Dagblaðið - 28.04.1980, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 28.04.1980, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. APRÍL 1980. DB á ne ytendamarkaði Matarkaupin um 30% af einkaneyzlunni Við höfum (ekið saman súluril yfir meðaltalskostnaðinn við matar- og hreinlætisvörukaup þeirra kaupenda DB sem sent hafa upplýsingaseðla frá þvi að Neytendasíðan hóf göngu sina á miðju ári 1978. — Fyrstu seðlarnir komu fyrir júlímánuð 1978. Þá var meðaltalskostnaðurinn tæplega 20 þúsund kr. á mann, eins og sjá má á súluritinu. í síðasta mánuðinum sem sjá má á ritinu, febrúar 1980, er þessi sami kostnaður rúml. 36 þúsund kr. á mann. Það er um það bil 80% hækk- un á tímabilinu. Dýrasti mánuðurinn á þessu timabili er hins vegar desem- ber sl. sem fór upp úr öllu valdi, eða upp i tæplega 42 þúsund kr. á mann að meðaltali. Eyðslan varð minni i janúar en „náði sér aftur á strik” i febrúar. Eftir öllum sólarmerkjum að dæma, eftir þeim seðlum fyrir marz sem þegar hafa borizt, verður marzmánuður talsvert miklu hærri en febrúar. 42 Væri ekki úr vegi fyrir landsfeð- urna að athuga þetta meðaltal áður en þeir ákveða hver persónufrádrátt- urinn á að vera. Hafa ber í huga að matarkaup eru um það bil 30% af einkaneyzlu samkvæmt upplýsingum frá þjóðhagsstofnun. Það er því drjúgt af útgjöldum eftir þegar búið er að kaupa matinn ofan i sig og ýmislegt fleira sem þarf til að fram- fleyta sér og fjölskyldu sinni en matur og hreinlætisvörur. - A.Bi. Súlurit yfir meðaltalskostnað við matar- og hreinlætisvörukaup frá júlí 1978 til febrúar 1980. Hækkunin á milli þessara tveggja mánaða er um 80%. Ef hins vegar er miðað við júlí 1978 og desember 1979, sem er lang- dýrasti mánuðurinn, er hækkunin hvorki meira né minna en 110%. Töl- urnar á súluritinu eru þúsund kr. á mann á mánuði en mánuðirnir eru auðkenndir með upphafsstöfum sin- um neðst á myndinni. DB-rit (j.Bj. 47 40 39 — 38 37 3í 35 34 33 ■ 1 — i 32 31 30 29 28 :— —.- 27 26 25 24 - - 23 22 21 —• 20 19 18 1' kr á J 'A s 0 N | D V A M J J 'A S 0 N D J F Raddir neytenda Gef ur visst aðhald að sjá útgjöldin svart á hvítu — segir húsmóðir sem er með rúml. 42 þús. kr.ámannímarz „Ég sendi núna inn kostnaðinn i marz sem er rúml. 42 þúsund kr. á mann,” segir i bréfi frá húsmóður i litlum bæ á Vestfjörðum. „í þessu eru hreinlætisvörur sem keyptar eru i pöntunarfélagi, sem ég er i, og nokkuð af matvöru. En sanit eru þetta býsna háar tölur. í febrúar var ég 3.512 kr. hærri en meðaltalið. Ég er sennielga mesta eyðslukló. Dálkurinn „annað” í marz er upp á rúml. 500 þús. kr. þannig að allur mánuðurinn leggur sig á 739.517 kr. — I dálkinum „annað” er m.a. pöss- un á börnum upp á 35 þús., árs- hátiðir á 45 þús., skattskýrsla 25 þús., kerra á 55 þús., fasteignagjald á 32 þús., rafmagn á 44 þús., bensín á 28 þús. og margt fleira smátt sem gerireitt stórt. Mér finnst ofsa fróðlegl að taka þctta svona saman. Þá verður manni hugsað út i hvað af þessu hal'i nú verið þarft og hvað óþarft. Með þessu er ég ekki beint að segja að heintilisbóhaldið minnki óþ’arl'- ann hjá okkur og að við spörunt nteira en samt lield ég að það gcfi vissl aðhald að sjá þetta svona svart á hvitu. Ég vil nota tækifærið og þakka uppskriftirnar og allt annað fróðelgt og skcmmtilegt. Bless þangað til i næsta mánuði.” Páskalömbin