Vísir - 14.04.1969, Page 4
VÍSIR . Mánudagur 14. apríl I9G9.
Síðustu 6 mínúturnar urðu ÍR-ingum að falli
ÍR-Iiðið unga virtist lengl vel
ætla að koma f veg fyrir að FH
næði „fullu húsi“ í 1. deild. Hafði
ÍR lengst af yfir, en undir lokin
kom raunverulegur styrkur FH
loks í ljós, — FH jafnaði og komst
vel yfir, vann með 23:19.
Bræðumir Örn og Geir færðu
FH úr 18:18 í 20:18 og nú byrjaði
Hjalti að verja af sinni alkunnu
snilld. Áður en varði var staðan
21:18, en það var eins og engin
vopn bitu framar á-.FH.
Eflaust hafa ÍR-ingarnir ekki
vænzt sigurs yfir langsterkasta
handknattleiksliði okkar, sem FH
óneitanlega er, en hins vegar var
um tíma full ástæða til bjartsýni.
Sigur hefði fært ÍR af hættusvæð-
inu en KR og Valur hefðu ein
verið í fallhættu. Tap ÍR færði Val
hins vegar úr hættu,
Átelja drátt og
eftirlitsleysi
• 24. ársþing Í.B.H. átelur þann
drátt og eftirlitsleysi, sem verið
hefur við byggingu íþróttahússjns.
bví fagnar þingið kosningu sér-
stakrar bvggingarnefndar fyrir hús-
ið, sem nýlega hefur farið fram í
bæiarstjóm.
• 24. ársþing Í.B.H. skorar á
bæjarstjórn Hafnarfjarðar að
standa við á hverjum tíma áætluð
fjárframlög til íþróttahússbygging-
•>rinnar. Telur þingið það alls ó-
viðunandi, að aðeins hluti þess fjár,
sem áætlaður er á fjárhagsáætlun
hverju sinni til hússins, fari til fram
kvæmda við það.
• Þingið vill enn á ný ítreka
boð íþróttahreyfingarinnar til bæj-
arráðs um aðstoð iþróttafólks í
Hafnarfirði, bæði með sjálfboða-
vinnu og fjáröflun, til að koma í-
þróttahúsinU í nothæft ástand. —
Þingið skorar á bæjaryfirvöld að
takast i hendur við íþróttafólkið í
bænum og gera þetta átak að raun-
veruleika.
• 24. ársþlng Í.B.H. skorar 3
aðildarfélög sín, að leggja fram alla
krafta sína til framgangs iþrótta-
hússbyggingunni og vera viðbúin,
ef samkomulag næst við bæjaryflr-
völdin um sjálfboðavinnu íþrótta-
fólks viö húsið.
Hörð átök í leik IR og FH, Ami Guðjónsson ste kkur inn af línu, Vilhjálmur grípur í hann og bún-
ingurinn fer í tætlur, eins og sjá má.
Borgnesingar góðir körf uknattleiksmenn
Síöustu leikir í íslandsmótinu i
körfubolta voru leiknir miöviku-
daginn 9. apríl. Var þá leikið til
úrslita í 2. fl. og KFR og ÍS kepptu
í m.fl. um, hvort liðið sæti áfram
í 1. deild, Sigraði KFR. í 2. fL léku
þrjú lið, Ármann, KR óg Skalla-
SINDRA EINA STÁL- OG IÁRN-
STÁL BIRGÐASTÖÐ LANDSINS
Verksvið stálbirgðastöðvarinnar er að hafa ávallt fyrirliggjandi
þúsundir tonna, samtals mörg hundruð tegundir, stærðir og gerð-
ir af járni og stáli og annarri efnisvöru handa járn-, málm- og
byggingariðnaðinum í landinu.
Leitazt er við að gera járnkaupin í stórkaupum á lægsta verði
frá verksmiðjum í þeim viðskiptalöndum, sem kaupa útflutnings-
afurðir okkar.
Járn-, málm- og byggingariðnaðarmenn, hafa ára-
tuga reynslu af hagkvæmum viðskiptum og gæðum.
SINDRA
STÁL
grímur. Léku allir við alla. Skalla-
grímur sigraði báða keppinauta
sína og og hlaut þvf íslandsmeist-
aratitilinn. Er það gleðiefni, hversu
körfuknattleikur á miklu fylgi að
fagpa í Borgarnesi.
