Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2003, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2003, Blaðsíða 16
16 TILVERA FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST2003 + FÖSTUDAGUR 29.ÁGÚST2003 TILVERA 17 Allir íþráttaviáburðir í beinni á risaskjám. Pnnl. Enður matseðill. Tökum að nkkur hnpa, starfsmannafélög. Stnrt ng gntt dansgnlf. Tilvera Fólk ■ Heimilið ■ Dægradvöl Netfang: tilvera@dv.is Sími: 550 5824 • 550 5810 Bjartar nætur ©NÓ: Síðasta sýning á Leik- sýningu Ferðaleikhússins, sem ber heitið Light Nights - Bjartar naetur, verður í kvöld í Iðnó. Uppfærsla og efni sýn- ingar Ferðaleikhússins er breytileg milli ára. Þær eiga þó sameiginlegt að þær eru fluttar á ensku, að undan- skildum kveðnum rímum og þjóðlagatextum sem fluttir eru á íslensku. Fimm eru á sviðinu, Kristín G. Magnús, sem jafnframt er leikstjóri, og Páll S. Pálsson sjá um leikinn og auk þeirra eru þrír dansar- ar. Hilmar Örn Hilmarsson hefur samið lag við álfkonu- dans fyrir sýninguna. Þá hef- ur Steindór Andersen verið hópnum til aðstoðar við að kveða rímur. Haustmarkaður SÖFN: Lokadagskrá sumarsins verður í Ár- bæjarsafni næstkomandi sunnudag. Meðal annars verður boðið upp á haustmarkað. Á boðstólum verður nýupptekið grænmeti úr matjurtagörðum og heimagerð sulta og prjónles í Krambúð. Þá er enn til staðar sýn- ingin í Kornhúsi, sem nefnist Dagur í lífi Reykvíkinga. Sjötti áratugurinn. Á sýning- unni er fylgst með sex Reykvíkingum á ólíkum aldri í amstri hversdagsins á árun- um 1950-1960. Uppboð á Ijósmyndum GALLERÍ ÁLFUR: Ásunnudag lýkur sýningunni „2 ms af ís- landi" með uppboði. Þetta er níunda Ijósmyndasýning Ljósálfa, Ijósmyndafélags, en auk þeirra sýna þrír erlendir Ijósmyndarar. Meðan sýningin hefur staðið yfir hefur gestum gefist kostur á að bjóða í mynd- irnar. Að kvöldi laugardags verður kíkt á þau tilboð og munu þau gilda sem lægsta boð á uppboði daginn eftir. Þá verður uppboðshaldari Ragnar Sigurjónsson, ráðsmaður í Viðey og kunnur Ijósmyndari, við stjórnvölinn og býður upp þær myndir sem þá verða óseldar. Alls eru á sýningunni 44 Ijós- myndir en tvær þeirra eru einkaeign. Sýningin er haldin í Gallerí Álfi, Bankastræti 5. Huldufólk hefur ekkert miðsnes Kristín Birna Kristjánsdóttir, nemi í þjóðfræði, vann í sumar ásamt Guðjóni Braga Stefáns- syni, grafískum hönnuði, að söfnun efnis í bók og uppsetn- ingu sýningar á Skriðuklaustri um álfa- og huldufólkssögur á Austurlandi. „Ég hef alltaf haft áhuga á þjóð- sögum," segir Kristín Birna, „og var mjög ung þegar ég byrjaði að lesa safnið hans Jóns Árnasonar." Krist- ín hóf nám í þjóðfræði um síðustu áramót og segir að námið sé beint framhald af áhuga hennar á þjóð- sögum og þjóðtrú. Kristín segir að hún hafi komið að verkefninu í tengslum við nám- ið. „Skúli Björn Gunnarsson, for- stöðumaður Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri, hafði samband við Terry Gunnel, lektor í þjóðfræði, og spurði hvort hann vissi um nema sem hefði áhuga á að safha skráð- um huldufólkssögum af Austur- landi í eina bók. Hvatinn að því að ég sótti um starfið er áhugi minn á álfa- og huldufólkssögum og ég var svo heppinn að fá það. Skúli hafði einnig samband við Listaháskól- ann og komst í samband við Guð- jón í framhaldi af því.“ Leitað að sögum Kristín segir að hún hafi fengið aðstöðu á Árnastofnun til að vinna alla forvinnu sem fólst í því að skrá hvað er til af álfa- og huldufólks- sögum á Austurlandi og hvar þær er að finna. „Ég settist bara niður og fletti í gegnum öll þau þjóð- sagnasöfn þar sem líklegt var að finna huldufólkssögur af Austur- landi og síðan las ég sögurnar. Við Guðjón vorum alltaf í sambandi af og til og hann fór að pæla í því hvernig best væri að hanna sýning- una.“ Að sögn Kristfnar voru sögurnar sem voru settar upp á sýningunni og í bókina að hluta valda með það í huga hvernig hægt væri að gera þær myndrænnar á sýningunni. Hið sjónræna í fyrirrúmi „Sýningin er byggð þannig upp að þeir sem skoða hana þurfi ekki að lesa of mikið til að skilja hana. Það hefur sýnt sig að fólk hefur ekki þolinmæði til að lesa mikinn texta þegar það skoðar sýningar, sérstak- lega ef það er með börn með sér. Við reyndum því að hafa hana sem sjónrænasta og grípandi fyrir aug- un og eyrun.