Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1952, Blaðsíða 188
MAGNÚSMÁRLÁRUSSON:
Pétur Palladíus, rit lians og íslendingar
AM. 696, 4to, fragm. X.
Pétur Palladíus, Sjálandsbiskup, f. 1503, d. 1560, var mikilhæfur kirkjuhöfðingi og
framúrskarandi afkastamikill rithöfundur og þýðandi. Faðir hans var skósmiður. Fékk
Pétur þá viðurnefnið „Plad“, þ. e. skóbót, er hann var unglingur í skóla. Oft er hann
nefndur Peder Plade, eða á latínu Palladlus. 1531—37 var hann við nám í Wittenberg.
En 1537, 34 ára að aldri, var hann gerður að superintendent eftir ábendingu Bugen-
hagens. Hann er því hinn fyrsti biskup í mótmælendasið í Danmörku. Hans beið ærið
starf, þar sem á honum hvíldi að tryggja hinn nýja sið. Hann varð að móta hugmynd-
ir siðskiptamanna í raunhæft og framkvæmanlegt form í kirkjunni og skólunum. A
sex fyrstu árunum í embættistíð sinni tókst honum að ferðast um allt Sjálandsstifti og
vísitera allar 390 kirkjur þar. Á þeim ferðum hans varð hin svonefnda vísitazíubók
hans til, sem er einn af gimsteinunum í dönskum bókmenntum á 16. öld. Þar er að
finna augnabliksmyndir úr þjóðlífinu, sem hvergi er að fá annars staðar. Lýsir sú bók
Palladíusi sem athugulum og kýmni gæddum manni. Auk þessarar bókar samdi hann
og þýddi urmul af bókum og ritlingum, sem verður ekki getið hér að undanskildum
fáeinum, er snerta kirkjusögu vora.
Við sögu siðskiptanna á Islandi kemur hann meir en lítið. Og þegar allt er vendi-
lega athugað, þá kemur í ljós, að telja megi hann einn aðalhvatamanninn útlenda.
Hin helztu beinu afskipti hans munu vera þessi, að því leyti, sem nú er vitað:
I utanför þeirra sendimanna Jóns biskups Arasonar á konungsfund 1542—3 virðast
þeir hafa getað haft einhver mök við Gizur Einarsson, er þá var staddur ytra, og Pétur
Palladíus. Og er þá helzt getið Ólafs Hjaltasonar. Gæti það komið fram í bréfinu til
þeirra Orms Sturlusonar og Péturs Einarssonar, dags. 10. marz 1546, sem prentað var
með fræðakveri hans sama ár, en Matthias Parvus Rosæfontanus hafði þýtt kverið úr
latínu á dönsku til afnota fyrir íslendinga. Fylgir kveri þessu einnig eftirmáli eftir
Palladius.1
Gizur Einarsson hafði hinsvegar kynnzt Palladiusi áður, og fyrsta verk hans, er
komið var til Danmerkur 1542, var að skrifa honum og biðja hann að útvega sér
herbergi í Kaupmannahöfn, enda er hann oft í boði hjá honum um veturinn og vígður