KFR:ÍS 69:61.
Þessi liö höfðu leikið tvívegis
saman í mótinu og ÍS unnið f bæöi
skiptin með litlum mun. Mátti því
búast viö spennandi keppni, sem
einnig kom á daginn. KFR náöi
fljótlega nokkru forskoti, sem ÍS
náði ekki að jafna fyrr en undir
leikslok. En KFR-ingar voru ekki
á þeim buxunum, að gista 2. deild
á næsta keppnisári og tóku góðan
endasprett. Tryggðu þeir sér 8-
stiga sigur .og sendu stúdenta til
sinna gömlu heimkynna.
Þó að stúdentar hafi þannig orðiö
afturreka er ósennilegt, að þeir
sætti sig lengi viö vetursetu í 2.
deild. Liöinu hefur farið mikið fram
í vetur undir stjórn Hjartar Hans-
sonar og hefur uppskeran af þeirri
sáningu enn ekki komið að fullu
fram. Hjörtur verður erlendis á
næsta ári og er ÍS-liöinu því höfuð-
nauðsyn, að fá mann í hans stað.
Þó að íslandsmótinu sé lokið,
munu körfuboltamenn ekki halda
að sér höndum heldur láta þær
standa fram úr ermum og æfa á-
fram. Landsliðið býr sig nú til ut-
anfarar og mörg félaganna hyggja
á æfingar á sumri komanda.
—'ÓÖH -
WILTON TEPPIN SEM ENDAST OG ENDAST
EINSTÆÐ ÞJÓNUSTA! — KEM HEIM TIL YÐAR MEÐ SÝNISHORN. — TEK MÁL
OG GERI BINDANDI VERÐTILBOÐ YÐUR AÐ KOSTNAÐARLAUSU!
NÝ MYNSTUR, PANTIÐ TIMANLEGA. I Daníel Kjartansson . sími 31283
<H>
GÓLFTEPPI UR
ÍSLENZKRI ULL
Verð kr. 545.-
fermetrínn af rúllunni.
HUSGAGNAAKLÆÐI
Mikið úrval
Elltima
Kjörgarði, Sími 22209.
Stutt...
) Handriðið ógurlega
, íþróttahús Seltjamamess „ræn-
ir“ hverjum stórviðburðinum á
fætur öðrum frá íþróttahöllinni í
Laugardal. Virðist húsið ætla að
verða vinsælt þrátt fyrir að þaö
þyki nokkuð út úr allri umferð.
Eitt hefur vakið mikla athygli f
húsinu, en það eru bjálkar þelr
ógurlegir, sem byrgja alla útsýn
eða mestalla útsýn fyrir þeim, sem
sitja á áhorfendapöllum. Munu
þessir breiöu timburlurkar hafa
verið skilyrði af hálfu opinberra
aðila, — enda væri tízkan þannig
í dag að kvenfólk í míní-pilsum
sínum á fremsta bekk gæti ella
truflað bæði leikmenn og dómara
inni á vellinum. Ekki seljum við
söguna dýrar en við keyptum, en
óneitanlega skyggir þetta tréverk
mjög á það sem er að gerast á
vellinum.
9 Reykjavíkuimót á
sumardaginn fyrsta?
Áætlað er að Reykjavíkurmótið
í knattspymu hefjist á Melavellin-
um á sumardaginn fyrsta, en þá
eiga KR og Fram að leika. Mlkil
vinna er við niðurröðun á mótum
sumarsins, en í nefndinni, sem
það annast eiga sæti: Sigurgeir
Guðmannsson, framkv.stjóri ÍBR,
Jens Karlsson, fulltrúi KRR og
Jón Magnússon. KSÍ.
9 „Lítur illa út,“
segir vallarstjóri
Baldur Jónsson vallarstjóri tjáði
blaðinu í gær að skap sitt færi al- '
gjörlega eftir veðrlnu þessa dag-
ana. Fyrir páska hefðu vellimir, '
Melavöllur og Laugardalsvöllur lit- -
ið prýðilega út. Við hretið um pásk- 1
ana og dagana eftir páska hefði
mjög syrt í álinn. Væri útlitið nú
allt annað en gott. „Auðvitað von- .
um við allt hið bezta um viðgang
vallanna næstu daga, en eins og
er verð ég að segja að útlitið er
allt annaö en gott“.
\
l