“ Að sögn Kristínar var þó hægt að lesa sér til ef fólk vildi því við hvern sýningargrip var stuttur texti og á bak við hann lengra mál fýrir þá sem vildu afla sér meiri upplýsinga. Birna segir að á sýningunni sé reynt að kynna huldufólk á sem íjölbreyttastan hátt, segja frá upp- runa þess og bera það saman við mennska menn. „Við létum til dæmis búa til nef af huldufólki og nef af venjulegum manni og fólk gat borið þau saman, en eins og flestir vita þá vantar miðsnesið á huldufólk." Trúir á huldufólk Kristín segir að hún hafi lesið heilmikið af skemmtilegum sögum í tengslum við vinnuna að bókinni og að hún sé sannfærð um að nátt- úran á Austurlandi hafi stuðlað að ríkri huldufólkstrú þar um slóðir. „Sögurnar á Austurlandi eru svo sem ekkert frábrugðnar huldu- fólkssögum annars staðar á land- inu. Það er bara til meira af þeim vegna þess að Sigfús Sigfússon var svo duglegur að safna fyrir austan." Þegar Kristín er spurð hvort hún hafi séð álfa eða huldufólk hlær hún og segir nei. „Því miður ekki en ég er viss um að það er til.“ kip@dv.is TRÚIR Á HULDUFÓLK: Kristín Birna Kristjánsdóttir, nemi í þjóðfræði, vann í sumar að bók og sýningu um huldufólkssögur á Austurlandi. Hringekjur lífsins á Kjarvalsstöðum í kvöld, kl. 20, verður opnuð á Kjarvalsstöð- um einkasýning myndlistarmannsins Eyjólfs Einarssonar. Sýningin ber nafnið Hringekjur lífsins og er áherslan á stór málverk sem lista- maðurinn hefur verið að vinna undanfarin ár og hafa ekki verið sýnd áður. Eyjólfur er einn af fremstu listmálurum sinnar kynslóðar og hefur notið vaxandi athygli hin síðari ár fyrir afar persónulegt myndmál og túlkun sem endurspeglar tíðarandann með sérstökum hætti. Sunnudaginn 28. september kl. 15.00verður Listamannsspjall þar sem Eyjólf- ur Einarsson mun skoða sýninguna ásamt gestum. Sýningin stendur til 12. október. EYJÓLFUR EINARSSON: Opnar sýningu á Kjar- valsstöðum í kvöld. Olíumálverk og Ijósmyndir í Gallerí Fold Á morgun, kl. 15.00, opnar Helga Krist- mundsdóttir sýningu á olíumálverkum í Baksalnum í Galleríi Fold, Rauðarárstíg 14. Á sama tíma verður opnuð sýning á ljós- myndum Sigríðar Bachmann í Ljósfold. HELGA KRISTMUNDSDÓTT1R: Sýnir f baksalnum í Gallerl Fold Sýningarnar standa til 14. september. Helga Kristmundsdóttir stundaði nám við keramikdeild Myndlista- og handíða- skóla íslands 1972-76, vefnaðardeild sama skóla 1982-86 og málaradeild Árhus kun- stakademi í Danmörku 1991-95. Helga hef- ur haldið fjölda einkasýninga víðs vegar um Danmörku, svo og í Þýskalandi, Austurríki, Færeyjum, Noregi, Belgíu og Svíþjóð. Hún hefur fengið viðurkenningar fyrir íist sína í Danmörku, en þar er hún búsett. Sigríður Bachmann lærði ljósmyndun hjá Guðmundi A. Erlendssyni ljósmyndara og vann þar árum saman. Síðan lauk hún prófi ffá Iðnskólanum í Reykjavík. Hún starfaði hjá Sigurgeiri Sigurjónssyni, ljósmyndara í Svipmyndum, aUlengi, en hefúr rekið eigin ljósmyndastofu um árabil. Gallerí Fold er opið daglega, frá kl. 10.00 til 18.00, laugardaga frá kl. 10.00 til 17.00 og sunnudaga frá kl. 14.00 til 17.00. Listhús Ófeigs: 4 colours 4 ladies Sýningin 4 colours 4 ladies verður opnuð í list- húsi Ófeigs, Skólavörðustíg 5, á morgun kl. 16. Um er að ræða fjórar norskar textíl-listiðnaðarkonur. Hilde Horni og Torill Haugsvær Wilberg nota vinnuaðferðir sem voru nær gleymdar fyrir 15-20 árum í Noregi, að þæfa ull. Listin að þæfa hefur nú verið endurvakin og er í stöðugri sókn, oft í sam- blandi við ull og silki og af- raksturinn er meðal annars smáskúlptúrar, fatnaður og fylgihlutir í nútímalegu samhengi. Tove Nordstad og Inger Lise Saga sýna prjónaflíkur, ýmist þunnar eða þykkar, úr blöndu af silki, viskos og Iíni. Afrakst- urinn er hvort tveggja í senn, nútímalegur og ögrandi. Námsferill þeirra er athyglisverður. Tvær eru innanhússarkitektar, sú þriðja tannlæknir og sú fjórða barnaskólakennari. Listhús