komust ekki á borð danskra — vegna skæru- verkfalla hjá Irma Skæruverkföll hjá dönsku verzlanakeðjunni Irma komu í veg fyrir að danskir neytendur fengju að smakka á íslenzku páskalömbunum, sem alin voru sérstaklega fyrir danskan markað nú i vor.nema að mjög litlu leyti. Hluta sendingarinnar varð því að frysta og fékkst þess vegna ekki endanleg niðurstaða tilraunarinnar, þar sem ekki fékkst með álit neytenda. — Búvörudeild Sambandsins, sem stóð fyrir út- fiutningnum, fékk hins vegar umsamið verð scm var um 40 þúsund isl. kr. fyrir hvern skrokk. Hjá Gunnlaugi Björnssyni, aðstoðarframkvæmdastjóra búvör- udeildar SÍS, fengum við uppgefið á hvaða verði danskir neytendur kaupa venjulegt íslenzkt lambakjöt. Þeir greiða sem svarar 3.892 kr. ísl. fyrir kg af lærissneiðum (kosta 2.688 kr. hér),*kg í heilu læri kostar 2.886 kr. þar en 2.251 kr. hér, kg í hálfu lambi kostar þar 2020 kr. en kostar 1809 kr. kg hér í hcilum skrokkunt. -A.Bj. Matreiðslumennirnir á Hótel Sögu eru þama að „hantéra” páskalömbin en gestum var boðið að smakka á góðmetinu. Boðið var upp á þrjár mismunandi teg- undir af lambakjöti. Fyrir utan nýslátruðu páskalömbin var boðið upp á kjöt at veturgömlu og venjulegt lambakjöt frá þvi i haust. Páskalambið og það vetur- gamla fengu jöfn atkvæði gesta en mörgum kom saman um að páskalambið hefði verið full feitt. En það er auðvitað smekksatriði hvort menn vilja feitt kjöt eða ekki. DB-mynd Bjarnleifur. GARÐSHORN Blómstrandi runnar Á ári trésins, eins og er i ár, er auðvitaðfyrstog fremsl rekinn áróður fyrir ræktun trjáa. Ekki er þó úr vegi að minnast á blómrunna. Þeir eru til mikillar prýði í hverjum garði og má not á marga vegu. Auk þess að margar tegundir má nota i gerði, bæði klippt og óklippt, eru blómrunnar víða ræktaðir stakir eða í smáþyrpingum. Þeir gera mjög misjafnar kröfur til jarðvegs og viðurværis en flestir eiga það sameiginlegt að þeir þurfa skjól. Eftir að búið er að planta limgerði og skjólbelti er athugandi að gróðursetja nokkra runna til að auka fjölbreytnina. Það má gera á marga vegu, t.d. í sérstökum runnabeðum. Getur þá verið skemmtilegt að planta blómlaukum á milli til að lengja blómgunartímann. Einnig má hafa þá innan um fjölærar plöntur, sem blómstra, eða sem staka runna i gras- flötinni. Þar sem aðeins er mjór forgarður úti við götu getur verið hagkvæmara að planta runnum en blómum. Til eru margar tegundir, sem blómgast frá þvi snemma á vorin og langt frani á haust. Þeir eru til i öllum slærðargráðum, sumir skríða með jörðinni og aðrir geta náð nokkurra metra hæð. Það yrði of langt mál að telja upp einstakar tegundir en visa má til skrúðgarðabókar og garðyrkjurits, þar sem taldar eru upp flestar þær tegundir sem hægt er að rækta og nánari leiðbeiningar gefnar um ræktun. -H.L. Einstæð móðir byggiryfirsig Á.J., i litlu þorpi á Norðurlandi, skrifar: „Þetta er i fyrsta skipti, sem ég sendi seðil. Ég er einstæð (fráskilin) móðir með tvö börn i grunnskóla. í sumar flutti ég í nýtt hús, sem ég er að byggja. Í liðnum „annað” eru greiðslur af láni, vbcill, fasteignagjöld og önnur opinber gjöld. í mánuðinum keypti ég kjötskrokk.” Þessi einstæða móðir er með meðaltalsútgjöld upp á 44.934 á mann. í liðnum annað eru útgjöldin 405.165 kr.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.