Dagblaðið - 08.09.1981, Blaðsíða 8
8
TVEGGJA WAGONEER-
JEPPA NÚ SAKNAÐ
-ödrum varstolið
sl. sunnudag ' H
Wagoneer-jepparnir eru báðir svipaðir þessum.
Svo virðist sem Wagoneer-jeppar
njóti vinsaslda hjá bílaþjófum um
þessar mundir. Tveggja bíla er nú
saknað og eru þeir báðir af
Wagoneer-gerð.
Fyrir utan R-5003 sem saknað
hefur verið síðan um miðjan júlí, er
nú leitað að Y-6983 sem er af árgerð
1973, blásanseraður, með hvítar
rendur á hliðum, á hvítum felgum og
breiðum dekkjum. Fiann er fjögurra
dyra. Jeppinn hvarf frá Borgartúni
24 sl. sunnudag og hefur ekkert tii
hans spurzt síðan.
R-5003 hefur nú verið týndur í
rúmar sex vikur. Hann er fjögurra
dyra, dökkbrúnn með ljósri innri
klæðningu, af árgerð 1974. Talið er
að sézt hafi síðast til hans á Sauðár-
króki um miðjan ágúst, en einnig
hefur lögreglan fengið ábendingar
um ferðir jeppans í Þingvallasveit.
Hvort samband sé á milli hvarfs
Wagoneer-jeppanna er ekki vitað.
Þeir sem geta gefið einhverjar upplýs-
ingar um hvar þá sé að finna eru
vinsamlegast beðnir um að tilkynna
það næstu lögreglustöð.
-KMU.
Tvö verkanna á veggjum vinnustofu Jóhannesar Kjarvals. Til vinstri 'er Lifsins ólgusjór og hitt er Sveitalif. Hinum megin við
dyrnar kemur svo Borgalif og á veggnum andspænis ólgusjónum er Atvinnulíf. DB-mynd: Einar Ólason.
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1981.
Heiðmörkin
líklega mesta
berjaland
þessasumars
Á stórum svæðum norðanlands hefur lítið
sem ekkert fundizt og það sem það var
, nu Ónytt af frostl sumar og hafa ekki sézt hér í neinum
Skjót athugun og fyrirspurnir um
berjasprettu í sumar leiðir það helzt í
ljós að íbúar á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu hafi notið hvað mestra berja
allra landsmanna. Fólk var mjög
ánægt með berjasprettuna í Heið-
mörk og hefur mikUl fjöldi fólks sótt
þangað og tint ber og sumir mikiö.
Þess veit DB dæmi að fólk tíndi 5
lítra af bláberjum, stórum og góðum,
á tiltölulega stuttum tíma í Heið-
mörkinni fyrir skemmstu.
Um helgina var fjöidi fólks enn við
berjatínslu þar og voru menn sæmi-
lega ánægðir með það sem þeir
fengu. Þó fannst á iaugardaginn að
berin höfðu orðið fyrir vægu nætur-
frosti og fannst þaö á bragði þeirra
og útliti.
Haft var samband við Stóra-Botn í
HvalFiröi og þar hafði fólk ekki af
berjum að segja. Þar er tínsla ekki
leyfð ,,enda er hér ekkert að tína”
sagði kona er fyrir svörum varð.
„Berin hurfu héðan eitt óþurrka-
mæli síðustu árin.”
Blaöamaður DB, sem í siðustu
viku dvaldi í Skagafiröi og Vatnsdal,
leitað allmikið berja og spurðist fyrir
um þau. Hvorki eigin leit né fyrir-
spurnir báru árangur.
,,Það er lítið um ber hér á Norð-
austurlandinu og það litla sem það
var hefur sennilega eyðilagzt í frost-
inu í nótt,” sagði berjavinkona DB á
Húsavík í gær. „Það var mikið frost
hér í nótt, það mikið að ekki hefur
þiðnað af pollum nú um hádegi á
mánudag.”
Þessi vinkona okkar sagði að ftnna
hefði mátt ber á stöku stað, en það
hefði bæði verið lítiö og smátt.
Nefndi hún tvo staði, efst í Svarta-
staðanúp (i Öxarfirði) og á Tjörnesi.
— Fyrst þessi berjakona okkar á
Húsavík hefur ekki komizt í ber er
óhætt að fullyröa að þau hafa ekki
verið nema sjaldgæf í grennd við
Húsavik.