Ófeigs er opið kl. 10-18 virka daga, 11-16 á laugardögum og lokað á sunnudögum. Verið vel- komin. Ókeypis aðgangur. Myndlistorsýningor Þjóð í mótun á Akureyri Á morgun kl. 15 verður blásið í afmælislúðra í Listagilinu á Akureyri. Til- efnið er tvöfalt. Listasafn- ið á Akureyri verður tíu ára og Þjóðminjasafn fs- lands er hvorki meira né minna en 140 ára. Sýning- in, sem unnin er í sam- vinnu við Þjóðminjasafn íslands, ber heitið „Þjóð í mótun: ísland og fslend- ingar fyrri alda“. í vestur- sal safnsins sýna hins veg- ar Erla S. Haraldsdóttir, nýjasti verðlaunahafi Listasjóðs Pennans, og Bo Melin hvernig Akureyrar- bær gæti litið út í óræðri framtíð ef þar byggju f kringum 700 þúsund manns en sú sýning ber heitið „AbbastuppáAkur- eyri". Þá munu verða sýndir , norðan heiða í fyrsta sinn f^^DINGAR FYRRI ALDA: Tvöföld afmælissýning I Lista- munir í eigu Þjóðminja- 9'lnu' safnsins. Eins og kunnugt er hefur Þjóðminjasafnið verið lokað almenn- ingi undanfarin fimm ár vegna um- fangsmikilla breytinga. Norðlending- ar taka því forskot á sæluna og gefst hér einstakt tækifæri til að kynnast ýmsu af því besta sem Þjóðminjasafn- ið hefur að geyma. Margt af því sem minjasöfn sýna og varðveita flokkast ekki til listmuna heldur margvíslegra minja sem bera lifnaðarháttum fyrri tíma vitni. Með því að sýna þessa gripi í Listasafninu á Akureyri er reynt að blása sagnaryk- inu af þeim og skoða þá í öðru sam- hengi en menn eiga að venjast, sem sérstaka listmuni. Flest þessara merku verka eru ffá 17. og 18. öld en þau elstu er frá miðri 16. öld. Listasafnið er opið frá kl. 15 til 23 á opnunardaginn í tilefni af Akureyrar- vöku, menningarnótt Akureyringa. Sýningin stendur frá 30. ágúst til 2. nóvember 2003. Opinn skógur KLIPPT Á BORÐANN: Vigdís Finnbogadóttir, fýrrverandi forseti fslands, og fulltrúar verk- efnisins klipptu á borðann. ávöip. Bæjarstjóri Blönduósbæjar afhenti síðan fulltrúum verkefnis- ins viðurkenningar. Þegar búið var að klippa' á borðann frumflutti Hólmfríður Jónsdóttir nýort ljóð um eyjuna eftir Ingibjörgu Ey- steinsdóttur f Beinakeldu í Austur- Húnavatnssýslu. JÓN fSBERG: Þekktur Húnvetningur, Jón fsberg, fyrrverandi sýslumaður, var mættur til að fylgjast með. Um síðustu helgi var athöfn í Hrútey í Blöndu við Blönduós- kaupstað. Tilefnið var það að í Hrútey er nú opinberlega orðinn „Opinn skógur". Um er að ræða samvinnuverkefni skógræktarfé- laganna og Olís og Alcan á íslandi sem hefur hefur það að markmiði að bæta aðgengi og aðstöðu í skóg- um skógræktarfélaganna um land allt. Um 200 manns komu til athafn- arinnar í ágætis veðri. Fjölbreytt dagskrá var. í upphafi var leilcin harmónikutónlist. Þá voru flutt SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVlK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219 Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi í Reykjavík I samræmi við og 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýst til kynningar tillaga að breytingu á deiliskipulagsáætlun í Reykjavík: Rimaskóli. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi vegna Rimaskóla stækkun lóðar og viðbygginga við skóiann. Tillagan gera m.a. ráð fyrir að lóð stækki til norðurs inn á lóð sem áður var skilgreind sem lóð fyrir skóla og leik- skóla við Sóleyjarrima. Fyrirhugað er að byggjá við Rima- skóla rými fyrir skóla- og leikskólastarfsemi. Leiksvæði verða í tengslum við viðbyggingu. Hæð viðbyggingar er ein til tvær hæðir, gerður er nýr byggingareitur fyrir viðbyggingu og afmarkaður reitur fyrir núverandi byggingu. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tillagan liggur frammi í upplýsingaskála skipulags- og byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 08:20 - 16.15, frá 27. ágúst 2003 - til 10. október 2003. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við hana skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa eigi síðar en 10. október 2003. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna. Reykjavík, 29. ágúst 2003. Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.