Vísir - 25.03.1971, Blaðsíða 16
„Lord Brown
in fown"
George Brown, lávaröu
uin utanrfki sráðherra Breta er
kominn til Islands.
Brown er hér til að sitja sem
heiöursgestur á árshátíð Alþýðu-
flokksfélagsins í Reykjavík, og
vænta Alþýðuflokksmenn eflaust
skemmtilegrar veizlu á föstudag-
inn, þvi Brown er frægastur fyrir
sín hvatskeytlegu tilsvör — og
oft var Brown valdur að hneykslis
fréttum f brezkum dagblöðum.
Brown verður gestur á fundi
Stúdentafélags H. í. síðdegis á
föstudag, en fer héðan aftur á laug
ardag. Hann mun halda fund með
blaðamönnum síðdegis í dag.
—GG
IU
TOGARIFYRIR AKUREYRI
SMÍÐAÐURÁ AKUREYRI?
Skorið úr um hvort svo verður / jbessari viku
Við höfum ástæðu til
þess að ætla að skorið
verði úr um það í þess-
ari viku, hvort af því
verður að við smíðum
skuttogara fyrir Útgerð-
arfélag Akureyrar eða
ekki, sagði Gunnar
Ragnars, forstjóri Slipp-
stöðvarinnar í viðtali við
Vísi í gær.
Samningaviðræður um smíði
skuttogaranna á Akureyri
munu hafa gengið treglega að
undanfömu, en ætlunin er nú,
að 6 manna samninganefnd rík-
isins um smíöi á skuttogurum
á Alkureyri komi ti'l samninga-
viðræðna á Akureyri í dag eða
á morgun.
Því ber ekki að neita, að við
stöndum iila að vígi, ef ekki
verður af smíði skuttogaranna,
sagði Gunnar Ragnars. — Hann
sagði, að einnig yrði alltaf erf-
iðara fyrir Slippstöðina að
halda i þá samninga, sem gerð
ir hefðu verið við erlenda að-
ila um kaup á tækjum og efni
til skuttogaranna, eftir því sem
meiri dráttur yrði á samning-
um.
Nú er reiknað með því, að
hver skuttogari muni kosta tæp
ar 170 milljónir króna, eða
svipað og gert var ráð fyrir í
fyrra, þegar samningaviðræður
hófust fyrst. Verðið hefur sem
sé staðið nokkuð í stað þrátt
fyrir aukinn tilfcostnað, en það
stafar af því, aö ákveðið hefur
verið að hafa skuttogarana held
ur minni, en upphaflega var
gert ráð fyrir eða 11—1200
tonn á móti 12—1300 tonnum,
eins og skuttogaramir sem
smíðaðir eru á Spáni verða.
—VJ
HLEKKTIST A FYRIR
VESTAN - K0MIN HEIM
Flugvél frá Flugstöðinni af
Cessna 310 gerð hlekktist á vest-
ur á fjörðum fyrir nokkm síðan.
Skemmdist flugvélin talsvert mikið
eins og sjá má á þessari mynd,
sem tekin var um borð 'i strand-
ferðaskipinu Heklu í gær á leið
til Reykjavíkur.
Cessnan var að koma inn til
lendingar í hálfleiðinlegu veðri,
ísing var og mistókst flugmann-
inum eitthvað að sögn Sigurðar
Jónssonar, forstöðumanns i Loft-
ferðaeftirlitinu.
Enn er ógerlegt að segja til um
hvort vélin er viðgerðarhæf, eða
hvort hún verðUr dæmd ónýt.
—GG
AÐEINS HLUTI LISTANS
VAR DÆMDUR GILDUR
STJÓRN Félags ísl. bifreiðaeig-
enda úrskurðaði nýlega, að að-
eins hluti af framboðslista fuil
trúa á fulltrúaráðsþingi FlB
væri löglegur, eftir að nokkrir
lögfræðingar höfðu úrskurðað
um lögmæti listans.
Þessi listi, sem aðeins var að
hluta dæmdur gildur, var eini fram
boðslistinn til fulltrúakjörs, sem
barst stjóm félagsins fyrir tilskil-
inn framboðsfrest, en það mun
aldrei hafa gerzt í sögu félagsins
að framboðslisti hafi verið borinn
fram, heldur alltaf verið sjálfkjörið.
Það voru fcveir bílstjórar í
Reykjavik, Guðjón Hansen og
Stefán Magnússon, sem gengust
fyrir því, að fá menn á framboðs-
listann. — Við vildum fá breytingu
á uppbyggingu félagsins, þar sem
við teljum þaö skipulagslega vera
illa byggt upp og þannig, að hinir
einstöku félagsmenn í FÍB hafa
lítil sem engin áhrif á gang mála,
sagði Guðjón Hansen í viðtali við
Vísi. — Sambandsleysi stjórnar og
einstakra félagsmanna hefur ein-
kennt störfin undanfarin ár, sem
er alveg ótækt í slíkum hagsmuna-
samtökum, sem FÍB á að vera,
sagði Guðjón. Til þess að fá breyt-
ingar á þessu þarf að breyta lög-
unum,
Stjórn FÍB komst að þeirri niður
stöðu, að meðmælendalisti, sem
fylgdi framboöslistanum gilti að-
eins fyrir fulltrúa fyrir Reykjavik
og verða því menn á lista þeirra
Guðjóns fulltrúar fyrir Reykjavík,
þar sem framboð barst ekki fyrir
aðra menn. Fulltrúar fyrir önnur
umdæm; landsins verða sjálfkjörn-
ir. - VJ
Olíuhreinsunar-
stöð sumþykkt
ALÞINGI samþykkti í gær sem
lög stjómarfrumvarpið um olíu
hreinsunarstöð. Er þar gert ráð
fyrir stofnun undirbúningsfélags
sem stefni að því, að olíuhreins-
unarstöð verði reist hérlendis.
