Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1977, Blaðsíða 97
LANDSBÓKASAFNIÐ 1976
97
STARFSLIÐ Haraldur Sigurðsson bókavörður var sett-
ur deildarstjóri í þjóðdeild safnsins um
óákveðinn tíma frá 1. ágúst 1976, meðan Ólafur Pálmason ynni að
samningu íslenzkrar bókaskrár, áfangans 1534-1844.
Nanna Bjarnadóttir bókavörður var að eigin ósk og með leyfi
ráðuneytisins í hálfu starfi fyrstu fimm mánuði ársins, janúar-maí,
og gegndi Guðrún Magnúsdóttir hálfu starfi þann tíma á móti henni.
Kristján Ólason var skipaður umsjónarmaður myndadeildar safns-
ins frá 1. október að telja.
ALÞJÓÐLEG Brezka bókavarðafélagið efndi með til-
SAMVINNA styrk bandaríska útgáfufyrirtækisins Forest
Press til ráðstefnu í Banbury á Englandi
dagana 26.-30. september, þar sem fjallað skyldi um Dewey-kerfið
svonefnda í minningu þess, að öld var þá liðin frá því er Melvil
Dewey fyrst kynnti þetta flokkunarkerfi, er svo víða hefur síðan verið
notað og mnleitt var t. a. m. í Landsbokasafni um siðustu aldamot, er
Jóni Ólafssyni ritstjóra, þá nýkomnum frá bókavarðarstarfi í Chicago,
var falið að flokka bækur safnsins.
Nanna Bjarnadóttir bókavörður, er nú vinnur að flokkun íslenzkra
rita í þjóðdeild safnsins, sótti þessa ráðstefnu á vegum þess, og voru
þátttakendur frá 15 Evrópulöndum auk margra frá Bandaríkjunum.
Brezka bókavarðafélagið hefur á þessu ári (1977) gefið út í bók
erindi þau, er flutt voru á ráðstefnunni.
Þýzka bókvarðafélagið, sú deild þess, er annast um samskipti við
erlendar þjóðir (Bibliothekarische Auslandsstelle), bauð undirrituðum
að heimsækja nokkur þýzk bókasöfn dagana 10.-21. október.
Komið var í söfn í Hamborg, Kiel, Hannover, Heidelberg, Stutt-
gart, Munchen, Regensburg og Frankfurt am Main. Var förin hið
bezta skipulögð og fyrirgreiðsla hvarvetna með ágætum. Heimsótt
voru gömul og gróin háskólabókasöfn, en einnig eitt hið yngsta í
Regensburg, þar sem risið hefur nýr og öflugur háskóli á síðustu árum.
Komið var í hin svonefndu Landesbibliothek í Hannover og Stutt-
gart og ríkisbókasafnið í Miinchen, Bayerische Staatsbibliothek, þar
sem mestir dýrgripir í bókum og handritum eru saman komnir, og
endað í þjóðbókasafninu, Deutsche Bibliothek, í Frankfurt am Main.
Fróðlegt var að skoða ýmsar nýjar byggingar og sjá og heyra,