Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1977, Blaðsíða 5
STEFÁN KARLSSON
Kringum
Kringlu
1. Konungsgersemi
10. júní 1975 bar það til tíðinda að Carl XVI. Gustav Svíakonungur,
sem þá var staddur hér á landi í opinberri heimsókn, afhenti forseta
íslands dr. Kristjáni Eldjárn blað úr Heimskringluhandriti því sem
nefnt hefur verið Kringla. Viðstaddir þessa athöfn vóru m. a. dr. Uno
Willers ríkisbókavörður Svía, sem mun hafa átt frumkvæði að þessari
gjöf, Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra og dr. Finnbogi
Guðmundsson landsbókavörður, sem tók við blaðinu til vörslu í Lands-
bókasafni, þar sem það var almenningi til sýnis fyrst eftir að afhend-
ingin fór fram. Blaðið hefur nú fengið safnmarkið Lbs. fragm. 82.
Kringla er elsta og besta Heimskringluhandrit sem leifar eru til af,
en heimkoma Kringlublaðsins sætir ekki aðeins tíðindum sem dýrmæt
gjöf konungsríkis til lýðveldis, heldur einnig vegna þess hve fágæt
konungasagnahandrit eru og verða hér á landi, þrátt fyrir þá miklu
afhendingu íslenskra handrita frá Danmörku, sem fram fer þessi
árin, því að konungasagnahandrit eru í hópi þeirra íslenskra hand-
rita í Danmörku, sem ætlað er að verði kyrr þar í landi. Undantekn-
ing er að sjálfsögðu Flateyjarbók, sem Islendingar tóku við síðasta
vetrardag 1971. Konungasagnahandrit í Landsbókasafni eru fá og
öll ung, fiest gerð á 18. og 19. öld eftir handritum sem enn eru
varðveitt í erlendum söfnum, en í Þjóðskjalasafni (Varia I A) er
brot úr Ólafs sögu helga hinni sérstöku eftir Snorra Sturluson, eitt
blað úr skinnbók frá 14. öld, sem tvö önnur blöð eru til úr í Árna-
safni, AM 325 XI 2f 4to, sbr. eftirmála Jakobs Benediktssonar við
Skrá um skinnblöð í Landsbókasafni Islands.