Dagblaðið - 28.08.1976, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 28.08.1976, Blaðsíða 7
7 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 28. ÁGUST 1976. Flugleiðir flytjo úr Bœndahöll: Hótel Saga stœkkar þó um 50 gistirúm „Við vonumst til að þessi 50 gistirúm verði komin í gagnið 1. maí og strax þegar Flugleiðir hafa flutt aðstöðu sína af fjórðu hæðinni byrjum við að gera breytingar á húsnæðinu," sagði Konráð Guðmundsson hótel- stjóri á Hótel Sögu í samtali við DB. „Nú sem stendur höfum við 150 rúm en með þessari viðbót fara þau í 200,“ sagði Konráð. ,Hann kvað nýtinguna hafa verið mjög góða í fyrrasumar, eða 71%. Þessi aukning kemur því á mjög heppilegum tíma vegna þess að það er ætíð slæmt að þurfa að neita um gistinætur Lélegustu mánuðirnir efú des- ember og janúar. Að sögn Konráðs hefur það farið í vöxt að fólk utan af landi gisti Hótel Sögu þegar það fer hingað í leikhúsferðir eða sækir hingað til Reykjavíkur aðra skemmtun. __KP Sýnir olíu- og akrylmyndir að Laugavegi 178 „Ég fékk fyrst áhuga á að mála þegar ég var sjö ára gömul og sá Kjarval mála hina frægu Keilis- mynd sína. Ég var þá í sveit á bæ á Vatnsleysuströndinni og hann kom þangað til þess að mála myndina," sagði Unnur Svavars- dóttir sem er með málverkasýn- ingu í sýningarsalnum á Lauga- vegi 178. Unnur sýnir yfir áttatíu verk, bæði olíumyndir og akryl. Hún sækir mótif sín aðallega í náttúr- una. Sýning Unnar verður opin dag- lega frá kl. 2—10 fram til sunnu- dagskvölds 5. september. DB-mynd Arni Páll. A.Bj. Flughótíð ú Sandskeiði: 40 úra af mœli Svif- flugfélagsins og Flugmólafélagsins Mikil flughátíð verður haldin á Sandskeiðinu í dag ef veður leyfir og stendur þá til að sýna stöðu hinna ýmsu greina flug- iþrótta, eins og hún er hér á landi eftir 40 ára starf. Þar verður sýnt vélflug, svifflug, þyrluflug, módelflug með radíóstýrðum módelum, fallhlífastökk, flug í loftbelg og drekaflifg. Einnig munu vélflugur, svifflugur og flugmódel sýna listflug og sýndar verða margar gamlar og nýjar flugvélar, einnig svifflugur og þyrlur. Flugmálamenn telja að fyrir 40 árum hafi flug verið endurvakið á íslandi en þá skeði margt með skömmu millibili: 6. ágúst 1936 var skipað í embætti flugmála- ráðunauts ríkisins og það embætti hlnut Agnar Kofoed-Hansen, núverandi flugmálastjóri. Nokkrum dögum seinna stofnaði hann Svifflugfélag íslands, eða 20. ágúst, og fimm dögum seinna stofnaði hann Flugmálafélag Islands. Var hann fyrsti formaður beggja þessara félaga. Þórmundur Sigurbjarnason er formaður Svifflugfélagsins nú en Björn Jonsson er forseti Flug- málafélagsins. Flugáhugi hérlendis hefur ekki dvínað síðan félög þessi og embætti voru stofnuð og því er þetta stórafmæli í sögu flugs á Islandi. Ef veður verður slæmt kl. 14 í dag verður reynt á sama tíma á morgun, annars næsta laugar- dag á sama tíma og í versta falli sunnudaginn þar á eftir. — G.S. Bif reiðaef tirlitið: ER