Dagblaðið - 30.04.1977, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 30.04.1977, Blaðsíða 1
i i i i i i -3. ARG. — LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1977. —97. TBL. RITSTJÓRN SlÐUMÚLA 12, AUGLÝSINGAR ÞVERHOLTI 11, AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2 — AÐALSlMI 27022 Þyriumennimir höfðu geng- ið 12 km frá þyrluflakinu - Vélin fannst í Mælifelli NNA í Mýrdalsjökli Björgunarsveitin Víkverji frá Vík í Mýrdal kom að flaki þyrlunnar TF-AGN um klukk- an tvö í gærdag. Hún var í svokölluðu Mælifelli sem er norðnorðaustan til í Mýrdals- jökli. Um svipað leyti tilkynntu aðrir menn úr Víkverja að þeir hefðu fundið flugmennina. Þeir voru báðir látnir. Ernst Gíslason, sem stjórnaði víðtækri leit bæði úr lofti og á landi, kvað mennina, Ásgeir Höskuldsson og Jón Heiðberg, hafa fundizt í um það bil tólf kílómetra beinni línu frá flaki þyrlunnar. Þeir höfðu gengið þá vegalengd í mótvindi. Ernst var ekki kunnugt um hvort lík þeirra hefðu verið sködduð. — Þeir voru saman er þeir fund- ust. Hann kvað Víkverjamenn hafa farið upp Skaftártungur og átt að ganga yfir Mælifells- sand og sameinast öðrum leitar- flokkum sem voru þar fyrir vestan. Áður en til þess kom gengu þeir fram á brak þyrl- unnar. Hún hafði brotlent á flatlendi og brakið dreifzt yfir um 150 metra svæði. Rann- sóknarnefnd flugslysa kom á slysstaðinn með þyrlu frá varnarliðinu um klukkan 18 í gær. Skömmu áður flugu blaða- menn Dagblaðsins yfir slysstað- inn. Flugmaður var Guðmund- ur Hilmarsson frá Flugstöð- inni. Hann hafði nóttina áður verið á lofti á þessum slóðum I nokkrar klukkustundir í von um að sjá ljós —en án árangurs. Miklum erfiðleikum var bundið að finna flakið úr lofti, jafnvel þó að staðsetning hafi verið gefin upp. Margir hafa velt þvi fyrir sér hvers vegna TF-AGN hafi ekki haft sjálfvirkan neyðarsendi um borð. Slíkir sendar hafa áður komið að góðu gagni svo hægt sé að ganga fram á flug- vélar í nauðum. Ernst Gfslason upplýsti Dagblaðið um að ekki væri skylt að hafa neyðarsenda í þyrlum og svifflugum. ' Af slysstaðnum í Mælifelli norðnorðaustan Mýrdalsjökuls. Farið er að skafa yfir brak þyrlunnar. Skammt frá henni standa menn úr Björgunarsveitinni Víkverja í Vík. DB-myndir Sveinn Þormóðs- son. Nokkra kílómetra frá siysstaðnum voru nokkrir björgunarmenn á ferð með lík mannanna tveggja. Þeir fórust Mennimir tveir, sem fórust mefl þyriunni TF- AGN, hétu Ásgeir Höskuldsson og Jón Heiflberg. Ásgeir Höskuldsson var búsettur í Reynilundi 1 7. Garflabæ. Hann var faeddur þann 16. desember 1932. Hann lætur eftir sig eiginkonu og þrjú böm. Ásgeir var eigandi þyrlunnar TF-AGN. Jón Heiflberg var búsettur afl Amarhrauni 16. Hafnarfirfli. Hann var fæddur 25. júní 1950. Jón var ókvæntur en lætur eftir sig eitt bam. Þeir Jón og Ásgeir hugflust á mánudaginn fljúga afl Fossi á Síöu og síflan til Vikur í Mýrdal og taka þar mann. Þeir þrir ætluflu siflan afl fara til veifla. Á miflvikudaginn, er þriflji maflurinn kom til Roykja- víkur, kom í Ijós afl þyrlan haffli aldrei komifl fram. Vífltæk leit var þegar skipulögfl. AJIs tóku um 400 manns þátt i henni i gær. -ÁT- Reynt að bjarga þriðju þrónni með styrkingu Það er allt gert sem hægt er til þess að afstýra frekara tjóni en orðið er í Kísiliðjunni við Mývatn. 1 gær var byrjað að ýta að veggjum einu þróarinn- ar sem eftir stendur við verk- smiðjuna, ekki sízt í því skyni að forða verksmiðjunni undan vatnsflaumnum ef þróin brysti. Smásprungur hafa myndazt í veggi hennar og er ennþá mikil hætta á að hún fari sömu leið og hinar tvær. Skrifstofuhúsið -heldur áfram að springa en stendur þó. I allan gærdag héldu jarð- skjálftakippirnir áfram í Námaskarði og í Reykjahlíðar- hverfi. Að sögn Oskars Þórðar- sonar á skjálftavaktinni voru þeir 4—5 á mínútu, en Oskar taldi styrk þeirra eitthvað hafa minnkað. Hitaveitan til Reykjahlíðar brást aftur um hádegisbilið í gær, en aftur tókst að gera við hana undir kvöld. Rafmagns- og símalinur voru í hættu og simalínan til Kísiliðjunnar slitnaði, en símasamband komst aftur á i gærkvöld. Mikið landsig hefur orðið i Námaskarði og eins hefur botn Mývatns haldið áfram að lækka. Við Kröflu er allt með kyrrð og spekt. Þar segjast þeir varla merkja skjálfta. Gufan úr þeim holum sem þar hafa verið virkar hefur ekkert breytzt að sögn verkfræðinga. -ASt. §§|§ Þann 1. maí, eða á morgun, gengur hins vegar i gildi reglugerð þess efnis að allar flugvélar skuli hafa neyðarsendi. Ernst sagði að búið hafði verið að panta sendi í TF-AGN. -ÁT- Fyrirtæki ráð- herra „smaugí gegn” — baksíða Brennivíns- kassihvarf — nemendur neyddir tii að gangast undir fingrafararannsókn — bls. 4 Hættuað reykja - fóru að trimma -bls.7 „Sýslunefnd- arhret”á Seyðisfirði — bls. 6 Ræður á báta — sem róa við Persaflóa — bls.4 • Portisch —í sviðsljósinu en ekki stærsta Ijósgeislanum! — Sjá skákþátt blaðsins á bls. 8-9 A-

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.