spilað
mikið síðan hann var á íslandi síð-
astliðið vor en að hann hefði æft
vel og væri í mjög góðu formi.
Aðspurður sagðist Vassell ætla
að sækja um íslenskan ríkisborg-
ararétt eins og hann gerði í fyrra.
„Ég elska ísland og mér leið al-
veg stórkostlega þegar ég dvaldi
þar,“ sagði Vassell en hann er
væntanlegur til íslands á milli jóla
og nýárs. -ósk