Dagblaðið - 28.08.1976, Blaðsíða 22
22
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 28. ÁGUST 1976.
(ð
Útvarp
Sjónvar
D
Útvarp í dag kl. 13,30:
Nú verður það „út og austur"
Austfirðir 1
heimsóttir J
Utvarpsþáttur Ástu
Jóhannesdóttur og Hjalta
Jóns Sveinssonar. Ut og
suður, sem hefur verið á dag-
skrá útvarpsins kl. 13.30 á
laugardögum í sumar, nýtur
mikilla vinsælda meðal hlust-
enda. Þau hafa rætt við fjölda
fólks og hafa heimsótt Vest-
firði og Akureyri.
I dag verða þau á Neskaup-
stað og fara eitthvað um
Austurland, ræða við fólk og
leika létt lög á milli.
—A.Bj.
Útvarp kl. 20,40 í kvöld:
ÞÁTTUR í
LÉTTUM DÚR
Sumri hallar nefnist þáttur
sem er á dagskrá útvarpsins í
kvöld kl. 20.40 og er hann í
umsjá Bessí Jóhannsdóttur
kennara og borgarfulltrúa.
„Þetta á að vera þáttur í
léttum dúr,“ sagði Bessí i
viðtali við DB.
,,Ég verð með smávegis um
víkingaferðina til Ameríku í
tilefni af 200 ára afmæli Banda-
ríkjanna. Þá lés ég upp stuttan
kafla sem heitir Ættu konur að
stjórna heiminum? Þá verður
rabbað um ýmislegt skemmti-
legt sem gerzt hefur á fyrri
árum.
Inn á milli verða leikin létt
lög af hljómplötum. Þetta er nú
ekki nema hálftíma þáttur, svo
það er takmarkað efni sem
hægt er að komast að með,“
sagði Bessi.
— Verðurðu með einhverja
svipaða þætti á næstunni?
„Það er nú eitthvað laust í
reipunum en það getur verið að
maður verði með eitthvað í
framtíðinni.“
-A.Bj.
Bessí Jóhannsdóttir er með
þáttinn Sumri hallar í kvöld.
Kauptúnið Bakkaf jörður í N-Múlasýslu er ekki ýkja stórt en þar una íbúarnir glaðir við sitt. Ljósm. Ó.R.
Sjónvarp i kvöld kl. 21,00:
Endursýnd mynd fró heimsókn ó Bakkafjörð
Undanfarið hefur sjónvarpið
gert nokkuð mikið af því að
endursýna ferðaþætti sem sjón-
varpsmenn hafa tekið upp á
ferðum sínum um landið. 1
kvöld kl. 21.00 verður endur-
sýndur þáttur er nefnist Blíðu-
dagar á Bakkafirði. Umsjónar-
maður er Ómar Ragnarsson,
stjórn upptöku annaðist
Þrándur Thoroddsen. Þessi
upptaka var áður á dagskrá
sjónvarpsins 10. nóvember
1974.
Sjónvarpsmenn heimsóttu
Bakkafjörð í Norður-Múlasýslu
haustið 1974. Þá var aö sjálf-
sögðu blíðviðri á Bakkafirði,
eins og endranær. Sýndar eru
svipmyndir frá þorpinu og ná-
grenninu og spjallað við staðar-
menn.
—A.Bj.
Sjónvarp í kvöld kl. 22,10:
Um œvintýrakvinnur
í stórborginni
Hvernig krækja á í milljóna-
mæring heitir myndin sem er á
dagskrá sjónvarpsins I kvöld kl.
22.10. Þetta er bandarísk bíó-
mynd frá árinu 1953 og í henni
leika hvorki meira né minna en
þrjár stjörnur, vel þekktar,
Marilyn Monroe, Betty Grable
og Lauren Bacall. Einnig leika
þeir William Powell og Rory
Calhoun í myndinni. Þýðandi
er Dóra Hafsteinsdóttir.
Myndin fjallar um þrjár
ævintýrakvinnur og ævintýri
sem þær lenda í í stórborginni.
Þær virðast eiga sér eitt tak-
mark og það er að krækja í
milljónamæring. Lauren Bacall
virðist vera sú eina sem hefur
eitthvert vit í kollinum,
Marilyn leggur snörur sínar
fyrir alla karlmenn sem koma í
nálægð hennar og tekur niður
gleraugun þegar karlmaður
nálgast, jafnvel þótt hún sé
næstum blind án þeirra. Engu
er líkara en Betty Grable hafi
svona rétt fengið að vera með i
myndinni upp á punt.