ALÞINGIA MÓTISPARNAÐI? „Ég bendi á stórfelldan sparnað í ríkisrekstri. Ef Alþingi þykir ekki ástæða til að gera breytingar verðum við að halda áfram að eyða pening- um,“ sagði Guðni Karlsson, for- stöðumaður Bifreiðaeftirlits ríkisins í Reykjavík, i viðtali við Dagblaðið. Það var, og er enn, mat Bif- reiðaeftirlitsins að ótaldar milljónir króna mætti spara með því að láta skrásetningar- númer bifreiða fylgja þeim þótt •á þeim verði eigendaskipti. Fyrir utan beinan sparnað 1 skráningu bifreiða og hag- ræðingu í störfum bifreiðaeftir- lits eru af breyttri tilhögun I þessu efni mikil þægindi fyrir bifreiðaeigendur. Frumvarp til laga, sem fólu I sér breytingu í þessu tilliti, var flutt á Alþingi í fyrra. Það dagaði uppi. BS BÓNDI ER BÚSTÓLPI, - BÚ ER LANDSTÓLPI Bændur landsins greiða feikilega misjafnlega til hinna opinberu sjóða. Bóndi er bústólpi en ekki eru víst allir jafnvissir um að búin séu landstólpar. Hvað um það, ekki munum við leggja neinn dóm á slíkt en rennum þess í stað í gegnum hinar ýmsu skattskrár í sveitum landsins. Því miður var ekki búið að jafna niður í nándar nærri öllum hreppum landsins þannig að tölurnar er ekki endanlegar. Nafn tekjusk. eignask. útsvar barnab. samtals Ásgeir Bjarnason bóndi Ásgarði Hvammshreppi og þingmaður 636.754 0. 301.200 937.954 Hjörtur E. Þórarinsson bóndi Tjörn Svarfaðardal 248.187 47.874 179.400 37.500 437.961 Jón Helgason bóndi Seglbúðum og þingm 322.402 58.731 218.600 150.000 449.733 Siggeir Björnsson bóndi Holti Kirkjubæjarhr. 102.141 43.601 180.000 37.500 289.042 Gunnar Guðbjörnsson bóndi Hjarðarfelli Miklaholtshr 469.417 116.220 246.100 37.500 794.217 Guðmundur Ingi Kristjánsson bóndi Kirkjubóli 131.188 0 ekki búið að leggja á án útsv'ars 131.188 Ingi Tryggvason bóndi Kárhóli Reykdælahreppi 418.190 35.471 198.500 37.500 614.661 Sigurður Jónsson bóndi Reynistað 0 57.671 89.600 147.271 Þorsteinn Geirsson bóndi Reyðará Bæjarhreppi 36.289 86.173 ekki komið fil skattst. 93.750 án útsvars, 28.712’ Ölafur Andrésson bóndi Sogni Eyrarhreppi 29.603 21.583 99.200 150.386 Magnús Sigurðsson bóndi Gilsbakka Hvítársiðu 150.096 57.125 142.200 150.000 199.421 Sigsteinn Pálsson bóndi Blikastöðum 164.801 140.319 150.100 455.220 Böðvar Pálsson bóndi Búrfelli Grímsneshr 13.523 50.116 7% útsvar 59.100 150.000 + 27.261 Sigurður J. Líndal Lækjamóti Þorkelshólshreppi 13.584 57.024 ekki’komið 37.500 án útsvars 33.108 Engilbert Ingvason Tyrðilsmýri Snæfjallahreppi 0 2.254 enki komið 150.000 án útsvars + 147.746 Snæþór Sigurbjörnsson Gilsárteigi Eiðaþinghá 68.932 76.487 ekki komið 37.500 án útsvars 107.919 Jónas Halldórsson bóndi Sveinbjarnargerði Svalbarðsströnd 0 39.581 0 en 440.000 kr, aðstöðugjald 93.750 + 54.169 Sumarhús Til afhendingar strax Getum afgreitt tvö sumarhús uppsett og frúgengin. Uppl. í síma 83450 og 86569. Helgar- og kvöldsímar 86569 og 74848.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.