Jakob og Þursarnlr í Eyjum
— tónleikar í samkomuhúsi staöarins
Þursaflokkurinn, sem á undan- hljómsveit Jakobs Magnússonar sem
förnu hefur verið á yfirreið um hefur skamma viðdvöl hérlendis á
landið, heldur hljómleika á morgun leið sinni til Evrópu. Vafalítið verða
kl. 21 i samkomuhúsinu i Vest- tónleikar þessir vel sóttir enda ekki á
mannaeyjum. Ekki aðeins munu hverjum degi sem jafnfærir hljóm-
Þursarnir koma fram heldur einnig listarmenn eru á ferðinni í Eyjum.SSv
Vinnustofa Kjarvals er sýnd á Kjarvalsstöðum
einn veggurinn er þó enn í viðgerð í Kaupmannahöf n
Það var einhvern góðan veðurdag á
árinu 1934 að Jóhannes Kjarval kallaði
til fólks á Austurvelli að hann hefði
opnað sýningu í vinnustofu sinni.
Hann var þá orðinn peningalítill og átti
ekki fyrir litum. Listaverkin sem hann
sýndi að þessu sinni voru máluð á veggi
vinnustofu hans.
Þrír af þessum fjórum veggjum eru
nú til sýnis í austursal Kjarvalsstaða.
Þeir komu til landsins úr viðgerð fyrir
þremur vikum. Verkin voru send til
listaverkaviðgerðaskóla Sten Bjernhof.
þar sem gerðar hafa verið á þeim
miklar endurbætur.
Vinnustofa Kjarvals var til húsa í
Austurstræti 12. Listasafn íslands fékk
húsið í arf og hafði við það makaskipti
við Framsóknarflokkinn. Guðmundur
Axelsson í Klausturhólum keypti síðan
listaverkin af erfingjum Kjarvals eftir
talsvert rifrildi milli þeirra og Fram-
sóknarflokksins um hverjum þau til-
heyrðu. Það eru Klausturhólar sem
standa fyrir sýningunni að Kjarvals-
stöðum.
„Vinnustofan er uppistaðan í þessari
sýningu,” sagði Halldór Runólfsson
hjá Klausturhólum þegar blaðamenn
litu við á Kjarvalsstöðum í gær.
„Einnig eru þarna myndir eftir
Jóhannes Kjarval frá þeim tíma sem
hann var með vinnustofuna í Austur-
stræti 12. Sömuleiðis sýnum við hér
myndir samtímamanna Kjarvals,
þeirra Blönals, Ásgríms og Jóns
Stefánssonar.”
Verkið sem Jóhannes Kjarval málaði
á veggi vinnustofu sinnar nefnist í heild
Lífshlaupið. Á veggjunum þremur,
sem eru sýndir á Kjarvalsstöðum nú,
eru fjögur verk. Þau kallast Lífsins
ólgusjór, Sveitalif, Borgalif og
Atvinnulíf.
„Á fjórða veggnum eru þrjú verk til
viðbótar,” sagði Halldór Runólfsson.
„Mér er ekki kunnugt um nöfnin á
þeim. Á einu eru víkingaskip en tvö
voru svo illa farin er þau voru send til
Sten Bjernhof í Kaupmannahöfn að
ómögulegt var að greina hvað var á
þeim.” Húsið hafði lekið og vatnið
skemmt verkin svona mikið.”
Sýningin í austursal Kjarvalsstaða
verður opnuð í dag klukkan tvö. Hún
verður opin í hálfan mánuð.
-ÁT-
Fögnum umræðu um
siðareglur lögmanna
—og jafnvel endurskoðun þeirra, segja eigendur
Lögheimtunnar
Lögmennirnir Ásgeir Thoroddsen og
Ingólfur Hjartarson hafa óskað eftir
birtingu á eftirfarandi athugasemd
vegna fréttar með fyrirsögninni „Hlutu
dóm og sekt fyrir brot á siðareglum
lögmanna” í Dagblaðinu sl. föstudag,
4. september:
,,í Dagblaðinu sl. föstudag er sagt
frá þv: að stjórn Lögmannafélags lsr
lands hafi fyrr á þessu ári kveðið upp
sektardóm yfir nýlegu fyrirtæki er lög-
mennirnir Ásgeir Thoroddsen og
Ingólfur Hjartarson stofnuðu til og
nefndu Lögheimtuna. Hafi dómurinn
verið kveðinn upp vegna þess að stjórn
Lögmannafélagsins taldi að auglýs-
ingar, sem umrætt fyrirtæki hafði sent
út í umburðarbréfum til fyrirtækja,
brytu i bága við siðareglur Lögmanna-
félags Isiands.
