Dagblaðið - 17.02.1981, Blaðsíða 28

Dagblaðið - 17.02.1981, Blaðsíða 28
Gífurlegt tjón á höfuðborgarsvæðinu: Þakplötur eins og skæða- drífa—bflamir í hrúgur — líki þessu ekki við neitt nema Vestmannaeyjagosið, sagði lögreglumaður íReykjavík „Ég hef aldrei séð annað eins,” sagði lögreglumaður í Árbæjarstöð lögreglunnar i Reykjavik í morgun. „Þakplötur fuku eins og skæðadrífa, bílar fuku saman í hrúgur, engum var stætt og fólk skreið á fjórum fótum. Stanzlaus útköll voru hjá lögreglunni og björgunarsveitum, sem voru i alla nótt að bjarga fólki og eignum. Tjón- ið er svo gífurlegt og viðtækt að ekki hefur verið nokkur leið að sinna t.d. bílatjóninu. Ég get ekki likt þessu við neitt annað en gosið í Vestmannaeyj- um.” „Ég er í raun og veru hissa á því að ekki skyldi verða manntjón í bænum, þakplöturnar fuku um allt eins og skæðadrífa,” sagði Arnþór Ingólfs- son aðalvarðstjóri í Reykjavikurlög- reglu.,.Kallaðar voru út hjálparsveit- ir og viðbótarlögreglulið, ástandið var skelfilegt.” Ekki er hægt að gera sér grein fyrir tjóninu, sem varð á höfuðborgar- svæðinu í óveðrinu i gærkvöldi og nótt, en ljóst er að það er gifurlegt. Veðurhæðin var gifurleg og verst var ástandið í Árbæjar, og Breiðholts- hverfum þar sem þakplötur hreinlega sópuðust af húsum. í miðborginni má sem dæmi taka, að þakplötur fuku af verzlunarhúsi Víðis i Austur- stræti, Fjalakötturinn laskaðist, og hluti af þaki fauk af Iðnaðarbankan- um. Á Seltjarnarnesi fauk þak af ibúðarhúsi á Skólabraut í heilu lagi. Þá fauk uppslátturinn að barnaheimilinu við Hnitbjörg og þakið fauk að miklu leyti af fæðing- ardeild Landspítalans. Þá fuku plötur af Borgarspitalanum og húsum á víð og dreif um borgina. Þrjár vaktir voru kallaðar út til starfa hjá slökkviliðinu og unnu 40 manns þar í alla nótt við hjálparstörf. Margir lögreglumenn, sem eiga öfl- uga jeppa lögðu þá fram til starfa. Tjón varð í smábátahöfninni í Elliða- vogi, hesthúsum i Viðidal. „En það er guðs mildi hve fólk hefur sloppið vel,” sagði einn lögreglumaðurinn i Df>vVÍ9vít í mnronn. -.1H. Geysilegt tjón varð á fleiri hundruð bílum hér í Kópavogi, sagði varðstjóri Kópavogslögreglunnar í morgun. Bil- arr.ir eru allt frá því að vera Iítið skemmdir og upp í ónýtir. Þá urðu skemmdir á fleiri tugum húsa, þök fuku, plötur voru eins og skæðadrífa, raflínur slitnuðu og gler brotnaði í gluggum. Slys urðu þó ekki alvarleg á fólki, 3—4 fluttir i slysadeild skornir eftir gler. Trúlega hefur mesta tjónið orðið á Víghólaskólanum, en þar fauk meiri parturinn af þakinu og rúður brotn-. uðu. Mjög slæmt ástand var við háu blokkirnar við Engihjalla, bílar í bendu og drasl fjúkandi á þá. -jh. ] Mikill viðbúnaður almannavarna, lögreglu og björgunarsveita: Þúsundir við björgunarstörf Tilkynning frá Veðurstofu þess efnis að í uppsiglingu væri fárviðri um sunnanvert, suðvestanvert og vestanvert landið barst Almanna- vörnum rikisins laust fyrir kl. 19 í gærkvöldi, að sögn Hafþórs Jóns- sonar, fulltrúahjáAlmannavörnum. Stjórnstöð Almannavarna var þegar opnuð, viðvörun send tafar- laust til útvarps og sjónvarps og at- hygli almannavarnanefnda á hættu- svæðinu vakin. „Upp úr kl. 20 var veðrið orðið þannig að sýnt þótti að kalla þyrfti út meiri háttar hjálparsveitalið til að sinna brýnustu hjálparverkefnum,” sagði Hafþór. „Almannavarna- nefndir byrjuðu aö kalla út hjálpar- sveitir og um kl. 22 voru þær komnar tilstarfa.” Voru þúsundir manna við björg- unarstörf víða um land í gærkvöld og nótt.. „Erfitt var að ná þeim