— MH
Menn kaupa bensín
— hvað sem það kostar
Bensinsalan söm og jöfn
„MENN ELSKA bíla sína svo
heitt, að þeir kaupa bensín á
þá, án tillits til þess hvað bensín
lítrinn kostar“, sagði Önundur
Ásgeirsson, forstjóri Olíuverzl-
unar Islands hf., Vísi í morg-
un.
Sagði Önundur, að af samn-
burði á bensínsölu allra oliufélag-
anna 1 janúar 1970 og janúar 1971,
sýndi sig, að hækkunin nú um
áramótin, sem er hin næsthæsta
sem um getur á íslandi, hafi
engin áhrif haft á söluna, ,,það
kippir ekki einu sinni úr sölunni
fyrst á eftir. Menn birgja sig reynd
ar upp daginn áður en þeir eiga
von á hækkun, en það hefur eng
in áhrif á heildarsöluna, í janúar
í fyrra seldum við 3293 tonn af
bensíni á öllu landinu. í ár voru
tonnin 3250 — og sá munur staf-
ar sennilegast af því, að menn
birgðu sig eitthvað upp fyrir ára-
mótin, er þeir höfðu grun um
hækkunina". — GG
Gerir sér ekki grein fyrir
jbv/, crð konan er dáin
Fyrstu yfirheyrslum vegna
morftsins á Seyðisfirfti lýkur í
dag, að sögn Erlends Bjöms-
sonar, bæjarfógeta. Valgarður
Frímann, 41 árs gamall lögreglu
þjónn og tollvörður, Hefur verið
dæmdur í mánaðar gæzluvarö-
hald, grunaður um að hafa í
gærmorgun stungið konu sína,
Kolbrúnu Ásgeirsdóttur, 37 ára,
til bana aö heimili þeirra, Vest-
urvegi 8. Ekki hefur enn veriö
hægt að yfirheyra Valgarð, þar
sem hann virðist ekki með réttu
ráði. Virðist hann ekki gera sér
grein fyrir því, sem gerzt hefur.
Vill hann ekki kannast við að
kona hans sé látin og biður um
að koma til hennar skilaboðum.
Grunur lei'kur á að Valgaröur
bafi ekki verið heill heilsu nótt-
ina á5ur en morðið var framið.
Manni, sem hitti hann á stjóm-
málafundi, sem haldinn var á
Seyðisfirði á þriöjudagskvöldið,
þótti hann eitthvað utan við sig
að tala við hann. Um nóttina
vann Valgarður ásamt Iögreglu-
þjóni bæjarins að rannsókn á
innbroti, sem framiö var í kaup-
félaginu og urðu þeir að hætta
þeirri rannsókn, þar sem Val-
garður virtist eitthvað miður
sín. Virtist hann ekki geta hugs
að rökrétt og var á ýmsan hátt
öðruvísi en hann átti að sér að
vera.
Þá hefur kunningjafólk boriö,
að kona hans hafi lýst áhyggj-
um sínum um heilsu hans dag-
inn áður.
Valgarður fór að sofa um
fjögurleytið um nóttina. Morð-
ið var hins vegar framið ein-
hvern tíma um tíuleytið, að þvi
er likur benda til. Það var
ungur sonur þeirra hjóna, sem
kom að móður sinni 1 útidyr-
unum, bakdyrum, og lá hún I
blóði sínu í dyrunum. Hafði hún
verið stungin mörgum hnifs-
stungum. Blóðugur hnífur stóð
í dyrastafnum.
Slíkur hnífur er talinn hafa
verið í eigu Valgarðs, Er þetta
veiðihnífur, sem hafður er f
slíðri við belti, oddmjór og dá-
Htið uppboginn. Þegar laeknir
kom á staðinn var konan látin.
Valgarður gekk út úr húsinu
á móti lögreglunni, þegar hún
kom á staðinn. Hann var nak-
inn og blóðugur á höndum.
Hann virtist alls ekki með sjálf-
um sér og oröræður hans voru
út í bláinn. Hann var óvopnað-
ur.
Valgarður átti talsvert af
vopnum, enda mikill sportmað-
ur og hafði gaman af veiðiskap.
Átti 'hann meðal annars önd-
vegis byssu, eina að minnsta
kosti.
Börn þeirra hjóna eru sjö og
hið elzta átján ára, var í skóla
á Akureyri. Hin voru öll í skóla
á Seyðisfirði, þegar atburðurinn
átti sér stað. Drengurinn, sem
kom að móður sinni skrapp
heim í löngu frímínútunum í
skólanum klukkan kortér yfir
tíu.
Yfirheyrslur halda áfram hjá
bæjarfógetanum á Seyðisfirði í
dag. Rannsóknarlögreglumenn-
irnir Njörður Snæhólm og Ragn
ar Vignir áttu að fara austur
til aðstoðar við rannsókn máls-
ins í gær, en þeir höfðu ekki
komizt enn í morgun vegna veð
urs. Og ekki var útlit fyrir flug-
veður austur í dag. —,TH