Vegna þessarar fréttar teljum við
rétt að skýra í nokkrum orðum frá
þeim ágreiningi sem orðið hefur milli
stjórnar Lögmannafélagsins og Lög-
heimtunnar hf.
Áskrrftarsími
Eldhúsbókarinnar
24666
ELDHÚSBÓKIN
Irevjuitötu 14
Með stofnun Lögheimtunnar h.f.
fyrir rúmlega ári síðan var farið inn á
nýjar brautir hér á landi í innheimtu
vanskilaskulda og annarrar innheimtu,
m.a. með notkun tölvukerfis. Þessari
nýjung Lögheimtunnar hefur verið
mjög vel tekið og nýta nú yfir 100 fyrir-
tæki og stofnanir sér þjónustu Lög-
heimtunnar.
Siðareglur Lögmannafélags fslands
hvað varðar kynningu á starfsemi sem
lögmenn eru aðilar að eru efnislega
mjög svipaðar siðareglum lögmanna-
félaga á Norðurlöndum, enda hafa
reglur íslenska lögmannafélagsins
væntanlega í upphafi verið að verulegu
leyti eftir þeim sniðnar.
Því var það að áður en Lögheimtan
hf. var stofnuð fórum við til Danmerk-
ur, Noregs og Sviþjóðar og könnuðum
rekstur hliðstæðra fyrirtækja, svokall-
aðra „inkasso” fyrirtækja og tengsl
þeirra við lögmenn og lögmannsstofur.
Kom þá fram að þessi fyrirtæki eru þar
yfirleitt rekin í beinum eða óbeinum
tengslum við lögmenn og t.d. í Noregi
hefur það orðið ofan á að lögmanna-
félagið norska viðurkennir viss inn-
heimtufyrirtæki og er þá áskilið að lög-
maður standi að fyrirtækinu. Einnig
kom fram að innheimtufyrirtækin á
Norðurlöndum kynna þjónustu sína í
bæklingum og auglýsingum.
Þegar ágreiningur Lögmannafélags-
ins og Lögheimtunnar um túlkun á
siðareglum félagsins hófst hvöttum við
til þess að stjórn Lögmannafélagsins
aflaði upplýsinga frá systurfélögum
sínum á Norðurlöndunum þar sem
þetta vandamál hafði áður komið upp
og verið á því tekið. Einnig nefnd-
um við að tímabært gæti verið að
kanna hvort setja ætti löggjöf um þessa
starfsemi og ákveða strangari skilyrði
fyrir rekstri innheimtufyrirtækja en er
nú fyrir rekstri fyrirtækja almennt
vegna mikils fjárstreymis sem um slik
fyrirtæki renna og kæmu þá jafnframt
til greina ákvæði um aðskilda reikn-
inga, upplýsinga- og trúnaðarskyldu
starfsmanna og opinbera leyfisveitingu
fyrir slíkri starfsemi. Er Ijóst að hér er
um töluvert vandamál að ræða í ljósi
gildandi siðareglna og má t.d. minna
á að lögmenn auglýsa sig daglega á síð-
um dagblaða í sambandi við fasteigna-
sölur og auglýsa jafnframt á síðum
dagblaða framtals- og skattaþjónustu
sína. Við fögnum því þeim ummælum
formanns Lögmannafélagsins að siða-
reglurnar muni koma til umræðu og
jafnvel endurskoðunar nú á næstunni.
Rétt er að taka skýrt fram, að Lög-
heimtan h.f. býður innheimtuþjónustu
sína án nokkurra skilyrða eða óska um
að undirritaðir lögmenn fari með lög-
fræðistörf fyrir viðkomandi fyrirtæki.
Við viljum ítreka að við óskum eftir
því að geta átt samleið með stjórn Lög-
mannafélagsins og eigum ekki von á
því að stjórn félagsins komi til með að
reyna að standa gegn eðlilegri fram-
þróun og framförum á þessu sviði.”
AUGLÝSING
Tilkynning til íbúa á Akranesi
Vegna gerlamengunar í vatnsbóli Akurnesinga
er fólki ráðlagt að sjóða allt neysluvatn fyrst um
sinn.
Heilbrigðisnefnd Akraness,
Heilbrigðiseftirlit ríkisins.