Alþýðublaðið - 27.08.1974, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 27.08.1974, Blaðsíða 3
HORNIÐ Austfirðingar kaupa sér gatnagerðavélar Bílasmiðjan hættir og þvotta- hús spítalanna kaupir húsið Austurfell hf. hefur nú keypt gatnageröarvéla'r til nota fyrir sveitarfélög á Austfjöröum. Er hér um aö ræöa útlagningarvél fyrir oliumöl og tvær þjöppur. Eru þessi tæki frá Noregi, keypt af Röd- sand-Gruber, sem olíumölin hefur veriö keypt frá, en þaö fyrirtæki er tengt Elkens-Spigerverket As., sem olfumalarefniö er fengiö frá. Loks hefur Austurfell hf. keypt kantsteinavél frá Bandarikjunum. Kaupverð þessara tækja er um 5.3 milljónir króna. Austurfell hf. er hlutafélag 11 sveitarfélaga á Austfjöröum og 6 einstaklinga. Er hlutaféö 5 milljónir króna, og hlutafé sveitarfélag- anna miöað viö kr. 250.00 á hvern ibúa, og nemur sú fjárhæö, sem þannig myndast, nærri 5 milljónum króna. Vegna niðurskuröar á lánsfé, sem ætlaö var til lagningar á oliu- malarvegum, var horfiö aö þvi ráöi i vor, aö veita þvi fé, sem til um- ráða var, til undirbúningsvinnu fyrir oliumalarlögn næsta sumar. Oliumölin. sem keypt hefur veriö frá RödsandGruber i Noregi, hefur reynst frábærlega vel, og hefur Austurfell hf., aö sögn stjórnarformanns, Jóns Gauta Jónssonar á Fáskrúösfiröi, fullan hug á að semja um kaup á oliumöl frá þvi fyrirtæki, þegar til fram- kvæmda kemur næsta sumar. Bílasmiðian hf. hæt+ir starfsemi sinni 1. október næstkomandi, og húsið að Tunguhálsi 2 selt. Þá hef- ur verið ákveðið, að starfsmönnum fyrir- tækisins gefist kostur á að f á lánuð áhöld og tæki, sem notuð eru til smíði á yf irbyggingum, endur- gjaldslaust vilji þeir setja upp eigin bílasmiðjur. Að sögn Þorbjörns Guöjóns- sonar, forstjóra Bila- smiðjunnar, var ákveðið að hætta rekstri hennar, vegna ýmiskonar rekstrarörðugleika. Rekstrarkostnaður allur hafi hækkað og launakostnaður auk- ist þannig að fyrirsjáanlegt sé, að Bilasmiðjan verði ekki sam- keppnisfær við erlendar verk- smiðjur i bilayfirbyggingum. Rekstrartap hefur þó ekki verið á siðasta ári, að sögn Þorbjörns, heldur hefur reksturinn staðið i járnum, en með nýjum verkefn- um sagði hann, að þessi aukni rekstrarkostnaður mundi skella af fullum krafti á starfseminni. Að sögn Daviðs Gunnarssonar hjá rikisspitölum hafa rlkis- spitalar keypt hluta Bilasmiðj- unnar að Tunguhálsi 2, en áður hafði hluti hússins verið keyptur af Bilasmiðjunni, og reka ríkis- spitalar þar þvottahús fyrir sjúkrahúsin i Reykjavik. Nú er ætlunin að stækka þetta þvotta- hús. Nokkuð er liðið siðan kaupin voru gerð, að sögn Daviðs Gunnarssonar, og átti Bilasmiðjan að rýma húsið á siðastliðnu vori. Var þá samið um nokkur ný verkefni, og samið við hina nýju eigendur hússins um, að ekki þyrfti að rýma það fyrr en 1. október. ,Hættulegasti tími ársins að hefjast7 ,Nú er einhver hættulegasti timi ársins að ganga i garð, hvað slys áhrærir, allra veöra er von og margt fólk á feröinni i berjum, I smalamennsku og rjúpnaveiöitiminn er einnig aö byrja, svo ekki sé minnst á ljósaskiptin I umferöinni”, sagöi Hálfdán Henrysson, full- trúi Slysavarnafélagsins, i viö- tali viö blaðið i gær. A örfáum dögum hafa nú fjórir látist af slysförum, og viröist þvi reynsla undanfar- inna ára þvi miður