Dagblaðið - 23.04.1980, Blaðsíða 1
J
6 ÁRG. — MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 1980. — 93. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTl 11,—ADALSÍMI 27022.
„EKKIMOGULEIKIA ,
SKA TTALÆKKUNUM NU”
- segir forsætisráðherra við tíllögum Verkamannasambands og vinnuveitenda
„Það er auðvitað ákaflega
æskilegt að geta lækkað skatta, en
það er ekki möguleiki á því nú,”
sagði Gunnar Thoroddsen forsætis-
ráðherra í viðtali við DB í morgun.
Verkamannasambandið og Vinnu-
veitendasambandið mælast til þess,
að hnúturinn i kjarasamningunum
verði leystur meðskattalækkunum.
Forsætisráðherra sagði, að á þeim
nauma tíma sem ríkisstjórnin hefði
haft til að ganga frá fjárlögum, hefði
ekki verið unnt að koma við miklum
niðurskurði. Að þvi yrði unnið í
sumar.Þá sagði forsætisráðherra, að
hann teldi eitt meginatriðið i
stjórnarstefnunni vera að koma ríkis-
sjóði á réttan kjöl og að hann yrði
rekinn hallalaust.
Um þríhliða viðræður i kjara-
málum sagði forsætisráðherra, að
ríkisstjórnin hefði enn ekki tekið
ákvörðun um, hvenær hún kæmi inn
í. Ríkisstjórnin hefði talið eðlilegast,
að vinnuveitendur og launþegar
ræddu rækilega saman fyrst. Ríkis-
valdið yrði vafalaust að koma til sögu
síðar eins og oft hefði verið.
Tómas Árnason viðskiptaráðherra
sagði í viðtali við DB í morgun, að
mikilvægt væri að ræða vandamálin'
við aðila vinnumarkaðarins á breið-
um grundvelli. Þar væri ekki æskilegt
að taka einn þáttinn út. Viðskipta-
ráðherra sagði, að sér teldist til að
skattheimtan yrði í ár 28,1% af
þjóðarframleiðslunni, sem yrði
minna en hefði verið á árunum
1975—78, þegar skattheimtan hefði
að meðaltali verið yfir 29%. -HH
„Ferslysið
líkaáokkar
reikning?”
— segja smiðir þeir sem
fyrstirvöktuathygli
á slæmum aðbúnaði
vidhúsFramkvæmda-
stofnunarinnar
,,Við erum óhressir með að Grétar
Þorsteinsson hjá Trésmiðafélaginu
skuli segja að ekki hafi borizt kvört-
un vegna aðbúnaðar á þessum vinnu-
stað. Grétar vissi vel um það, bæði
vegna þess að við vorum búnir að tala
við hann og eins eftir að frétt unt
aðbúnað þarnabirtist i Dagblaðinu,”
sögðu þeir Eyvindur Bergmann
Reynisson, Ragnar Kristjánsson og
Þorgeir Már Einarsson i samtali við
DB. Þeir þrir, ásamt fjórða manni
sögðu frá aðstæðum við hús Fram-
kvæmdastofnunarinnar í Dagblaðinu
sl. fimmtudag.
„Við erum mjög hissa á að eftir
þessi skrif skyldi ckkert vera gert i
öryggismálum á staðnum. Það þarf
alltaf að verða slys til að eitthvað sé
gert. öryggiseftirlitið kom á þennan
vinnustað þegar fyrsta hæðin var í
smíðum. Það er ekki ennþá búið að
lagfæra það sem þá var sett út á.
Okkur er því spurn hvort öryggis-
eftirlitið fylgist ekki með því sem á að
gera.
Eins erum við óhressir með svar
það sem Þórir Haraldsson hjá Bygg-
ingarfélaginu Reyni gaf blaðinu. En
hann sagði að það yrði að fara á
okkar reikning ef við segðum að
öryggi væri þarna i lágmarki. Hvað
segir hann nún t? Okkur finnst það
iíka hálf furðulegt að formaður okk-
ar félags skuli rengja okkar málstað,
en það gerir hann tvimælalaust í
greininni. Við höllumst helzt að þvi
að hann hafi einhverra hagsmuna að
gæta hjá þessu byggingarfélagi. Það
virðist vera að atvinnurekendnr geti
komizt upp með hvað sem er og þeir
láti líf manna sig engu skipta. Kann-
ski þetta vinnuslys fari lika á okkar
reikning,” sögðu smiðirnir þrír,
Eyvindur.Ragnar og Þorgeir.. KI.A
Dagblaðið sendir lesendum sínum óskir um
gleðilegt sumar
og þakkar fyrir veturinn
Aðalf undur Flugleiða
á mánudag:
Tap Flug-
leiða nær
6,9 millj-
arðar kr.
Bókfært tap Flugieiða á sl. ári nam
tæpum 6,9 milljörðum króna, eða
nákvæmlega 6.896.140.000 króna.
Að sögn Björns Theódórssonar, fjár-
málastjóra Flugleiða, í morgun liggur
þessi tala fyrir í reikningum félagsins
fyrir aðalfund sem verður á mánu-
dag.
Svo sem landsmönnum er kunnugt
hefur félagið átt við mikla rekstrar-
örðugleika að stríða að undanförnu,
sem leiddu til stórfelldra uppsagna
starfsfólks og fækkunar ferða. Mcð
tilkomu sumaráætlunar hafa þó all-
margir verið ráðnir aftur til Flugleiða
og ferðum fjölgað. Mest tapið hefur
verið af N-Atlantshafsflugi Fiug-
leiða.
Til samanburðar við hið mikla tap
nú má nefna, að útkorna ársins 1978
var hagstæð og nam hagnaður þess
árs 369.727 milljónum króna. Þcss
ber þó að geta i sambandi við þessa
tölu, að félagið missti það ár DC-8
þotu og komu tryggingabætur á móti
tapi, sem ella hefði orðið. -JH
Útvarpsum-
ræðunum
enn f restað
Að ósk stjórnarandstöðunnar
hefur útvarpsumræðum um
tekjuskattinn verið frestað til
mánudagskvölds.
Stjórnarandstæðingum leizt ekki
á þann tima, sem útvarpið ætlaði
fyrir umræðurnar, sem var milli hálf-
fimm og hálfsjö, í dag. Stjórnarand-
stæðingum þótti þetfa lélegur
hlustunartimi.
Þeim leizt heldur ekki á hugmynd
um að hafa umræðurnar i kvöld, þar
sem menn gerðu sér gjarnan daga-
mun á kvöldi síðasta vetrardags.
Föstudagskvöldið var ekki talið
mögulegt, þar sem ekki stóð til að
hafa þingfundi þann dag.
Fulltrúar þingfiokkanna urðu
sammála um að hafa umræðurnar á
mánudagskvöld. Ragnar Arnalds
fjármálaráðherra var veikur i gær en
reiddist, þegar hann frétti um
frestunina. -HH.
A