Dagblaðið - 18.05.1979, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 18.05.1979, Blaðsíða 13
DAGBLADID. FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 1979. 13 Lúðvík Guðmundsson, stofnandi MHÍ, virðist eftir öllum sólarmerkj- um að dæma hafa verið hinn mesti forkur. Ekki veit ég hvaðan honum kom áhugi á sjónmenntum, en víst er að eftir skólastjórn á Hvítárbakka og á Ísafirði ræðst hann i það að stofna Handíðaskólann árið 1939 — þá á miðjum aldri. Sama sumar hafði hann leitað fanga í Þýskalandi og fundið mann sem var honum að skapi, Kurt Zier. Ekki veit ég heldur hvað Zier gekk til — manni sem hafði reynslu af stórum listaskólum í heimalandi sínu og Svisslandi — að ráðast til starfa hér uppi á klaka. Allt um það byrjuðu þeir Lúðvík og Zier í fjórum kjallarastofum að Hverfis- götu 57. Á flækingi Þaðan lá leiðin í Stýrimannaskól- ann við Öldugötu, síðan á Grundar- Úlskurður eftir Kurt Zier. stíg 2A, svo að Laugavegi 118, síðan aftur á Grundarstíginn, síðan i stuttan tíma í gamla Iðnskólann við Vonarstræti og loks tókst MHÍ að komast í varanlegt húsnæði að Skip- holti 1 á því herrans ári 1956. Kennslan árið 1939 hófst með tveim námskeiðum í leikfangagerð og varð hún regluleg árið 1940 með kennslu í tré- og málmsmíði ásamt teikningu. Kennarar voru þá aðeins tveir, þeir Zier og Lúðvik. Nemendur hafa verið u.þ.b. ein tylft. Á þessu ári voru nemendur alls hátt á sjöunda hundrað, með námskeiðum. Kennar- ar voru á sama tíma yfir fjörutíu, fastráðnir og lausamenn. Samt eru margar greinar sjónmennta útundan og þar er kannski tilfinnanlegastur l extíldeild liggur ekki á liði sinu. skorturinn á skúlptúrkennslu. Staða islensks skúlptúrs í dag hlýtur að ein- hverju leyti að vera afleiðing þeirrar ávöntunar. Leikmyndagerð þyrfti einnig að kenna að staðaldri, svo og fatahönnun, guUsmíði, húsgagna- teiknun og almenna iðnhönnun. En þær greinar kalla svo aftur á aukið og bætt húsnæði. En litum í staðinn á það sem skólinn hefur megnað að gera. Skipt sköpum Nær allir yngri myndlistarmenn okkar hafa stundað þar undirstöðu- nám, myndlistarkennarar hafa lang- r umar SKUiason — Mynd, lt*7V. er ég hræddur um að við lendum i ógöngum. Ég minnist þess þegar bandaríski listamaðurinn Rauschen- berg varð að hætta að brúka mynd af Kennedy í samsetningum sinum þar eð hún vakti svo sterkar tilfinningar í brjósti áhorfenda að röskun varð á heildarinntaki þeirra. Ómar gæti þurft að glíma við svipuð vandamál á komandi árum. En þetta er umfram allt hressandi sýning og sannar að Ómar stendur ekki kyrr í kúnstinni. Vinna teiknikennaradeildar 1 flestir útskrifast þaðan og þar var lagður grunnur að íslenskri auglýs- ingahönnun og nú síðast, — að textíl. Skólinn hefur skipt sköpum hvað snertir íslenska grafík og hefur haft úrslitaþýðingu í þróun keramikur á landinu. Þar hafa nýrri hræringar innan myndlistar einnig verið ræddar og krufnar til mergjar. En kennarar hafa held ég ávallt gert sér grein fyrir þvi að fjögurra ára skóli gerir vart nema að leggja undirstöðuna að list- námi og hafa stöðugt hvatt nemendur til framhaldsnáms erlendis og hefur MHÍ þannig stuðlað að innflutningi nýrra hugmynda á mörgum sviðum. Vorsýningar myndlistarskólanna eru breytilegar frá ári til árs. Árgangar eru misjafnir, eins og gengur og gerist' — og kennarar sömuleiðis. Kannski er varasamt að vera að ræða nemendavinnu yfirleitt, en þó finnst mér rétt að geta um nokkra þætti MHÍ sýningarinnar. Gróska í grafík Athyglisvert finnst mér t.d. hve mjög málverkið hefur hneygst yfir í hlutbundna túlkun og má greina ný viðhorf í fæðingu í þeirri deild. Frá því fólki sem nú stundar nám í deild- inni má vænta einhverra tiðinda á komandi árum. Sérstök gróska virðisl nú ríkja í grafík skólans, sem sjálfsagt má rekja til ólíkra en at- kvæðamikilla kennara og sýna nokkrir nemendur þar óvenju þrosk- aða vinnu. Keramík er falleg og fjöl- breytt og barnavinnan hugmyndarík. Ekki fer mikið fyrir fjölbreytni í að- ferðum og verkefnavali í nýlistadeild og hlýtur brátt að koma að því að menn hvíli myndavélarnar. Þeir ný- listamenn frumsýndu samt nýja og afar langa kvikmynd um Einar Guð- mundsson skáld á opnunardegi. Það var einnig vel við hæfi að setja upp litla sýningu til heiðurs Kurt Zier inn- an skólasýningarinnar. Hún er engan veginn tæmandi og reyndar læðist að manni sá grunur að betur hcfði máti standa að hcnni. Fjölhæfur f römuður Zier lagði gjörva hönd á margt — var liðugur teiknari og málari, skar í tré og gerði grafik. List hans er af cx'- pressjóníska skólanum, eins og vænta mátti, og sterkir litir og þungar áherslur ráða ríkjum i verk- um hans. Merkilegt nokk, þá eiga þeir samleið í listinni á köllurn Guð- mundur Einarsson frá Miðdal og Zier. En öll meiri háttar umfjöllun um Zier og list hans verður að bíða betri tíma og yfirgripsmeiri sýningar á verkum hans. Þáer ekki annaðeftir en að óska skólanum til hamingju og velfamaðar á komandi árum. Það er engin hætta á öðru en að honum tak- ist að axla þá ábyrgð sem á honum hvilir, hvernig sem sljórnvöld munu haga sér. vandaðaðar vörur Verkfæra- kassar Eins, þriggja og fimm holfa Afar hagstætt verð. She Heildsolubirqðtr: Smavorudeild Simi: 81722 vandaðaðar vörur Hleðslutæki 6,12 og 24 volta. Margar gerðir. Oliufélagið Skeliunqur hf i_r Skeljungur hf Shell Heildsölubirgðir: Smávörudeila Sími: 81722 Aðalfundur Sölusambands íslenzkra fiskframleiðenda verður haldinn í hliðarsal Hótel Sögu fimmtu- daginn 7. júní nk. og hefst kl. 10 árdegis. Dagskrá samkvæmt félagslögum. Lagabreytingar. Stjórn Sölusambands íslenzkra fiskframleióenda KENNARAR! Nokkrar almennar kennarastöður eru lausar við grunnskóla Akraness. Um- sóknarfrestur er til 1. júní. Skólanefnd Akraness. Kvartmíluklúbburinn Starfsmenn og sýningaraðilar á bílasýningu Kvartmíluklúbbsins eru beðnir að halda til haga sýningarpössum sínum vegna vœntan- legs hófs sem Kvartmíluklúbburinn mun halda fyrir starfsfólk og sýnendur eftir fyrstu kvartmílukeppnina 20. maí. Verður hófið

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.