Alþýðublaðið - 10.09.1977, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 10.09.1977, Blaðsíða 5
hlaMA Laugardagur 10. september 1977 I LISTIR/MEMMIBIG 5 Yfirlitssýning á verkum Alcopleys: A morgun veröur opnuð á Kjar- valsstöðum yfirlitssýning á verk- um bandariska listmálarans Alcopley. betta er stærsta yfir- litssýning sem haldin hefur verið á verkum listamannsins og spannar yfir timabilið 1944-1977. Allseruásýningunnirúmlega 300 verk, oliumyndir, teikningar, vatnslitamyndir og steinprent. 1 mjög vandaöri sýningarskrá sem Listráð gefur Ut i tilefni sýningarinnar segir Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur á þessa leið: „Litið land þarfnast stór- lyndra vina. Alcopley er án efa einn þeirra og i meira en þrjátiu ár hafa tengsl hans, persónuleg og starfsleg, við Island verið ná- in. Sem visindamaðurhefur hann uppörfað hérlenda starfsbræður sina og meðan eiginkona hans, Nina Tryggvadóttir, var á lifi var heimiliþeirraiReykjavik og New York, mörgum Islendingum griðastaður.” Um verk og störf Alcopley segir Aðalsteinn siðar i sýningarskrá: „Alcopley tók á árunum 1940-50 virkan þátt i félagslifi og umræð- um afstrakt-expressionista og var einn af tólf stofnendum „klúbbsins ” og svonefnda á 8da Stræti i New York sem alls staðar Dullarfullur maður sem lifir tvöföldu lífi er getið i bandariskri myndlistar- sögu. Markmiö þessara lista- manna var að skapa nýja banda- riska listsem skyldi grundvallast á frjáisri tjáningu undirvitundar og andans og i þeim megin- straumi hafa verk Alcopleys ver- iðæ siðan og sil næring sem hann þáði frá austurlenskri list hefur einnigauðgað listhans og vikkað. Verk hans eru um lifsorkuna, um tónlist og dans, — um efnið og andann.” Thor Vilhjálmsson kemst þannig að orði um listamanninn i tilefni sýningarinnar: „Vinur minn Alcopley er dularfullur maður, býr yfir mörgu, gæddur fjölþætt- um gáfum sem spanna ýmis svið og leiða hann ihulduheima. Hann lifir tvöföldu lifi og er hvort tveggja rikt af reynslu og ár- angri.” Æviágrip Alcopleys fer hér á eftir: „Fæddur i Þýskalandi. Hefur málað frá tiu ára aldri. Listnám i Dresden 1920-29 en að mestu sjálflærður. Bandarískur rikis- borgari frá 1943. Einnig þekktur undir nafninu Alfred L. Copley sem einn helsti sérfræöingur ver- aldar i blóðrannsóknum. Hefur stundað myndlist stöðugt frá 1939, i Kansas City, New York, Charlottesville, Paris og London. Hefur búið i New York frá 1960. Meðlimur i grafikverkstæði Stanley William Heyter’s „Ateli- er 17” i New York frá 1945-47. Arið 1940 kvæntist hann Ninu Tryggvadóttur. Var einn af tólf stofnendum „The Club” i New York áriö 1949. Félagi i „Americ- an Abstract Artists” og „Groupe Framhald á bls. 10 Lista- og vfsindamaöurinn Alcopley Sovézki leikstjórinn Vladimir Andrejef, minnist íslandsferdar sinnar Hyggjast sýna Strompleik Laxness í Sovétríkiunum ,,Ég varð mjög hrifinn af þessu landi, enda er þar margt áhugavert að sjá og mikil gest- risni” — segir Vladimir Andre- jef, þegarhann minnist Islands- ferðar sinnar. Við sitjum á vinnustofu hans. Veggimir eru klæddir eikarpan- el. Á geysistóru borði liggja handrit, ljósmyndir og nótna- blöð. í einu hiorninu stendur ensk afaklukka og tifar jafnt