saman vegna álags á síma. Gífurlegt álag var á simakerftnu og var það meira og minna vandamál á öllu svæðinu. Útvarpið var því notað til að boða út hjálparsveitir. Þær sinntu aðallega brýnustu skyndiverkefnum, að. byrgja fyrir brotnar rúður og hefta fok lausra muna,” sagði Hafþór. Lögreglan i Reykjavík sinnti 260 útköllum frá kl. 20 í gærkvöldi til 3 í nótt. Á sama tíma bárust um það bil 200 hjálparbeiðnir til Almannavarna. Veðrið fór að ganga niður um 2- leytið í nótt og um 4-Ieytið var ástand orðið það skaplegt i Reykjavik að ákveðið var að fresta aðgerðum þar fram i birtingu. . KMU Þetta var algeng sjón i nótt: bílar fuku eins og hráviði út af götum og víða mátti sjá marga saman. Hundruð bíla skemmdust i Kópavogi einum og annað eins í Reykjavik. DB-mynd: S. Kópavogur: FLEIRIHUNDRUÐ BÍLAR SKEMMDIR 0G TUGIR HÚSA frfálst, úháð dagblað ÞRIÐJUDÁGUR 17. FEB. 1981. Grfurlegttjón á Suðurlandi: Gróðurhús brotnuðu og þökfuku — en hvergi vitað um slys eða mannskaða „Ég veit hvergi um mannskaða eða slys á fólki en það er ljóst að mikið tjón hefur hlotizt á mannvirkjum i þessum veðurofsa,” sagði Jón Guðmundsson yfirlögregluþjónn á Selfossi. „Á Sel- fossi fuku fáein þök eða þakhlutar. Víða fóru plötur af húsþökum, talsvert er um gluggarúðubrot og ótalinn fjöldi bíla fauk til með ýmsum afleiðingum,” sagði Jón. Þessa sömu sögu sagði Jón að mætti segja frá öllu Suðurlandi. Hann vissi um þak á Stokkseyri sem fokið hafði og þar sem annars staðar, t.d. á Eyrar- bakka og i Þorlákshöfn, hefði orðið mikið tjón af lausafoki og af veðurofs- anum. í Hveragerði varð mikið tjón í gróðurhúsum er gler brotnaði, en af- leiðingarnar eru langt frá því fullkann- aðar. Víða út um sveitir varð ýmiss konar tjón, m.a. fuku þök í heilu lagi. Víða voru sveitir björgunarmanna að Istörfum í allt gærkvöld og lengi nætur, t.d. í Þorlákshöfn, en á flestum stöðum urðu menn að fara varlega vegna slysa- hættu af fjúkandi hlutum húsa. Jón taldi að í hryðjum hefði veður- hæðin verið um 80 hnútar en 12 vind- stig jafngilda 63 hnútum. - A.St. Miklarvindhviður á Flateyri: Fór sjö veltur með bílnum — en slapp með skrámur í gærkvöldi, um tíuleytið, var starfs- maður á leið heim úr spennistöðinni á Flateyri. Ofsarok var og var hann að bíða af sér vindhviðu þegar hann vissi ekki fyrr til en bifreið hans tókst á loft og fór einar sjö veltur. Hann komst þó af sjálfsdáðum út úr bílnum, lítils háttar marinn en annars ómeiddur. Var það snjónum að þakka, sem hér er mik- ill. Fjórtán tonna vörubíll var sendur til að bjarga honum en minnstu munaði að hann fyki líka niður fyrir veginn. Bílstjórinn skellti sér þá upp fyrir veg- innogalltgekkvei. Hingað til Flateyrar hefur ekki komið mjólk í viku og er orðið algjört neyðarástand í- mjólkurmálunum. í gær voru allar tiktúrur um mjólk á fernum látnar lönd og leið og farið að selja mjólk á brúsum upp á gamla mát- ann. Á flugvellinum er mikill snjór og ivika síðan hingað hefur verið flogið. - IHH / ÞJT, Flateyri. Reyðarfjörður: Fjárhús fauk Fjárhús fauk á bænum Kolmúla við Reyðarfjörð i gærkvöldi. Tjón varð ekki á skepnum að því bezt er vitað. Brak úr húsinu dreifðist um nágrennið og braut meðal annars fjölda af rúðum í íbúðarhúsinu. Mjólkurbill sem staddur var. við bæinn fauk á hliðina út af veginum i einni hryðjunni. Bílstjór- inn hafði brugðið sér heim að bænum, en kom að fararskjótanum afvelta þeg- ar hann ætlaði að halda áfram ferð- inni. Ægir, Fáskrúðsfirði / ARH

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.