Þessar upplýsingar eru í
kvikmyndabiblíunni okkar og
þar fær myndin þrjár stjörnur
svo þetta ætti að geta orðið
sæmileg dægrastytting.
Sýningartími myndarinnar
er ein og hálf klukkustund.
—A.Bj.
Betty Grable og Rory Calhoun í hlutverkum sínum. I síðari
heimsstyrjöldinni héngu svokallaðar „pin-up“ myndir í öllum
hermannaskápum af Betty Grable og hún var víðfræg fyrir hina
fögru fótleggi sína.
Laugardagur 28. ógúst
18.00 íþróttir. Umsjónarmaöur tíjarni
Fclixson.
20.00 Fréttir og voður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Maður til taks. Brcskur Kaman-
myndaflokkur. Hundar á hrakhólum.
Þýðand Stefán Jökulsson.
21.00 Heimsókn. BlíAudagur á Bakkafirði.
Þcssi þáttur var kvikmyndadur, þeKar
sjónvarpsmcnn fóru í stutta heimsókn
til Bakkafjarðar í Norður-Múlasýslu
cinn Kóðviðrisdag haustið 1974. svip-
uðust um i «renndinni on fylKdust
mcð störfum fólksins í þessu friðsæla
ofí fámenna byggðarlagi. Umsjónar-
maður Ómar Ragnarsson. Stjórn
upptöku Þrándur Thoroddsen. Aður á
dagskrá 10. nóvember 1974.
21.35 Skemmtiþáttur Karels Gotts.
Söngvarinn Karel Gott og fleiri
tékkneskir listamenn flytia létt lög.
Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir.
22.10 Hvemig krækja á í milljónamæring.
(How To Marry A Millionaire).
Bandarísk bíómynd frá árinu 1953.
Aðalhlutverk Marilyn Monroe, Betty
Grablc og Lauren Bacall. Þrjár ungar
og glæsilegar fyrirsætur hafa einsett
sér að giftast auðmönniím. Þær taka á
lcigu iburðarmikla ibúð í þvi skyni að
lcggja snörur sinar fyrir inilljóna-
mæringa á lausum kili. Þýðandi Dóra
Hafsteinsdóttir.
23.40 Dagskrárlok.
Laugardagur
28. ógúst
7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl.
7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30. 8.15
(og forustugr. dagbl ). 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl. 8.45.
tíaluur Fálmu^on lcs söguna „Sumar-
daga i Völhim" cftir Guðrúnu Svcins-
dóttur it)}. lilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli alriða. Óskalög sjúklinga kl.
10.25: Kristin Sveinbjörnsdóttir
kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 Út og suður. Asta R. Jóhannes-
dóttir og Hjalti Jón Sveinsson sjá um
síðdegisþátt með blönduðu efni.
(16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir).
17.30 Tveir fyrir Horn og Bangsi með.
Höskuldur Skagfjörð flytur síðari
hluta frásögu sinnar at Hornstranda-
ferð.
18.00 Tónlcikar. Tilkvnningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fróttir. Fróttaauki. Tilkvnningar.
19.35 Fjaðrafok. Þáttur i umsjá Sigmars
B. Haukssonar.
20.00Óperutónlist: bættir úr „Keisara og
smið" eftir Lortzing. Söngfólk: Hildc
Gdden, Eberhard Wáchter, Oskar
Czerwenka, Valdemar Kmett og Fritz
Muliar. Kór Vínaróperunnar syngur
með hljómsveit Alþýðuóperunnar I
Vin . Stjórnandi: Peter
Ronnefeld.
20.40 Sumri halltr. Bessí Jóhanncsdóttir
tekursaman þátt meðblönduðu cfni.
21.10 Slavneskir dansar op. 72 eftir
Dvorák. Útvarpshljómsveitin í
Miinchen leikur; Rafael Kubelik
stjórnar.
21.40 „Týnda brófið", smásaga eftir Karel
Capek. Hallfreður örn Eiríksson
islenzkaði. Karl Guðmundsson leikari
les.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
23.55 Fréttir. Dagskrárlok.