ætla að endurtaka sig. Á fimmtudagskvöldið lést 83 ára gamall maöur eftir áverka sem hann hlaut i umferöarslysi á Hringbrautinni I Reykjavik þá um kvöldið. Hann hét Grimur Valdimar Kristjánsson, Brá- vallagötu 12, Reykjavík. Þá fórst ungur maöur, Sigur- björn Gunnþórsson, 19 ára, Kambsmýri 6, Akureyri, i bil- slysi skammt frá Akureyri. Þann sama morgun barst Slysavarnafélaginu neyöar- skeyti frá 15 tonna trillu frá Reykjavík, óskari Jónssyni, RE— 12, þegar trillan var austur af Garöskaga og var aö velta. Sögöust mennirnir tveir um borö, ekki ná til björgunarbáts- ins, og skömmu siöar rofnaöi allt samband viö þá, og eru þeir taldir af. Þeir hétu Óskar Egilsson, 21 árs, Breiðageröi 19, Reykjavik og Bjarni Gíslason, 22 ára, Skólageröi 65 Kópavogi. Fokið umferðarmerki olli bílveltu og olía rann út í náttúruna Unnið er að lagfæring- um á olíumalarlagningu á Suðurlandsvegi á móts við Sandskeið, og var bíl- um vísað út á aðra vegi og átti að vera einstefna fyrir umferðina í báðar áttir. Skilti, sem átti að vísa Jrrferðinni að austan mun hafa fokið um, með þeim afleiðingum að bíll einn fór inn á öfugan veg og á móti olíubílnum. Þeir mættust á hæð og sveigði bílstjóri olíubíls- ins þá út i kant, en kant- urinn lét undan og bíllinn valt. Bílstjórann sakaði ekki. Ekki er endanlega Ijóst hversu mikið af olíu rann út i náttúruna, en geymir bílsins tekur um átta þús- und Iftra. Slæm merking vega- vinnumanna varð þess ó- beint valdandi, að stór fullhlaðinn olíuflutninga- bíll frá Olíuverslun (s- lands, BP valt upp við Sandskeið í gærdag, með þeim afleiðingum að tals- vert magn olíu rann úr bílnum og myndaði mik- inn olíuflekk. Þingað um vandamál umferðar t gær var haldinn aö Hótel Loftleiðum i Reykjavik, fund- ur norrænu umferöaröryggis- nefndarinnar. 1 umferöar- öryggisnefndinni eiga sæti tveir fulltrúar frá stofnunum á hverju Norðurlandanna, sem fjalla um umferðarmál. Auk þeirra sátu fundinn embættis- menn frá þvi landi sem fund- urinn er haldinn hverju sinni. Nefndin heldur fund einu sinni á ári, og þar eru lagðar fram skýrslur um starfsemi Umferðarráðanna og fjallað um samræmdar aðgerðir i umferðaröryggismálum. Fyrsti fundur nefndarinnar var haldinn áriö 1996 en Um- ferðarráð gerðist aðili að nefndinni árið 1972. Meðal helstu mála sem tekin verða fyrir á þessum fundi má með- al annars nefna, áhrif hraða- takmarkana á slysatiðni i hin- um ýmsu löndum, tæknilegar nýjungar i gerð hjólreiða- og gangstiga, vélhjólaslys, öku- leyfi- og bráöabirgðaökuskir- teini, fræðslu á forskólaaldri og nú hjálpargögn við umferð- arfræðslu. ,Takk fyrir helgistundina' 6900—2218 skrifar: „Mig langar að biðja ykkur að koma fyrir mig þökkum á fram- færi við séra Sigurð Hauk Guðjónsson. Ég hlustaði á hann flytja hugleiðingu i sjónvarpinu á sunnudagskvöldið og sann- færðist þá enn einu sinni um, að séra Sigurður er einstakur kennimaður. Og ekki bara það, hann er fyrirtaks manneskja — og það er hreint ekki svo mikið um slikt fólk orðið nú á þessum siðustu og verstu timum. Séra Sigurður, hafðu kæra þökk fyrir þessi orð, þau voru svo sannarlega i tima töluð.” Liggur þér eitthvað á hjarta? Hringdu þá í Hornið Þriðjudagur 27. ágúst 1974. o

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.