Dagblaðið - 17.12.1975, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 17.12.1975, Blaðsíða 1
1. árg.-Miðvikudagur 17. desember 1975 — 84.tbl.‘ Ritstjórn Síðumúla 12, sími 83322, auglýsingar og afgreiðsla Þverholti 2, sími 27022 GRUNDARTANGI ENN EINU SINNI: SKULDAR ELLEFU MILLJONIR Verktaki undirbúningsvinnu viB framkvæmdirnar uppi á Grundartanga, Jón V. Jónsson, hefur enn ekki staðið við þær skuldbindingar, sem hann gerði viö eigendur vinnuvéla og ým- issa þjónustufyrirtækja á Akra- nesi. Nema skuldir hans við þá nú yfir elléfu milljónum króna, en hluta þeirrar upphæðar hafði hann lofað að greiða samkvæmt skriflegum samningi 26. nóvem- ber s.l. Höfðu eigendur vinnu- vélanna falliztá að fá þá 25% af skuldunum, en siðan átti að greiða 15% 8. desember og aftur þann fimmtánda. Er leið að skuldadögum komu engir- peningar og hafa ekki sézt ennþá. Hafa eigendur vinnuvél- anna þvi sent kærur sinar til lögfræðings og má búast við ein- hverjum aðgerðum af þeirra hálfu nú á næstunni. Að sögn Jóns Halldórssonar hjá Félagi eigenda vinnuvéla er dráttur þessi á greiöslum veru- lega bagalegur fyrir mennina' þarna á Tanganum og i rauninni óskiljanlegur, þvi hann taldi öruggt, að Jón V. Jónsson fengi sinar greiðslur skilvislega frá Málmblendiverksmiðjunni. IIP. Risaslagur í Laugardalshöll , ,Ég varð svo fjúkandi von- ur, að ég bara sló hann”, sagði Curtiss Carter — og svert- inginn i Armanns-liðinu, Jimmy Rogers, steyptist i gólfið i LaugardalshöHinni og lá þar i allri sinni lengd — næstum tveir metrar — eftir högg Trukksins i KR-liðinu, Curtiss Carter. Það var ekkert smáhögg hjá risanum Carter, sem er rúm- lega tveir metrar á hæð, — sjálfur Muhammad Ali hefði getað verið stoltur af sliku rot- höggi. En slikt á ekkert skylt við körfubolta — og átökin i Laugardalshöllinni i uppgjöri toppliðanna voru blóðug i gær- kvöld. Armann sigraði i leikn- um — það þoldi Trukkurinn ekki og sló sinn bezta vin i gólfið áður en leiktimanum var lokið. Auðvitað var Dagblaðið á staðnum. A mynd Bjarnleifs sést Trukkurinn vigalegur mjög og högg hans lenti beint á kjálka Rogers, sem er á leið i gólfið. Svarturarmur hans er á handlegg Trukksins — og hnefinn stefnir á andlit félaga hans i Armannsliðinu, Guðsteins, sem reyndi að ganga á milli. Kjarkmaður, pilturinn i viðureign risanna. — sjó íþróttir í opnu Höfum tœkjakost til að annast alla hafnargerð ó landinu' Björgun h.f. á nú í smiðum nýtt dælu-og gröfuskip. Þetta er 1000 tonna fley. ,,Við getum annazt allar hafnarfram- kvæmdir á landinu,” segir for- stjórinn. Db-mynd BP Sjó bls. 9 JtSSjtr Geta ekki greitt laun starfsfélks Brann ofon af fimm manna fjölskyldu Laust eftir klukkan sjö i morgun var slökkviliðinu á Akranesi tilkynnt um eld i ibúðarhúsi að Vesturgötu 115 þar i bænum. Var brugðið skjótt við og er á staðinn kom var húsið, sem er gamalt timburhús, alelda. Fimm manna fjölskyldu, sem ihúsinubjóhafði tekiztað kiæða sig með naumindum og var komin út úr húsinu. Slökkvistarf gekk vel og voru nærliggjandi hús ekki i hættu, enda stóð hvassviðrið, sem þarna var I morgun, af húsun- um. Húsið stendur enn uppi, en er mikið skemmt og allt innbú eyðilagðist. Eldsupptök eru enn ókunn. HP. Byggingafyrirtækið Breiðholt h.f. virðist nú vera i miklum fjárhagsvandræðum. Um siö- ustu helgi gat fyrirtækið ekki greitt starfsfólki sinu laun og hafa þær greiöslur enn ekki ver- ið inntar af hendi. Þegar fjárhagsstaða Al- þýðubankans var könnuð kom i ljós að Breiðholt skuldaði, að eigin sögn 25 milljónir króna, samkvæmt umsömdum yfir- drætti, en álitið er, að sú upphæð kunni að vera nokkuð hærri. „Launagreiöslur okkar eru um 10 milljónir á viku”, sagði Sigurður Jónsson, forstjóri i viðtali við DB. „Þetta eru tima- bundnir erfiðleikar, sem ég vona, að okkur takist að leysa á fundi i dag. Framkvæmdir okk- aj: i Vestmannaeyjum hafa reynzt dýrar og eins stöndum viði fjárfrekum framkvæmdum hér i Reykjavik.” „Hvernig er greiðslum frá hinu opinbera vegna Fram- kvæmdanefndaribúðanna háttað? „Um það mál vil ég ekkert segja, þetta er allt á umræðu- stigi,” sagði Sigurður. HP

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.