og þétt. Hérernotalegtað sitjaog tala saman. Vladimir Andrejef er 46 ára. Hann er aöalleikstjóri Jermo- lovaleikhússins, sem er eitt vin- sælasta leikhús Moskvuborgar og staðsett i nágrenni Kreml. Hann hefurleikið á sviði siðan árið 1952. Hlutverk hans i leik- húsi eru orðið 60 og i kvikmynd- um og sjónvarpi hefur hann leikiö 40 hlutverk. Undanfarinn áratug hefur hann kennt við Leiklistarháskóla Rikisins i Moskvu (GITIS). - Andrejef undirritaði samning sem MIR og SSOD gerðu með sérfyrir einuári. Allir vita hvað MIR er, en SSOD er Vináttu- stofnun þjóðanna i Moskvu. Andrejef undirritaði samning- inn fyrirhöndSovétrikjanna, en hann er varaformaður vináttu- félagsins Sovétrikin-lsland. Rætt um leiklist. Við tölum um leiklist. Hvað getur leikstjórinn sagt okkur frá leikhúslifi i landinu sem hann heimsótti? Hannsegir: „maðurfinnurað Islenskt leikhúsfólk hefur tekið á móti áhrifum frá öllum stefn- um sem rikjandi eru I leiklist umheimsins”. Hvað leikrita- gerð snertir segir Andrejef aö þar beri mest á skandinaviskum áhrifum, einkum sænskum. Ahrifa Stanislavskis gætir hins- vegar talsvert i leikstjórn og af- stööu manna til listar yfirleitt. A Islandi hafa verið sett á svið leikrit Antons Tsékhofs, Nikolaj Gogols, Mikaels Bulgakofs og Alexei Arbusofs. Andrejef segist hafa séð sýn- inguá „Náttbólinu” eftir Gorki i Þjóðleikhúsinu iReykjavik. Þaö leikritvarskrifaðáriö 1902og er talið til bestu verka höfundar- ins, enda sigilt og jafnan á leik- skrá leikhúsa um heim allan. „Undraverð sýning” Hvað fannst sovéska leik- stjóranum um þessa islensku sýningu á Náttbólinu? „Þetta var imdraverö sýning og leikararnir sýndu mjög áhugaverö tilþrif. Leikstjórinn var sovéskur, V. Strisjof, og leiktjaldamálarinn sömuleiðis, D. Borovski. Ahorfendur tóku sýningunni mjög vel og Islenskir vinir minir sýndu mér blaöa- dóma þarsem fariö var lofsam- legum oröum um árangur þessa sovésk-Islenska samstarfs.” Andrejef sá einnig sýningu á „Inúk” og minnist hennar með hlýhug. Sú sýning fjallar um ör- lögfrumbyggja Grænlands. Siö- menningin heldur innreið sina i landið en færir þeim enga ham- Halldór Laxness ingju. Tæknilegum nýjungum fylgja vestrænir lifnaðarhættir sem eru þessu fólki framandi og fjandsamlegir. Að sjálfsögðu er vikudvöl á Is- landi ekki nægilega langur timi til aö kynna sérleikhúslif þar til neinnar hlitar, en hún nægir þó til þessaö afla sérsambanda og kynnast þvi helsta sem á boð- stólum er. Anrejef sýnir mér handrit sem liggur á skrifborðinu. Þetta er „Strompleikur” Halldórs Laxness, en þann rithöfund þekkja sovéskir lesendur mæta- vel. Eitt leikrita hans, „Silfur- tunglið”, hefurverið sett á svið i Sovétrikjunum, það var árið 1954. Ekki alls fyrir löngu kom út 158. bindi bókaflokksins „Bóka- saf n heimsbókmenntanna” en i þvivar að finna tvær skáldsögur eftir Laxness: „Sjálfstætt fólk” og „tslandsklukkuna”. Upplag- ið er 303 þúsund eintök. Sovéskt bókmenntafólk minn- ist i ár 75 ára afmælis þessa merka íslenska rithöfundarmeð ýmsum hætti. Vladimir Andrejef talar um leikrit Laxness. Hann segir að þau fjalli um gildismat, um það sem er ekta og það sem er ekki Framhald á bls. 10

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.